Morgunblaðið - 07.10.1989, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 07.10.1989, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1989 Minnning’: Jórunn Oddsdótt- ir, fv. símsljóri Fædd 10. júní 1897 Dáin 30. september 1989 Jórunn móðursystir mín andaðist að afliðnu hádegi laugardaginn 30. september, rösklega 92 ára að aldri og södd lífdaga. Fullu nafni hét hún Þórunn Jórunn, en hélt Þórunnar- nafninu lítt á loft. Hún fæddist 10. júní 1897 á Sámsstöðum í Fljótshlíð, dóttir hjónanna Helgu Magnúsdóttur frá Vatnsdal og Odds Oddssonar frá Sámsstöðum. Helga amma mín var af Bergsætt í föður- kyn og dótturdóttir Páls alþingis- manns Sigurðssonar í Arkvörn (var reyndar af Bergsætt líka í móður- ætt móður sinnar), en Oddur afi minn var af Víkingslækjarætt í föð- urkyn og dóttursonur Benedikts Erlingssonar í Fljótsdal. Jórunn átti því að mestu rætur sínar í Rangár- þingi, en að nokkru rakti hún þær til Arnessýslu. Hún var yngst fjög- urra barna Odds og Helgu, sem nú eru öll látin. Þau voru Sigríður, móðir min, f. 1890, Magnús, f. 1892, og Anna Valgerður, f. 1894. Jórunn mun hafa verið árs- gömul, þegar fjölskyldan fluttist úr „blessaðri Fljótshlíðinni“, eins og amma mín sagði stundum með söknuði og angurværð í rómnum, og út á Eyrarbakka, þar sem Oddur afi minn lærði gullsmíði og stund- aði þá iðn alla ævi upp frá því með öðrum störfum. Hann þótti óvenju- legui' listasmiður, svo að ekki áttu börnin langt að sækja hagleik og smekkvísi. Þegar sími var lagður til Eyrarbakka árið 1906 og símstöð opnuð þar, tóku þau að sér rekstur hennar, Helga og Oddur, og hélst símaþjónustan á Bakkanum í hönd- um þeirra og síðar barna þeirra, Magnúsarog Jórunnar, í rösk 60 ár. Snemma þótti Jórunn fríðleiks- og myndarstúlka, vel að sér til munns og handa, glaðvær og glæst í fasi, hvar sem hún kom, höfðing- ieg og orðvís. Hún var fríð í and- liti, hávaxin, grannvaxin og bein- vaxin. Ekki er mér grunlaust um, að hún hafi fengið ófá hjörtu ungra manna til að slá örar, þar sem hún kom á manhamót á æskudögum sínum og jafnvel langt fram eftir árum. Árni prófessor Pálsson lýsti henni einu sinni fyrir mér með þess- um orðum: „Hún var „mulier spect- abilis““ (þ.e. stórglæsileg kona), og átti þá ekki í svip sterkari orð. Þó fór nú svo, að hún giftist aldrei og eignaðist enga afkomendur um ævina. Lengi vann Jórunn jöfnum hönd- um á heimili foreldra sinna og við símavörslu, en símstöðin var eigin- lega á heimilinu. Jafnframt greip hún í að læra gullsmíði hjá föður sínum og varð vel fær í þeirri iðn. Köku- og matgerðarlist lék í hönd- um hennar og allar veitingar voru bornar fyrir gesti af rausn og glæsi- leik. Þeim brag hélt hún alla ævi. Henni fannst hún aldrei gera nógu vel við gesti sína, og það vai' engu líkara en hún ætti alltaf tilbúna veislu í búrinu, hvenær sem óvænt- an gest bar að garði. Arið 1938 brá hún á það ráð að flytjast til Akureyrar og fara að vinna á landsímastöðinni þar, og næstu árin bjó hún á heimili for- eldra minna. Akureyrarárin urðu 9, en þegar Magnús bróðir hennar lét af starfi póst- og símstjóra á Eyrarbakka árið 1947 og fluttist búferlum til Reykjavíkur, hvarf hún aftur til Eyrarbakka og tók við starfi hans þar. Þeirri stöðu gegndi hún með heiðri og sóma um 20 ára skeið eða þangað til hún hafði náð hámarksaldri opinberra starfs- manna. Þá keypti hún sér litla íbúð í Reykjavík og fluttist þangað. Þar hefir Jórunn átt heima síðan, allt þangað til heilsu hennar tók að hnigna svo fyrir fáum árum, að hún gat ekki lengur verið ein síns liðs. Þá fór hún á sjúkrahús Hvítabands- ins, þar sem hún naut frábærrar aðhlynningar til æviloka. Þó að Jórunn væri mikill meist- ari eldhússins, áttu helstu áhuga- mál hennar þó ekki aðsetur í þeirri vistarveru. Yndi hennar og eftirlæti voru hannyrðir af öllu tagi og hveiju nafni sem nefndust, en þó allra helst útsaumur. Allt lék þetta í höndum hennar, pijón, hekl, flos, krosssaumur og kúnstbróderí og hvað þeitta heitir allt saman. Hug- kvæmni hennar átti sér lítil tak- mörk, og hún batt sig engan veginn við uppskriftir eða forskriftir, held- ur lét eigin smekk ráða litum og línum. Hún var óvenjulega næm á liti, sá í hendi sér, hvaða litir áttu við og hvaða litir áttu best saman. Handbragðið var óaðfinnanlegt, • • Ogmundur Jóns- son — Kveðjuorð Fæddur 6. ágúst 1917 Dáinn 1. október 1989 Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír ' deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (úr Hávamálum) Um leið og við vottum aðstand- endum samúð, þökkum við fyrir þau ár sem við áttum með Ögmundi í húsi hans að Hringbraut 32 í Hafn- arfirði. Þessi tími hefur verið stelpunum okkar mikils virði, þær hafa hér lært að bera virðingu fyrir fullorðnu fólki. Það er betra veganesti en okkar kynslóð á í malpoka barna sinna. Það er í dag, laugardaginn 7. október, sem útför Ögmundar Jóns- sonar er gerð frá Kotstrandarkirkju Ölfusi. Blessuð sé minning hans. Margrét Sigmundsdóttir smekkvísin óbrigðul og kröfurnar harðar, sem hún gerði til sjálfrar sín um vandvirkni og samsvörun. Verkin, sem frá henni komu og eftir hana liggja eru öll sannkallað augnayndi og mörg hreinustu lista- verk og ættu helst heima á söfnum. Og svo var hún ekki fjarska lengi að þessu. Hún vissi nefnilega, hvernig hluturinn átti að vera og hvernig hún ætlað að hafa hann, áður en hún byijaði á honum. Hún hafði ekki aðeins smiðshendur, hún átti líka smiðsauga og heildarsýn listamannsins yfir verk sitt. Þetta er víst stundum kallað náðargáfa. Hún var einnig vandlát á flíkur og fatnað, valdi sér kjóla og annan ívenifatnað af smekkvísi, en án sundurgerðar og pijáls. Flíkurnar urðu ekki aðeins að fara vel, þær urðu líka að eiga vel saman. Hún kunni ekki við sig, nema hárið væri vel greitt, neglurnar lakkaðar og hún bæri snyrtimennskuna með sér, hvar sem á væri litið. Þetta vildi hún kappkosta allt til efsta dags, og það var gert og ekki spurt um aldur, hvort heldur hún var tvítug eða á tíræðisaldri. Reisn sinni og menningarlegu yfirbragði skyldi hún halda og teinrétt skyldi hún ganga, meðan lífsandinn yrði dreg- inn, og svo varð. Hún vildi heldur aldrei tala um aldur sinn, viður- kenndi ekki neinn ósigur fyrir Elli kerlingu, leiddi þá hugsun hjá sér. Ég man fyrst eftir Jóu frænku, þegar ég kom lítill drengur til ömmu og afa á Eyrarbakka í fylgd með móður minni. Margt nýstárlegt bar fyrir augu á heimili þeirra, sem ég hafði aldrei séð áður. Hvíta fjala- gólfið í eldhúsinu var sandskúrað, vatnið var sótt í brunn framan við húsið og á kvöldverðarborðinu voru réttir, sem ég hafði ekki vanist, eins og söl og súr hvalur að ógleymdum hveitiflatkökunum hennar Jóu. Ég hefi aldrei bragðað aðrar eins hveitikökur. Amma sat langtímum saman við símaborðið, og ég undraðist, að hún skyldi allt- af rata á rétt göt í því, þegar hún var að gefa samband. Svo var smíðaverkstæðið hans afa, fullt'af furðulegustu smíðatólum, og sum þeirra hafði hann smíðað sjálfur. Stundum fórum við afi saman í langa göngutúra um Bakkann, og hann sýndi mér merkilega staði, sagði mér örnefni og sögur tengdar þeim og fræddi mig um jarðmynd- anir. Stundum sýndi hann mér gamlar bækur, sem hann átti, jafn- vel Skálholtsprent. Einn morguninn horfðum við á það út um gluggann á suðurloftinu, þar sem afi og amma sváfu, að feikimikill vindill sveif um loftið yfir haffletinum frá vestri til austurs. Það var loftfarið Zeppelín greifi. Svo var íjaran og brimgarð- urinn, gamla Vesturbúðin og Húsið og sandgarðarnir gjöfulu, Laugi kaupmaður, Tóta Gests og Stebbi Ingvars, félagi minn, sem var alltaf að springa af hlátri. Þetta var heim- urinn, sem ég fékk að líta og lifa í nokkra sumarparta á Bakkanum. Og allir voru góðir við mig og létu alla skapaða hluti eftir mér, ekki síst Jóa frænka. Hún lánaði mér jafnvel hjólið sitt gegn því, að ég færi ekki glannalega. Auðvitað álp- aðist ég ’ á hjólinu niður á stein- bryggjuna og af þvi að hún var óslétt, hrökk pumpan af hjólinu, skondraði eftir bryggjunni og síðan út af henni og hvarf í hafið. Upp- burðarlítill og óupplitsdjarfur drengur leiddi hjólið heim og til- kynnti um ófarirnar, bjóst við hinu versta. En viti menn, engar ávítur, ekki einu sinni umvandanir, aðeins var mjúkum lófa strokið um vang- ann og sagt, að sjálfsagt fyndum við pumpuna, þegar félli út. Mér þótti langt að bíða útfallsins, en þegar loksins var orðið nógu lág- sjávað, kom pumpan í ljós. Þá var þungum steini létt af litlu hjarta, ég gat skilað pumpunni óskaddaðri. Joa frænka tók við mig ástfóstri þegar í bernsku minni, og svo hélst alla tíð síðan. Alltaf vildi hún vera að gera mér eitthvað gott og ekki aðeins mér, heldur líka konunni minni og börnunum okkar, eftir að við stofnuðum heimili. Aldrei fórum við svo til Reykjavíkur, að við reyndum ekki að heimsækja hana okkur til hressingar, og stundum kom hún norður og var hjá okkur nokkra daga. Alltaf var sömu elsku- seminni og manngæðunum að mæta frá hennar hendi. Það var eins og við værum börnin hennar sjálfrar, en um leið var hún okkur bæði vinur og félagi, þótt aldurs- munurinn væri nokkur og við vær- um af öðrum kynslóðum. Það kom einhvern veginn ekki að sök. En nú eru orðin þáttaskil. Þau voru reyndar þakkarefni, úr því sem komið var. Hitt er líka þakkarefni að hafa átt svona góða frænku. Við Ellen sendum henni hjartans þakklæti fyrir alla hennar ástúð í okkar garð fyrr og síðar og biðjum henni blessunar á nýjum leiðum. Sverrir Pálsson Á TVÖFALDUR 1. VINNINGUR íkvöld handa þér, ef þú hittír á réttu tölumar. Láttu þínar tölur ekki s vanta í þetta sinn! !

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.