Morgunblaðið - 14.10.1989, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1989
19
iií
Dagur
hvíta stafs-
ins
Alþjóðlegur dagur hvíta stafs-
ins er á niorgun, 15. október.
Hvíti stafurinn er aðalhjálpar-
tæki blindra og sjónskertra við
að komast leiðar sinnar. Hann
er jafnframt forgangsmerki
þeirra í umferðinni, segir í frétt
frá Blindrafélaginu.
„Það krefst langrar þjálfunar að
læra að nota hvíta stafinn svo að
hann komi að sem mestum notum.
Þjálfunin er fólgin í að læra að
beita stafnum á réttan hátt, læra
ákveðnar leiðir og að þekkja kenni-
leiti. Mikilvægt er að hlusta eftir
umhverfishljóðum, t.d. eru fjölfarn-
ar götur gott kennileiti. Þegar
blindur eða sjónskertur maður þarf
að komast yfir götu, heldur hann
hvíta stafnum skáhallt fyrir framan
S'g:.
Ökumenn og aðrir vegfarendur
taka í ríkari mæli tillit til blindra
og sjónskertra sem nota hvíta staf-
inn. Eitt aðalvandamál þess sem
ferðast urn með hjálp hvíta stafsins
eru kyrrstæðir bílar á gangstéttum.
Þessir bílar geta valdið stórhættu,
sérstaklega vörubílar og aðrir háir
bílar. Stafurinn lendir undir bílnum
og sá blindi verður ekki var við
hann í tæka tíð.
Skorað er á ökumenn að virða
hvíta stafinn sem stöðvunarmerki.
Vegfarendur eru hvattir til að sýna.
blindum og sjónskertum fyllstu til-
litssemi í umferðinni og að bjóða
fram aðstoð sína ef þurfa þykir.“
Héraðsfundur
Reykjavíkur-
prófastsdæmis
HÉRAÐSFUNDUR Reykjavík-
urprófastsdæmis verður haldinn
sunnudaginn 15. október í Ar-
bæjarkirkju og hefst hann kl. 16
með ritningarlestri og bæn.
Biskup íslands, herra Ólafur
Skúlason, ávarpar fundinn. Síðan
verður skýrsla dómprófasts flutt,
lagðir fram reikningar safnaða svo
og reikningar héraðssjóðs og fjár-
hagsáætlun sjóðsins fyrir næsta
ár. Þá verða fluttar skýrslur starfs-
nefnda prófastsdæmisins, fjallað
um Skálholtsbúðir og loks verða
kosningar og önnur mál.
Veitingar verða í boði Árbæjar-
safnaðar.
Kirkjudagur í
Laugarnes-
kirkju
HINN árlegi kirkjudagur í Laug-
arneskirkju verður á morgun,
sunnudaginn 15. október. Dag-
skráin hefst með barnaguðs-
þjónustu kl. 11.00, en kl. 14.00
verður hátíðarmessa. I messunni
mun sr. Jón Bjarman sjúkrahús-
prestur predika en Inga Þóra
og Laufey Geirlaugsdætur
. syngja tvísöng. Sóknarprestur-
inn mun þjóna fyrir altari. Org-
anisti er Ann Toril Lindstad.
Eftir messuna verður kaffisala
Kvenfélags Laugarnessóknar í
Safnaðarheimili kirkjunnar.
Kirkjudagurinn hefur ávallt ver-
ið mikill hátíðisdagur í kirkjunni.
Að þessu sinni gleðjumst við sér-
staklega yfir því að búið er að lag-
færa kirkjuna verulega bæði að
utan og innan. En það verk hefur
nú staðið í tvö ár og mikið búið
að lagfæra og bseta.
Á þessu hausti verður Laugar-
neskirkja 40 ára og ber safnaðar-
starfið þess vott með ýmsu móti.
Á næstunni kemur t.d. út veglegt
afmælisrit sem borið verður í hvert
hús í sóknihni. Einnig er verið að
undirbúa listaviku kirkjunnar sem
verður dagana 10.-17. des., en nú
hefur kirkjan fengið nýjan hljóm
eftir lagfæringarnar sem gerir tón-
listarflutning í kirkjunni mun feg-
urri.
Það er von okkar að safnaðar-
fólk og aðrir velunnarar kirkjunnar
leggi leið sína á kirkjudaginn næst-
komandi sunnudag og njóti helgi-
haldsins og veisluborðs kvenfélags-
ins.
Jón D. Hróbjartsson,
sóknarprestur.
Fríkirkjan Hafiiar-
firði:
Kirkjudagur á
sunnudag
HINN árlegi kirkjudagur
Fríkirkjusafnaðarins í Hafnar-
firði verður á morgun, sunnu-
daginn 15. október, og mun
kvenfélag kirkjunnar standa fyr-
ir kaffisölu að venju.
Barnasamkoma verðut' í kirkj-
unni klukkan 11 og guðsþjónusta
klukkan 14. Við guðsþjónustuna
mun sr. Bragi Skúlason, sjúkrahús-
prestur, prédika, en sr. Bragi
vígðist á sínum tíma til starfa við
Fríkirkjuna í Hafnarfirði og starf-
aði við hana einn vetur. Að lokinni
guðsþjónustu hefst kaffisalan og
verður hún að þessu sinni í samko-
musal íþróttahússins við Strand-
götu, Álfaseli.
Kaffisala kvenfélagsins er mikil-
vægur þáttur í starfi safnaðarins
og rennur ágóðinn af kaffisölunni
til kirkjunnar og safnaðarstarfsins
alls. Tímamót hafa orðið í starfi
safnaðarins á þessu ári með til-
komu hins nýja safnaðarheitnilis
við Austurgötu og standa nú fyrir
dyrum miklat' breytingar á því.
Það skiptir því miklu máli að
safnaðarfólk sýni hug sinn til kirkj-
unnar á sunnudaginn og íjölmenni
til guðsþjónustu og kaffisamsætis.
Þangað eru og aðrir velunnarar
kirkjunnar boðnir velkomnir.
Einar Eyjólfsson,
safnaðarprestur.
Þarna sérðu Júlíus.
Hann kann að njóta lífsins.
1
S
Júlíus er lánsamur maður og hann
lítur framtíðina björtum augum.
Hann á íbúð og bíl, er í ágætri
vinnu og lætur ýmislegt eftir sér.
Júlíus lætur sig oft dreyma en ólíkt
mörgum öðrum lætur hann
drauma sína rætast. Eitt af því
skemmtilegasta sem hann gerir er
að ferðast til fjarlægra landa enda
gerir hann mikið af því. Júlíus er þó
ekki hátekjumaður en hann er
skynsamur. Hann er í viðskiptum
við Fjárfestingarfélag íslands hf.
Það gerir gæfumuninn. *
*Júlíus byrjaði ungur að leggja til hliðar
af launum sínum til þess að safna í vara-
sjóð ef eitthvað færi úrskeiðis. Hann var
að vísu ekki ánægður með vextina til að
byrja með en hélt að það tæki því ekki að
kynna sér betri leiðir af því að upphæðin
varsvo lítil.
Árið 1985 komst Júlíus hins vegar í
samband við sérfræðinga Fjárfestingar-
félagsins og áttaði sig á því að peningarn-
ir hans gætu margfaldast á stuttum tíma.
Þá átti hann 300.000 kr. í sparifé.
Á rúmum fjórum árum er upphæðin
orðin 1.200.000 kr. og árið 1990 hefur
fjárhæðin líklega tvöfaldast að raun-
gildi. Sannarlega álitlegur varasjóður
það - og hann fer vaxandi! Júlíus heldur
áfram að leggja til hliðar af launum sín-
um og ávaxtar féð hjá Fjárfestingarfé-
laginu. Það gerir hann m.a. til þess að
geta farið í langt sumarleyfi á hverju ári.
Þetta er maður sem kann að lifa lífinu!
Þessar tölur eru raunverulegar en
nafnið.ekki.
Hafðu samband, athugaðu hvort við
getum aðstoðað þig.
FJÁRFESTINGARFÉLAG
ÍSIANDS HF.
HAFNARSTRÆTI • KRINGUJNNl • AKUREYRI
28566 689700 25000