Morgunblaðið - 14.10.1989, Qupperneq 1
64 SIÐUR B OG LESBOK
235. tbl. 77. árg.
LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bandaríkin:
Þriðja mesta verð-
bréfahrun sögunnar
New York. Reuter.
Verðbréfahrun varð í kauphöll-
inni í New York í gærkvöldi er
ljóst varð að fyrirhuguðum kaup-
um á næst stærsta flugfélagi
Bandaríkjanna. Verðbréf hafa að-
eins tvisvar áður fallið svo í verði
á einum degi í sögu kauphallarvið-
skipta í Bandarikjunum.
Dow Jones-verðbréfavísitalan féll
um 190,58 stig eða um 6,91 prósent
er hópur fyrirtækja sem hugðist
eignast næst stærsta flugfélag
Bandaríkjanna, United Airlines, til-
kynnti að ekki hefði tekist að útvega
nægilegt fjármagn til kaupanna.
Sérfræðingar kváðu nýjar hagtölur
sem birtar voru í gær og þóttu gefa
til að kynna að vaxtalækkun væri
tæpast á döfinni í Bandaríkjunum
einnig hafa stuðlað að þessari þróun.
Vaxtalækkun stuðlar að auknum
hagvexti og eykur venjulega umsvif-
in á verðbréfamörkuðum.
Hrunið í gær er hið mesta í Banda-
ríkjunum frá því að Dow Jones-
vísitalan féll um 508 stig 19. október
1987. Mest varð verðfallið þó í októ-
ber árið 1929 ,sem var undanfari
Heimskreppunnar miklu.
Tölvuveira
á kreik en
Ijónið lítið
London. Reuter.
Föstudagurinn 13. október leið
án meiriháttar tölvuóhappa en
veirunnar margumtöluðu varð þó
vart í nokkrum Evrópulöndum.
Breska blindrafélagið, skipulags-
skrifstofur svissneska ríkisins og
nokkur fyrirtæki í Portúgal og Hol-
landi urðu fyrir barðinu á tölvuveir-
unni, sem átti að fara á kreik í gær,
en talsmenn IBM-fyrirtækisins í
Bandaríkjunum segjast ekki hafa
fengið neinar fréttir um tjón af henn-
ar völdum.
Steftia okkar hvati
bylling’ar í A-Evrópu
— sagði Margaret Thatcher á árs-
þingi breska Ihaldsflokksins
Blackpool. Reuter, Daily Telegraph.
MARGARET Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, hét því í gær
að sigrast á efnahagsvanda þjóð-
arinnar og lýsti jafnframt yfir því
að stefna ríkisstjórnar sinnar hefði
gefið umbótaöflum í kommúnist-
aríkjunum austan Járntjaldsins
byr undir báða vængi.
Thatcher lét þessi orð falla er hún
ávarpaði fulltrúa á lokadegi ársþings
breska íhaldsflokksins. Fundarmenn,
sem voru 4.500, fögnuðu Thatcher
ákaft er hún sté í ræðustólinn í gær
á 64. afmælisdegi sínurn.
Thatcher fór höt'ðum orðum um
stefnu Verkamannaflokksins breska,
sem nýtur mun meira fylgis en flokk-
ur forsætisráðherrans nú um stundir
ef marka má skoðanakannanir.
Breski forsætisráðherrann sagði
að sú frjálslyndisstefna sem íhalds-
flokkurinn hefði markað árið 1979
hefði getið af sét' byltingu. „Kyndill-
inn sem hófum á loft í Bretlandi og
gjörbreytti landi okkar vat'ð að báli
sem nú er tekið að loga austan Járn-
tjaldsins." Hún kvað það rangt að
kommúnistar hefðu komist til valda
í Rússlandi árið 1917 í byltingu,
þeir hefðu framið valdarán. „Bylting-
in eina og sanna á sér nú stað í
Sovétríkjunum og Austur-Evrópu,"
sagði Margaret Thatcher.
Vaxandi þrýstingur á leiðtoga austur-þýskra kommúnista:
Ráðgjafi Honeckers gagn-
rýnir viðbrögð stjórnvalda
Austur-Berlín, Bonn. Reuter, Daily Telegraph.
WOLFANG Vogel, einn þekktasti
aðstoðarmaður Erichs Honeck-
Vildi geta faðmað Lisbet
- sagði Christer Pettersson og lýsti
samúð sinni með ekkju Palme
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins. Reuter.
CHRISTER Pettersson, sem liof-
réttur í Svíþjóð mun líklega sýkna
innan skamms af ákæru um morð-
ið á Olof Palme, hefur vísað á bug
allri lögregluvernd og nýjum
skilríkjum eftir að hann var látinn
laus á fimmtudag.
Á blaðamannafundi í gær sagðist
Pettersson ekki bera hatur í bijósti
til Lisbet Palme, ekkju sænska for-
sætisráðherrans, sem taldi víst að
hann væri morðinginn. Pettersson
sagðist gjarnan vilja hitta Lisbet en
það yrði þó ekki gerlegt. „Bara að
ég gæti hitt hana og faðmað að
mér. Missir hennar er einnig minn
rtjissir," sagði Pettersson er hélt á
vendi af rauðum rósum, tákni jafnað-
armanna.
Blöð í Svíþjóð sögðu flest að dóm-
ur hofréttarins hefði verið sigur rétt-
arríkis í landinu en löglærðir hafa
yfirleitt verið á einu máli um að
traustar sannanir skorti fyrir sekt
Petterssons.
ers, leiðtoga austur-þýska komm-
únistaflokksins, gagnrýndi í gær
viðbrögð stjórnvalda við mótmæl-
um lýðræðissinna í landinu. í yfir-
lýsingu sem Vogel birti hvatti
hann til þess að öllum þeim sem
handteknir liefðu verið í mótmæl-
unum á undanförnum tveimur
vikum yrði tafarlaust sleppt úr
haldi. Orð þessi virtust hafa tilætl-
uð álirif því síðar um daginn var
tilkynnt að öllum fongunum, að
11 undanskildum, hefði vérið gef-
ið frelsi. Talsmaður vestur-þýsku
ríkisstjórnarinnar skýrði frá því
i gærkvöldi að 600 Austur-Þjóð-
verjum sem verið hafa í vestur-
þýska sendiráðinu í Varsjá yrði
leyft að flytjast úr landi.
Vogel er lögfræðingur og liefur
m.a. átt þátt í að koma á sögulegum
fangaskiptum miili austurs og vest-
urs. Hann hefur verið sérlegur ráð-
gjafi stjórnvalda á sviði mannrétt-
indamála og ,er talinn náinn vinur
Honeckers. Vogel hefur þjónað aust-
ur-þýskum ráðamönnum í rúm 30
ár og kom því mjög á óvart að gagn-
rýni skyldi heyrast úr þessari átt.
1 yfirlýsingu sinni sagði Vogel það
vera kröfu þeirra sem fangelsaðir
hefðu verið, ættmenna þeirra og
þjóðfélagsins alls að þeim yrði þegar
í stað sleppt úr haldi. Síðar í gærdag
skýrði austur-þýska fréttastofan
ADN frá því að mótmælendurnir
væru nú fijálsir ferða sinna en af
tilkynningunni varð ekki ráðið hvort
þetta ætti aðeins við um þá sem
handteknir voru í Austur-Berlin.
Mótmælin í Austur-Þýskalandi
hófust eftir að um 15.000 manns
sem leitað höfðu skjóls í sendiráðum
Vestur-Þýskalands í Prag og Varsjá
var leyft að fara vestur fyrir Járn-
tjaldið. Vogel vék að þessu sam-
komulagi ráðamanna í Austur- og
Vestur-Þýskalandi og sagði það
óréttiætanlegt með öllu að þeir sem
reyndu að yfirgefa landið með óleyfi-
legum hætti væru dregnir fyrir dóm-
stóla á meðan öðrum væri leyft að
fara með sérstökum járnbrautarlest-
um til Vestur-Þýskalands.
Ónefndir erlendir sendimenn í
Austur-Berlin kváðust telja gagn-
rýni Vogels merki um að mjög væri
nú þrýst á Honecker um að koma á
stjórnmálaumbótum í landinu og
töldu jafnframt sýnt að tök hans um
valdataumana væru tekin að linast.
Ótímabært væri þó að gera því skóna
að valdaferli hans væri senn lokið.
Honecker kom í gær 'fram opinber-
lega og þótti greinilegt að tiigangur-
inn væri ekki síst sá að draga úr
sögusögnum og vangaveltum í þá
veru.
Reutcr
Messað innan múra Kremlar
Reykelsisilmur og dýrðaróður til drottins fylltu í gær
Úspenskíj-dómkirkjuna í Moskvu þegar biskupar
rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar sungu þar messu,
þá fyrstu innan Kremlarmúra síðan 1918. Lýstu ljós-
in á áheitakertum hinna trúuðu upp alla kirkjuna en
á þeim hefur ekki logað síðan kommúnistar komust
til valda í Rússlandi og breyttu flestum kirknanna
í söfn. Við messuna í gær voru tveir menn teknir í
dýrlingatölu og þess jafnframt minnst, að 400 ár
eru liðin frá stofnun erkibiskupsdæmis í Moskvu.
„Þetta er kraftaverk, lof sé drottni," sagði gömul
kona meðal kirkjugesta og einn biskupanna sagði,
að kirkjan væri ekki lengur safn. „Hér getum við
aftur borið guði vitni.“ Rússneska rétttrúnaðarkirkj-
an hefur fengið aftur í sínar hendur mörg guðshús
og klaustur og nú í sumar sagði Míkhaíl Gorbatsjov
sovétleiðtogi frá því, sem hann hefur lengst af þag-
að um, að sjálfur hefði hann verið borinn til skírnar
sem barn.