Morgunblaðið - 14.10.1989, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 14.10.1989, Blaðsíða 25
££25 < • MOItfMIJNBlíAÐflÐ >LAUGAftDAGUR < 1 #.? GKTOBBRi 4989 Slippstöðin hf. afhendir Guðmund Ólaf ÓF; Siglir til heimahafiiar í Olafsfirði eftir um- fengsmiklar breytingar GUÐMUNDUR Ólafur ÓF-91 siglir í dag frá Slippstöðinni á Akureyri til heimahaftiar í Ól- afsfirði eftir umfangsmiklar breytingar og endurbætur sem gerðar hafa verið í Slippstöð- inni. Skipið er í eigu Útgerðarfé- lags Garðars Guðmundssonar hf. í Ólafsfirði. Guðmundur Ólafur er loðnu- og togveiðiskip, byggt í Noregi árið 1966 og hét þá Börkur NK-122. Ýmsar breytingar hafa verið gerð- ar á skipinu síðan og hefur það m.a. verði lengt, byggt yfir það, vélar endurnýjaðar og fleira. Allar breytingar sem nú voru gerðar á skipinu voru unnar samkvæmt hönnun og teikningum Slippstöðv- arinnar hf. á Akureyri í nánu sam- ráði við eigendur þess. Skipið var allt sandblásið utan, Iestar og fleira að innan og það síðan málað. Þá var smíðað nýtt tveggja hæða álstýrishús á skipið. Á neðri hæð er einn íbúðarklefi, sjóklæðageymsla, snyrting og tækjaklefi. Á efri hæð er stýrishús og íbúðarklefi skipstjóra. í stýris- húsinu er komið fyrir flestum þeim tækjum sem áður voru í gamla stýrishúsinu og kortaklefa, auk þess geymslu fyrir flotbúninga. Ný tæki voru og sett upp í skipinu og má þar nefna gíróáttavita, sjálf- stýringu, dýptarmæli og veður- kortaritara. Innréttingar voru endurnýjaðar í einum fjögurra manna klefa á neðra þilfari og eldhús og borðsal- ur endurskipulögð og innréttuð að nýju og komið fyrir nýjum tækjum, m.a. eldavél og hitaborði. Við hlið borðsalarins var innréttuð ný rúm- góð setustofa þar sem áður var íbúð skipstjóra. Settur var upp nýr færslublakk- arkrani og gerðar breytingar og endurbætur á lúgum og fleiru á efra og neðra þilfari. Gamla bakka- þilfarið var skorið burtu, einnig frammastur og tilheyrandi búnað- ur og nýtt bakkaþilfar smíðað sem er 1,5 metrum hærra en gamla þilfarið. Nýr inngangur var settur í bakkann og nýtt frammastur fyrl ir siglingaljós. Til að auka kjölfestu skipsins og sjóhæfni var settur undir það um 20 tonna kjölfestukjölur og einnig voru sett á skipið stór sling- Moi’gunblaðið/Páll A. Pálsson Guðmundur Ólafur ÓF-91 siglir í dag til heimahafnar í Ólafsfirði, en skipið hefur verið í umfangsmiklum endurbótum hjá Slippstöð- inni að undanförnu. urbretti sem reynst hafa vel til að draga úr veltingi á skipum sem þessu. Árið 1986 setti Slippstöðin niður nýja aðalvél í skipið ásamt skrúfu- búnaði og nýju stýri. Skipstjóri á Guðmundi Ólafi er Maron Bjöms- son. Dalvík: Tölur um íjölda minka sem sloppið hafa stórlega ýktar Segir Árni Pálsson bústjóri þrotabús Pólarpels „TÖLUR um fjölda minka sem hugsanlega hafa sloppið út úr Bögg- visstaðabúinu eru stórlega ýktar,“ sagði Ami Pálsson bústjóri þrota- búsins Pólarpels sem rekur loðdýrabúið að Böggvisstöðum við Dalvík. Á bæjarskrifstofunum á Dalvík fengust þær upplýsingar að greitt hefði verið fyrir 27 minkaskott og hefðu þeir minkar allflestir verið drepnir í síðustu viku. Rólegt hefði verið alla þessa viku, en í gær var greitt fyrir 9 skott. Þeir minkar náðust þó allir í fyrri viku. Ámi sagðist ekki þræta fyrir að einhverjir minkar hefðu sloppið út úr búinu, en benti á að fleiri loð- dýrabú væru í Svarfaðardal. „Það var farið mjög nákvæmlega yfir búið eftir gjaldþrotið. Við höfum þijú dýr i hveiju búri og það hefði því ekki leynt sér ef einhver fjöldi hefði sloppið út,“ sagði Ámi. „Ég vil meina að örfáar læður hafi slopp- ið út og þær hafi gotið,“ nefndi hann sem skýringu á fjölda þeirra minka sem veiddir vom í síðustu viku. Árni tók fram að ekkert væri til sparað við rekstur búsins og m.a. hefði verið unnið við endurbætur á búrum og fleira frá því að rekstur þrotabúsins hófst. Slökkviliðs- menn þinga 17. ÞING Landssambands slökkviliðsmanna var sett á Hótel KEA í gær og stendur það fram á sunnudag. Á þinginu verður Qailað um ýmis mál er varða slökkviliðsmenn, bæði varðandi kjaramál og einnig hina faglegu hlið. Meðal annars verður rætt um óundirritaða reglugerð um réttindi og skyldur slökkviliðs- manna. Á þinginu era 40 fulltrúar ‘ slökkviliðsmanna víðsvegar af landinu bæði frá atvinnu- og áhuga- mannaliðum, en alls era starfandi liðlega tvö þúsund slökkviliðsmenn í landinu. * Olund gef- urútbók FÉLAGIÐ Óiund ætlar að gefa út bók í byrjun desember næst- komandi þar sem akureyrskum skáldum gefst færi á að koma efni sínu á framfæri. Söfnun efnis er þegar hafin, en frestur til að skila inn efni er til loka þessa mánaðar. í ritnefnd hafa verið kjörin þau Ásmundur Ás- mundsson, Hildigunnur Þráinsdótt- ir og Hlynur Hallsson. Éyrirhugað er að gefa bókina út í byijun desem- ber og er ætlunin að í henni verði ljóð og smásögur eftir akureyrska höfunda. Ólund rak til skamms tíma út- varpsstöð á Akureyri og einnig hef- ur félagið gefið út tímarit. Hlynurr - Hallsson einn af Ólundarfélögum sagði að ætlunin væri að gefa út annað blað á næsta ári, en félagið hefði einnig fleiri járn í eldinum því það hefði staðið fyrir tónleikum á Akureyri og yrðu einir slíkir haldn- ir fljótiega, þar sem að líkindum myndu m.a. koma fram hljómsveit- imar Bootlegs og Risaeðlan. KVIKMYNDAHÁTÍÐ LISTAHÁTÍÐAR1989 Pjölskyldan - La Famiglia Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Leikstjóri Ettore Scola. Handrit Ruggero Maccari, Furerio Scarpelli, Scola.'AðalIeikendur Vittorio Gassman, Fanny Ard- ant, Stefania Sandrclli, Philip Noiret. ítalia 1987. Þessi einkar hlýja og viðkunnan- lega mynd, sem frumsýnd er í dag, hefst og lýkur með fjölskyldu- myndatöku. í upphafi er sögumað- urinn Carlo nýfæddur snáði, í myndarlok gráhærður öldungur, enda höfum við fylgst með lífshlaupi hans og fjölskyldunnar í átta áratugi. Er myndin frýs í lok- in situr ný kynslóð flötum beinum frammi fyrir afá gamla, þeirra tímabil að renna upp. Á hveiju sem gengur heldur lífið áfram. Scola býður okkur að borði fjöl- skyldunnar í orðsins fyllstu merk- ingu, því tökuvélarnar fara aldrei útfyrir hússins dyr. Áhorfandinn er því í nánu sambandi við fjöl- skyldumeðlimina þessa átta ára- tugj, fylgist grannt með hinni stóru menntamannafjölskyldu í Róm, á misjöfnum tímum gleði og sorga, striðs og friðar. í samræmi við ald- ur aðalpersónanna er skipt um leik- ara í nokkrum hlutverkanna. Mesta reisrf fær myndin er Gassman, sá roskni sjarmör, tekur við hlutverki Carlosar og er Sandrelli, sem gefur honum ekkert eftir í leik né gíæsi- leika, fer með hlutverk mágkonu hans og æskuástar. Þetta er ást- ar/haturssamband, svo manneskju- legt og heillandi af hálfu leikstjóra, handritshöfunda og hinna frábæru leikara að unun er á að horfa. Sannkallaðir töfrar. í stórri fjölskyldu eru að sjálf- sögðu mislitir sauðir og sundurleit- ir einstaklingar og hverjum og ein- um gerð góð skil af höfundum og úi’vals leikurum einsog Noiret og Ardant. Fjölskyldan er hrífandi verk sem geislar frá sér alúð höf- undar við viðfangsefnið sem v(st má telja að sé að vænum hluta hans eigið líf. Ein besta mynd hát- íðarinnar. Flökkulíf - Vidas Errantes Leikstjóri og handritshöfundur Juan Antonio de la Riva. Aðal- leikendui) Jose Carlos Ruiz, Ignacio Guadalupe, Joscfina Gonzales. Mexíkó 1984. Eitt veigamesta hlutverk Kvik- myndahátíðar er að færa gesti sína , nær fjarlægum heimshornum, sýna myndir sem annars eni ekki á boð- stólum. Þessi útvíkkun sjóndeildar- hringsins er bæði fróðleg og for- vitnileg, listrænt gildi myndanna er e.t.v. ekki aðalatriðið. Mexí- kóska myndin Flökkulíf, sem frum- sýnd er í dag, fellur undir þennan myndaflokk. Við fylgjumst með Don Francis- co, sem ferðast, ásamt unguin að- stoðarmanni sínum, á milli smá- þorpa og vinnuskúra skógarhöggs- manna með kvikmyndir í farangr- inum. Erilsamt líf og erfitt og skil- ur lítið eftir í handraðanum. Sam- hliða er Don Francisco að byggja sína draumahöll yfir starfsemina þó efnin séu lltil. Lítil, heiðarleg mynd sem sýnir okkur inní gjörólíka veröld Mið- og Suður-Ameríkubúans í allri sinni fátækt, sem farandbíó flökku- mannsins veitir dýrmætar ánægju- stundir í fásinninu. Leikstjórinn á gott með að sýna þær hlýju tilfinn- ingar sem þróast á milli hins aldr- aða sýningarmanns og aðstoðar- piltsins og þann óraunverulega draumaheim í hijóstrinu sem endar í rústum. En i anda mið- og suður- amerískar sagnahefðar er enginn á þeim buxunum að gefast upp ... Atlarits- hafsrapsó- día - Atlantic Rhapsody Leikstjórn og handrit Katrin Ottarsdottir. Aðalhlutverk Erl- ingur Eysturoy, Elin Karbech Mouritsen, Páll Danielsen, Mikkjal Hehnsdal. Færeyjar 1989. Til hamingju, Færeyingar, Katr- in Ottarsdottir er búin að staðsetja ykkur á landakorti kvikmyndagerð- ar heimsbyggðarinnar í nettri, ljóð- rænni og kíminni mynd þar sem hún stiklar á milli manna í Þórs- höfn. Sem þessvegna gæti verið aðlaðandi útgerðarbær á íslandi með litríku mannlífi, svosem Vest- mannaeyjar. Svo ótrúlega er útlitið og hegðunarmunstrið líkt. Vitaskuld þykir Katrinu væiit um fólkið sitt og bæinn, sem hún leiðir okkur um á þessari sólar- hrings skoðunarfei-ð um götur og' torg, inná heimili og bjórkrár og ballhús, kynnumst meira að segja gróskumikilli fólksfjölgun eyjar- skeggja á fæðingarheimilinu þar sem við erum afdráttarlaust leidd í allan sannleikann um fegurð sköp- unarverksins! Förum meðal bama og öldunga og allra aldurshópa þar á milli. Og Danskurinn fær sitt! Tökum þátt í halelújasamkundu og hófdrykkju, ástarævintýrum og ástaruppgjörum. Nokkur atriðanna eru framúrskarandi, fyndin og vel útfærð, t.d. kveðjustundin á bryggjunni, mærð endurbatakon- unnar, ófullnægja konu bílasölu- mannsins. Þá spinnur leikstjórinn nokkrar skemmtiiegar fantasíur sem falla vel inní heildarmyndina. Það er forvitnilegt að bera rapsódíuna saman við fyrstu mynd- ir nýgrósku íslenskrar kvikmynda- gerðar, Land og syni, Óðal feðr- anna. Allar þijár taka fyrir ramm- þjóðlegt efni, leyna furðuvel reynslu- og auraleysi en skila sínu vel. Vottar ekki einu sinni fyrir hljóðupptökuvandamálinu sem bagaði okkar myndir lengi vel, enda myndin ágætlega gerð tæknilega. Og ekki er laust við örlitla Lands og sona tilfinningu í Atlants- hafsrapsódíunni undir lokin, er föngulegur kvenkostur tilkynnir piltinum sínum að hún sé á förum yfir Atlantsála. Myndir sýnd- ar í dag Fjölskyldan; Lestin leyndardómsfúlla; Salaam Bombayl; Eldur í lyarta mínu; Sögur frá Gimlispítala; Píslarganga Judith Heame; Flökkulíf; Geggjuö ást.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.