Morgunblaðið - 14.10.1989, Page 14

Morgunblaðið - 14.10.1989, Page 14
15~~T~ l^GIJNBrag[g:|3LTJp^pr<yGUP T4..0KT0BEK 19CT- - PÁLSJURT — Saintpaulia ionantha — Blóm vikunnar Umsjón: Ágústa Björnsdóttir 144. þáttur Ýmsir, sem hafa ánægju af inni- blómum, kannast trúlega við þessa fínlegu pottapiöntu, sem sumir reyndar kalla postulablóm. Hún teist til Gesneriaættar, sem einnig nefnist sumargullsætt. Sums staðar eriendis gengur pálsjurt undir heitunum Afríkufjóla eða Usambrafjóla, en blóm hennar eru ekki ósvipuð fjólu- blómum. Pálsjurt á heimkynni í hiýju og röku skóglendi Usambrafjalla í Tansaníu, en nær öld er liðin síðan hún barst þaðan til Evrópu og farið var að föndra við ræktun hennar og síðan fást við að laga hana til og betrumbæta mgð kynbótum. í því skyni hefur nokkuð verið gripið til að víxla hana við tegundina S. conf- usa, sem er villt á svipuðum slóðum. Af innijurtum vekur pálsjurtin eftir- tekt margra vegna smæðar, sérstaks yfirbragðs og blómskrúðs. Hún myndar mjög stuttan stöngul sem er næsta ósýnilegur lengi vel, en á hann raða blöðin sér í allar áttir í Pálsjurt — Saintpaulia ionantha. allt að því lárétta þétta hvirfingu. Þau eru þykk, stilklöng og þétthærð, rauðleit að neðan. Frá blaðöxlunum lyfta blómin sér upp fyrir laufskrúð- ið. Pálsjurt hefur smám saman náð óhemju vinsældum sem hýbýlaprýði, enda getur hún verið einstaklega blómviljug og er gædd þeim eigin- leika að geta endurtekið blómgun mörgum sinnum á hveiju ári. Blóm hennar eru auk þess fjölbreytileg í formi og litfögur. Ýmist einlit eða tvílit, einföld eða ofkrýnd og oft skemmtilega kögruð. Litur þeirra er í ýmsum blæbrigðum frá hvítu yfir SÝIMUM NISSAN SUNNY LINUNA ^1990 Laugardag og sunnudag kl. 14-17 Sunny bílar eru hlaðnir aukahlutum, s.s. samlæsingu í hurðum, aflstýri, rafstýrðum rúðum og mörgu fleira. Ný l 2 ventla vél, 1600 cc Verð á Nissan Sunny bókstaflega drekkhlöðnum aukahlutum 864.000. Lánakjör: T.d. 25% út og 75% lánað í allt að 21/a ár með lánskjörum banka. NISSAN: Mesl seldi japanski bíllinn í Evrópu ■Réttur bíll á réttum staó litgvar Helgason hf. Sævarhöfða 2 sími 91-674000 • 3ja dyra hlaðbakur • 4ra dyra fólksbíll, sedan, • 5 dyra hlaðbakur hvort heldur framhjóladrifinn • Skutbíll, fjórhjóladrifinn eða fjórhjóladrifinn, þú velur. í SUNNY LÍNUNNI ER ÖRUGGLEGA EITTHVAÐ VIÐ ALLRA HÆFI í rautt og blátt, sem reyndar er bló- malitur formóðurinnar. Til eru einnig dvergkenndii- yrkistofnar, mjög smá- blöðóttir og smáblóma, sem vekja eftirtekt vegna smæðar. Umönnun Pálsjurt er mjög meðfærilegt stofublóm miðað við mörg önnur. Eftirfarandi atriði þarf þó að hafa í huga eigi ræktun hennar að tak- ast vel. Hún þolir ekki dragsúg, þarf jafnan hita, 18-20° og þó held- ur lægri að vetri til. Samt aldrei neðar en 15°. Góð ljósskilyrði, en þolir samt aldrei að sól skíni á hana. Suður- eða austurgluggi myndi henta henni vel í mesta skammdeg- inu, en norður- eða vesturgluggi, eða næsta nágrenni þeirra, frá því að sólar fer að gæta síðla vetrar. Pálsjurt þarf gætilega vökvun. Einkum á veturna og þegar plantan hægir á vexti er brýnt að fylgja þessu eftir. Forðist að vatnsmetta moldina. Látið yfirborð ætíð þorna nokkuð en þó ekki um of á milli vötnunar. Notið aldrei kalt vatn ef vökvað er ofan frá, því fari vatns- dropi á blöð verða þau brúnblett- ótt. Sé vatnið ylvolgt (20-25°) er aldrei hætta á blettum þótt blöð vökni. Sé sú aðferð notuð að vökva á undirskál, verður að gæta þess að láta vatn ekki standa lengur en 15—20 mín. ella getur það reynst skaðvænt því rætur eru fínar og viðkvæmar. Pálsjurt er frekar nægjusöm á næringu. Henni nægir dauf upplausn blómaáburðar á 10—14 daga fresti þegar plantan er í vexti. I svartasta skammdeginu er sjaldan mikið vaxtarfjör í pálsjurt, en hún bregst mjög vel við raflýs- ingu, betur en flestar aðrar stofu- jurtir. Þannig mætti laða fram góð- an vöxt og blómgun með tiltölulega takmarkaðri lýsingu þegar lítið er um blómskrúð í vistarverum. Bæði vöxtur og blómgun pálsjurtar rýrn- ar með aldri, en auðvelt er að íjölga henni með blaðgræðlingum. Óli Valur Hansson Upplýsingasímsvari 681511. Lukkulínan: 99 1002.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.