Morgunblaðið - 08.10.1989, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. OKTOBER
ERLEIMT
INNLENT
Davíð í framboði
til varaformanns
Davíð Oddsson borgarstjóri
tilkynnti á landsfundi Sjálfstæðis-
flokksins á föstudag að hann
myndi gangast við kjöri til vara-
formanns flokksins kjósi lands-
fundur svo. Friðrik Sophusson
varaformaður Sjálfstæðisflokks-
ins vildi á föstudag ekkert um
þessa ákvörðun borgarstjórans
segja. Síðasti dagur landsfundar-
ins er í dag og verða kosningar
þá á dagskrá. Um fimmtán hundr-
uð manns voru viðstaddir setn-
ingu landsfundarins í Laugardals-
höllinni á fimmtudag. í setningar-
ræðu Þorsteins Pálssonar for-
manns Sjálfstæðisflokksins kom
meðal annars fram vilji hans til
breytingar á Alþingi og kjördæm-
um landsins.
Kjaradeila rafiðnaðarmanna
og ríkisins óleyst
Óformlegir fundir hafa undan-
fama daga verið haldnir í kjara-
deilu rafiðnaðarmanna og ríkisins.
Rafiðnaðarmenn hafa verið í verk-
falli í hálfa aðra viku og hefur
verkfall þeirra áhrif á ýmsa þjón-
ustustarfsemi. Til dæmis eru erf-
iðleikar vegna bilana í símkerfinu
og Ríkisútvarpið hefur orðið að
draga úr þjónustu sinni. Verk-
fallsverðir hafa staðið vörð við hús
ERLENT
Fólksflótti
og vaxandi
spenna í Aust-
ur-Þýskalandi
Fólksflóttinn frá Austur-Þýska-
landi er það mál, sem hæst hefur
borið í erlendum fréttum síðustu
viku og lengur. Á skömmum tíma
hafa um 45.000 manns flúið til
Vestur-Þýskalands eða fleiri en
nokkru sinni síðan Berlínarmúr-
inn var reistur 1961. Um 12.000
Austur-Þjóðveijar, sem leitað
höfðu hælis í vestur-þýska sendi-
ráðinu í Prag eða voru staddir í
Tékkóslóvakíu, fengu nú í vikunni
að fara til Vestur-Þýskalands og
var það í annað sinn, sem slikir
fjóttamannaflutningar eru leyfðir.
Átti það sama við um þá, sem
sest höfðu að í vestur-þýska sendi-
ráðinu í Varsjá í Póilandi. Jafn-
framt var tilkynnt í Austur-
Þýskalandi, að til Tékkóslóvakíu
gæti nú enginn farið án vega-
bréfsáritunar og hefur landinu því
í raun verið lokað.
Ný stjórn að fæðast í
Noregi
Norsku borgaraflokkamir, Hæg-
riflokkurinn, Miðflokkurinn og
Kristilegi þjóðarflokkurinn, hafa
gert með sér málefnasamning um
myndun nýrrar stjórnar og er
búist við, ríkisstjórn Verkamanna-
flokksins segi af sér 13 þ. m.
Stríðsástand í
Nagorno-Karabakh
Þjóðernisólgan í Kákasuslöndum
Sovétríkjanna verður stöðugt al-
varlegri og eru fréttir um vopnaða
uppreisnarflokka í Nagorno-
Karabakh. Tilheyrir héraðið Az-
erbajdzhan en er byggt Armenum,
sem ekki una yfírráðum Azera.
útvarps og sjónvarps til að koma
í veg fyrir verkfallsbrot og Rafiðn-
aðarsambandið hefur kært Gísla
Alfreðsson þjóðleikhússtjóra fyrir
að hafa gengið inn í störf rafiðn-
aðarmanna í verkfallinu.
Hæstaréttardómarar
víkja sæti
Hæstiréttur hefur ákveðið að
sjö af átta hæstaréttardómurum
víki sæti er mál ríkisvaldsins gegn
Magnúsi Thoroddsen fyrmm
forseta hæstaréttar verður tekið
til meðferðar í réttinum. Er þetta
í þriðja skipti í sögu hæstaréttar
sem skipaðir dómarar hans víkja
sæti við meðferð dómsmáls sem
varðar einn úr þeirra hópi.
KR í 2. umferð
Evrópukeppninnar
Úi-valsdeildarlið KR í körfu-
knattleik sigraði enska liðið He-
mel Hempstead í síðari leik lið-
anna í Evrópukeppni félagsliða í
London á miðvikudag. KR-ingar
unnu einnig fyrri leikinn og em
því komnir í aðra umferð keppn-
innar, en það hefur íslensku liði
ekki tekist í aldarfjórðung.
20% hækkun á síld
Verðlagsráð sjávarútvegsins
hefur samþykkt 20% hækkun á
verði síldar til frystingar og sölt-
unar. Hvorki hefur verið samið
við Japani um kaup á frystri síld
né við Sovétmenn um kaup á
saltsíld.
Ofbeldishneigð unglinga
áhyggjuefni
Ofbeldishneigð meðal unglinga
er áhyggjuefni forráðamanna fé-
lagsmiðstöðva, grunnskóla og
annarra sem meðal unglinga
starfa. Mörg dæmi em um að
hópar unglinga hafi beitt barsmíð-
um eða hótunum um líkamsmeið-
ingar við jafnaldra sína.
Er þessi deila farin að líkjastraun-
vemlegum stríðsátökum. I Az-
erbajdzhan hafa járnbrautarsam-
göngur legið niðri vegna verkfalla
og hafa þau aftur valdið miklum
skorti í Armeníu, sem fær olíu og
annan vaming frá fyrrnefnda
ríkinu eða um það. Sovéska
stjórnin hefur hótað að láta herinn
annast rekstur járnbrautanna en
Azerar hóta á móti allsheijarverk-
falli.
Dalai Lama fær
friðarverðlaun Nóbels
Dalai Lama,
útlægur leið-
togi Tíbeta,
fékk friðar-
verðlaun Nób-
els á þessu ári.
Var frá því
skýrt í Ósló á
fimmtudag.
Kínveijar hernámu Tíbet 1950 en
níu árum síðar flýði Dalai Lama
til Indlands ásamt hundmðum
þúsunda landa sinna. Hefur hann
ávallt síðan barist friðsamlegri
baráttu fyrir frelsi þjóðarinnar.
Kínveijar hafa tekið verðlauna-
veitinguna óstinnt upp þótt þeir
hafi ekki á hana minnst heimafyr-
ir.
Uppreisnartilraun í
Panama.
Nokkur hluti
hersins í Pa-
nama gerði í
vikunni tilraun
til að steypa
Manuel Nori-
ega hershöfð-
ingja og ráða-
manni í landinu
af stóli en hermenn hollir honum
báru hærri hlut. George Bush
Bandaríkjaforseti neitaði fullyrð-
ingum sumra st'uðningsmanna
Noriega um að Bandaríkjastjórn
hefði átt þátt í uppreisnartilraun-
inni en aðrir hafa áfellst Banda-
ríkjamenn fyrir að hafa ekki notað
tækifærið til að bola Noriega burt.
Austur-Þj óð verj ar hindra
ferðir til Austur-Berlínar
Vestur-Berlín. Reuter.
Austur-Þjóðveijar settu upp
hindranir til að torvelda ferðir í
gegnum eftirlitsstöðina Charlie
við Berlínarmúrinn á laugardag,
að því er virtist til að koma í veg
fyrir mótmæli í tiiefni þess að
þann dag voru 40 ár liðin frá því
Þýska alþýðulýðveldið var stofn-
að.
Austur-þýskir verkamenn settu
upp hindranirnar, sem voru úr
steypu og stáli, skammt frá línunni
sem aðskilur Austur-Berlín frá
vesturhlutanum, sem lýtur stjórn
Breta, Frakka og Bandaríkja-
manna. Bandarískur herforingi,
sem var á staðnum, sagði að vest-
rænu bandamönnunum hefði verið
skýrt frá því að framkvæmdirnar
væru í undirbúningi. Eftirlitsstöðin
Charlie er eina leiðin frá svæðum
bandamanna til Austur-Berlínar.
Austur-Þjóðveijar hafa sakað
Vestur-Þjóðveija um að hafa ætlað
að stuðla að mótmælum í Austur-
Berlín til að trufla hátíðahöldin þar
í tilefni af 40 ára afmæli austur-
þýska ríkisins.
Átta félagar í stærstu hreyfingu
austur-þýskra umbótasinna, Nýjum
vettvangi, hafa verið handteknir í
borginni Halle í suðurhluta Austur-
Austur-þýskir verkamenn setja upp hindranir til að torvelda ferðir
í gegnum eftirlitsstöðina Charlie til Austur-Berlínar í gær.
Þýskalands. Ein af þeim var Katrin ar. Öryggissveitir léituðu í íbúð
Eigenfeld, stofnandi hreyfingarinn- hennar og gerðu skjöl upptæk.
Ungverskir kommúnistar á tímamótum:
Orvæntingarfull barátta
gegn hlutskipti nátttrölla
Ungverskir kommúnistar hafa undanfarna mánuði stefht skipu-
lega í gryfju sem pólskir sálufélagar þeirra hrökkluðust út í:
Afsal valda til þjóðarinnar. Snemma á næsta ári má gera ráð
fyrir að um stjórnartaumana í Ungverjalandi haldi forsætisráð-
herra sem ekki er kommúnisti. Líklegt hefur verið talið að í for-
setakosningum í nóvember verði fyrir valinu Imre Poszgay, sem
að vísu er í kommúnistaflokknum en hefur Iengi verið fremstur
í flokki róttækra umbótasinna sem segjast vilja breyta flokknum
í Iýðræðissinnaðan flokk jafnaðarmanna að vestrænni fyrirmynd.
Allt er hins vegar á hverfanda hveli í stjórnmálum landsins og
fernar aukakosningar í sumar boðuðu kommúnistum lítinn fognuð
þar sem andstæðingar þeirra sigruðu yfírleitt með miklum yfir-
burðum. Róttækar umbætur, s.s. ferðafrelsi og frjálsari fjöl-
miðlar, hafa ekki dugað til að blíðka þjóðina.
Deilur innan kommúnista-
flokksins snúast nú um það
hvernig hann geti forðast hefð-
bundin örlög nátttrölla sem sögð
eru verða að steini ef fyrstu geisl-
ar morgunsólarinnar nái að skína
á þau. Poszgay hefur varað
flokksmenn við
því að haldi
marxistar
sem hann líkir
við fylgismenn
þeirrar skoð-
unar að hnött-
urinn sé í laginu eins og pönnu-
kaka - forystuhlutverkum sé óhjá-
kvæmilegt að andófsmenn gjör-
sigri kommúnista í fijálsum þing-
kosningum á næsta ári. Nýkjörn-
um flokksleiðtoga, umbótasinnan-
um Rezso Nyers, mun veitast er-
fitt að fá skrifkera flokksvélarinn-
ar til að sætta sig við valdaafsal.
í samningum við stjórnarandstöð-
una hafa kommúnistar með sem-
ingi lofað að afhenda eignir að
andvirði 2.000 milljóna ísl.kr. sem
einhvem veginn hafa lent hjá
stjórnarflokknum síðustu áratugi.
Þegar hafa ýmsir kommúnista-
leiðtogar með klækjabrögðum
tryggt sér eignarhald á mörgum
fyrirtækjum, áður en þau verða
seld einkaaðilum í samræmi við
breytta efnahagsstefnu í landinu.
Þeir vilja verða stöndugir menn í
fijálsu Ungveijalandi sem nú hill-
ir undir.
Í lok síðasta mánaðar náðu
fulltrúar kommúnista og ungver-
skra andófsafla samkomulagi í
aðalatriðum um tilhögun fullkom-
lega fijálsra þingkosninga á
næsta ári. Sex af níu andófssam-
tökum samþykktu að lokum að
forsetinn, sem fær umtalsverð
völd, verði þjóðkjörinn en bent
hefur verið á
að þar með
megi Pozsgay
heita öruggur
sigurvegari.
Þijú samtök
létu bóka and-
stöðu við samkomulagið. Pozsgay
er vinsæll og langþekktastur allra
hugsanlegra frambjóðenda, þess
vegna vildu margir að þingið kysi
forseta eftir kosningarnar næsta
vor. Andófsmenn telja víst að
kommúnistar verði þar í minni-
hluta enda benda skoðanakannan-
ir til þess að þeir fái í mesta lagi
þriðjung atkvæða í þingkosning-
unum, enda þótt andstaðan sé
sundruð.
Eitt sérkennilegasta deilumálið
í kommúnistaflokknum fjallar um
hvor fylkingin, sú sem vill halda
í marxistakreddurnar eða hin sem
vill varpa þeim flestum fyrir róða,
megi kalla sig „vinstrisinna“ eða
„sósíalista" en báðar telja sig eiga
kröfu til nafngiftanna. Hætt er
við að almennum kjósendum
gangi illa að fóta sig á þessu
hála svelli hugmyndafræðinnar ef
flokkurinn klofnar i tvær fylking-
ar eins og umbótasinnar hafa
hótað, verði ekki farið að tillögum
Imre Pozsgay
þeirra.
Meðan þessu fer fram fær Lýð-
ræðisfylkingin, helstu samtök
andófsmanna, æ meiri byr í segl-
in. Hún sameinar fólk með ýmis
viðhorf, þar eru m.a. íhaldssamir,
kristilegir demókratar ásamt
þjóðemissinnum og hægfara jafn-
aðarmönnum. Stjórn kommúnista
hefur mistekist að fá nýja efna-
hagsstefnu sína, sem þeir nefna
„markaðs-sósíalisma", til að
ganga upp og þess vegna horfa
margir nú til Lýðræðisfylkingar-
innar í von um raunverulegar
lausnir er byggist á vestrænum
markaðsbúskap. Ekki einu sinni
umbótasinninn Pozsgay er reiðu-
búinn að ganga svo langt.
Vafalaust er enn of snemmt
að slá nokkru föstu um það hvort
kjósendur telja réttmætt að
kommúnistar hljóti virðulegan
sess í lýðfijálsu Ungveijalandi
enda þótt flokkurinn iðrist gjörða
sinna, láti undan „sögulegri nauð-
syn“ og fremji jafnvel pólitíska
kviðristu til áréttingar á flokks-
þingi sínu nú um helgina. Kjós-
endur hafa fæstir verið spurðir
álits í rúm 40 ár. Þeir eiga marg-
ir harma að hefna eins og pólsk
þjáningasystkin þeirra sem sent
hafa kommúnista út í ystu myrk-
ur.
BAKSVIP
eftir Kristján Jónsson