Morgunblaðið - 14.10.1989, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. OKTOBER 1989
9
TIL SOLU
Toyota Camry 2000 GLI
hvítur að lit, árgerð '87, ekinn 55 þús. km.,
sjálfskiptur. Skipti koma ekki til greina.
Verð: 1.050.000,-
Upplýsingar í síma 75977.
Kœrar þakkir sendi ég öllum þeim, sem glöddu
mig með nœrveru sinni, góðum óskum og gjöf-
um á áttrœðisafmœli mínu 7. október sl.
Guð blessi ykkur öll.
Friðgeir Grímsson.
Ég undirrituð fceri öllum þeim vinum og vanda-
mönnum, sem heiðruðu mig af tilefni 90 ára
afmœlis míns í september sl., innilegustu þakkir.
Þórdís G. Bridde,
Bárugötu 8.
Þakkarávarp?
Innilegar þakkir til allra, sem heiðruðu mig á
sjötíu ára afmœlinu 6. október siðastliðinn.
Eg þakka af alhug heimsóknir, gjafir, heilla-
skeyti og umfram allt fögur orð og mikinn
hlýhug í minn garð.
Guð blessi ykkur öll.
Þorsteinn Ólafsson, kennari.
HRESSINGARLEIKFIMI KARLA
Nýtt námskeið hefst mánudaginn 16. október kl. 07.40-
08.30. Æft verður tvisvar í viku, á mánudögum og
fimmtudögum á sama tíma í íþróttahúsi Vals við Hlíðar-
enda.
Lögð verður áhersla á almenna líkamsrækt, þol, kraft
og liðleika.
Nánari upplýsingar og skráning í símum 84389 og 11134.
Hilmar Björnsson, iþróttakennari.
Verð launasamkeppni
Ert þú lík þessari1
Sultugerðin Búbót efnir til verðlaunasam-
keppni. Leitað er að konu sem er lík
Mömmusultu mömmunni. Þátttakendur
eru beðnir að senda inn myndir af sér
(brjóstmyndir) í lit með rauðdoppóttan
skýluklút á höfðinu og grænt sjal fyrir 28.
október. Vinningshöfum gefst kostur á að
leika í auglýsingum fyrir Mömmusultur.
Verðlaunin eru glæsileg: Fyrstu verðlaun
eru 10.000 kr og nafnbótin Mömmusultu
mamma 1989. Verðlaun 2 til 20 eru ýmsar
sultugerðir frá sultugerðinni Búbót.
Myndir ásamt nafni og heimilisfangi
sendist: Sultugerðinni Búbót Skemmuvegi
24M Kópavogi.
Betra eftirlit
Á unrianförnuni árum
hafa verið gerðar miklar
ráðstafanir til að auka
eftirlit meö ferðum sov-
éskra herflugvéla um-
hverfis Island. Fyrir rúm-
um áratug komu hinar
fullkomnu AWACS-rat-
sjárvélar til landsins, sem
eru með besta búnaði
sem til er í hciminum til
að fylgjast með ferðum
flugvéla. Skömmu síðar
fékk eldsneytisvél fyrir
orrustuþotur fast aðsetur
á Keflavíkurflugvelli en
ineð því var geta orrustu-
þotna til að fylgjast með
ferðum ókunnra flugvéla
stóraukinn. Um miðjan
þennan áratug voru
síðan nýjar orrustuþotur
af F-15-gerð teknar í
notkun á Keflavíkurflug-
velli og þar voru einnig
reist traust skýli fyrir
orrustuþotumar. Jafii-
lramt hefúr markvisst
verið unnið að enduniýj-
un ratsjárkerfisins í
landinu sjálfú, þær tvær
stöðvar sem fyrir em við
Stokksnes og á Miðnes-
heiöi fá nýjan tækjabún-
að og á Bolafjalli við
Bolungarvík og Guim-
ólfsvíkurfjalli við Langa-
nes biða ný hús eflir rat-
sjártækjum. Allt hefúr
þetta miðað að því að
draga úr ferðum sov-
éskra herflugvéla inn á
íslenska loftvamasvæðið.
Má ekki líta á þá miklu
fækkun sem orðið hefiir
á ferðum sovéskra flug-
véla það sem af er þessu
ári sem árangur af þessu
starfi? Á því er enginn
vafi, þótt ýmislegt annað
komi einnig til eins og
fram kemur í upplýsinga-
bréfi Oryggismálanefnd-
ar, þar sem meðal amiars
er á það bent, að Sovét-
memi láti minna að sér
kvcða utan heimaliafa en
áður.
Fréttin í Jane’s Defen-
ce Weekly um fjölgun
sovéskra kafbáta og um
að þeir séu nú hljóðlátari
en áður, þannig að vam-
arliðið á Keflavíkurflug-
velli eigi erfitt með að
finna þá, vekur þá spum-
ingu, hvort þaraa séu
ekki tengsl á milli. Hvort
Sovétmenn fjölgi ekki
einmitt kafbátum sinum
Ratsjárstöðin á Bolafjalli.
Sovéskum kafbátum
fjölgar
í Morgunblaðinu í gær er það haft eftir
breska vikuritinu Jane’s Defence Weekly,
að nú í ár fái sovéskir flotaforingjar fleiri
nýja kafbáta afhenta en nokkru sinni fyrr.
í ritinu er einnig skýrt frá mjög fullkomn-
um árásarkafbátum Sovétmanna sem
meðal annars kunni að vera á ferð í ná-
grenni íslands og kemur þar fram að
varnarliðsmenn í Keflavík standa frammi
fyrir erfiðu verkefni því sovéskir kafbátar
verða sífellt hljóðlátari. I Morgunblaðinu
í gær var einnig sagt frá því, að í upplýs-
ingabréfi Öryggismálanefndar kæmi
fram, að ferðum sovéskra flugvéla fækk-
aði umhverfis ísland á sama tíma og
kafbátunum fjölgar. Að þessu er hugað
í Staksteinum í dag og þeirri staðreynd
að Bandaríkjamenn ætla einhliða að
fækka kjarnavopnum á höfunum um
1100.
en dragi úr flugferðuin,
af því að kafbátamir séu
orðnir það fúllkoinnir að
eftirlitskerfi í Noregi og
á íslandi dugi ekki leng-
ur til að finna þá. Ilvað
sem öllum umræðum um
breytt samskipti milli
austurs og vesturs liður
er hitt staðreynd, að
framleiðsla sovéskra her-
gagna hefur ekkert
minnkað í tíð Gorbatsjovs
og endurnýjun sovéska
heraflans heldur áfrarn
jafiit og þétt.
Hafi aukið eftirlit
dregið úr ferðum sov-
éskra herflugvéla i
kringum landið, kaim
endumýjun á eftirlits-
kerfum með kafbátum að
leiða til hins sama í haf-
djúpunum.
Einhliða
fækkun
I upplýsingabréfí Ör-
yggismálanefndar er
rætt um cinhliöa fækkun
i sjóher Bandaríkjanna.
Þar segir meðal annars:
„Bandarikjafloti hefúr
ákveðið að taka úr notk-
un rúmlega ellefu hundr-
uð skammdræg kjarna-
vopn, sem smíðuð vom á
sjötta og sjöunda ára-
tugnum. Tilkynnt hefúr
verið að öll þessi vopn
verði horfin úr flotanum
árið 1991.
1 fyrsta lagi er um að
ræða 290 Terrier loft-
varnaflaugar. Ekki á að
smíða aðrar í staðinn
þannig að árið 1991
verða engar kjamaloft-
vamarflaugai' í banda-
ríska flotanum.
I öðm lagi verða allar
kjamaflaugar sem hafð-
ar em í skipum og ætlað-
ar gegn kafbátum teknar
úr notkun, jafhvel að tal-
ið er á þessu ári. Þetta
em svonefiidar ASROC
(Anti-Submarine Rocket)
flaugar, en flotinn á sam-
tals 574 slíkar. Nýjar
flaugar sem koma í stað-
inn (Vertical ASROC)
verða líklega eingöngu
búnar hefðbundinni
hleðslu.
Loks verða allar svo-
nefhdar SUBROC (Sub-
marine Rocket) gagnkaf-
bátakjamaflaugar sem
hafðar em i kafbátum
teknar úr notkun „alveg
á næstunni", samtals 285
flaugar. Byrjað var að
taka SUBROC flaugar úr
notkun fyrir fjórum
ámm. Unnið er að þróun
nýrra flauga í stað
SUBROC, sem nefnist
Sea Lance, en ákvörðun
um hvort þær verði bún-
ar kjamahleðslu hefur
verið frestað til ársins
1992. Stefiia Bandaríkja-
flota er að Sea Lance
verði ýmist búnar kjama-
hleðslu eða hefðbundinni
hleðslu."
í upplýsingabréfinu
kemur fram, að þessi ein-
hliða fækkun banda-
rískra kjarnorkuvopna á
höfúnum eigi í'ætur að
rekja til róttækrar
stefnubreytingar. I stað
þess að reyna að tryggja
fælingu gegn kjarnorku-
árás á bandarísk hcrskip
með því að hóta kjarn-
orkuárás á sovéska flot-
aiui, eigi að byggja svo
til eingöngu á hótun um
gagnárás á stöðvar hans
á landi með langdrægum
kjamastýriflaugum og
sprengjuþotum frá flug-
vélamóðurskipum.
Bandaríkjafloti hafi i
reynd misst áhugann á
að eiga kjamavopn gegn
sovéskum skipum og kaf-
I bátum.
Reykjavíkurborg1 kynnt sem
fimdarstaður fi*amtíðarinnar
Borgin ver 18 millj. kr. til kynningarstarfa á árinu
REYKJAVÍKURBORG og hagsmunaaðilar í ferðamannaiðnaði hafa
tekið höndum saman um að kynna Reykjavík sem fundarstað framtí-
ðarinnar. Þrjú ár eru nú liðin frá því að leiðtogafundur Reagans Banda-
ríkjaforseta og Gorbatsjovs Sovétleiðtoga var haldinn í Höfða og fljót-
lega að honum loknum ákvað borgin að leggja ferðaþjónustunni lið í
þessum efiium enda styrkti leiðtogafundurinn landsmenn í þeirri trú
að hér væri kjörinn staður fyrir þessa arðbæru tegund ferðaþjónustu.
Þetta kom in.a. fram í máli Davíðs Oddssonar, borgarstjóra, á blaða-
mannaftindi, sem haldinn var í Höfða sl. fínnntudag.
Borgin ver 18 milljónum kr. til
kynningarátaksins á þessu ári.
Ferðamálanefnd Reykjavíkurborgar,
undir forystu Júlíusar Hafstein, hef-
ur markvisst unnið að þessu kynn-
ingannáli í samvinnu flugfélaga,
gistihúsa og ferðaskrifstofa.
Útbúið hefur verið sérstakt kynn-
ingarrit, „Reykjavík - fundarstaður
framtíðar11. Það er sniðið fyrir erlend
stórfyrirtæki, ferðaskrifstofur og
fyrirtæki sem sérhæfa sig í skipu-
lagi og framkvæmd ráðstefna. Ritið
er komið út á ensku og þýsku. Ver-
ið er að leggja síðustu hönd á
frönsku útgáfuna og eru áform uppi
um sænska útgáfu. Þá er lokið við
gerð myndbands, sem dreift verður
á svipaðan hátt og kynningarritið.
Myndbandið er fimm mínútna langt
og er afi'akstur samvinnu Reykjavík-
urborgar og Stöðvar 2,- Magnús
Magnússon er þulur ensku útgáf-
unnar, Arthur Björgvin Bollason
þeiirar þýsku og Robert Mellk las
inn á amerísku útgáfuna. Gert er
ráð fyrir að myndbandið verði einnig
fáanlegt á frönsku og sænsku.
Ferðamálanefndin hefur, í sam-
ráði við ferðaþjónustufyrirtæki,
ákveðið að taka þátt í skipulögðu
kynningarátaki á svæðum sem liggja
vel við áætlunarflugleiðum Arnar-
flugs og Flugleiða. Fyrsta slíka verk-
efnið er þegar hafið í Vestur-Þýska-
landi í samvinnu við Flugleiðaskrif-
stofuna í Frankfurt. Nýverið voru
sendar á sjötta hundrað sérhannaðar
kynningarmöppur með umræddum
bæklingi og fleiri upplýsingum um
land og þjóð ásamt bréfi frá Davíð
Oddssyni stílað á nafn viðtakanda,
en valdir voru úr ráðamenn í mikil-
vægum fyrirtækjum og alþjóðlegum
samsteypum. Næsta skrefíð er að
senda allt að eitt þúsund yfirmönn-
um fyrirtækja í Bretlandi sams kon-
ar gögn. Þar á eftir koma um 200
fyrirtæki í Belgíu og 200-300 í
Frakklandi. Þetta verður einnig gert
á austurströnd Bandaríkjanna og á
Norðurlöndunum. Flugfélögin og
ferðaskrifstofur fylgja svo málinu
eftir með skipulagðri sölustarfsemi.
Ferðamálanefnd Reykjavíkur hef-
ur haldið ráðstefnur með ferðaþjón-
ustuaðilum árin 1987 og 1988 og
er nú að undirbúa þá þriðju, þar sem
m.a. verður kynnt ráðstefnuaðstaða
i hinu nýja Borgarleikhúsi og í útsýn-
ishúsinu á Öskjuhlíð. í fyrra hélt
borgarstjóri sérstakan kynningar-
fund með framkvæmdastjórum rúm-
lega 100 fyrirtækja á höfuðborgar-
svæðinu, sem eru í samskiptum eða
hafa umboð fyrir flest stærstu fyrir-
tæki heims, til að hvetja þá til þátt-
töku í kynningar- og söluátakinu og
er jafnframt vonast til að það skili
árangri.