Morgunblaðið - 14.10.1989, Blaðsíða 2
8861 ÍI3UÖT/50 .M ýl'JDAGÍiAOIJAJ QiGAJSVIUOíIOM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1989
Fimmtánda þing VMSÍ:
Kratar fá minni ítök
í framkvæmdastj órn
ALLT útlit er fyrir að alþýðu-
flokksinenn fái einungis þrjá menn
kjörna í framkvæmdastjórn
Verkamannasambands íslands á
þingi sambandsins, sem lýkur í
Morgun-
blaðið í
49.349 ein-
tökum
MORGUNBLAÐIÐ seldist daglega
að meðaltali í 49.349 eintökum á
tímabilinu júni til ágúst í sumar.
Þetta kemur fram í fréttatilkynn-
ingu frá Upplagsellirliti Verzlun-
arráðs Islands.
Morgunblaðið seldist daglega að
meðaltali í 50.130 eintökum í desem-
ber til febrúar sl. og að meðaltali í
50.382 eintökum daglega á tímabil-
inu marz til maí. Tímabilið júní til
ágúst 1988 seldist Morgunblaðið í
49.197 eintökum að meðaltali og er
því söluaukning frá í fyi'ra 152 ein-
tök.
I frétt frá Upplagseftirliti Verzlun-
arráðs íslands segir: „Morgunblaðið
er eina dagblaðið sem notar sér þessa
þjónustu, en hún stendur öllum dag-
blöðunum til boða. Tilgangur eftir-
litsins er að marka heilbrigðan
gi-undvöll fyrir viðskiptasamkeppni
dagblaðanna og notkun auglýsenda
á þessum fjölmiðlum.
Upplýsingar frá upplagseftirliti
dagblaða eru sendar út á þriggja
mánaða fresti til fjölmargra aðila,
sem fréttir og þjónustutilkynningar.
Jafnframt er svarað daglega innlend-
um og erlendum fyrirspurnum um
upplag dagblaða annars vegar og
annaiTa blaða og tímarita hins veg-
ar. Fimm tímarit og tvö vikublöð
nota sér þessa þjónustu um þessar
mundir, í aðskildu eftirliti með upp-
lagi tímarita og vikublaða, þar með
byggða- og landsmálablöð sem koma
reglulega út.
Trúnaðarmaður upplagseftirlits
Verslunarráðs Islands er Reynir
Vignir, löggiltur endurskoðandi,
Endurskoðunarmiðstöðinni hf., N.
Manscher."
dag á liótel Loftleiðuni. Þeir hafa
haft fimm menn af níu í fram-
kvæmdastjórninni til þessa og
varaformennskuna og alþýðu-
bandalagsmenn hafa baft fjóra og
formannsembættið. Líklegt er að
Karl Steinar Guðnason, alþingis-
maður og formaður Verkalýðs- og
sjómannafélags Keflavíkur, láti
undan þi-ýsíingi og gefi kost á sér
til varaformennsku, en Karvel
Pálmason, núverandi varaformað-
ur, hefur gert það að forsendu
þess að hann verði ekki í framboði.
Lögum sambandsins var breytt á
þessu þingi og því skipt í þijár deild-
ir. Búið er að kjósa fonnenn deild-
anna, sem fá sjálfkrafa sæti í fram-
kvæmdastjórninni, og er einn þeirra
' framsóknarmaður. Af þeim sex sæt-
um sem eftir eru kýs þingið fjóra,
formann, varaformann, ritara og
gjaldkera, en tæplega þijátíu manna
sambandsstjórn kýs tvo úr sínum
hópi. Líklegt er að alþýðubandalags-
mennirnir Björn Grétar Sveinsson frá
Höfn og Jón Kjaitansson úr Vest-
mannaeyjum verði báðir í framboði
til gjaldkera og alþýðuflokkskonurn-
ar Ragna Bergmánn úr Framsókn í
Reykjavík og Guðríður Elíasdóttir frá
Framtíðinni í Hafnai'firði verði í kjöri
til ritara. Þá hefur Sigurður T. Sig-
urðsson, formaður Hlífar í Hafnar-
firði, lýst því yfir að hann vilji kom-
ast í framkvæmdastjómina. Olíklegt
er að alþýðuflokksmenn fái nema
annan fulltníann sem sambands-
stjórnin kýs. Sjá einnig miðopnu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nagladekkin mega fara undir
Leyfilegt er að setja nagladekkin undir bíla frá og með morgundeginum. Gúmmívinnustofurnar eru
í óða önn að undirbúa sig fyrir ösina sem búast. má við eftir 15. október.
Sovétmenn tilbúnir að hefja
viðræður um kaup á saltsíld
SOVÉTMENN liafa tilkynnt Síldarútvegsgsnefnd að þeir séu tilbúnir
til að liefja viðræður um kaup á saltsíld til Sovétríkjanna. Gunnar
Flóvenz, framkvæmdastjóri Síldarútvegsnefndar, staðfesti þetta óg
sagði að Sovétmenn hefðu tilkynnt síðdegis í gær að þeir væru nú til-
búnir að hefja formlegar viðræður um saltsíldarkaup.
Gunnar tók þó fram að ennþá á að viðræður myndu hefjast mjög
hafi Síldarútvegsnefnd ekki getað
fengið staðfest hvort gjaldeyris-
heimild hafi fengist fyrir væntanleg-
um kaupum en beðið hefur verið eft-
ir slíkri staðfestingu frá sovéskum
stjórnvöldum. Gunnar taldi þó líkur
fljótlega.
Gunnar sagði að af hálfu Síldarút-
vegsnefndar hefði allt vei'ið gert sem
unnt væri til að fá sovésk stjórnvöid
til að veita umrætt gjaldeyrisleyfi
sem allra fyrst, meðal annars með
góðri aðstoð Tómasar Á. Tómasson-
ar, sendiherra í Moskvu, og Halldórs
Ásgrímssonar sjávarútvegsráðherra.
Gunnar sagði að Halldór hefði Iagt
sérstaka áherslu á skjóta afgreiðslu
málsins er hann ræddi samskipti
landanna við sovéska sjávarútvegs-
ráðherrann í Moskvu í lok síðustu
viku.
í fyrra voru seldar til Sovétríkj-
anna 150.000 tunnur af hausskorinni
saltsíld.
„Aukrang rekstrarum£rags
ríkisins 2% að raimgildi“
Einar Oddur Kristjánssón segir launaskatt hækka um 31%, sem veki þá
spurningu hvort eigi að leggja launaskatt á útflutningsgreinarnar
EINAR Oddur Kristjánsson, for-
maður Vinnuveitendasambands
íslands segir að þeir hjá VSI séu
ákafiega uggandi yfir mörgu í
fjárlagafrumvarpinu, en þeir eigj
eftir að gaumgæfa það betur. „I
fyrsta lagi er það aukning rekstr-
arumfangs ríkisins, sem er a.m.k.
2% að raungildi, mælt á hefð-
bundinn mælikvarða, sem er vísit-
ala samncyslu," sagði Einar Odd-
ur í samtali við Morgunblaðið í
gær.
Einar Oddur segir að það sé stað-
Tvö sendiráð í Brussel:
Sendiherra NATO
o g sendiherra EB
ÁKVEÐIÐ hefúr verið að sendi-
ráð Islands í Brussel verði tvö í
framtíðinni og að annar íslenski
sendiherrann verði fastafulltrúi
hjá NATO, en hinn fari með mál-
efni íslands og Evrópubandalags-
ins, ásamt því að hann verði sendi-
herra Islands í Belgíu og Lúxem-
borg. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins er stefnt að því
Alifuglasalan
hætt starfsemi
Keykjum, Mosfellsbæ.
STJÓRN Alifuglasölunnar sf. í
Mosfellsbæ, sem hafði um 90%
kjúklingasölunnar á hendi, ákvað
í gær að leggja starfsemi fyrir-
tækisins þegar niður.
Ástæða þess að starfsemi dreif-
ingarstöðvarinnar hefur verið hætt
er sú að ekki reyndist fyrir hendi
samstarfsgrundvöllur eigenda fyrir-
tækisins, og sú söluaukníng sem
búist hafði verið við þegar fyrirtæk-
ið var stofnað náðist ekki. J.M.G.
að þessi breyting taki gildi frá 1.
nóvember nk. og að Einar Bene-
diktsson flytjist þá frá NATO yfir
til EB, en Róbert Trausti Árnason
taki við fastafulltrúaembættinu
hjá NATO um sinn, en hann er
þar varafastafulltrúi íslands.
Síðar muni Sverrir Haukur Gunh-
Iaugsson taka við því starfi af
honum.
Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra sagði ’þetta í sam-
tali við Morgunblaðið í gær um
tyískiptingu sendiráðsins í Brussel:
„í áætlun um endurskipulagningu
utanríkisráðuneytisins, sem- kynnt
var í apríl, var gert ráð fyrir því að
skipta sendiráðinu í Brussel, þannig
að annars vegar yrði um fastafull-
trúa hjá NATO að ræða, en hins
vegar sendiherra sem sinnti sam-
skiptunum við Evrópubandalagið í
fullu starfi og væri auk þess sendi-
herra íslands í Belgíu og Lúxem-
borg.
Það var ljóst að starfið í Brussel
myndi vaxa mjög, þegar kæmi fram
yfir mitt þetta ár. Það var reyndar
strax eftir Oslóaryfirlýsinguna og
eftir að þessi mikla vinna fór af stað
í apríl við að undirbúa samnings-
stöðu EFTA í viðræðunum við Evr-
ópubandalagið, sem þetta lá fyrir. Á
þessu hausti, þegar þær viðræður
ná hámarki, verður álagið í Brussel
mjög mikið og síðan fyrirsjáanlega
allt næsta ár vegna samninganna
sjálfra við EB.“
Utanríkisráðhei'ra sagði að það
yrði ógerningur fyrir mann, sem
yrði svo gjörsamlega upptekinn af
slíkum samningum, að hafa einnig
forstöðu fyrir séretöku sendiráði hjá
NATO, sem einnig væri mikið starf.
Þetta mál ætti sér því langan að-
dragandá, en fæli ekki að sama skapi
í sér mikinn kostnaðarauka, þar sem
ekki yrði um fjölgun starfsmanna
að ræða.
„Jafnframt þessu er gert ráð fyr-
ir því að draga úr starfsemi utanrík-
isþjónustunnar á ýmsum öðrum
stöðum og er það starf reyndar þeg-
ar hafið, en um leið er lögð aukin
áhersla á starfsemina í Binssel-
Genf, auk þess sem nú er verið að
undirbúa opnun sendiráðs í Japan,“
sagði Jón Baldvin.
reynd að með þensluáformum ríkis-
ins sé áfram verið að höggva í sama
knérunn. „Ríkið er að þenjast út og
taka meira til sín og þrengja þannig
að og minnka möguleika hins veik-
burða efnahagslífs," segir hann, „við
óttumst líka að hallinn á ríkissjóði
verði miklu meiri á næsta ári en
gert er ráð fyrir í frumvarpinu, sem
mun örugglega hafa þau áhrif að
raunvextir fari hér hækkandi.
Við getum út af fyrir sig tekið
undir flest af því sem fjármálaráð-
hen-a segir að sé stefnumörkun ríkis-
stjórnarinnar í efnahags- og atvinnu-
málum," segir Einar Oddur, „en ég
held að menn hljóti að virða okkur
það til vorkunar þó að við séum ekki
alveg búnir að sannfærast um að
þetta fjárlagafrumvarp muni vísa
okkur þann veg.
Við getum ekki alveg fundið þenn-
an niðurskurð sem fjármálaráðherra
segir að sé þarna," segir Einar Odd-
ur. „Við getum ekki fengið það út
að hann sé 4 milljarðar, eins og hald-
ið er fram, heldur 2,7 milljarðar,
miðað við þær verðlagsforsendur sem
gengið er út frá í frumvaipinu. Þar
af eru tæpar 700 milljónir til Lífeyris-
sjóðs ríkisstarfsmanna, sem er jú
sjóður sem ríkið ber ábyrgð á. Þarna
er því aðeins um frestun á greiðslu
að ræða, en ekki niðurskurð. Síðan
eru 1.200 milljónir króna, sem sam-
svaraendurgreiðslu söluskatts til
sjávarútvegsins, en það er bara
talnaleikur. Einar Oddur segir að
þeir hjá VSÍ sjái ekki betur en að
virðisaukaskattkeiTið feli í sér veru-
lega hækkun, en þeir eigi eftir að
reikna það dæmi betur.
„Það eru fjölmargar spurningar
sem vakna við fyrstu yfirferð þessa
frumvaips. Til dæmis launaskattur
hækkar um 31% og það kallar á þá
spurningu hvort meiningin sé að
hækka launaskatt, eða hvort leggja
eigi launaskatt á sjávarútveginn og
iðnaðinn núna.
Jafnframt veltum við fyrir okkur
launaforsendum fi-umvaipsins. í árs-
byijun áre 1990 verða laun 7%
hærri, en þau voru að meðaltali 1989.
Okkur virðist sem gert sé ráð fyrir
launabreytingum á næsta ári á bilinu
3,5% til 4%, miðað við allt árið. Það
er engin innistæða fyrir þeirri hækk-
un, hvorki hjá ríkinu né atvinnuveg-
unum. Það sem við höfum áhyggjur
af er þenslan sem áætlaðar launa-
hækkanir eiga eftir að valda. Menn
verða að fara að sjá alvöruna í þessu
og að það er enginn grundvöllur fyr-
ir einum eða neinum launahækkun-
um á árinu 1990. Það sem skiptir
máli fyrir þetta þjóðarbú er að það
verður að ná niður nafnvöxtum. At-
vinnureksturinn getur hrunið í hönd-
unum á okkur á næstu mánuðum
eða missenmi, ef við stoþppum ekki
þessa þenslu. Það eru sömu hags-
munirnir hjá launþegum sem at-
vinnurekstrinum, því að það eru
skammtímaáhrif vaxtanna sem ógna
öllu,“ segir formaður VSÍ.
Hafskipsmál:
Kröfiir um
frávísun
lagðar fram
HAFSKIPSMÁLIÐ var tekið fyr-
ir í sakadómi Reykjavíkur í gær-
morgun og lögðu verjendur fimm
sakborninga fram kröfur uni að
málinu verði vísáð frá.
Veijendurnir óskuðu eftir að
málflutningur færi fram um kröf-
una og var ákveðið að hann hæfist
klukkan 9 á þriðjudag.