Morgunblaðið - 07.10.1989, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 07.10.1989, Blaðsíða 26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1989 Dalvík: Hóflega bjartsýnn á fulla vinnu til áramóta Segir Gunnar Aðalbjörnsson frystihússljóri KOLI er sá fiskur sem mest er áberandi í vinnslusal fi-ystihúss Kaup- félags Eyfirðinga á Dalvík þessa dagana. Skipin reyna að drýgja kvótann með því að veiða þær fisktegundir sem eru utan kvóta og hafa síðustu daga verið á kolaveiðum. Gunnar Aðalbjörnsson frystihús- stjóri sagði menn hóflega bjartsýna á að unnt væri að halda uppi átta tíma vinnudegi fram til jóla. „Það hefur oft verið ansi mikill barningur undanfarin haust við að halda vinnslunni gangandi og stundum fallið úr einn og einn dagur, en menn eru hóflega bjartsýnir á að geta haldið úti atvinnu fram til jóla án þess að missa niður daga,“ sagði Gunnar. Kvóti Dalvíkurskipanna er langt kominn og því hafa þau að undan- Leikfélag Akureyrar: FRUMSÝNING á Húsi Bernörðu Alba verður hjá Leikfélagi Akur- eyrar eftir viku, laugardaginn 14. október næstkomandi. Fyrsta rennsli sýningarinnar var í gær og tókst með mestu ágætum. Hús Bernörðu Alba er eftir Fred- erico Garcia Lorca, en þýðingu gerði Einar Bragi. Leikstjóri er Þórunn Sigurðardóttir, leikmynd og bún- inga gerir danskur leikmyndateikn- ar og búningahönnuður, Charlotte Clason, en hún hefur um árabil starfað við Konunglega danska þjóðleikhúsið. Lýsingu hannar Ingv- ar Björnsson og um tónlistina sér Pétur Jónasson, en hann er mennt- aður í klassískum gítarleik, m.a. á Spáni. Pétur spilar spánska gítar- tónlist á öilum sýningum, m.a. eftir höfund verksins, Lorca, og spánska tónskáldið De Falla, sem var guð- faðir Lorca. Hús Bernörðu Alba er síðasta leikrit Lorca, en hann var myrtur af spönskum fasistum árið 1936. í leikritinu segir frá ekkjunni Bern- örðu, móður hennar og fimm dætr- um, vinnukonum og fleiri konum, en öll hlutverkin eru í höndum kvenna. í verkinu lýstur saman járnvilja og magnþrungnum brenn- andi ástríðum, en verkið er óður til frelsis og ástar. Með titilhlutverkið, Bernörðu Alba, fer Sigríður Hagalín, gesta- leikari frá LR. Aðrar leikkonur eru: Sunna Borg, María Sigurðardóttir, Guðbjörg Thoroddsen, Ingunn Jens- dóttir, Kristjana Jónsdóttir, Elva Ósk Ólafsdóttir, Steinunn Ólafs- dóttir, Sóley Elíasdóttir, Þórey Að- alsteinsdóttir og Nanna Ingibjörg Jónsdóttir. Ráðsteftia um konur í tækni- og iðngreinum SAMNORRÆNA verkefnið Brjótum múrana og menntamálaráðuney- tið standa fyrir ráðstefhu á Akureyri næstkomandi laugardag, 7. október, um konur sem stunda nám eða störf í iðn- og tæknigrein- um. Ráðstefnan verður haldin í Alþýðuhúsinu, Skipagötu 14, og hefst hún kl. 9.30. Tilgangur hennar er að vekja athygli á þætti kvenna í þessum greinum og þeim möguleikum sem felast í aukinni þátttöku þeirra. Svavar Gestsson menntamála- ráðherra setur ráðstefnuna, en þar á eftir verða flutt erindi. í ljósi sög- unnar er heiti erindis Bjargar Ein- arsdóttur rithöfundar. Anna Krist- veig Arnardóttir nemandi við Póst og símamáláskólann og fulltrúi í stjórn iðnnemasambandsins og Rannveig Rist vélstjóri og verk- fræðingur flytja erindi þar sem fjáll- að verður um hvaða leiðir séu fær- ar til að bæta stöðu kvenna í tækni- og iðngreinum. Valgerður Magnús- dóttir sálfræðingur flytur erindi um starfsval og hvað ráði því. Að loknu matarhléi flytur Bern- harð Haraldsson erindi um skólana og hvernig hlutur kvenna í tækni- og iðngreinum verði bættur og auk- inn. Einnig verður flutt erindi um konur í tækni- og iðngreinum úti í atvinnulífinu og Valgerður Bjarna- dóttir verkefnisfreyja Bijótum múrana flytur erindi sem nefnist Norðurlöndin: átök, tilraunir og árangur. Að því loknu verða um- ræður í hópum, kaffihlé og niður- stöður umræðna kynntar. Að lokum verða almennar umræður og ráð- stefnuslit. Morgunblaðið/Rúnar Þór Halldór Blöndal alþingismaður hefur gefið út fyrsta Bréfið frá þing- manni, og verður því dreift í öll hús I Norðurlandskjördæmi eystra. Á myndinni er Halldór ásamt Jóni Ólafi Sigfússyni verkstjóra hjá Prentverki Odds Björnssonar sem vann að verkinu. Bréf frá þing- manni komið út BRÉFI frá þingmanni, útgefnu af Halldóri Blöndal alþingismanni, verður dreift í öll hús í Norðurlandskjördæmi eystra á næstunni. Halldór segist hafa ráðist í út- gáfu bréfsins þar sem ekkert blað næði til allra í kjördæminu. Bréfið er gefið út á ábyrgð höfundar, án ríkisstyrks og styrks frá Sjálfstæð- isflokknum, en við útgáfuna naut höfundur stuðnings vina og sam- hetja. Bréfið sagði Halldór verða gefið út þegar tilefni gefst til, nauð- synlegt sé fyrir kjósendur að skoð- anir þingmanna liggi fyrir í grund- vallaratriðum. Efni fyrsta bréfsins er helgað sjávarútvegsmálum, fjallað er um stjórn fiskveiða, reynslu af afla- kvóta, samræmingu veiða og vinnslu, auðlindaskatt og upplausn í þjóðmálum. förnu leitað í þær tegundir sem eru utan kvóta, eins og til að mynda í kola. Björgúlfur og Björgvin eru nú að veiða fyrir sölutúra og eiga þeir söludaga í Bretlandi dagana 16. og 18. október næstkomandi. Baldur og Dalborgin leggja hins vegar allan aflann upp heima. Á milli 100 og 110 manns vinna nú hjá frystihúsinu og sagði Gunn- ar að bætt hafi verið við fólki að undanförnu, eða eftir að skóiafólkið fór að týnast út. Morgunblaðið/Rúnar Þór Sigríður Hagalín, sem fer með titilhlutverkið og Ingunn Jensdóttir í hlutverkum sínum í Húsi Bernörðu Alba. Hús Bemörðu Alba firumsýnt efitir viku KFUM og KFUK vígja nýtt félagsheimili fyrr er getið. I Kópavogi fer starfið fram í Lyngheiði 21, í Garðabæ í Kirkjuhvoli, í Hafnarfirði á Hverfis- götu lö, í Keflavík í Hátúni 36, í Sandgerði í grunnskólanum, á Akranesi á Garðabraut 1 og á Akur- eyri í félagsheimilinu í Sunnuhlíð og í Lundaskóla. Æskulýðsstarfið fer að mestu fram með vikulegum fundum þar sem boðið er upp á margvíslegt efni til fróðleiks og skemmtunar. Má sem dæmi nefna að fluttir eru leikþættir, farið í leiki, sýndir margs konar myndir, föndrað, gestir koma í heimsókn o.m.fl. Þá er jafnan KFUM og KFUK í Reykjavík eru um þessar mundir að hefja vetrar- starf sitt og taka jaftiframt í notkun nýtt félagsheimili í Hólahverfi í Efra-Breiðholti. Nýja félagsheimilið stendur við Suðurhóla 35 og verður vígt í dag, laugardag, kl. 14.00. Það hefúr verið í byggingu undanfarin tvö ár og nú er hluti þess tilbúinn til notkunar. Er ætlun- in að he§a þar æskulýðsstarf á næstunni. Húsið er hæð og kjallari og í því verður góð aðstaða til margs konar félagsstarfs, auk þess sem í athugun er að starft-ækja þar tómstundaheimili fyrir skólabörn, þar sem þau gætu dvalið hluta úr degi. Bama- og unglingadeildir KFUM og KFUK eru að hefja starfsemi sína þessa dagana víðsvegar í Reykjavík og víðar. í vetur verður æskulýðsstarf í félagshúsinu við Amtmannsstíg í síðasta sinn, því húsið hefur verið selt til afnota fyr- ir Menntaskó'.ann í Reykjavík. Auk þess verður starf í félagsheimilun- um í Langagerði 1, við Holtaveg á móti Langholtsskóla, í Hlaðbæ 2 í Árbæjarhverfi, við Maríubakka í Breiðholti, í Seljakirkju í Selja- hverfi og í Suðurhólum 35 eins og ii iSBúB Aj ; tsHn Félagsheimili KFUM og KFUK að Suðurhólum 35, Reykjavík. sungið mikið og valdir kaflar úr Biblíunni lesnir og útskýrðir. KFUM og KFUK kynna æsku- lýðsstarfið með því að senda börn- um og unglingum bréf þar sem þeim er boðið á fundi félaganna á hinum ýmsu starfsstöðvum. Ekki ná slík bréf til allra, en nánari upp- Iýsingar fást á aðalskrifstofu félag- anna á Amtmannsstíg 2B. (Úr frcttatilkyiiningu)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.