Morgunblaðið - 14.10.1989, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 14.10.1989, Blaðsíða 31
MO«éUNÉLABÍÐ I.AI:(;AR1)A(U'K M. OKTÖBER ÍDSV) 31 Minning: Óskar G.Þ. Guð- mundsson, Tungulæk Hann Óskar er dáinn, voru orð sem ég heyrði fyrst og snurtu mig djúpt, er við kornum úr göngum þann 7. október síðastliðinn. Spurnjngar hrannast upp. Hvers vegna er Óskar kallaður burt svo fljótt frá fjölskyldu og vinum, fullur lífsgleði og góð- mennsku og á góðum aldri? Fátt verður um svör. Óskar fæddist 23. ágúst 1925 að Litlu-Brekku í Borgarhreppi. For- eldrai' hans voni Guðríður ljósmóðir Jóhannesdóttir frá Gufuá og Guð- mundur Þorvaldsson frá Litlu- Brekku. Óskar ólst upp í stórum systkinahópi á miklu menningar- heimili, þar sem hlýja og nærgætni við samferðafólkið voru í heiðri höfð. Þessa góðu kosti erfði Óskar í- ríkum rnæli. Öskar kvæntist Ragnhildi Ein- arsdóttur frá Stóra-Fjalli. Foreldrar hennar voru Hólmfríður Jónsdóttir og Einar Sigurðsson. Þau Óskar og Ragnhildur stofnuðu nýbýli úr landi Litlu-Brekku og nefndu Tungulæk, eftir samnefndum læk. Þau byggðu jörðina upp frá grunni af miklu harðfylgi og eljusemi og stunduðu ljárbúskap framan af. En síðar atvikaðist svo að Óskar hóf að stunda verkstæðis- og smíða- vinnu, enda listamaður í höndum bæði á tré og járn, og eftirsóttur smiður hvar sem hann fór. Þeim hjónum varð fjögurra sona auðið. Þeir eru Guðmundur Valtýr læknir, f. 4. febnlar 1956, kona hans er Ólöf Jónasdóttir, Einar bifvéla- virki, f. 17. október 1958, kona hans er Sóley Sigurþórsdóttir, Sæmundur tæknifræðingur, f. 18. janúar 1960, kona hans er María Þorgeirsdóttir, og Kristján læknir, f. 28. september 1962, en kona hans er Hrund Ru- dolfsdóttjr. Auk þess ólu þau upp frá barnæsku systurdóttur Öskars, Jó- hönnu Smith, sem misst hafði rnóður sína. Hennar maður er Guðjón Magn- ússon. Barnabörnin eru orðin mörg. Framar öðru hafði Óskar hið mesta yndi af ferðalögum um óbyggðir íslands og var hann oi'ðinn mjög fróður um leiðir og örnefni enda minnið einstakt. Við lijón urðum aðnjótandi margra slíkra ferða og kynntumst þar best hvaða persónu- töfra Óskar hafði að geyma. Þrátt fyrir margra ára heilsuleysi var undravert hvað hann gat miðlað öðr- um hlýju og mannkærleika. Hann var gæfumaður í einkalifi, átti góða konu, sem stóð við hlið hans, ekki síst þegar heilsa og þrek þrutu. Ég bið algóðan guð að styrkja fjölskyldu hans, systkini og vini, vitandi það að minningin um góðan dreng lifir. Nú hafa leiðir skilið um litla stund, en ég hlakka til endurfunda við kæran vin. Blessuð sé minning Óskars G.Þ. Guðmundssonar. Sveinn Finnsson í dag, laugardaginn 16. október, verður Óskar Guðmundsson frá Tungulæk jarðsunginn frá Borgar- neskirkju. Hann andaðist á heimili sínu 7. október sl. Óskar Guðmundur Þorvalds, en svo hét hann fullu nafni var fæddur að Litlu-Brekku í Borgarhreppi 23. ágúst 1925, sonur hjónanna Guð- mundar Þorvaldssonar og Guðríðar Jóhannesdóttur Ijósmóður er bjuggu þar. Óskar ólst upp í foreldrahúsum, yngstur í stórum systkinahópi og gerðist þar með auknum þroska stoð og stytta foreldra sinna við bústörf- in. Árið 1954 kvæntist hann Ragn- hildi Einarsdóttur frá Stórafjalli í sömu sveit. Um það leyti hafði hann stofnað nýbýlið Tungulæk úr landi Litlu-Brekku. Ungu hjónin hófust þegar handa af litlum efnum en mik- illi bjartsýni og dugnaði að nema landið. Á næstu árum risu bygging- arnar af grunni og fúaflóar voru ræstir fram og breytt í töðuvöll. Þá var í mörg horn að líta, vinnudagur- inn langur og hvíldarstundirnar stop- ular. Blasa þessi verk við þeim er um veginn fara. Verður seinmælt til fulls það mikla starf sem að baki liggur, þegar allt er reist frá grunni, frá hinu smæsta til liins stærsta. Á þessum árum fæddust synirnir fjórir, Guðmundur Valtýr læknir, sem er við framhaldsnám í Osló, kvæntur Ólöfu Jónasdóttur hjúkr- unarfræðingi, Einar bifvélavirki, bú- settur í Borgarnesi, kvæntur Sóleyju Sigurþórsdóttur kennara, Sæmundur Ágúst, við nám í byggingatækni- fræði, sambýliskona hans er María Þorgeirsdóttir kennari, og Kristján, við nám í læknisfræði, sambýliskona hans er Hrund Rúdólfsdóttir háskóla- nemi. Auk þess ólu þau hjónin upp Jóhönnu Thorolfsdóttur Smith, syst- urdóttur Óskars. Hún er gift Guðjóni Magnússyni lögfræðingi, fulltnia Ríkissaksóknara. Öll hafa börnin haslað sér völl á sviði hins daglega lífs og skipa þar sinn sess nieð prýði. Óskar var maður athafna. Honum féll sjaldan verk úr hendi. Fyrstu árin hafði hann gott bú á Tungulæk og stundaði einkum sauðfjárrækt. Þótt hann væri að eðlisfari hneigður fyrir hefðbundin bústörf skynjaði hann brátt að afkoman myndi betur tryggð með öðrum störfum. Fækkað hann í bústofni sínum smátt og smátt en réðist þess í stað í vinnu á bifreiða- verkstæði Ragnars Jónssonar í Bor- garnesi. Þar vann hann um árabil, en fyrir nokkrum árum breytti hann enn til, kom sér upp verkstæði heima og þar vann hann að srníðum hin síðustu ár. Þar naut hann sín vel. Lét honum vel að vinna flest verk, þótt hann hefði ekki numið þau á skólabekk, því hugurinn var næmur og höndin hög. Þola smíðisgripir hans fyllilega samanburð við verk annawa og lærðari manna. Svo fag- mannlega var að verki staðið. Ávallt var gott til hans að leita ef vanda bar að höndum og úrlausn var veitt ef unnt var og þá ekkert til sparað. Viðmótið var hlýtt. Hann var dagfarsprúður, umtalsfrómur, glaðsinna og kunni að skemmta sér í hópi góðra félaga. Hugur hans stóð ekki til þeirra valda og áhrifa á opinberum vett- vangi, sem margir þrá. Þó hafði hann sínar fastmótuðu skoðanir sem hann fylgdi eftir, þegar þess þurfti með. En hugur hans allur var fyrst og fremst bundinn heimilinu og fjöl- skyldunni. Hann var stoð og stytta foreldra sinna alla tíð og reyndist þeim best, er þau þurftu þess mest með. Hann unni öllu er íslenskt var, ekki síst landinu og náttúru þess. Hann var fróður um sögu þjóðarinn- ar. Það efni var honuni hugstætt. Um árabil hafði hann þann góða sið, þegar halla tók sumri, að ferðast um landið í nokkra daga á bíl í kunn- ingjahópi. Voru þá helst valdar fá- farnar öræfaslóðir, helst vegleysur, þar sem bæði reyndi á bíl og bílstjóra. Þetta voru honum yndisstundir, sem hann minntist oft. Ég átti þess kost að taka þátt í nokkrum slíkum ferðum. Þær eru mér einkar minnisstæðar og þar kynntist ég mági mínum best. Á kveðjustund segja orðin fátt, en frá hugskotinu berast þakkirnar fyr- ir samfylgdina og þar geymast minn- ingarnar sem ylja. Og héðan fylgja honum hugheilar óskir um góða ferð á þeirri óráðnu leið sem hann er nú staddur á. Ég veit með vissu að þar verður honum vel fagnað og þar mun honum vel farnast. Tómas Einarsson VERKTAKAR - BÆJARFÉLÖG VATNSDÆLUR MIKIÐ ÚRVAL-GOTT VERÐ ASETA HF. Ármúla 17a • Símar: 83940 - 686521 JOLAHYASINTUR Nú er rétti tíminn til ab planta jólalaukunum. Þessa helgi leggjum vib sérstaka áherslu á rcektun alls konar innilauka. Ræktib sjálf eigin jólahýasintur, jólatúlípana, jólakrókusa ogjólalilj- ur. Góbar leibbeiningar fylgja. MAGNTILBOÐ: 50 stk. túlípanar hávaxnir kr. 599,- 50 stk. túlípanar lágvaxnir kr. 599,- 15-20 stk. páskaliljur stórblóma . 599,- Gróðurhúsinu v/Sigtún Sími: 68 90 70 Stórar plöntur - ný sending Vorum að fá nýja sendingu af stórum plöntum; pálmar, fíkusar, drekatré o.fl. o.fl. ERIKA (stofulyng) Eigum nú óvenju fallegar Erikur á góðu verði. KAKTUSAR Mikið úrval af kaktusum. Gott verð Líka í Kringlunni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.