Morgunblaðið - 08.10.1989, Page 8

Morgunblaðið - 08.10.1989, Page 8
1 8 MORGUNBLAÐIÐ roAauwiua’flUG3V aiaAjaviuösK >m DAGBOK SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER T TT A er sunnudagur 8. október. Er það 20. sd. eftir 1 UxVvTTrinitatis. Ardegisflóð í Reykjavík kl. 12.05 og síðdegisflóð kl. 24.42. Sólarupprás í Rvík. kl. 7.57 og sólar- lag kl. 18.33. Myrkur kl. 19.20. Sólin er í hádegisstað í Rvík. kl. 13.15 ogtungliðer í suðri kl. 20.08. (Almanak Háskóla íslands.) Sá sem þjónar mér fylgi mér eftir, og hvar sem ég er, þar mun og þjónn minn vera. Þann sem þjónar mér mun faðirinn heiðra. (Jóh. 12, 26.) ARNAÐ HEILLA___________________________________ HJÓNA- BAND. í sumar voru gefin saman íhjónaband í Seltjamanes- kirkju Anna Sigríður Al- freðsdóttir frá Völlum við Nesveg, Seltjarnar- nesi, og Magnús Hjörleifs- son, Flóka- götu 4, Hafn- arfirði. Þau eru búsett í Belgíu. AFMÆLI. Kristinn B. Gíslason fv. oddviti í Stykk- ishólmi sem verður sjötugur á morgun, mánudag, hann tekur á móti gestum á heim- ili dóttur sinnar Laufásvegi 11 þar í bænum í dag, sunnu- dag milli 17 og 20. Heimilis- fangið er rangt í blaðinu í gær. FRÉTTIR/MANNAMÓT FRÍMERKI. Á morgun, 9. okt., koma út frímerki hjá Pósti og síma, en þá er „Dag- ur frímerkisins 1989“. Ut kemur þá smáörk eða „blokk“ með þremur frímerkjum og kostar hún 130 kr. Hún er gefin út í tilefni norrænnar frímerkjasýningar sem haldin verður hér í Reykjavík í júní- lok árið 1991 — „NORDIA 91“. Myndefni þessarar smá- arkar er af landabréfi af Norðurlöndum, sem gefið var út í Feneyjum árið 1539. LANDSPÍTALINN. í tilk. frá heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytinu í Lögbirt- ingi segir að Guðmundur S. Jónsson Iæknir hafi verið skipaður yfirlæknir eðlis- fræði- og tæknideildar Land- spítalans. Tók hann við yfir- læknisstarfinu hinn 1. okt. UTANRÍKISÞJÓN- USTAN. í nýlegu Lögbirt- ingablaði tilk. utanríkisráðu- neytið skipan tveggja sendi- ráðunauta í utanríkisþjón- ustunni. Þar hafa verið skip- aðir þeir Jón Egill Egilsson og Kristinn F. Árnason. HEILSUGÆSLU- LÆKNA vantar til starfa á 6 heilsugæslustöðvum úti á landi. Heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytið auglýsir þessa stöður lausar í nýlegu Lögbirtingablaði. Tekið er fram að æskilegt sé að við- komandi hafði sérfræðileyfi í heimiiislækningum. Umsókn- arfrestur er settur til 11. þ.m. Þessar stöður eru: Vestur á Flateyri, norður á Þórshöfn, og Húsavík. Þessar stöður á að veita frá 1. nóvember nk. Hinar eru við heilsugæslu- stöðina austur á Höfn í Hornafirði og í Vestmanna- eyjum. Þær verða veittar frá 1. janúar 1990. Loks er svo önnur staða heilsugæslu- læknis í Stykkishólmi. Hún veitist frá 1. febrúar á næsta ári. ORÐABÓK Háskólans. Menntamálaráðuneytið augl. í Lögbirtingi lausa stöðu sér- KROSSGATAN 55 12 13 SLiuz ■___ 122 23 24 LÓÐRÉTT: — 2 mánuðir, 3 vafa, 4 afkomendurna, 5 óvitlaus, 6 tré, 7 verkfæri, 9 át, 10 æringi, 12 starfinu, 13 akstursleiða, 18 hremma, 20 handsama, 21 vantar, 23 kusk, 24 ending. LÁRÉTT: — 1 kvenmanns- nafn, 5 smábarn, 8 stuðning- ur, 9 vísan, 11 hlutaðeigandi, 14 vond, 15 gungan, 16 elju- samar, 17 beita, 18 manns- nafn, 21 fljótinu, 22 jurtin, 25 hreyfingu, 26 veinar, 27 svelgur. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: LÁRÉTT: — 1 skots, 5 báran, 8 áttan, 9 hrapi, 11 nakin, 14 kyn, 15 ræpan, 16 agnir, 17 aur, 19 karm, 21 laga, 22 ómennið^ 25 ris, 26 lak, 27 iði. LÓÐRETT: — 2 kýr, 3 táp, 4 stikna, 5 bannar, 6 ána, 7 aki, 9 horskur, 10 alparós, 12 kannaði, 13 nartaði, 18 unna, 20 MM, 21 LI, 23 el, 24 nk. Shevardnadze um elnavopn Eyðum þeim öllum Leggur tilað risaveldin eyði efnavopnabirgðum sínum að mestu eða öllu jafnvel áðuren alþjóðlegursáttmáli um bann viðslíkum vopnum hefur verið undirritaður M Mll'l °G-M u KÍD Vonandi skorast Davíð ekki undan þátttöku í tunnuhlaupi aldarinnar, þar eð eiturefni hans eru talin með þeim alhættulegustu ... fræðings við Orðabók Háskól- ans, sem veitt mun verða frá næstu áramótum. Meðal þess sem upp er talið varðandi menntun segir að æskilegt sé að viðkomandi hafi aflað sér sérþekkingar á sviði orða- bókafræða. Umsóknarfrestur er settur til 23. þ.m. VÉLPRJÓNAFÉLAG ís- lands heldur aðalfund á Hótel Lind laugardaginn 14. okt. nk. Auk venjulegra aðalfund- arstarfa verða sýndar pijóna- vélar. Þá verður sýnt mynd- band frá vorfundi félagsins í Hrafnagilsskóla, vorið 1988. KVENFEL. Heimaey heldur fund nk. þriðjudagskvöld í Holiday Inn veitingahúsinu kl. 20.30. Gestur fundarins verður frú Þuríður Páls- dóttir. Hún mun ræða um breytingaaldur kvenna. FÉLAG eldri borgara. í dag, sunnudag, er opið hús í Goðheimum við Sigtún kl. 14. Fijálst, spil og tafl. Dansað kl. 20. KVENFÉLAG Grensás- sóknar heldur fyrsta fundinn á starfsárinu í safnaðarheim- ilinu annaðkvöld, mánudags- kvöld, kl. 20.30. Rætt verður um vetrarstarfið og spilað bingó. Kaffiveitingar. KFUK, Hafnarfirði. Kvöld- vaka í húsi félaganna á Hverfisgötu 15 á þriðjudags- kvöld kl. 20.30. Margrét Hróbjartsdóttir hjúkrunar- fræðingur talar. KVENFÉLAG Neskirkju heldur fyrsta fundinn á haust- inu annaðkvöld, mánudags- kvöld, kl. 20.30 í safnaðar- heimiíinu. Rætt verður um fyrirhugaðan basar og kaffi- sölu. Sýnd verða sýnishorn af jólaföndri. FRIÐARÖMMUR halda fund í ráðstefnusalnum á Hótel Sögu mánudagskvöld kl. 20.30. Ragna Steinunn Eyjólfsdóttir les úr bók sinni sem hún hefur tileinkað frið- arömmum. Vetrarstarfið verður rætt. Kaffiveitingar. Fundurinn er öllum opinn. ITC-Kvistur heldur 223. deildarfund á mánudagskvöld í Holiday Inn hótelinu kl. 20. Stef fundarins: í lygnu vatni er lengst til botns. KVENFÉLAG Breiðholts heldur fyrsta fundinn á haust- inu í kirkjunni nk. þriðjudags- kvöld kl. 20.30. Rætt verður um vetrarstarfið. KVENFÉLAG Njarðvíkur heldur fund annaðkvöld, mánudagskvöld, kl. 21. fyrir félagsmenn og gesti þeirra. ÁHEIT OG GJAFIR ÁHEIT á Strandakirkju af- hent Morgunblaðinu: 3x NN 2.200, NN 2.000, S.B. 2.000, JÁG 2.000, NN 2.000, GR 2.000, Gamalt áheit 2.000, DS 1.700, GG 1.500, HJ 1.200, OG og EF 1.000, ÁJ 1.000, UH 1.000, SG 1.000, MS 1.000, SB 1.000, Svana 1.000, ÓB 1.000, Ak 1.000, GS 1.000, HLJ 1.000, SJ 600, JI 500, AS 500, Ella 500, GJ 500, MSB 500, SA 300, ÓJ 200, Sveinn Sveins- son 200, Ónefnd 200, Ónefnd- ur 200, NN 200, DS 100, DS 100, RÍ 100. KIRKJA HAFNARFJARÐAR- KIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11 í dag og guðsþjónusta kl. 14. Sr. Gunnþór Ingason. SKIPIN REYKJAVÍKURHÖFN: í gær höfðu komið til hafnar Ljósafoss og Grundarfoss. Irafoss lagði af stað til_ út- Ianda. Þá var togarinn Ögri væntanlegur úr metsöluferð- inni til Bremerhaven. í dag er Kyndill væntanlegur. Hann fer aftur samdægurs á ströndina. Á morgun, mánu- dag, er Árfell væntanlegt og Reykjafoss, að utan, og tog- arinn Jón Baldvinsson kem- ur inn til löndunar. ÞETTA GERÐIST 8. október ERLENDIS: 1685: Nantes-tilskipunin um trúfrelsi í Frakklandi felld úr gildi. 1843: Nanking-sáttmáli stað- festur með viðskiptasamning- um Breta og Kínverja. 1858: „Arrow“-málið — Kínverjar fara um borð í brezkt skip og annað stríð brýzt út milli Breta og Kínvetja. 1871: Eldsvoðinn mikli r Chicago í Bandaríkjunum. 1895: Drottning Kóreu myrt með þegjandi samþykki Jap- ana. 1912: Montenegro segir Tyrkjaveldi stríð á hendur og fyrra Balkanstríðið hefst. 1918: Bretar taka Beirút. 1934: Bruno Hauptmann ákærður fyrir morðið á syni flugkappans Charles Lind- berghs. 1939: Þjóðverjar innlima vesturhluta Póllands í Þriðja ríkið. 1945: Truman forseti tilkynn- ir, að aðeins Bretar og Kanadamenn fái aðgang að bandarískum kjarnorkuleynd- armálum. 1954: Hersveitir kommúnista taka Hanoi herskildi. 1961: Souvanna Phouma fursti valinn forsætisráðherra samsteypustjórnar í Laos. 1968: Israelski utanríkisráð- herrann, Abba Eban, leggur fram friðaráætlun á Allsherj- arþinginu. 1977: Leiðtogi Baska, August Uncena Barranech, veginn í Guernica. HÉRLENDIS: 1846: Björn Jónsson ráðherra fæddur. 1868: Ráðgjafatillaga í Fjár- hagsmálinu. 1869: Félagsverslunin við Húnaflóa stofnuð. 1918: Hjálparnefnd skipuð vegna spönsku veikinnar. 1942: Þýsk árás á vélbáta. 1950: Geysisleiðangur Árna Stefánssonar kemur af Vatnajökli. ORÐABOKIN Oft og tíðum Þannig er ofangreint orða- samband í elztu heimildum og merkir sama og oft og títt. En svo hefur það af- bakazt í munni manna og orðið oft á tíðum. Sennilega hefur það gerzt fyrir óskýr- an framburð eða áherzlu- leysi á smáorðinu og. En það eitt réttlætir ekki þessa málþróun. Margir setja vafalaust ao. tíðum í sam- band við no. tíð. Það er hins vegar þgf. ft. af lo. tíður, sem hefur stirðnað í þessu falli, sbr.: Hann kemur hér tíðum = oft. Er í sjálfu sér ekkert undrunarefni, þótt menn álykti sem svo. Við höfum t.d. sambönd eins og nú á tíðum, áður á tíðum, en þar er tíðum no. og merk- ingin sama og nú á tímum og áður á tímum. Elztu dæmi um þessa breytingu, oft á tíðum, sem ég hef fundið, eru ekki eldri en frá um síðustu aldamót. En nú virðist svo sem hún sé að verða nær einráð í ræðu og riti. — Við höfum aftur dæmi um oft og tíðum þeg- ar í fornu máli. Eins er í OH dæmi frá miðri 16. öld og síðan mörg dæmi fram á þessa öld. Af framansögu má ljóst vera, að orðasam- bandið hefur upphaflega verið oft og tíðum, en seinni gerðin komið upp fyrir mis- skilning. Er því eðlilegt og sjálfsagt að segja og skrifa ofl og tíðum. - JAJ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.