Morgunblaðið - 07.10.1989, Page 19
MORGUNBLÁÐIÐ LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1989
19
Kanadadagar á Islandi
NÆSTKOMANDI mánudag- gengst sendiherra Kanada, R.H. Graham
Mitchell, fyrir ráðstefnu á Hótel Sögu um nýja möguleika í milliríkja-
viðskiptum og um aukin viðskipti milli Kanada og íslands. Jafnframt
verður kynnt framleiðsla á annað hundrað fyrirtækja í Kanada og
fiilltrúar um tuttugu fyrirtækja frá Kanada vérða til viðtals á „Mar-
ket Place“ á Hótel Sögu eftir hádegi á mánudaginn til þess að gefa
upplýsingar um viðskipti.
A ráðstefnunni munu verða flutt
þrjú erindi. Mr. Gary Scott, Deputy
Director Western European Trade,
utanríkisráðuneyti Kanada, mun
ræða um „Free Trade between
Canada and USA“, Ólafur Davíðs-
son, framkvæmdastjóri FÍI, for-
maður ráðgjafanefndar EFTA, um
„Framvinduna innan EB og EFTA
og nánara samstarf" og mr.
Andrew de Schulthess, Special Ad-
viser, Investment Counsellor
Canadian High Commission London
um „Investment and Joint Ventures
in Canada". Umræður og fyrir-
spurnir verða milli erindanna.
Eftir hádegið á mánudag verða
fulltrúar 20 fyrirtækja í Kanada
ásamt viðskiptafulltrúa sendiráðs
Kanada, Roger Chan, til viðtals á
2. hæð Hótel Sögu. Þangað geta
þeir, sem óska viðskiptasambanda
í Kanada, snúið sér milli klukkan
13.00 og 16.30.
Mjög vaxandi áhugi er fyrir
auknum menningarlegum sam-
skiptum milli Kanada og íslands.
Hingað er komin þekkt söngkona,
frú Heather Ireland, frá Vancouv-
er, BC, og mun hún koma fram í
sjónvarpi á Stöð 2 og í Ríkissjón-
varpinu síðar í vetur. Hún heldur
hljómleika að Gerðubergi í Breið-
holti á sunnudagskvöldið klukkan
20.30 og er öllum heimill ókeypis
aðgangur meðan húsrúm leyfir.
Væntanlega mun söngkonan einnig
halda hljómleika á Akureyri síðar
í þessum mánuði. Heather Ireland
er mezzó-sópran og hefur sungið
mikið í útvarp og sjónvarp í Kanada,
með Winnipeg Symphony Orch-
estra, C.B.C. Orchestra, Vancouver
Heather Ireland, söngkonan, sem
syngur í Gerðubergi sunnudags-
kvöld.
óperunni o.m.fl. og efnt til margra
hljómleika í Kanada og víðar.
Kynning' á bókmenntum hjá
Eymundson
í sambandi við „Kanada daga“ á
Islandi efnir Almenna Bókafélagið,
Bókaverzlunin Sigfús Eymundsson,
til kynningar á bókmenntum
Kanada, sem hefst nk. mánudag.
Utanríkisráðuneyti Kanada hefur
boðið rithöfundinum, M.D. Valgard-
son, til íslands og mun hann opna
bókasýningu á ritum Kanadamanna
í Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds-
sonar kl. 10. f.h. á mánudaginn.
Klukkan 15 mun hann lesa æur
verkum sínum. Vestur-íslenski rit-
höfundurinn William D. Valgardson
er mjög þekktur rithöfundur sem
nýtur sívaxandi vinsælda í
Ameríku, og hefur hlotið margví-
slega viðurkenningu fyrir ritstörf
sín. Ein af smásögum hans, Blóð-
rót, kemur út í íslenskri þýðingu á
mánudaginn. Rithöfundurinn er ís-
lendingum að góðu kunnur m.a. af
kvikmyndum, sem gerðar hafa ver-
ið eftir verkum hans og sýndar
hafa verið í íslenska Ríkissjónvarp-
inu. Valgardson er einnig prófessor
í „Creative Writing" við University
of British Columbia í Vancouver og
mun flytja fyrirlestur um þetta efni
við Háskóla íslands meðan hann
dvelzt hér.
William D. Valgardson telst með
réttu höfuðrithöfundur „Nýja ís-
lands“ nútímans, en á þessu ári er
öld liðin frá því er Stephan G.
Stephansson nam land í þriðja sinn
vestan hafs og settist að nærri
smábænum Markerville í Alberta-
fylki í Kanada. Þessa dagana kem-
ur út bókin „Vestur í frumbýli“,
útgáfa dr. Finnboga Guðmundsson-
ar. í bókinni eru kvæði, bréf og
erindi Stephans G. frá árinu 1891,
Rósa Benediktsson: Foreldrar mínir
og 50 stökur Stephans G. Stephans-
sonar.
Á Hótel Sögu verða næstu daga
sýnd tvö myndasöfn, „Insuvit“ og
„People of the Cedars", sem eru
eign utanríkisráðuneytis Kanada.
Laugarásbíó endursýnir nú um
helgina kvikmyndina „Hnignun
ameríska heimsveldisins" í tilefni
Kanadískra daga í Reykjavík.
Myndin lýsir vinafólki, háskóla-
borgurum, sem virðast öll fallin í
gryíju sjálfselsku nútímans. Myndin
er dæmi um góðar myndir, sem
koma frá Kanada og fór fram hjá
allt of mörgum, þegar hún var fyrst
sýnd hér fyrir nokkru.
(Frcttatilkynning)
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sveinn Hjörleifsson, Þorkell Eiríksson yfírþjónn og Sturla Péturs-
son.
Naustið 35 ára:
Tilboðsmatseðill í há-
deginu og á kvöldin
VEITINGAHÚSIÐ Naustið verður 35 ára þann 6. nóvember næst-
komandi. Af því tilefni býður Naustið mat á tilboðsverði frá næstkom-
andi sunnudegi til afmælisdagsins. Sérstakur tilboðsmatseðill verð-
ur, annars vegar í hádeginu virka daga og hins vegar á kvöldin frá
sunnudags- til fimmtudagskvölds, og verður skipt um matscðilinn
vikulega. Á afmælisdaginn sjálfan verður síðan haldið upp á af-
mælið með hófi.
Sturla Pétursson og Sveinn Hjör-
leifsson hafa rekið Naustið undan-
farin tvö ár og hafa leigusamning
í nokkur ár enn. Lögðu þeir áherslu
á að þeir rækju veitingahúsið með
sama sniði og verið hefði frá upp-
hafi og hefðir Naustsins í heiðri
hafðar. Þeir sögðu að eigenda-
skipti á þeim húsum sem Naustið
er í hefði engin áhrif á rekstur
veitingastaðarins.
Núverandi rekstraraðilar hafa á
undanförnum tveimur árum endur-
bætt húsnæðið, einangrað það og
endurbætt eldhúsið. Þeir sögðu
hins vegar að engu hefði verið
breytt í veitingastaðnum sjálfum.
Ekki væri ástæða til þess vegna
þess hversu vel hefði verið staðið
að innréttingu staðarins í upphafi.
Þeir innréttuðu hluta hússins upp
á nýtt og reka þar veitingastaðinn
Geirsbúð. Þá vinna þeir að því að
setja upp veitingasal í kjallara
Naustsins. Stefna þeir að því að
opna þar sal sem tekur 160 manns
fyrir áramót.
Tilboðsmatseðiliinn í hádeginu
verður tvíréttaður og kostar matur-
inn 500 krónur. Verður hann í gildi
mánudaga til föstudaga fram að
afmælisdegi Naustsins. Kvöldmat-
seðillinn verður fjórréttaður og
kostar maturinn 1.490 krónur.
Hann gildir frá sunnudagskvöldi
til og með fimmtudegi.
DA90
Sýnum allar
geróir af LADA bílum
helgina 7. og 8. október
frá kl. 10-17
Mikið úrval skrásettra bíla
til afhendingar strax.
Tökum gamla LADA bílinn upp í nýjan
og semjum um eftirstöóvar.
—------iKto "
Veitingar verða á boðstólum.
tAD*
góður kostur í bílakauputtt
BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR HE fl
- Ármúta 13 - 108 Reykjavík - & 681200