Morgunblaðið - 14.10.1989, Blaðsíða 24
TS4
MORGDJNBLAÐtlÐ .LAUGARDAGUR114,LOKTÓBER 1989
Rj úpnaveiðitím-
inn hefst á morgun
Rjúpnaveiðitímabilið hefst á
sunnudag, 15. október, og lýkur
22. desember. Á þessum árstíma
má vænta snöggra veðrabreyt-
inga og þurfa veiðimenn að hafa
það sérstaklega í huga áður en
lagt er af stað. Ekki er nægilegt
að einblína á hugsanlega veiðivon
því hún getur orðið að engu á
augabragði ef ekki er að gáð.
Nauðsynlegt er að veiðimaður láti
aðstandendur, eða þá aðila er
veita tilkynningarþjónustu, vita
hvert ferðinni er heitið og hafi
náið samráð við veiðifélaga sína
um væntanlega gönguleið og
komutíma áður en lagt er af stað
og standi við hvorttveggja. Þá er
ekki síður áríðandi að klæða sig
eftir aðstæðum og taka með sér
nauðsynlegan búnað til fararinn-
ar.
Enginn má nota skopvopn
nema hann hafi til þess sérstakt
leyfi og þá einungis það skotvopn
eða þá tegund skotvopna sem
leyfið hljóðar upp á. Þá má enginn
skjóta á annars manns landi eða
yfir land annars manns án sam-
þykkis viðkomandi. Veiða má á
afréttum og almenningum enda
geti enginn sannað þar eignarrétt
sinn. Væntanlegir veiðimenn
þurfa þá að kynna sér vel lög og
reglur um skotvopn, fuglafriðin
og náttúruvernd áður en haldið
er til veiða. í síðastnefndu lögun-
um er t.d. kveðið á um að á sum-
um friðlýstum svæðum og fólk-
vöngum er meðferð og notkun
skotvopna bönnuð.
Öll ijúpnaveiði á vélknúnum
farartækjum er bönnuð og má
segja að öll fuglaveiði á snjósleð-
um og torfæruhjólum sé siðlaust
lagabrot. Viðurlög við brotum á
lögum og reglum um skotvopn
og fuglafriðun eru sektir auk þess
sem hald er lagt á skotvopn og
afla.
Veiðimenn eru hvattir til þess
að sýna öðrum fyllstu tillitssemi
og hafa gott samstarf við lög-
gæslu- og eftirlitsmenn.
GENGISSKRÁNING
Nr. 195 12. október 1989
Kr. Kr. Toll-
Eln.KI. 09.15 Kaup Sala gengl
Dollari 62.15000 62.31000 61,31000
Slerlp. 96.61200 96,86100 98.56500
Kan. dollari 52.96300 53.10000 51.94200
Dönsk kr. 8.35070 8,37220 8.34720
Norsk kr. 8,81190 8.83450 8.81900
Sænsk kr. 9,50740 9,53190 9,48920
Fi. mark 14,32690 14,36380 14,22180
Fr. franki 9,61260 9,63730 9.59620
Belg. franki 1,55080 1,55480 1.54810
Sv. franki 37.15990 37.25560 37.44120
Holl. gyllmi 28,83320 28.90/40 28.76310
V-þ. mark 32,56480 32.648/0 32,47350
it. líra 0.04439 0.04451 0.04485
Austurr. sch. 4,61900 4,63100 4.61500
Pon. estíudo 0.38360 0.38460 0.38490
Sp. peseti 0.51170 0.61310 0.51410
Jap. yen 0.43025 0.43136 0,43505
irskl pund 86,68400 86.90/00 86,53000
SDR (Sérst.) /8.05610 /8.25700 /7.94650
ECU, evr.m. 66,85790 67,03000 67,11300
Tollgengi lyrir september er sölugengi 28. seplember S|álfvirkur símsvari gengisskrátungar er 62 32 70.
Leiðrétting
í greininni „84% hækkun beinna
skatta fyrstu 7 mánuði ársins",
sem birtist hér í blaðinu 10. októ-
ber siðastliðinn birtist súlurit
yfir verðhækkanir undir yfir-
skriftinni „Ýmsar hækkanir
sept. ’88-sept. ’89.“
I þessari mynd féllu niður dag-
setningar þess tímabils sem verð-
hækkanir á raforku í smásölu til
heimilisnota áttu sér stað. Fram
kom að raforkan, samkvæmt taxta
RR hefur hækkað í krónutölu um
32,5%, en að teknu tilliti til verð-
lagsbreytinga hefur verðið lækkað
að raungildi um 6,98%. Þessar
breytingar eru miðaðar við tímabil-
ið 1. janúar 1988 til 31. október
1989.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 13. október.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð ' (lestir) verð (kr.)
Þorskur 89,00 75,00 81,51 5T366 437,402
Þorskur(smár) 20,00 20,00 20,00 0,054 1.070
Ýsa 133,00 96,00 115,91 6,416 743.713
Ýsa(smá) 53,00 40,00 47,12 0,177 8.341
Karfi 60,00 39,00 51,79 1,345 69.625
Ufsi 33,00 33,00 33,00 0,405 13.351
Samtals 84,52 23,375 1.975.538
Á mánudag verður meðal annars selt óákveðið magn af karfa,
stórlúðu og fleiri tegundum úr Sigurey BA. Selt verður úr bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 77,00 66,00 73,04 17,511 1.278.943
Ýsa 130,00 88,00 111,46 9,166 1:021.659
Ýsa(ósl.) 121,00 99,00 114,11 0,923 105.319
Karfi 46,00 41,00 45,49 0,792 36.032
Ufsi 42,00 29,00 40,04 1,176 47.088
Samtals 80,84 32,409 2.619.988
Á mánudag verður selt óákveðið magn úr bátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur(ósK) 82,50 55,00 72,19 10,491 757.305
Ýsa(óst) 172,00 91,00 138,34 4,318 507.371
Karfi 42,00 42,00 42,00 0,235 9.870
Samtals 65,60 26,461 1.735.850
Selt var úr Þorsteini Gíslasyni GK, Búrfelli KE, Ólafi GK, Víkingi
III. ÍS og Reyni GK. í dag, laugardag, verður selt úr Þorsteini
Gislasyni GK, ÓLafi GK, Reyni GK, línu- og netabátum.
SKIPASÖLUR í Bretlandi 2. til 6. október.
Þorskur 120,88 139,135 16.818.382
Ýsa 144,80 7,900 1.143.900
Ufsi 62,41 4,055 253.077
Samtals 120,60 152,760 18.423.583
Selt var úr Kambaröst SU í Hull 5. október.
GÁMASÖLUR í Bretlandi 2. til 6. október.
Þorskur
Ýsa
Ufsi
Karfi
Koli
Samtals
124,66 380,834 47.472.915
121,26 237,100 28.751.064
61,10 21,895 1.337.696
72,74 11,260 819.044
96,53 80,020 7.724.172
119,62 800,396 95.741.941
SKIPASÖLUR í Vestur-Þýskalandi 2. til 6. október.
Þorskur
Ýsa
Ufsi
Karfi
Koli
Grálúða
Samtals
107,78 19,384 2.089.213
127,65 7,644 975.792
86,24 77,928 6.720.440
107,67 346,689 37.329.590
82,68 0,112 9.261
116,30 4,534 527.301
99,03 492,138 48.737.941
Selt var úr Ögra RE 2. okt., Gjafari VE 3. okt., Birtingi NK 4.
okt. og Hegranesi SK 5. okt. Selt var úr skipunum í Bremerhaven.
Ein af myndum þeim er verða á
sýningunni.
Sýning- á
fréttaljós-
myndum
HIN ÁRLEGA fréttaljósmynda-
sýning World Press Photo verð-
ur opnuð í Listasafni ASÍ í dag,
laugardaginn 14. október, kl. 14.
Þrír hollenskir fréttaljósmyndar-
ar stofnuðu árið 1956 til alþjóðlegr-
ar samkeppni um bestu blaðaljós-
myndirnar. Þessi óformlegu sam-
tök fréttaljósmyndara urðu smám
saman að stofnuninni World Press
Photo Foundation, sem árlega
gengst fyrir þessari samkeppni.
Tilgangurinn er sá sami og frum-
kvöðlanná að vekja almennan
áhuga á fréttaljósmyndun með því
að sýna og verðlauna það sem best
hefur verið gert á þessum vett-
vangi.
1 ár bárust í keppnina 10.197
myndir eftir 1.294 ljósmyndara frá
62 löndum. Veitt voru verðlaun í
fjölmörgum efnisflokkum og sér-
stakar viðurkenningar.
Auk verðlauna í hinum ýmsu
flokkum er árlega valin fréttaljós-
mynd ársins. Ennfremur eru veitt
verðlaun kennd við Oskar Barnack,
upphafsmann Leica-myndavélar-
innar, fyrir þá Ijósmynd, sem best
túlkar hugsjón mannúðar og sam-
band manns og umhverfis. Þá eru
einnig veitt verðlaun Búdapest-
borgar fyrir ljósmynd sem sýnir
jákvæðar aðgei'ðir til varðveislu lífs
á jörðinni. Sérstakur barnadóm-
stóll velur einnig mynd ársins, þar
sem ljósmyndin er skoðuð frá sjón-
arhóli barnsins.
Að þessu sinni eru 244 ljósmynd-
ir á sýningunni. Hún verður opin
alla virka daga kl. 16-20 og um
helgar kl. 14-20. Syningunni lýkur
29. október.
(Úr frcttatilkynningfu)
Basar og kaffisala
barðstrendinga
Bai'ðstrendingafélagið í
Reykjavík er búið að starfa í 45
ár. Vetrarstarfsemi félagsins er
liafin en félagið býður upp á
margs kyns starfsemi.
Fyrir utan skemmtifundi og
spilakvöld starfa ýmsar deildir inn-
an félagsins. Málfundadeild, ein sú
elsta á landinu sem starfað hefur
samfellt, er með reglulega fundi
yfir vetrarmánuðina. Bridsdeild
starfar ötullega yfír veturinn. Spil-
að er einu sinni í viku.
Þá gtarfar sérstök kvennadeild
innan félagsins. Hennar meginstarf
er að gleðja og hlúa að eldri Barð-
strendingum á Reykjavíkursvæð-
inu, með jólakortum og gjöfum,
árlegu samsæti á skírdag og ferða-
lagi um Jónsmessuna. Til að standa
straum af kostnaði við sína starf-
semi heldur kvennadeildin árlegan
basar og kaffisölu. Basarinn og
kaffisalan eru í Safnaðarheimili
Langholtskirkju sunnudaginn 15.
október og hefst kl. 15.
Blúskompaníið í
Operukjallara
Blúskompaníið spilar fyrir
gcsti Óperukjallarans annað
kvöld, sunnudagskvöld, frá
klukkan 22.
Meðlimir Blúskompanísins eru
þeir Magnús Eiríksson sem spilar
á gítar, Pálmi Gunnarsson á bassa,
Karl Sighvatsson á Hammond-
orgel, Ásgeir Óskarsson á trommur
og Sigurður Sigurðarson á munn-
hörpu.
Sýning í Borgar-
skjalasafni
UM ÞESSAR mundir eru 35 ár
síðan Borgarskjalasafii
Reykjavíkur var formlega stofii-
að. Af því tilcfhi hefur verið
opnuð sýning í anddyri salnsins,
sem ætlað er að gefa nokkra
hugmynd um safnkost þess.
Borgarskjalasafn er héraðs-
skjalasafn sem Reykjavíkurborg
rekur á grundvelli lagaákvæða um
slík söfn. Hlutverk safnsins er að
varðveita skjöl og aðrar skráðar
heimildir sem hafa að geyma upp-
lýsingar um starfsemi og sögu
Reykjavíkur og borgarstofnana.
Einnig er því ætlað að líta eftir
skjalasöfnum borgarstofnana og
láta þeim í té leiðbeiningar um
skjalavörslu og ákveða um ónýt-
ingu skjala, sem ekki á að varð-
veita til frambúðar.
í safninu eru varðveitt skjöl og
gögn frá stofnunum og fyrirtækj-
um borgarinnar. Safnið tekur einn-
ig við skjölum frá einstaklingum,
félögum og fyrirtækjum í
Reykjavík, en slík gögn hafa oft
að geyma mikilsverðar upplýsingar
um sögu og mannlíf borgarinnar.
Á safninu er einnig að finna gott
handbókasafn um Reykjavík, efnis-
flokkaðar blaðaúrklippur, manntöl
og íbúaskrár, svo eitthvað sé nefnt.
Fimm starfsmenn eru við safnið.
Forstöðumaður er Svanhildur
Bogadóttir, borgarskjalavörður.
Sýningin er haldin í anddyri
safnsins í Skúlatúni 2, jarðhæð.
Hún er opin mánud,—föstud. kl.
9—12 og auk þess á miðvikudögum
kl. 13—16. Henni lýkur 27. okt. nk.
(Úr fréttatilkynningu)
Námskeið
um kvíða
UM MIÐJAN október heíjast í
Reykjavík námskeið sem nefhast
„Betri líðan - námskeið um
mannleg samskipti”. Stjórnandi
námskeiðanna er Oddi Erlings-
son, sálfræðingur.
Á námskeiðunum verðui' lögð
áhersla á úrlausnir vandamála sem
fylgja spennu og kvíða.
Ráðstefna hjá
mormónum
Á MORGUN, sunnudag, heldur
Kirkja Jesú Krists hinna Síðari
daga heilögu (Mormónar) ráð-
stefnu á Skólavörðustíg 46. Hefst
ráðstefnan kl.9.30 f.h. og stendur
til kl. 11.30.
Gestur og að-
alræðumaður
v.erður einn af
postulum kirkj-
unnar, Russell
M. Nelson sem
auk starfa í þágu
kirkjunnar er
heimskunnur
hjartaskurðlækn-
Russell M. ir og höfundur
Nelson kennslubóka og
læknisfræðirita. Hann hefur gegnt
formennsku i samtökum hjarta-
skurðlækna í Bandaríkjunum og
flutt fyrirlestra um gei-völl Banda-
ríkin og í a.m.k. 65 löndum öðrum
um læknisfræði og trumál.
Með honum kemur kona hans
Danzel W. Nelsön, svo og trúboðs-
forsetinn Spencer B. Greer ásamt
eiginkonu sinni, Elizabeth.
- (Úr fréttatilkynningu.)
Fyrirlestur
um ofát
Náttúrulækningafélag
Reykjavíkur efhir til fræðslu-
fundar á Hótel Lind við Rauðar-
árstíg um náttúrulækningar og
meðferð gegn ofáti þriðjudaginn
17. október klukkan 20.15.
Á fundinum flytur Snorri Ingi-
marsson, yfirlæknir á Heilsuhælinu
í Hveragerði, erindi um náttúru-
lækningar og Axel Guðmundsson,
leiðbeinandi, fjallar um nýjar hug-
myndir um meðferð gegn ofáti.
Einnig mun Regína Stefnisdótt-
ir, formaður NLFR, fjalla stuttlega
um undirbúning fyrir 22. landsþing
Náttúrulækningafélags íslands
sem haldið verður í lok október.
Fundurinn er opinn almenningi.
Fundur um
Biblíuna
FÉLAG áhugamanna um bók-
menntir er að hefja starfsemi
sína á ný og fyrsti fundur vetrar-
ins verður helgaður Biblíunni.
Þórir Kr. Þórðarson, pt'ófessor,
flytur erindi, Biblían frá sjónarmiði
bókmenntafræða, í Norræna hús-
inu í dag, laugardaginn 14. októ-
ber, klukkan 15.15.
Þórir er prófessor við guðfræði-
deild Háskóla Islands. Hann er
doktor í guðfræði og hefur einkum
fengist við túlkun rita Ganila
Testamentisins út frá gildi þeirra
fyrir saintiðarmenn. Hann er nú
að undirbúa ritgerðasafn um þetta
efni.
Auk þess kennir hann nú nám-
skeið við Háskóla íslands, sem heit-
ir Trúarbókmenntir þar sem fjallað
er um Biblíuna frá sjónarniiði bók-
menntafræða.
Sýningu Jónínu
er að ljúka
SÝNINGU Jóninu Guðnadóttur
í FIM-salnum, Garðastræti 6,
lýkur nk. þriðjudag.
Á sýningunni, sem er sjöunda
einkasýning Jónínu hérlendis, eru
lágmyndir og skúlptúrar, flest unn-
in á þessu ári. Sýningin er opin
kl. 13—18 virka daga og kl. 14—18
um helgar.
Sölugallerí félagsmanna FÍM í
kjallara Garðastrætis 6 er opið á
sömu tímum.
Myndir frá páfa-
komunni
Ljósmyndaþjónusta Vatíkans-
ins hefur sent liingað allmargt
mynda frá komu Jóhannesar
Páls II páfa hingað til lands í
sumar.
Þessar myndir eru nú til sýnis í
prestshúsinu við Hávallagötu 16
(Landakoti) og geta menn pantað
eftir þeim. Upplýsingar um stærð
myndanna og pöntunareyðublöð
liggja þar frammi, einnig upplýs-
ingar um verð þeirra.
(Frcttatilkynning)
„Komdu í kvöld“
að ljúka
SÍÐUSTU sýningar á dægur-
lagahátíðinni „Koindu í kvöld“
verða í Broadway 21,27 og 28.
október. Sýnt hefur verið fyrir
fullu húsi, segir í frétt frá veit-
ingastaðnum.
Dægurlagahátíðin byggist á lög-
um og textum Jóns Sigurðssonar,
en auk hans koma fram söngvar-
arnir Ellý Vilhjálms, Ragnar
Bjarnason, Þorvaldur Halldórsson
og hljómsveit undir stjórn Karls
Möller.
Ólafur Laufdal hefur rekið
Broadway frá upphafi. Reykjavík-
urborg hefur keypt staðinn og mun
Ólafur Laufdal afhenda Davíð
Oddssyni borgarstjóra lykla að
húsinu við hátíðlega athöfn laugar-
dagskvöldið 28. október.