Morgunblaðið - 14.10.1989, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAU.GARÐAGUR ;14. QK^ÓBKjR, ^89
heldur mun kostur þeirra hafa ver-
ið rýr. Undir lokin var Flying Enter-
prise komið með allt að 80 gráðu
slagsíðu og riðu brotsjóir sleitulaust
yfir það. Rúmlega hálfri klukku-
stund eftir að mennirnir yfirgáfu
skipið sökk það um 41 mílu austan
við bresku hafnarborgina Falmo-
uth.
Breska strandgæslan var síðar
gagnrýnd fyrir að hafa reynt að
draga skipið til Falmouth í staðinn
fyrir að nýta aðstoð fransks dráttar-
báts og halda undan veðrinu til
Frakklands. En Carlsen var tekið
með kostum og kynjum í Falmouth
og varð þjóðhetja í Bandaríkjunum
og Danmörku. Morgunblaðið skýrði
einnig frá því að hann hefði á yngri
árum verið skipveiji á leiguskipi
Eimskipafélagsins og ætti marga
góða kunningja í Reykjavík.
Uppreisnin í Panama:
Voru með Noriega á
valdi sínu um stund
Miami. Reuter.
HERMENN, sem tóku þátt í upp-
reisninni gegn Manuel Noriega,
ráðanianni í Panama, sögðu í
fyrradag, að þeir hefðu haft Nori-
ega á valdi sínu nokkra stund en
ekki koniið sér saman um hvað
gera skyldi við hann. Hefði sú
óeining kostað suma lífið.
Liðþjálfi í Panamaher sagði í við-
tali við Reuters-fréttast'ofuna, að
uppreisnarmennirnir, sem voru 300
talsins, hefðu náð Noriega á sitt
vald og haft hann í haldi í herbíl
nokkra stund. Leiðtogi uppreisnar-
mannanna, Moises Giroldi majór,
vildi hins vegar aðeins fá Noriega
til að afsala sér völdum og lét flytja
hann aftur í skrifstofuna meðan
hann reyndi að semja við þá for-
ingja, sem studdú Noriega.
Liðþjálfinn, sem kallaði sig Rom-
ani, var meðal 42 hermanna og
óbreyttra borgara, sem Bandaríkja-
menn fluttu til Miami í Florída eftir
að uppreisnin hafði farið út um þúf-
ur. Sagði hann, að Giroldi hefði ver-
ið drepinn en kvaðst ekki vita hvort
Noriega sjálfur hefði skotið hann.
Romani spáði því hins vegar, að
Noriega yrði brátt steypt og sagði,
Egyptaland:
Kaíró, Reuter.
MUAMMAR Gaddafí Líbýuleið-
togi heimsækir Egyptaland á
sunnudag i fyrsta sinn í 16 ár.
Hann ræðir þar við Hosni Mubar-
ak, forseta landsins.
Heimsóknin stendur í sólarhring
og fer Gaddafi til borgarinnar Mers
Metruh við Miðjarðarhafið. Líbýu-
leiðtoginn hefur ekki komið til
Egyptalands frá því í lok stríðs araba
og ísraela árið 1973. Samskipti
ríkjanna hafa verið stirð frá því
Anwar Sadat vár forseti Egypta-
að mikill kurr væri í hernum, einkum
meðal illa laurtaðra, óbreyttra her-
manna.
lands, en hann líkti Gaddafi við bijá-
læðing, trúð og sturlað barn.
Egyptar hafa m.a. sakað Líbýu-
menn um að hafa sent sveitir hryðju-
verkamanna til Egyptalands til að
fremja skemmdarverk og myrða
líbýska útlaga. Ríkin háðu stutt
landamærastríð árið 1977. Tímamót
urðu hins vegar í samskiptum
ríkjanna í Casablanca í Marokkó
fyrir fimm mánuðum þegar Mubarak
og Gaddafi sátu báðir fund Araba-
bandalagsins.
Fyrsta heimsókn
Gaddafis í16 ár
SJON ER SOGU RIKARI
OPIÐ LAUGARDAG OG
SUNNUDAG FRÁ KL. 13-17
t
Nú er árgerð 1990 komin til landsins. Við bjóðum
þér að koma, skoða og reynsluaka einum
sterkbyggðasta og öruggasta fjölskyldubíl í
heimi. Þú getur fengið SAAB1990 á verði frá
einni milljón og fjögur hundruð þúsund krónum.
Komdu og spjallaðu við okkur. Við leggjum
okkur fram um að létta þér kaupin.
SAA
AFÓTAL ÁSTÆÐUM
- EKKISÍST ÖRYGGISÁSTÆÐUM
Gtobusi
Lágmúla5, sími: 6815 55