Morgunblaðið - 07.10.1989, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 07.10.1989, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1989 11 I i ■ ' . i'' Helgi Hálfdanarson: HUGLÆGI í Morgunblaðsgrein 5. þ.m. fjallar Þorsteinn Gylfason um orð- in „huglægt matf‘ og notkun mína á þeim. Honum þykir ég naumast hafa nógu fast undir fótum, þegar ég kalla huglægt það mat á bók- um, sem kallað yrði subjective á ensku, og bendir þá á fleiri en eina merkingu sem kæmust fyrir í hvoru orðinu um sig. Nú eru dæmi þess á hveiju strái, að tvö orð, úr sínu málinu hvort, skarist um merkingu, þótt ekki séu þau alger samheiti. Og þegar merking orðs er sundurleit, hlýtur efnið úr að skera, hvað við á hveiju sinni. Ég kallaði mat á bókum til verðlauna haldlaust vegna þess. að það hlyti jafnan að vera ein- ungis huglægt. Víst er það rétt hjá Þorsteini, að þá hafði ég í huga merkingu enska orðsins subjective að því leyti sem hún skarast við merkingu hins íslenzka orðs huglægur. Að þessu finnur hann og segir að þá hugsi ég á ensku. Aldrei hélt ég það ætti fyrir mér að liggja að fara að hugsa á ensku; enda kann ég allt of lítið í því fagra og göfuga tungumáli til að falla í þá freistni, svo er guði fyrir að þakka. En þá er rétt að athuga þessi tvö orð hvort uin sig. Ég hef í höndunum enska orða- bók, sem segir að subjective merki í fyrsta lagh „Of or relating to the subject; hence, revealing per- sonal temperament or reactions; as, a subjective judgment.“ Síðan eru talin upp nokkur merkingar- afbrigði-, hvei-t öðru skyld; það síðasta: „Such as it seems to be to the individual, rather than as it is in itself." Hvernig hefur svo enska orðið subjective og samsvarandi orð í öðrum grannmálum verið þýtt á íslenzku? Sigurður Örn Bogason tilgrein- ir í orðabók sinni (1976) fyrst merkinguna: huglægur, hugrænn. í orðabók Arnar og Órlygs (1984) er fyrst talin merkingin: huglæg- ur. I orðabók Jónasar Jónassonar (1896) er danska orðið subjektiv þýtt: huglægur, hugrænn; frum- lægur. Sá ágæti málfrömuður Freysteinn Gunnarsson þýðir í orðabók sinni (1926) sama orð á sama veg. Jón Ófeigsson þýðir þýzka orðið subjektiv. persónuleg- ur; einhliða; huglægur, hugrænn (1935). Þórhallur Þorgilsson þýðir franska orðið subjectif. huglægur, hugrænn (1953). Látum nægja. En hugum að því, hvaða skiln- ing íslenzkar orðabækur leggja í orðið huglægur. Sigfús Blöndal þýðir á dönsku í fyrsta lagi: subjektiv og tekur dæmi frá 19. öld: „eigi aðeins huglæg heldr hlutlæg sannindi.“ Auk þess hefur hann illu heilli merkingarnar: teoretisk og ab- strakt. I orðabók Menningarsjóðs (1985) segir í fyrsta lagi: „sem gengur út frá skynjun eða hug- mynd sem frumatriði“ og auk þess m.a.: „sem miðast við huga eða hugsun: huglæg sannindr, sem tekur meira mið af eigin hugmyndum og kenndum en ytri veruleika (subjektiv) andr. hlut- Iægui“. Ekki get ég á það fallizt. að ég hefði fremur átt að nota í ummælum mínum annaðhvort klasturyrðið óhlutlægur eða ein- staklingsbundinn. Þorsteinn lætur að því liggja, að í raun sé allt mat huglægt, einnig það mat sem kallað er hlutlægt; og svo sem hann gerir grein fyrir huglægu og hlutlægu mati, liggur við að það megi til sanns vegar færa. Þar held ég samt að honum sjáist yfir merg málsins, sem ég tel að sé þessi: Huglægt mat er persónuleg afstaða, háð viðhorfum, kenndum og einkasmekk, atriðum sem aðr- ir geta ekki prófað og ekki er unnt að færa sönnur á. En hlut- lægt mat er reist á tómlátri athug- un, þar sem hlutlausum rannsókn- ar-aðferðum og mælitækni verður við komið. Hægt er að vega lóðin, sem aflraunamenn lyfta, og mæla tíma og vegalengd hlaupara. Engar einka-hugmyndir um færni þeirra og verðleika til launa skipta þar neinu máli. Hið hlutlæga tekur öll ráð af vilja einstaklings, við- horfum hans, tilfinningum og per- sónulegum smekk; og einnig af hlutdrægni hans, ef því væri að skipta. rj A ára afmæli. Næstkom- í U andi mánudag 9. októ- ber, er sjötugur Kristinn B. Gíslason, fv. oddviti, Skúla- götu 20, Stykkishólmi. Hann er frá Rauðseyjum á Breiðafirði, en þar bjuggu foreldrar hans frú Magðalena Kristjánsdóttir og Gísli Berg- sveinsson bóndi. Kona Krist- ins er Sólveig Sigurðardóttir frá Gvendareyjum. Á morg- un, sunnudag, taka þau á móti gestum á heimili dóttur sinnar Skúlagötu 11 þar í bænum kl. 17—20. A A ára afinæli. í dag, 7. ÖU október er sextugur Þengill Jónsson, Núpasíðu 6F, Akureyri. Kona hans er frú Sigríður G. Sigurðardótt- ir. Þau eru að heiman i dag. fT A ára afinæli. Á morgun, OU sunnudaginn 8. þ.m., er fimmtug frú Guðmunda J. Sigurðardóttir, Kirkju- bóli í Nauteyrarhreppi. Eig- inmaður hennar er Kristján Steindórsson bóndi þar. Þau eru stödd hér í Reykjavík og taka á móti gestum í félags- heimili tannlækna í Síðumúla 35 milli kl. 17 og 20 í dag, laugardag. ✓ A markaði eldhúsinnréttinga tekur HTH enn af skarið Þetta færðu fyrir 135.000 kr. HTH 3200 er ný eldhús- innrétting úr lútuðum aski. Vönduð gœðaframleiðsla ó viðróðanlegu verði. Við veitum ráðleggingar byggðar á reynslu og kappkostum að viðskipta- vinurinn fái góða þjónustu. HTH -innrétting eykur verðgildi íbúðarinnar og er því kjörin fjárfesting fyrir framtíðina. Skynsamleg fjárfesting I? Innréttingahúsið Háteigsvegi 3, Reykjavík. Sími 27344. Opið á laugardögum. HTH. Nýir tímar. Nýjar hugmyndir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.