Morgunblaðið - 14.10.1989, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 14.10.1989, Blaðsíða 42
MQ RGUfoBLAjDI Ð /WOT7W? fiK Wk 3,9^9 GOLF / SVEITAKEPPNI EVROPUSAMBANDS SENJORAI DUSSELDORF 1989 íslenzku sveitirnar í 6. og 10. sæti LANDSLIÐ kylfinga eldri en 55 ára hefur nú tekið þátt í Sveita- keppni Evrópusambands senjóra síðan 1984 og fór mótið í ár fram á Hubbelrath golfvellinum við Dússeldorf. Þetta eru í raun tvö mót. Annars vegar keppa 6 manna sveitir án forgjafar og r þær eru skipaðar mönnum með lága forgjöf, f rá 0—14, en hins vegar er keppt um Evrópubikarinn. Sú keppni er með forgjöf og hafa menn verið teknir gildir þar með forgjöf uppí 20, en nú er í ráði að lækka þau mörk í 18. í keppninni um Evrópubikarinn keppa einnig 6 manna sveitir frá hverju landi og telur árangur fjögurra beztu hvern dag. Leiknar eru 54 holur. Gísli Sigurðsson skrifar Vellirnir tveir, Hubbelrath og Oefte, eru báðir langir skógar- vellir í mishæðóttu landslagi; leikið er af öftustu teigum og er SS-skor á báðum 72. Á Hub- belrath-vellinum hafa farið fram mót atvinnumanna, svo sem Opna þýzka keppnin fGerman Open). Hann er þannig lagður í landslagið, að möguleikar á góðum árangri verða hverfandi litlir ef upphafshögg eru ekki bæði löng og bein'. Eins og ævinlega á völlum af þessu tagi, er rennsli á flötunum geysilega hratt, en þær taka líka vel við bolta í innáskotum. Á þessum velli léku A-sveitirnar, þær sem keppa án forgjafar. Eftirtektarvert er, að sífellt verða fleiri menn í liðum Evrópuþjóðanna með lægri og lægri forgjöf. ítalinn Carlo Tadini var með 1 í forgjöf og einnig Spán- veijinn Luis Sartorius, sem vann einstaklingskeppnina. Fransmaður- inn Paul Coste er með 2, en fimm voru með 3 í forgjöf, sex með 4 og seytján með 5. I íslenzka liðinu voru menn með forgjöf frá 6 — ÍO, en í B-sveitinni með forgjöf frá 10 - 18. Augljóst er, að hér á landi skort- ir menn með lægri forgjöf til að hafa í fullu tré við betri Evrópuþjóð- irnar, en í forgjafarkeppninni um Evrópubikarinn eigum við að standa jafnt að vígi, sé forgjöf kepp- enda rétt. Eins og eðlilegt verður að telja, varð árangurinn einnig betri þar. Eftir fyrsta daginn var íslenska B-sveitin í 7. sæti af 13 þjóðum og eftir góðan leik annan daginn var sveitin komin í 3. sæti á eftir þeirri þýzku og frönsku. Því miður tókst ekki að halda uppi dampinum þriðja daginn og sveitin hafnaði í 6. sæti, sem verður út af fyrir sig að teljast gott. Kannski hafa menn fengið full mikinn glímu- skjálfta þegar verðlaunasæti vitist innan seilingar, en svona er golf; Tennisklúbbur Vikings Innitímar í íþróttahúsi, Viðarhöfða 4, món., fim., sun. - örfóir lausir tímar. Skróning s. 673455. TENNISÆFINGAR. Börn - unglingar, fim. kl. 13-16. Þjólfari Margrét Svavarsdóttir. Skróning í s. 673455. MINNI-TENNIS. Börn 6-10 óra. Sex vikna nóm- skeíð, kr. 1.500. Fossvogsskóli món., þri., fim. kl. 17.10-18.50 (50 mín. per hóp). Skróning mónud. 16/10 kl. 17—18, eða í síma 685783. Breiðagerðisskóli laugard. kl. 9.30—12.00. Skrón- ing lougard. kl. 10—12, eða í síma 685783. SPAtN - I . ■SmGEitUANY ■ ***?-■' *■ 't‘~ '****’• A-sveitin. Talið frá vinstri: Þorbjörn Kærbo, Knútur Björnsson, Karl Hólm, Gísli Sigurðsson, Jóhann Benediktsson og Pétur Antonsson. þar er aldrei á vísan að róa. Það urðu aftur á móti minni sveiflur á stöðu A-sveitarinnar. Eft- ir fyrsta daginn var hún í 10. sæti með Austurríki, Lúxemborg, Dan- mörku og Belgíu fyrir aftan sig og þannig hélzt það alla þijá dagana. Hollendingar voru aðeins 7 höggum betri og með dálítilli heppni hefði mátt sigra þá. Aftur á móti voru 20 högg í Svisslendinga, sem voru þar næst á undan. í keppninni lék íslenzka A-sveitin sem hér segir: Samtals 87 83 80 250högg 86 85 83 254 högg 97 84 87 268 91 92 88 271högg 98 91 85 274 högg 90 95 92 277 högg 1. Gísli Sigurðsson 2. Þorbjörn Kjærbo 3. KarlHólm 4. Jóhann Benediktss. 5. Pétur Antonsson 6. Knútur Bjömsson í B-sveitinni varð árangur ein- stakra keppenda sem hér segir: 1. Alfreð Viktorsson 2. Ingólfur Bárðarson 3. Ásgeir Nikulásson 4. Sverrir Einarsson 5. Albert Þorkelsson 6. Sveinbjörn Jónsson Högg nettó 78 73 73 224 högg 78 73 83 234 högg 78 73 83 239 högg 85 73 82 241 högg 74 74 93 241 högg 80 84 79 243 högg Úrslit urðu þau, að sigurvegarar í keppni A-sveitanna á Hubbelrath- vellinum í Dússeldorf urðu ítalir. Spánveijar urðu í öðru sæti og Þjóð- veijar í því þriðja. Svíar, sem oft hafa verið í fremstu röð, urðu nú í 4. sæti. Noregur hefur aftur á móti sótt sig geysilega og varð nú í 5. sæti. í keppninni um einstakl- ingsverðlaunin, varð Norðmaðurinn Leif Steinsrud þriðji á eftir Tadini frá Italíu og Sartoriusi frá Spáni, sem marði sigur. með einu höggi. I forgjafarkeppninni um Evrópu- bikarinn á Oefte-vellinum við Essen urðu úrslit þau, að gestgjafarnir, Þjóðveijar, báru sigurorð af öðrum með Fransmenn í öðru sæti og Spánveija í þriðja. Fararstjóri var Hörður Guðmundsson, formaður Landssamtaka eldri kylfinga á ís- landi og sat hann formannafund. Þar var m.a. rætt um næstu sveita- keppni Evrópusambands senjóra, sem fram fer í Zell am See í Áust- urríki í september á næsta ári og á íslandi árið 1991. B-sveitin. Talið frá vinstri: Sverrir Einarsson, Sveinbjörn Jónsson, Albert Þorkelsson, Ásgeir Nikulásson, Alfreð Viktorsson og Ingólfur Bárðarson. Iþróttir helgarinnar Blak Laugardagur Karlar: Digranes HK-KA............kl. 15.15 Hagaskóli ÞrótturR.-HSK ....kl. 15.15 Konur: Digranes HK-KA...kl. 14.00 Hagask. Þróttur R.-Vík....kl. 14.00 Sunnudagur Karlar: Hagaskóli ÍS-KA...kl. 14.00 Konur: Hagaskóli ÍS-KA...kl. 15.15 Golf Bændaglíma öldunga í golfi fer fram á gódum golfvelli Golfklúbbs Hellu í dag og verður ræst út frá .kl. 10. Hlaup Fyi-sta 30 km boðhlaup inna UBSB fer fram í dag. Hlaupið hefst við Valfell* í Borgarhreppi og jrví lýkur fyrir framan Sparisjóð Mýrasýslu í Borgamesi. Hver sveit er skipuð 10 einstaklingum (eigi færri en fjórum konum) og hver hlaup- ari hleypur þijá km (1 x 3 km eða 3 x 1 km). Badminton Fyi’sta opna fullorðinsmótið á vegum TBR á þessu keppnistímabili verður í TBR-húsinu um helgina. Mótið ber nafn- ið Jafnréttismót. Handknattleikur Laugardagur 1. deild karla: Akureyri KA-Víkingiir.....kl. 16.30 Seljaskóli ÍR-HK................kl. 16.30 Seltj. Grótta-Stjarnan....kl. 16.30 Vestm. ÍBV-FH...................kl. 16.30 1. deild kvenna: Seltjarnaraes Grótta-FH ..kl. 15.00 2. deild kvenna: Laugardalsh. Þróttur-ÍBV..kl. 14.00 Seljaskóli ÍR-ÞórAk.............kl. 15.00 3. deild karla: Seljaskóli ÍBÍ-Víkingur-b.kl. 12.45 Seltj. Grótta b-UBK b.....kl. 13.30 Sunnudagur 1. deild karla: Laugardalshöll KR-Valur...kl. 20.15 1. deild kvenna: Garðabær Stjarnan-KR....kl. 14.30 Hafnarfj. Haukar-Víkingur...kl. 14.00 Laugardalsh. Fram-Valur...kl. 21.30 3. deild karla: Garðabær ÍBÍ-UMFA......kl. 13.00 Sangerði Reynir-ÍH..............kl. 14.00 Seljaskóli Fylkir-Framb..kl. 19.00 Körfuknattleikur Laugardagur 1. deild karla: Egilsstaðir UÍA-UBK.......kl. 14.00 1. deild kvenna: Grindavík UMFG-ÍBK......kl. 14.00 Suiiiiudagur Úrvalsdeild: Njarðvík UMFN-KR......:...kl. 16.00 Sauðárkr. UMFT-Haukar....klVTfr.OO Seljaskóli ÍR-UMFG.............16.00 Hlíðarendi Valur-ÍBK......kl. 20.00 1. deild karla: Bolungarv. UMFB-ÍA..........14.00 Hagaskóli Léttir-Snæfell.kl. 19.00 Knattspyrna 8-liða úrslitin í firmakeppni Gróttu hefj- ast kl. 14.30 í nýja íþróttahúsinu á Selt- jarnaraesi á sunnudaginn. Grunnskólamót KRR hefst um helg- ina. Fyrsta umferð verður á gervigras- inu í Laugardal á sunnudaginn. GULUR, RAUÐUR, GRÆNN OG BLAR gerður af meistara höndum Allir þekkja EGILS-appelsínið eina og sanna, þetta með bláu röndunum. En EGILL hugsar líka um þá sem forðast sykurinn. EGILS Diet-appelsín er drykkurinn þeirra, þetta með grænu röndunum. Sgils appelsín - að sjálfsögðu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.