Morgunblaðið - 07.10.1989, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. OKTOBER 1989
29
Hjónaminning:
Sveinn Jónsson
Eyrún Guðjónsdóttir
Fæddur 21.júní 1906
Dáinn 30. september 1989
Fædd 25. febrúar 1905
Dáin 7. nóvember 1970
Það haustar að og nú þegar er tími
rétta, eftirleita og seinni rétta, verður
hugurinn bundinn við æskuna og þann
tíma er voraði í sálinni. Haustdagar
í Langholtsparti í Flóa, í Skeiðarétt
og Brúnastaðarétt. Blessaðir karlarn-
ir, bændur í Hraungerðishreppi að fá
fé sitt af fjalli og eru þeir allir með
gleðibragði. Myndirnar renna sem á
tjaldi fyrir augum, það er árla dags
í Brúnastaðarétt. Bjarni eldri á Litla-
Ármóti hvítur fyrir hærum með bros
í augunum og kvikur á fæti, Eiríkur
minn í Austurbænum í Langholti vel
ríðandi að vanda með sixpensarann
eilítið hallandi út í annan vangann,
Geir í Hallanda á þeirri gráu á fljúg-
andi tölti og kveður við raust, Kristinn
í Halakoti hár og grannvaxinn með
hvellan málróm og síhlæjandi, Jón
bóndi á Stóra-Ármóti á gamla Willys-
jeppanum sínum, hann á að vísu ekki
fé á fjalli, hefur allt sitt í heimahög-
um, en er eigi að síður kominn að
heilsa upp á vini og félaga, Hermann
í Vesturbænum í Langholti ljóshrokk-
inhærður og hæglátur með logandi
kímni í svipnum, Oddgeirshólahöfðin-
gjarnir, Ólafur, Guðmundur og Jó-
hann, sérstök uppáhöld allir saman,
Ágúst á Brúnastöðum, þéttvaxinn og
digurraddaður, flengríðandi yfir Flóð-
gáttina á brúnum og sá sem undirrit-
aðri fannst sveitarprýðin, Sveinn
bóndi í Langholtsparti ríðandi á jörp-
um hesti með hringaðan makka og
ólgandi fax á vaðandi hreinu tölti,
fæturnir bornir afburða tígulega, tag-
lið mikið og sítt, bolurinn gljáandi
fagur, reiðmaðurinn er stórvaxinn og
myndarlegur, augun dálítið innsett,
full af glettni og hlýju, nefið stórt og
beint, vel lagaður munnur og skörp
haka, ennið hátt og bjart, hendurnar
stórar og vinnulúnar, halda þétt um
taumana og langir sterklegir fætur í
ístöðunum. Þetta er Sveinn á Gylli
sínum með frelsi og fögnuð bóndans
í svip og fasi. Tveir krakkar bíða
hans með eftirvæntingu, rauðhærður
strákur, freknóttur og sólbrenndur á
eyrunum og dökkhærð stelpa með
drengjakoli, nokkru eldri en strákur-
inn sem hoppar af kæti og spenningi
og togar sífellt í bláköflóttan jakkann
á stelpunni. Þetta eru Gísli Tómasson
og undirrituð, sumarkrakkar í Lang-
holtsparti hjá heiðurshjónunum Eyr-
únu Guðjónsdóttur og Sveini Jóns-
syni, að bíða eftir að langþráður dag-
ur rynni upp þar sem kappið stóð um
að ná að draga hina fráu sauði Glanna
og Skjanna ásamt Beri-Berunum í
dilk bóndans í Partinum.
Þetta er árið 1956 og Sveinn hafði
orðið fimmtugur 21. júní þá um suma-
rið, mikil og stór veisla var haldin og
gestir margir, mest bændur úr sveit-
inni og frúr þeirra ásamt skylduliði
hjónanna og annarra vina og vanda-
manna, veitingar voru rausnarlegar
að góðra bænda sið og fengum við
krakkarnir bæði magapínu af kók-
drykkju og kökuáti. Eyja spurði Svein
með þjósti hvort hann ætlaðFað drepa
fyrir sér krakkana á þessum óþverra
(kókinu). Hann svaraði kíminn; Ó nei
heilla mín, ég bara gef þeim brenni-
steinssúrt ammóníak, þá batnar þeim
fljótlega! Eins hafði hann á orði er ég
í fyrsta sinn fékk að fara með rekstr-
arhestana hans upp að Skáldabúðum
og Eyja hafði áhyggjur af því að þetta
væri alltof löng leið fyrir mig, „ef að
ég bara yrði dugleg að bara koppa-
feiti á rassinn á mér þá væri allt í
lagi“. Aldrei man ég eftir að hann
talaði um að henda neinu heldur var
allt sett til Gráa-Bjöms!
Þetta sumar var ákaflega sólríkt
og gott en árið á undan hafði verið
mesta óþurrkasumar 'í manna minn-
um. Sveinn hafði fengið afskaplega
mikil og góð hey og allt gengið að
óskum þetta sumar, svo þau ákváðu
að bjóða okkur öllum í ferðalag í lang-
þráða heimahaga Sveins, austur í
Mýrdal. Fékk Sveinn Bjarna Dagsson
á Selfossi til að aka okkur og minnist
ég andkafanna þegar farkosturinn
rann í hlað, dökkblár Chevrolet ’54
með hvítum toppi, feikna glæsikerra.
Gísli og Sveinn sátu frammí en döm-
urnar, Eyja, ég og Helga dóttir Her-
manns í Langholti sem var kaupakona
í Partinum þetta sumar og góð vin-
kona mín, sátu aftur í. Ekið var sem
leið lá austur. Þá var nýbyrjað að
græða upp Skógarsand og voru hjón-
in að bera saman muninn á því sem
áður var, svartur sandur og auðn en
nú bylgjandi grænt hávaxið gras.
Áfram var haldið og er komið var á
Skarphól var stansað og farið út úr
bílnum. Veðrið var dásamlegt, sól og
hiti og gott skyggni og þarna fékk
ég að heyra um Mýrdalinn yndislega
á s(<aðnum sjálfum. .
Sveinn fæddist 21. júní 1906 í
Neðri-Dal í Mýrdal, fimmta barn hjón-
anna Þórunnar Gísladóttur og Jóns
Árnasonar bónda þar. Elstur var
Gísli, er fórst með togaranum Gull-
fossi á stríðsárunum, þá Árni bóndi
og verkamaður á Hjalteyri og síðar á
Akureyri, tvíburarnir Sigríður húsfrú
í Reykjavík látin fyrir nokkrum árum
og Tómas sjómaður í Reykjavík, dvel-
ur nú á Hrafnistu, Sveinn bóndi sem
hér er minnst og sjötti er Hermann
bóndi í Norður-Hvammi sem nú býr
á Selfossi. Öll voru börnin mikið
mannkosta- og dugnaðarfólk. Síðar
fluttu Jón og Þórunn að Norður-
Hvammi og voru þar í sambýli um
tíma með sr. Þorvarði og frú hans
og þeirra börnum. Kynntist þá
MINJALIST
Sýningarsalur - Armúla 23
Sími 678181
OPIÐ UM Laugard. kl. 10-16
HELGINA: Sunnudag kl. 11-17
Til sýnis og sölu:
FORSETAPENINGURINN 1989
krakkahópurinn vel og var kært með
þeim allar götur síðan. Sr. Þorvarður
og fjölskylda hans fluttust svo til
Víkur og bjuggu þar en Jón og Þór-
unn bjuggu í Hvammi allan sinn bú-
skap. í heimili hjá þeim voru systkini
Jóns, þau Ilalldór og Ólöf. Heimilið í
Norður-Hvammi var því mannmargt
og í mörg horn að líta og vont börnin
fljót að byija að hjálpa til og taka til
hendi og’urðu „strákarnir" í Norður-
Hvammi fljótt eftirsóttir til vinnu
bæði í uppskipun og slögtum í Vík,
sem og við sjóróðra úr Reynishverfi
og Vestmannaeyjum. Systirin Sigríð-
ur var orðlögð dugnaðar- og gæða-
kona. Sveinn vann ætíð heima á sumr-
in eins og systkini hans, en brá sér
í vegavinnu ef hana var að fá. Kaupa-
konur voru alltaf í Hvammi og með
einni þeirra voru örlög hans ráðin.
Hún kom að ráði bróður síns Guð-
mundar Guðjónssonar sem var kunn-
ingi þeirra Hvammsbræðra úr vega-
vinnunni. Eyrún Guðjónsdóttir hét
hún frá Nýjabæ í Sandvíkurhreppi,
hún var með mikið dökkt hrokkið
hár, fríð sínum, frekar lágvaxin, bros-
mild og hnellin og lá dálítið hátt róm-
ur. Þau hófu búskap í Norður-
Hvammi í sambýli við foreldra Sveins
en fluttu síðan út í Flóa og festu þar
kaup á jörðinni Langholtsparti í
Hraungerðishreppi. Jörðin var land-
mikil en ekki að sama skapi mikið
ræktuð, mýrar voru miklar er kallað-
ar eru Sorti og kannast margir við
þær. Þær voru síðan þurrkaðar með
miklum skurðum og skipti Flóaáveit-
an þar sköpum. Bústofn höfðu þau
með sér að austan, meðal annars
nokkur hross, en Jón Árnason faðir
Sveins var orðlagður hestamaður og
átti marga frábæra gæðinga og góðar
hryssur. Sveinn og Eyrún höfðu bæði
afar gaman af hestum og voru bæði
glögg á hesta og góðir reiðmenn,
sagði það sig því sjálft að gæðinga-
kyn varð fljótlega til í Langholtsparti.
Sveinn hófst nú handa við ræktun
jarðarinnar og þöndust túnin út á
nokkrum árum, öllum voru þeim gef-
in nöfn og sum meira en dálítið
grínfull eins og Sveini var gjarnan
lagið svo sem Hrútur, Prívat, Botn-
langinn, Kríkur, Stóri-Kroppur o.fl.
Eyrúnu og Sveini búnaðist vel og
voru sjáifum sér nóg um flesta hiuti,
heiðarleg og vinnusöm. Þeim varð
ekki barna auðið en höfðu þó einstakt
barnalán, fjöldinn allur af börnum og
unglingum var undir þeirra hand-
leiðslu, lengri og skemmri tíma og
héldu þau síðar á árum tryggð við
þau hjónin. Hjónaband Eyrúnar og
Sveins var ákaflega ástríkt og þótti
þeim afar vænt hvou um annað, þau
voru mjög samrýnd og máttu vart af
hvort öðru sjá, það var því mikið áfall
er Eyrún veiktist hastarlega 1967 og
komst aldrei til nokkurrar heilsu
síðan. Var hún meira og minna á
sjúkrahúsum þar til hún lést eftir erf-
iða legu árið 1970.
Sveinn bjó áfram í Langholtsparti
nokkur ár. En er elli kerling tók að
ásækja hann æ harðar fluttist hann
að Ljósheimum á Selfoss þar sem
hann naut góðrar umönnunar alla tíð.
Enn einn höfðinginn úr Hraungerð-
ishreppi frá æskudögunum er horfinn
sjónum um sinn og enn hringja klukk-
urnar í Hraungerði líkhringingu á
þessu sumri.
Við stöndum aftur í huganum á
Skarphól og horfum yfir Mýrdalinn
fagra, þessa sveit sem Sveinn elskaði
af öllu hjarta, heiðarnar, jökulinn,
sandinn, Dyrhólaey, Heiðardal og
mest af öltu Norður-Hvamm og
Hvammsgilið fagra. Ég trúi því að
nú standi þau saman Eyja og Sveinn
eins og forðum hönd í hönd og leiðist “
saman inn í land fegurðarinnar. Guð
blessi minningu þessara elskulegu
hjóna, þökkuð er elska þeirra til mín
og minna á árum áður.
Þórunn Jónsdóttir
Listmunir-Sýningar-Uppboð
Pósthússtræti 9, Austurstræti 10,101 Reykjavík
Sími: 24211, P.O.Box 121-1566
MÁLVERKAUPPBOÐ
22. málverkauppboð Gallerí Borgar, í samráði við
Listmunauppboð Sigurðar Benediktssonar hf.,
verður haldið á Hótel Borg á morgun,
sunnudaginn 8. október 1989, og hefst kl. 20.30.
Boðin verða 66 númer samkvæmt skrá.
52.
53.
54.
55.
56.
57.
58.
59.
60.
61.
62.
63.
64.
65.
66.
Meðal verka, sem upp verða boðin, eru:
Erró
Leifur Breiðfjörð
Þorvaldur Skúlason
Kristján Davíðsson
Jóhannes S. Kjarval
Jón Engilberts
Nína Tryggvadóttir
Guðmundur Thorsteinsson
Sverrir Haraldsson
Einar Jónsson
Valtýr Pétursson
Jóhannes S. Kjarval
Þorvaldur Skúlason
Jóhannes S. Kjarval
Ásgrímur Jónsson
Mary Kuopka. Klippimynd 1965. 27x18 cm. Merkt Erró.
Glerverk. 49x160 cm. 1972. Merkt: Leifur ’72.
„Abstraktion". Vatnslitur ca. 1950. 20x28 cm.
Merkt: Þ. Skúlason.
Land. Olía á striga 1987. 100x120 cm.
Merkt: K. Davíðsson '87.
Blómaskrúð. Túss. 32x40 cm. Merkt: Jóhannes Sveinsson
Kjarval.
„A La Ferme". Vatnslitur 1944. 54x76 cm.
Merkt: Engilberts '44.
Fprm. Vatnslitur 1965.25x20 cm. Merkt: N. Tryggvadóttir.
„Út geng ég ætíð síðan". Teikning. 15x10 cm. Ómerkt.
Áritun á baki.
Kona. Tré. Hæð 54 cm.
Alda Aldanna. Gips 1905 afsteypa. Hæð 30 cm.
Merkt: Einar Jónsson frá Galtafelli 1905.
„Abstraktion". Olía á masonit 1960. 62x72 cm.
Merkt: Valtýr '60.
Skjaldbreiður 1960. Olía á striga. 48x62 cm.
Merkt: Jóh. S. Kjarval.
„Abstraktion". Olía á striga 1970. 87x130 cm.
Merkt: Þ. Skúlason '70.
Víkin. Olía á striga. 50x73 cm. Merkt: J. S. Kjarval.
Strútur. Olía á striga. 76x96 cm. Merkt: Ásgrímur J.
Athugið breyttan tíma: Uppboð hefst kl. 20.30.
Myndirnar eru sýndar í dag og á morgun sunnudag kl. 14 -18.
Minnum á að í „kjallaranum"
er úrvalafmyndum gömlu
meistaranna.
BORG