Morgunblaðið - 14.10.1989, Side 13
■MOKGUNBLAIW l-Ai;GARpAUl:H 1L;QKTfJBjBiý 1.989.
Ásgeir Gunnars-
son - Kveðjuorð
Fæddur 12. nóvember 1941
Dáinn 6. október 1989
„Enginn veit hvar línan liggur
lífs og dauða milli."
Þessar ljóðlínur komu upp í hug-
ann, þegar þau óvæntu sorgartíð-
indi bárust, að Ásgeir væri látinn.
Slíkar fréttir valda vangaveltum um
líf og dauða. Upp vakna spurning-
ar, _sem seint fást svör við.
Ásgeir fæddist þann 12. nóvem-
ber 1941, sonur þeirra sæmdar-
hjóna Valgerðar Stefánsdóttur og
Gunnars Ásgeirssonar, stórkaup-
manns. Ekki er ætlunin að rekja
æviatriði Ásgeirs í smáatriðum,
enda brestur þekkingu til þess,
heldur færa með þessum fáu orðum
þakklæti fyrir langa og ánægjulega
viðkynningu og samstarf.
Ásgeir lauk tæknifræðiprófí frá
Göteborgs Tekniske Institut í
Gautaborg vorið 1963. _Hann starf-
aði síðan hjá Gunnari Ásgeirssyni
hf. við ýmis störf vegna Volvo-
umboðsins, sem fyrirtækið hafði þá
með höndtim. Þegar ákveðið var
árið 1968 að skilja rekstur bílaum-
boðsins frá öðrum rekstri fyrirtæk-
isins, var bílafyrirtækið Veltir hf.
stofnað og var Ásgeir forstjóri þess
frá upphafi. Mér er kunnugt um
að þeir fulltrúar Volvo, sem áttu
aðild að stofnun fyrirtækisins, ósk-
uðu eindregið eftir því að Ásgeir
tæki að sér forystu þess, aðeins 27
ára gamall, svo mikið traust hafði
hann þá þegar áunnið sér. Það þarf
ekki að orðlengja það, að fyrirtæk-
ið dafnaði fljótt og vel í höndum
hans og samstarfsmanna hans. Það
varð í hópi stærstu bifreiðaumboða
landsins. Það ávann sér traust fjöl-
margra viðskiptavina um allt land
fyrir lipra og ágæta þjónustu. Á
ýmsan hátt var fyrirtækið undir
stjórn Ásgeirs í fararbroddi bif-
reiðainnflytjenda í uppbyggingu
góðrar þjónustu við bifrelðaeigend-
ui' allt í kringum landið. Að vonum
skiluðu svo vönduð vinnubrögð sér
í miklum vinsældum Volvo hér á
landi. Vegna starfa fyrir Bílgreina-
sambandið á þessum árum, fylgdist
ég náið með þessari þróun og er
mér ljúft og skylt að geta þessa
merka uppbyggingarstarfs Ásgeirs.
Ásgeir var mikill félagsmálamað-
ur og var hann eftirsóttur til félags-
forystu, enda vel til þeirra starfa
fallinn. Hann tók öflugan þátt í
starfi Junior Chamber-hreyfingar-
innar frá upphafi og hlaut m.a.
æðstu viðurkenningu hennar. Hann
var þátttakandi í stofnun samtaka
psoriasis- og exemsjúklinga og var
ötull liðsmaður lengst af, að mér
er tjáð. Þá starfaði hann um tíma
á vettvangi Sjálfstæðisflokksins
sem formaður viðskipta- og neyt-
endanefndar og skilaði dijúgu
starfi. Einnig var Ásgeir félagi í
Frímúrarareglunni.
Ásgeir tók sæti í varastjórn Toll-
vöi-ugeymslunnar hf. vorið 1987 og
í aðalstjórn vorið 1988. Hann tók
virkan þátt í störfum stjórnarinnar
frá byijun og kynnti sér vel þau
málefni, sem voru til meðferðar
hveiju sinni.
Hann var tillögugóður og já-
kvæður í umijöllun um menn og
málefni. Hann tókst m.a. á hendur
kynnisferð fyrir fyrirtækið í vor sem
leið til Stokkshólms ásamt fleirum,
ferð, sem hefur fætt af sér ýmsar
nýjar hugmyndir um starfsemi Toll-
vörugeymslunnar, sem mun koma
í ljós á komandi árum.
Það var leitun að öðrum eins
manni til samstarfs, sem gaf sig
allan í starfið á jafn óeigingjarnan,
hógværan og prúðmannlegan hátt.
Ásgeir var einstakt ljúfmenni í við-
kynningu, prúður, en þó fastur fyr-
ir. Hann var hlýr í viðmóti og þægi-
legur í allri umgengni, maður sátta
og réttsýni. Hann hafði mikla yfir-
sýn yfír ijölbreytilegustu málefni,
aldrei smár í hugsun, en þó raun-
sær. Hann var nákvæmur og sam-
viskusamUr, hjálpfús með afbrigð-
-um. Hann var listrænn, teiknari
góður og orti ljóð í tómstundum,
en flíkaði lítt.
Ásgeir var kvæntur Guðlaugu
Konráðsdóttur og áttu þau eina
dóttur, Valgerði.
Við samstárfsmenn Ásgeirs í
stjórn Tollvörugeymslunnar hf. og
starfsfólk hennar minnumst hans
með þakklæti, hlýhug og virðingu
og við sendum öllum aðstandendum
okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Júlíus S. Ólafsson
Sumir eiga auðvelt með að um-
gangast fólk og eignast vini en
öðrum gengur það miður. Til þess
að eignast góða vini og félaga
verða menn að gefa af sjálfum sér
og það var einmitt ríkur eiginleiki
og ósjálfráður hjá Ásgeiri Gunnars-
syni.
í gegnum árin hafði Ásgeir starf-
að mikið að félagsmálum og var
þar oftast í fremstu röð og for-
svari, hugmyndaríkur og skipulagð-
ur í flestu því sem hann tók sér fyrir
hendur.
Hann var heimsborgari í hugsun
óg ræddi oft um það, að við íslend-
ingar ættum að láta af minnimátt-
arkennd gagnvail stórþjóðum og
hasla okkur völl á sem flestum svið-
um út í hinum stóra heimi.
Eitt var það sem að við Ásgeir
unnum að saman í sumarbyijun,
það var smíði og útfærsla á hug-
mynd Ásgeirs að þríkrossinum,
táknmynd heilagrar þrenningar
smíðað í. rauðu-, gulu- og hvíta-
gulli. í þessari einu hugmynd sam-
einuðust margir góðir eiginleikar
Ásgeirs. Góð hugmynd sem skyldi
framleidd og seld, samtök blindra
áttu að njóta góðs af sölunni hér á
landi og meiningin var að selja
þennan þrílita gullkross út um allan
heim og blindir í hveiju því landi
sem krossinn yrði seldur í nytu
góðs af. Þetta er lýsandi dæmi.
Ásgeir var vel hagmæltur og
frumlegur greinahöfundur sem
horfði oft á hlutina frá öðru sjónar-
horni en aðrir.
Þessi ágæti drengur í orðsins
bestu merkingu er nú horfinn til
Austursins eilífa. Minningin um
Ásgeir og hugsmíðar hans munu
lifa um ókomna tíð.
Eg vil persónulega og fyrir hönd
okkar allra, félaganna í STOÐ
þakka samfylgdina og við biðjum
góðan guð að blessa eiginkonu hans
og dóttur.
Sigurður G. Steinþórsson
gullsmiður.
Í gær, föstudag, var til moidai'
borinn góður vinur minn og sannur
félagi til margra ára, Ásgeir Gunn-
arsson, tæknifræðingur. Það er sárt
að sjá á bak slíkum vini.
Kynni okkar Ásgeirs hófust í
JC-hreyfingunni á íslandi og er mér
sérstaklega minnisstætt hvað mér
þótti hann skipulagður frá fyrstu
_______________
tíð og hvernig hann leysti þau mál
sem upp komu af einurð og festu.
Ásgeir var hvers manns hugljúfi.
Hann var trúaður og þeirri köllun
samkvæmur, ávallt reiðubúinn að
rétta öðrum hjálparhönd. Ásgeir
vildi veg JC-hreyfingarinnar sem
mestan og stendur hreyfingin í
mikilli þakkarskuld við hann fyrir
óeigingjarnt starf.
Árið 1986 höfðum við þremenn-
ingarnir Árni Þór Árnason, Ásgeir
og undirritaður frumkvæði að þvi
að takast á við það verkefni að
útvega JC-hreyfingunni á íslandi
eigið húsnæði. Þegar málið var
borið upp var Ásgeir, eins og venja
hans var, fljótur að sýna réttan hug
til verkefnisins. í framhaldi af því
var sett á laggirnar Húsnefnd JC-
heyfingarinnar og afrakstur þeirrar
nefndar voru kaup á húsi Verslun-
arskólans, á horni Grundarstígs og
Hellusunds. Þannig var Ásgeir,
besti félagi í hvívetna, og alltaf fús
til góðra verka.
Eitt af því sem vakti athygli
mína í fari Ásgeirs var hversu hug-
leikið honum var að yrkja. Ljóð
hans eru hispurslaus og í þeim má
finna samhljóm við heilræðavísur
Hallgríms Péturssonar eins og í
þessu:
Því æran er gersemi gjöi'vallra anna 1
sá gimsteinn sem allsenginn annar má kijúfa
þú skalt því í verkunum sýna og sanna
að svíkja ei loforð, né þagnarheit íjúfa.
Ásgeir tamdi sér þessi heilræði.
Nú er hann genginn á braut og
svíður sárt undan slíkum missi.
Eg votta eiginkonu Ásgeirs, Guð-
laugu Konráðsdóttur og dóttur,
Guðrúnu Valgerði, mína innilegustu
samúð á þeim erfiðu tímum sem
þær nú þreyja. Vegur Guðs og fyrir-
ætlun er æði oft vandskilinn en ég
er þess fullviss að svör fáist um
síðir.
Þó vinar míns njóti ekki lengur
við hér í heimi, þá fær ekkert tekið
í burtu úr huga mínum minningu
um góðan dreng og sannan vin.
Karl J. Steingrímsson
- - :•■
CITROÉN BX 4x4
VÖKVAFJÖÐRUN MEÐ FJÓRUM
HÆÐARSTILLINGUM
GERIR HERSLUMUNINN!
OPIÐ I DAG OG A MORGUN
SUNNUDAG Kl. 13-17
Kynningarverð frá kr. 1.299
iIiIQ
Verö án ryövarnar og nkránlngar á 5d BX 4x4 mltaö vlö gengi 29. sept 1989
Alltfrá því Citroén BX var
fyrst kynntur á íslandi, hefur
hann notið verðskuldaðra
vinsœlda. BX-inn erfrábœr
úti á vegum, hörkuduglegur í
snjó, mjög rúmgóður og
ótrúlega sparneytinn.
Hann er búinn hinni
einstöku vökvafjöðrun með
fjórum hœðarstillingum og
eru þá 25 sm. undir lægsta
punktíefstustöðu semgerir
herslumuninn er á reynir og
heldur sömu hœð frá jörðu
burtséðfrá hleðslu. Hann er
glœsilegurfjölskyldubíll með
frábœra aksturseiginleika.
Bíll sem hefur margsannað
ágœti sitt við íslenskar
aðstœður. Nú kynnum við
nýjan Citroén, BX 4x4, bíl
semsameinar alla fyrri kosti
BX, ásamt sídrifi á öllum
hjólum, 107 hestafla vél,
lœsanlegu átaki milli fram-
og afturhjóla og með
driflœsingu að aftan.
Komduog reynsluaktu, það
leiðir þig í allan sannleikann.
Aukþess tekurþú um leið þátt
í glœsilegu reynsluaksturs-
happdrœtti, þar sem
vinningurinn er Helgarferð
fyrir tvo til Parísar,
skoðunarferðir um borgina
og Citroén verksmiðjurnar
auk ótakmarkaðra afnota af
Citroén BX 4x4 allan tímann.
Gtobusn
Lágmúla, s.91-681555
Góð þjónusta - ánægðir bíleigendur