Morgunblaðið - 07.10.1989, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 07.10.1989, Blaðsíða 21
Berlín: Velja eft- irmann Karajans Berlín. DPA. Hljóðfæraleikarar Fílharm- oníusveitarinnar í Berlín velja sér nýjan aðalstjórnanda í stað Herberts von Karajans á morg- un, sunnudag. Valið stendur milli átta manna sem sljórn hljóm- sveitarinnar mun leggja til að gert verði upp á milli. Talið er að líklegastir til að ná kjöri sé annar hvor bandarísku hljómsveitarstjóranna Lorin Maazel eða James Lavine. Maazel hefur verið tónlistarstjóri við óperuna í Vestur-Bérlín og aðalstjórnandi út- varpssinfóníunnar þar í borg. La- vine þykir eiga góða möguleika á að hljóta starfann vegna góðra sam- banda við útgefendur á hljómplöt- um og diskum. V-Þýskaland: Deila um bíla- stæði leiddi til morðs Hamborg. DPA. EINN maður lést og (jórir særðust eftir harðvítugar deilur milli tveggja nágranna um bílastæði í vestur-þýska bænum Neumiihle í fyrra- dag. Frá þessu var skýrt í dagblaðinu Bild Zeitung. Atvikið átti sér stað þegar 35 ára gömul kona að nafni Anna B. lagði bíl sínum fyrir framan hús nágrannakonu sinnar Marinu í bænum Ne- umúhle. Sjónarvottar sögðu að Mar- ina hefði hlaupið út á götu, löðr- ungað Önnu og krafist þess að hún færði bílinn umsvifalaust úr stæðinu. Við því varð Anna ekki og kvaddi Marina þá vini og vandamenn á vettvang. Struns- aði fylkingin að húsi Önnu vopnað garðhrífum, exi og sverði. Þar eggjaði fólkið Lud- wig, eiginmann Önnu, að koma út úr húsinu. Ludwig mun hafa orðið við áskoruninni en birtist vopnaður og hóf skothríð. Vitni sögðust hafa heyrt átta skothvelli. Mar- ina lét þar lífið og fjórir úr hennar liði voru fluttir alvar- lega særðir í sjúkrahús. Ludwig viðurkenndi síðar fyrir lögregl- unni að hafa skotið á fólkið. Hressileg hljóðritun með kömum Liósbroti rílADELTlA FORLAG 91-20735. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1989 21 Kommúnistaleiðtogar á bjórflöskum UNGVERSK kona hejdur á flösku af nýrri bjórtegund er nefnist Pró- féta, eða Spámaður. Á flöskunni eru myndir af íjórum forystumönnum ungverska kommúnistaflokksins. í ráði er að taka upp fjölflokkakerfi í Ungveijalandi á næsta ári og fá þá fleiri flokkar en kommúnistaflokkur- inn að taka þátt í kosningum - í fyrsta sinn frá því kommúnistar kom- ust til valda í landinu seint á fimmta áratugnum.___________________ H' H H H H H H H H H H H HOTEL MANAGEMENT , TOURISM - IATA/UFTAA SCHOOL in SWITZERLAND Námskeið sem fara fram á ensku - frá 9 mánuðum til 2ja ára, Prófskirteini i lok námskeiðs. 30 ára velgengni. Mr. Alan Semonite, framkvæmdastjóri HOSTA, býður ykkur hjartanlega velkomin ó HOSTR upplýsinga- og kynningarnámskeið um HÓTELREKSTUR OG FERÐAMANNAIÐNAÐ mánudaginn 16. október kl. 20.00, Mótel Holti, Rcykjavík. Allir sem áhuga kunna að hafo velkomnir. Ef þú hefur áhugo en ekki tök á aá mæta ó nómskeiðið skrifaðu þá til okkar og fáðu nánori upplýsingor: HOSTA HOTEL & TOURISM SCHOOL, 1854 D Leysin, Switzerland. Simi 9041-25-341814, Telex 456 347 hos ch, Telefax 9041-25-341821. hhhhhhhhmhhhhhhh VINNINGSLIÐIÐ FRÁ MAZDA.. loon 3NYIR MAZDA 323!! ALLIR MEÐ 16 VENTLA VÉL OG VÖKVASTÝRI! „Allt er þegar þrennt er“ segir máltækió og má þaö til sanns vegar færa, því viö kynnum 3 mismunandi gerðiraf MAZDA 323: COUPE, SALOON og FASTBACK, nýjar frá grunni! SYNINGARBILAR ASTAÐNUM Opið laugardag frá kl. 12-16 Það óvenjulega er, að gerðirnar eru nú misstórar og hafa gjörólíkt yfir- bragð, útlit og eiginleika og er nánast ekki eitt einasta stykki í yfirbygging- um þeirra eins. • Helstu nýjungareru: Stærri og rúmbetri en áður — 16 ventla vélar: 77, 90 eða 140 hestöfl — ALLAR gerðir með vökvastýri — GLX gerðir með rafmagnsrúðum og læsingum. • Vegna hagstæðra samninga verður M AZDA 323 á einstaklega góðu verði. • Dæmi: 3 dyra COUPE 4 dyra SALOON 1.6L 16 5 dyra FASTBACK 1.6L 16 1.3L 16 ventla ventla90hö5gíram/vökva- ventla90hö.5gíram/vökva- 77 hö. 5gíram/ stýri, rafmagnsrúðum, raf- stýri, rafmagnsrúðum, raf- vökvastýri magnslæsingum og fl. magnslæsingum og fl. Kr. 698.000 Kr. 849.000 Kr. 862.000 5 dyra Fastback 3 dyra Coupe Fyrsta sending er á ieiðinni til landsins — SVO ÞAÐ MARG- BORGAR SIG AÐ BÍÐA EFTIR MAZDA ÞVÍ NÚ BÝÐUR ENG- INN BETUR!! BÍLABORG HR FOSSHÁLSI 1, S. 68 12 99

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.