Morgunblaðið - 08.10.1989, Side 40
B £ * ?> BMB BBHDBBH
SJÓÐSBRÉF VIB
Efstir á blaði
FLUGLEIÐIR
MORGUNBLADID, ADALSTRÆTI 6. 101 REYKJA VÍK
TELEX ‘2127. PÓSTFAX 6HIHII. PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI H5
SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
*
Arekstur
þriggja bíla í
Norðurárdal
HARÐUR árckstur þriggja bif-
reiða varð í Norðurárdal, rétt
neðan Dýrastaðii, um níuleytið á
fostudagskvöld. Escort-bifreið á
norðurleið lenti á afturbretti
Volvóbifreiðar þcgar þær mættust
og síðan á framhorni Pajero-jeppa
sem var skammt á eftir og einnig
á suðurleið. Okumaður Escortsins
var fluttur á sjúkrahúsið á Akra-
nesi en reyndist ekki alvarlega
slasaður.
Vegarkaflinn þar sem árekstur-
inn varð er einn nokkurra í
Borgarfirði sem eru með óbundnu
slitlagi. A þessum vegarköflum hafa
orðið mörg umferðaróhöpp í'sumar.
Óshlíð:
Morgunoiaoio/Kax
Fjölskylda Bjarna Benediktssonar og forystumenn Sjálfstæðisflokksins fyrir framan Valhöll eftir afhjúpun minnisvarðans í gær, f.v.:
Friðrik Sophusson, Guðrún Vilmundardóttir, Gylfi Þ. Gíslason (fyrir aftan Guðrúnu), Björn Bjarnason, Olöf Benediktsdóttir, Jóhannes
Benediktsson, Bjarni Benedikt Bjarnason sem aflijúpaði minnisvarðann, Rut Ingólfsdóttir, Sigríður Björnsdóttir, Ingibjörg Raltiar,
Þorsteinn Pálsson og Kjartan Gunnarsson.
Minnisvarði um Bjarna Benediktsson afhjúpaður við Valhöll:
Virtur og1 mikilsmetinn þjóðarleiðtogi
- sagði Þorsteinn Pálsson við athöfhina
MINNISVARÐI um Bjarna Benediktsson fyrrverandi forsætisráð-
herra og formann Sjálfstæðisflokksins var afhjúpaður við Valhöll í
gær. Fjöldi fólks, fjölskylda Bjarna, landsfundarfúlltrúar og fleiri,
var viðstaddur. Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokkisins
ávarpaði viðstadda og síðan afhjúpaði sonarsonur Bjarna Benedikts-
sonar, Bjarni Benedikt Björnsson, minnisvarðann.
Iávarpi sínu minntist Þorsteinn
Pálsson forystustarfa Bjarna.
Bjarni Benediktsson var gæddur
miklum gáfum og viljafestu. Vegna
óvenjulegra hæfileika voru honum
falin flest ábyrgðarmestu og
vandasömustu störf þjóðarinnar.
Hann vann til traustsins í orðins
fyllstu merkingu, sagði Þorsteinn
meðal annars. Þorsteinn gat um
forystu hans í utanríkismálum ís-
lendinga þar sem hann væri höf-
undur utanríkisstefnu þjóðarinnar.
Sem forsætisráðherra hefði hann
verið virtur og mikilsmetinn þjóðar-
leiðtogi.
Bjarni var um tveggja áratuga
skeið varaformaður og síðar for-
maður Sjálfstæðisflokksins. Sagði
Þorsteinn að forystumennirnir
hefðu oft staðið í stríðum stormum
og ósjaldan þurft að bíða lags til
að ná fram málum þjóðar og flokks.
Minnisvarðinn _er bijóstmynd
eftir Siguijón Ólafsson mynd-
höggvara á tæplega tveggja metra
háum stuðlabergsstöpli. A stöpul-
inn er letrað: Bjarni Benediktsson
formaður Sjálfstæðisflokksins
1961 til 1970.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur átt
höggmyndina um árabil en Ingi-
mundur Sigfússon forstjóri Heklu
hf. hefur kostað gerð stöpulsins og
uppsetningu minnisvarðans.
Stúlka slas-
aðist og bíll
gjöreyði-
—iagðist eftir
grjótskriðu
ísafírði.
STÚLKA frá Ögri, Harpa Hall-
dórsdóttir, slasaðist, þegar gijót-
skriða féll á bíl, sem hún var far-
þegi í, á Oshlíð við svonefnda
Svuntu aðfaranótt laugardags.
Ökumaður, Jósep Gíslason frá
Isafírði, og farþegi í framsæti,
Bára Lind Hafsteinsdóttir frá
Isafirði, sluppu alveg og má það
teljast mikil mildi því billinn er
gjörónýtur og mikið af grjóti kom
niður eftir að steinarnir féllu á
bilinn. Harpa Halldórsdóttir var
Tlutt á sjúkrahúsið á Isafirði og
um hádegisbil á laugardag var
líðan hennar eftir atvikum. Akveð-
ið var að senda hana á Borgarspít-
alann til frekari rannsóknar og
var hún flutt flugleiðis til
Reykjavíkur í gær.
Slysíð átti sér stað rúmlega tvö
um nóttina og að sögn Jóseps
Gíslasonar var vegurinn góður og
ekkert að sjá þar til hann kom út
úr vegskálanum, sem er innanvert
við Svuntu. Þá sér hann tvo stóra
steina á götunni, stöðvar bílinn þar
sem hann sér að meira gijót er að
koma niður. Um leið og hann byijar
að bakka kom steinn eða steinar á
-•kilinn með þeim afleiðingum að aft-
urhlutinn lagðist saman og báðir
áfturhjólbarðamir sprungu.
Harpa Halldórsdóttir var í aftur-
sætinu. Hún varð fyrir höggi og lá
meðvitundarlaus um stund í bílnum.
Jósep komst út og náði tali af öku-
manni annars bíls, sem var inni í
vegskálanum þegar skriðan féll. All-
an tímann var gijót að falla, en á
meðan bílstjórinn í hinum bílnum fór
til ísafjarðar eftir hjálp tókst öku-
manni bílsins, sem fékk á sig gijót-
ið, að komast aftur út að bílnum og
setja hann í gang. Þrátt fyrir
^^ikemmdirnar gat Jósep snúið bílnum
á veginum og ekið í skjól inn í veg-
skálanum.
Læknir, sjúkraflutningamenn og
lögregla komu skömmu síðar á vett-
vang og urðu þeir að skera bílinn í
sundur til að ná stúlkunni úr aftur-
sætinu. Hún var ekki klemmd í
bílnum, en vegna hugsanlegra
--ájí'erka þorðu menn ekki að draga
hana út um glugga bílsins.
Úlfar
Sjálfstæðisflokkurinn:
Friðrik Sophusson dreg-
ur framboð sitt til baka
FRIÐRIK Sophusson, varaformaður Sjálfstæöisflokksins, lýsti því yfir
í ræðu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins síðdegis í gær að liann gæfi
ekki kost á sér í varaformannskjörinu sem fram fer í dag. „Niðurstaða
mín cr að gefa ekki kost á mér í varaformannskjörinu sem fram fer
á morgun. Astæðan er einfaldlega sú að ég vil veita Davíð Oddssyni
brautargengi í varaformannskjörinu, Eg vænti mikils af honum í nýju
hlutverki fyrir Sjálfstæðisflokkinn," sagði Friðrik meðal annars í ræðu
sinni.
Varaformaðurinn sagði jafn-
framt: „Við vini mína og stuðn-
ingsmenn sem hér eru staddir vil ég
segja þetta: Þótt .ég hverfi nú aí
þeim vettvangi sem ég hef starfað á
undanfarin átta ár, hef ég ekkn
hyggju að hætta í stjórnmálum.
Þvert á móti er það einlægur ásetn-
ingur minn að herða enn róðurinn
undir merkjum ftjálsræðisstefnu
Sjálfstæðisflokksins."
Friðrik hóf mál sitt á því að rekja
sögu Sjálfstæðisflokksins þau átta
ár sem hann hefur gegnt varafor-
mennsku. Þegar hann hafi verið kjör-
inn hafi Sjálfstæðisflokkurinn átt í
miklum innbyrðis erfiðleikum. Flokk-
urinn hafi verið klofinn og varaform-
aðurinn forsætisráðherra, en flokk-
urinn undir.stjórn. formanns í stjórn-
arandstöðu. Hann hafi talið, and-
stætt skoðun margra, að aðalverkef-
nið á þessum tíma væri að ná sáttum
milli flokksmanna og sameina flokk-
inn á ný. Hann sagði að nú hefði
flokkurinn endurheimt sinn fyrri
styrk og hann væri í senn ánægður
og hreykinn af því að vera einn af
forystumönnum flokksins þegar
skoðanakannanir sýndu að hann
hefði aldrei verið sterkari en nú.
Sjá ræðu Friðriks á bis. 6.