Morgunblaðið - 14.10.1989, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 14.10.1989, Qupperneq 23
22 , MORGyNBLAQI&.LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1989 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúarritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Arvakur, Reykjavík Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst IngiJónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Stuðningur við Sjálfstæðisflokkinn Ferskleika í stað ólundar Morgunblaðið birti í gær niðurstöður í þjóðmála- könnun Félagsvísindastofnunar Háskólans, sem sýnir enn, að fylgi Sjálfstæðisflokksins vex og nú segjast 47,6% þeirra sem afstöðu tóku ætla að styðja flokkinn, voru 44% í september síðastliðnum og 39,3% í júní en aðeins 27,2% í kosningunum 1987. Könnun Félagsvísinda- stofnunar hefur sérstöðu að því leyti, að þar er leitast við að minnka sem mest hlutfall þeirra, sem svara með orðunum „veit ekki“ og í þeirri könnun, sem birt var í gær var hlutfall þeirra sem voru óráðnir í því hvaða flokk þeir myndu styðja aðeins 7%. Könnun Félagsvísindastofn- unar var gerð í þeirri viku, sem landsfundur sjálfstæðismanna var haldinn en henni lauk á laugardag, daginn áður en gengið var til afgreiðslu á mál- um og forystumenn voru kjörn- ir. Flokkurinn var því óvenju- mikið í sviðsljósinu þessa daga og sögðu menn á honum bæði kost og löst. í gær voru einnig birtar nið- urstöður í skoðanakönnun Dag- blaðsins/Vísis (DV). Var hún gerð á miðvikudag og fimmtu- dag í þessari viku, eða eftir landsfund sjálfstæðismanna. Miðað við könnun DV síðan í ágúst eykst fjöldi þeirra, sem lýsa stuðningi við Sjálfstæðis- flokkinn um 5,5%. Sé aðeins litið á þá, sem afstöðu tóku er stuðningur við Sjálfstæðis- flokkinn 59,1% og er það eins- dæmi á landsvísu. Sá er munur á framkvæmdinni hjá Félags- vísindastofnun og DV, að DV leitast ekki við að minnka hlut- fall óákveðinna, sem nú eru 40,5% af svarendum í könnun blaðsins. Báðar sýna þessar kannanir að straumurinn liggur til Sjálf- stæðisflokksins. Þær eru þó ekki annað en vísbending um það, hvert fylgi hann fær, þeg- ar gengið verður til kosninga. Meginskýringin á þessu mikla fylgi við flokkinn er auðvitað sú, hve ríkisstjórnin gegnir hlutverki sínu illa. Ríkisstjórn- inni hefur ekki tekist með nokkrum hætti að ná tökum á stjórn efnahagsmála. Stjórnin er orðin fólkinu í landinu harla dýrkeypt og þyngjast byrðarnar vegna hennar nú enn, þar sem hún hyggst gera út á skatta og flækja einstaklinga enn meira í kerfisnetið. I lýðræðisþjóðfélögum er ákaflega fátítt að ríkisstjórnir njóti jafn lítils stuðnings og ríkisstjórn Steingríms Her- mannssonar. Samkvæmt könn- un Félagsvísindastofnunar fyrir Morgunblaðið nýtur stjórn Steingríms nú aðeins stuðnings 26,4% aðspurðra, 51,2% sögð- ust vera á móti stjórninni en 20% sögðust hlutlausir. Sam- kvæmt könnun DV styðja að- eins 23,7% stjórnina, 60% eru henni andvígir og 14% óákveðn- ir. Jafn óvinsælir stjórnarherrar og hér finnast nú aðeins í kommúnistaríkjum, þar sem ráðamenn keppast orðið við að skipta um nafn og númer í von um að það auki vinsældir þeirra meðal almennings. Þá er slá- andi að álíka hátt hlutfall íslenskra ríkisborgara hefur kosið að flytja úr landi það sem af er árinu og austur-þýskra sem hafa valið þann kost að lýsa andúð á stjórnarháttum kommúnista þar með því að greiða atkvæði með fótunum og flýja land. Er þó vissulega ólíku saman að jafna örbirgð- inni í Austur-Þýskalandi og óstjóminni hér. Fjölmenni í Heimdalli Tæplega sex hundruð manns hittust á aðalfundi Heimdallar, félags ungra sjálf- stæðismanna í Reykjavík, á miðvikudagskvöld til að gera upp á milli tveggja vinsælla ungra manna, þeirra Birgis Ármannssonar og Sveins Andra Sveinssonar, við formannskjör. Er líklega einsdæmi að stjóm- málasamtök ungs fólks geti oftar en einu sinni kallað jafn stórt hlutfall þess saman til fundar vegna formanns- og stjórnarkjörs. Aðalfundur Heimdallar staðfestir enn sterka stöðu Sjálfstæðisflokks- ins og hve víða rætur hans liggja í þjóðfélaginu. Astæða er til að taka undir með hinum nýkjörna formanni Heimdallar, Birgi Ármanns- syni, þegar hann segir: „Eg held að sjónarmið Sjálfstæðis- flokksins eigi góðan hljóm- grunn meðal ungs fólks og ef fiokkurinn kemur sínum sjónar- miðum á framfæri við það þá nýtur hann þess í flokksstarfi og kosningum." efbir Þorstein Pálsson Nýtt löggjafarþing hóf störf í þessari viku. Þegar Alþingi kemur nú saman í byijun vetrar eru mikil umbrot í íslenskum stjörnmálum. Þróttmikill landsfundur Sjálfstæð- isflokksins hefur veitt nýju lífi inn í íslenska stjórnmálaumræðu á sama tíma og flæðir undan ríkis- stjórninni bæði í ráðleysi og siðleysi. Segja má að ólundin leki af síðum andstöðublaða Sjálfstæðisflokksins eftir að landsfundinum lauk. í raun og veru varpar fátt skýrara ljósi á góðan árangur á landfsfundi en ein- mitt þessi óiund andstæðinganna. Það blésu ferskir vindar á lands- fundinum og það er ekki nema von að stjórnarflokkarnir og talsmenn þeirra hafi nokkrar áhyggjur eins og málum er komið. Bræðurnir fi*á Bakka Eins og venja er leggur ríkis- stjórnin fram fjárlagafrumvarp í upphafi þings. Með því er lagður grundvöllur að stefnunni í efna- hags- og fjármálum fyrir næsta ár. Þannig ætti það að vera þó að þetta frumvarp minni óneitanlega á ker- ald bræðranna sem kenndir voru við Bakka. Fjármálaráðherrann hefur fylgt því úr hlaði með nákvæmlega sömu stóryrðunum og í fyrra. Þá var tal- að um tímamót og eitthvað sem aldrei fyrr hefði gerst í sögu lýð- veldisins. Það var brotið blað og forverarnir léttvægir fundnir. Nið- urstaðan varð svo sú að í sögu lýð- veldisins hafa menn ekki fundið dæmi um meiri lausatök við stjórn ríkisfjármála en einmitt í tíð núver- andi fjármálaráðherra. Þrátt fyrir 7 milljarða skatta- BJÖRN Þórhallsson, formaður Landssambands íslenskra versl- unarmanna, sagði á 17. þingi sambandsins, sem hófst á Hótel Sögu á föstudag, að hann gæfi ekki kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn þess. „Ég hef setið í stjórn sambandsins frá stofnun þess, árið 1957, og þakka þeim sem Iagt hafa hönd á plóginn á hækkanir skilar hann af sér margra milljarða halla og nýtt fjárlaga- frumvaip gerir ráð fyrir áfram- haldandi hallarekstri. Og samt eru sömu orðalepparnir notaðir og í fyrra. Þá sagði fjármálaráðherrann: „Enda þótt þróun verðlags og launa á næsta ári verði á annan hátt en hér er miðað við, kolivaipast fjár- lagafrumvarpið alls ekki af þeim sökum. Skýringin er það innbyrðis samhengi sem byggt er inn í frum- varpið.“ Og nú vitum við hvað „inn- byrðis samhengi“ þýðir. En það er ekki einungis að fjár- málaráðherrann geri ráð fyrir áframhaldandi hallarekstri heldur eru rekstrarumsvif ríkisins stórauk- in. Nokkrir verklegir framkvæmda- þættir eru skornir niður og hlaupist frá óleystum skuldbindingum bæði að því er varðar byggingarsjóði ríkisins og lífeyrissjóð opinberra starfsmanna svo dæmi séu nefnd um töfralausnir fjárlagafrumvarps- ins. (Sumir myndu kaila það falsan- ir.) Á þessu ári komu til margþættar skattahækkanir ríkisstjórnarinnar. Alvarlegasta atlagan sem ríkis- stjórnin' gerði að skattgreiðendum var hækkun eignaskattanna, sem komið hefur með miklum þunga niður á almenningi, ekki síst öldr- uðu fólki. Hækkun tekjuskatta varð einnig umtalsverð, svo og margs- konar hækkun á skattlagningu at- vinnufyrírtækja. Nú er boðað að halda eigi áfram á þessari óheilla- braut. A-flokkarnir eyðileggja skattkerfísbreytinguna Nú á að ráðast á spamaðinn með nýrri löggjöf, sem felur í sér skatt- þeim akri sem við öll yrkjurn," sagði Björn. Hann sagði að kjara- málin yrðu helsta viðfangsefni þingsins sem lýkur á morgun, sunnudag, en þá verður meðal annars kosin stjórn sambandsins. Björn Þórhallsson sagði á þingi LÍV á föstudag að af sjálfu sér leiddi að kjaramálin yrði aðalmál þingsins, þar sem hið alvarlega heimtu af sparifjárvöxtum. Síðan er boðað að hækka eigi enn á ný hið almenna skatthlutfall í tekju- skatti og auk þess koma á nýju svokölluðu hátekjuþrepi. Þar með eru A-flokkarnir langt komnir með að eyðileggja skattkerfisbreyting- una frá ’87. Það er minnisvarði við hæfi um störfAlþýðuflokkforys- tunnar í þessari ríkisstjórn. Þing- menn Alþýðuflokksins hafa kok- gleypt þetta eins og annað frá Ól- afi Ragnari. Þar á ofan er svo ætlunin að hækka virðisaukaskattinn upp í 26%. Hér er mikið færst í fang og augljóst að um þetta munu standa miklar deilur á því þingi sem nú er nýbyijað. Svo virðist sem hið nýja fjárlaga- fi'umvarp sé algerlega slitið úr sam- hengi við raunverulegar aðstæður í efnahagsmálum og beri fullkom- inn vott um skilningsleysi á högum og kjörum almennings í landinu svo ekki sé minnst á atvinnuvegina. Fjármálaráðherra Alþýðubanda- lagsins stefnir að því að veruleg kjaraskerðing verði á næsta ári ofan á þá gífurlegu kjaraskerðingu sem þegar er orðin vegna efnahags- stefnu ríkisstjórnarinnar. Það er stundum talað um hefð- bundnar leiðir vinstri fiokka við stjórn efnahagsmála. Að því leyti er þessi vinstri stjórn óhefðbundin að hún gengur lengra í miðstýringu og skattheimtu en nokkur önnur stjórn af þessu tagi. Afleiðingar stjórnarstefnunnar eru að sama skapi alvarlegri og hættulegri fyrir atvinnulífið í iandinu og afkomu fólksins. En það er ekki einasta þau atriði sem máli skipta í dægurbaráttunni efnahagsástand væri efst í hugum manna. Hann sagði að samdráttur í efnahagslífinu og atvinnuleysi væri meira áhyggjuefni en breyti- legur kaupmáttur og atvinnuleysi bitnaði fyrst og mest á verslunar- mönnum. „Verðlag hefur hækkað umfram laun að undanförnu og verkalýðs- hreyfingin hlýtur að fara fram á verðtryggingu launa,“ sagði Björn. Hann sagði að lægstu launin þyiftu Á myndinni sést hluti þingfulltrúa á 17. þingi LÍV. Morgunblaðið/Ámi sæbcrg 17. þing Landssambands íslenskra verslunarmanna: Atvinnuleysi bitnar fyrst og mest á verslunarmönnum - segir Björn Þórhallsson sem hættir nú í stjórn LÍV eftir 32ja ára setu í stjórn Þorsteinn Pálsson „Það blésu ferskir vind- ar á landsfundinum og það er ekki nema von að stjórnarflokkarnir og talsmenn þeirra hafi nokkrar áhyggjur eins og málum er komið.“ sem til ó heilla horfa undir þessari ríkisstjórn. Hitt er öllu alvarlegra að ýmsum þeim málum, sem snerta framtíðarhagsmuni íslands, er nú stefnt í mikla tvísýnu. Þetta á ekki hvað síst við um afstöðu íslands til efnahagssamvinnu Norðurlandanna og annarra Evrópuríkja og afstöð- una til Evrópubandalagsins. Afturhaldið króar Alþýðuflokkinn af í þessum efnum hafa sjálfstæðis- menn markað skýra afstöðu. Við viljum með ótvíræðum hætti og án nokkurra fyrii’vara taka fullan þátt í efnahagssamvinnu Norðurlanda- þjóðanna. Það þýðir að við viljum á næstu þremur árum skipa okkar löggjöf í gjaldeyris- og viðskipta- málum á þann veg að hún samrým- ist þessu alþjóðlega samstarfi. Nú- Björn Þórhallsson, fráfarandi formaður Landssambands íslenskra verslunarmanna, í ræðustól á 17. þingi sambands- ins, sem hófst á Hótel Sögu á föstudag. að hækka hlutfallslega meira en önnur laun. Hins vegar hefði lítið miðað í þá átt og óheilindi innan verkalýðsstéttarinnar sjálfrar væru aðalástæðan fyrir því. Björn sagði að menn mættu ekki gleyma skaðabótakröfum Flugleiða á hendur Verslunarmannafélagi Suðurnesja fyrr á þessu ári. „Við skulum ganga þannig frá samning- um í framtíðinni að við fáum ekki lögsóknir í bakið á okkur eins og þarna voru á ferðinni." Magnús L. Sveinsson, formaður Verslunarmannafélags Reykjavík- ur, var kosinn forseti 17. þings LÍV með lófataki. Rétt til setu á þinginu eiga 113 fulltrúar frá 25 félögum og félagsdeildum. Félagar í LÍV voru 14.053 talsins 1. janúar síðast- liðinn. Þar af voru konur 9.175 talsins, eða 65,3% félagsmanna. MORGUifflÞA^jft) LAUffiÁRfiÁffmi i¥i QWtmW jiþþði/J|28 J Hafiiargörður: Bærinn býður 10% ávöxtun skuldabréfa - sagði Asmundur Stefánsson á þingi VMSI I ræðu sinni á þingi Verkamannasambandsins sagði Ásmundur Stefáns- son að Hafnarfjarðarbær seldi um þessar mundir skuldabréf og byði 10% ávöxtun umfram verðbólgu. Þorsteinn Steinsson fjármálastjóri Hafnarljarðarbæjar sagði í samtali við Morgimblaðið að þetta væri ekki rétt, og sér væri alls ekki kunnugt um hvað Ásmundur væri að tala um. verandi ríkisstjórn hefur gert mjög ákveðna fyrirvara um þátttöku í efnahagssamstarfi Norðurlanda- þjóðanna. Það er ljósasti votturinn um afturhaldið sem ræður ríkjum í þessum efnum innan dyra í stjórn- arherbúðunum. Þá er það ótvíræð stefna Sjálf- stæðisflokksins að ísland eigi að taka fullan þátt og án fyrirvara í viðræðum Fríverslunarbandalags- ríkjanna við Evrópubandalagið. Full ástæða er til þess að láta á það reyna í þessum viðræðum hvort þessi ríki geti sameiginlega náð við- unandi tengslum við Evrópubanda- lagið og þar með þátttöku í innri markaði þess. En einnig um þetta hefur ríkisstjórnin fyrirvara. Eins og sakir standa ei ekki ástæða fyrir ísland að huga að aðildarumsókn að Evrópubandalag- inu. En við eigum auðvitað að vera opnir fyrir því á síðari stigum þeg- ar viðræður Fríverslunarbandalags- ins og Evrópubandalagsins er lokið, og með hliðsjón af því hvernig þeim lyktar, að sækja um aðild og láta þá á það reyna hvort hún er mögu- leg með þeim skilyrðum sem við hljótum óhjákvæmilega að setja vegna sérstöðu okkar. Þar koma auðvitað til yfirráðin yfir fiskveiði- landhelginni sem við gefum aldrei eftir og nauðsyn okkar sem smá- þjóðar að standa sérstakan vörð um menningu okkar og tungu. Ljóst er að Alþýðubandalagið er í grundvallaratriðum andvígt al- þjóðlegri efnahagssamvinnu af þessu tagi. Ráðandi öfl í Framsókn- arflokknum eru einnig með mikla fyrii-vara í þessum efnum. Svo virð- ist sem formaður Framsóknar- flokksins fari um þessar mundir í einu og öllu eftir því sem Páll Pét- ursson, gamli Möðruvellingurinn, hefur að segja um alþjóðlegt sam- starf. Á hinn bóginn hefur Halldór Ásgrímsson lýst fijálslyndum við- horfum að því er varðar samskipti okkar við Evrópubandalagið. Ágreiningurinn innan Framsóknar í þessum efnum hefur verið stað- festur. Alþýðuflokkurinn er augljóslega lokaður af í þessu stjórnarsam- starfi. Ilvort sem Alþýðuflokks- mönnum líkar það betur eða verr eru þeir í þessari stöðu neyddir til þess að fylgja afturhaldssjónarmið- um Alþýðubandalagsins og þröng- I drögunum er varað við þeirri hættu sem blasi við framfærslu heimila vegna lýrnandi kaup- máttar og varað mjög alvarlega við því að núverandi aðstæður í þjóðmálum séu notaðar til áróð- ursstríðs „sem hafi það markmið að fá fólk til að trúa þeirri blekk- ingu að kaup verkafólks sé ein aðal orsök þess hvernig komið er fyrir íslenskum þjóðarbúskap." Á því hafi borið að atvinnurekendur ætli sér að fara spila þéssa gömlu plötu, en meginorsaka þess hvern- ig sé komið sé að leita hjá atvinnu- rekendum sjálfum og þá fyrst og sýnustu öflunum í Framsóknar- flokknum. Fijálslyndir menn í Al- þýðuflokknum og Framsóknar- flokknum hafa eftirlátið afturhalds- öflum að ráða ferðinni í afstöðu Islands til einhverra mestu og mikil- vægustu breytinga í efnahagssam- vinnu Evrópuþjóðanna sem um get- ur. Hér er augljóslega verið að stefna íslenskum hagsmunum í tvísýnu. Nýjar hugmyndir í kj ördæmamálinu En það er á fleiri sviðum en í efnahagsmálum sem þessi ríkis- stjórn virðist vera ófær um að taka á málum sem haft geta áhrif til lengri framtíðar. í því sambandi má meðal annars nefna breytingar sem nú eru orðnar aðkallandi í stjórnsýslu og eins kjördæmaskip- an. Á báðum sviðum er um að tefla gnindvallaratriði sem æskilegt væri að ná nokkuð breiðri og traustri samstöðu um. Á landsfundi sjálfstæðismanna fóru fram all miklar umræður um þessi efni. Þar var varpað fram al- veg nýjum hugmyndum um breyt- ingar á kosningalöggjöf og kjör- dæmaskipan. Þessar hugmyndir byggja á því að hluti þingmanna yrði kjörinn í kjördæmum en annar hluti af landslista. Með breytingum af þessu tagi mætti ná fram markmiðum um aukinn jöfnuð og meiri festu í stjórnarháttum. Engum vafa er undirorpið að óskir almennings eru nú mjög ótvíræðar um það að gerð- ar verði breytingar í þá veru sem leitt geti til aukinnar ábyrgðar á alþingi og minni glundroða í fjöl- flokkaríkisstjórnum. Þegar sjálfstæðismenn setja fram hugmyndir sem þannig skipta miklu máli um framtíð íslendinga, hvort heldur er á sviði efnahags- samvinnu við aðrar þjóðir eða stjórnskipunarinnar sjálfrar, hengja andstæðingarnir haus og láta ólundina leka af sér. En hvað sem því líður þá munu ferskir vindar frá landsfundi Sjálfstæðisflokksins feykja þessum hugmyndum inn í stjórnmálaumræðuna og gera þær að veruleika í fyllingu tímans. Höfundur er formnður Sjálfstæðisflokksins. fremst í gegndarlausum fjárfest- ingum sem engar forsendur hafi verið fyrir. Atvinnurekendur geti ekki vænst þess að geta velt ábyrgðinni eða kostnaðipum af eigin stjórnleysi yfir á verkafólk. Síðan segir: „Það er meginkrafa 15. þings VMSI að kaupmáttar- hrapið sem orðið er og verðui' til loka gildandi kjarasamninga verði leiðrétt fyrir allt almennt launa- fólk. Þingið telur að við gerð næstu kjarasamninga verði að ganga þannig frá málum, að þeir hópar sem á eftir koma, geti ekki í skjóli Ásmundur sagði í ræðu sinni að nauðsynlegt væri að taka á öllum lánamarkaðinum, og þá sérstaklega gráa markaðinum, sem vaxið hefði hröðum skrefum með verðbréfavið- skiptum utan bankanna. „Með sama áframhaldi er stutt í það að verð- bréfamarkaðirnir og kaupleigurnar vei'ði umsvifameiri en bankarnir. Það er rétt að vekja athygli á því að það eru ekki aðeins óprúttnir braskarar, sem sækja fé á gráa markaðinn. Þannig er Hafnarfjarð- arbær um þessar mundir að selja skuldabréf og býður 10% ávöxtun umfram verðbólgu," sagði hann. I ræðu sinni vék Ásmundur að því að ríkisstjórnin gerði þá kröfu í viðræðum við Efnahagsbandalagið að engar takmarkanir mætti setja á viðskipti með fisk. Þegar hefði sérstakrar aðstöðu sinnar knúið fram margfalda ávinninga þess sem láglaunafólk samdi um.“ Ekki er talin ástæða til þess að endurskoða vinnulöggjöfina, en hins vegar sé ekki óeðlilegt að aðilar á vinnumarkaði taki upp viðræður sem gefi tækifæri til þess að skiptast á skoðunum um hana. Kjörorð VMSÍ séu eins og í síðustu kj arasamningum trygg- ing fullrar atvinnu, lífskjarajöfnun og að verðbólgu verði haldið í skefjum. Þá er lögð áhersla á að fjármagnskostnaður verði lækkað- ur og breytingar gerðar á skatta- kerfinu sem lækki skatta á eðlileg- um framfærslukostnaði, en skatt- ar á hærri tekjur verði auknir. Verðlagi verði haldið í skefjum með aðhaldsaðgerðum í peninga- málum og að gert verði stórátak í atvinnumálum sem miði að því fyrst og fremst að auka verðmæti framleiðslunnar innan okkar hefð- bundnu atvinnugreina, jafnframt því sem aðrir kostir verði skoðaðir. „Mér er ekki kunnugt um hvað Ásmundur sagði ræðu sinni, en það er alls ekki rétt að við höfum verið að selja skuldabréf með þessum vöxtum. Við höfurn hins vegar eins og önnur sveitarfélög og aðrir tekið lán þegar við höfum þurft á þeim að halda, og þá með þeim bestu kjörum sem við höfum náð á mark- aðnum hveiju sinni. Við höfum ekki verið að taka nein lán á okurkjör- um, og þess má geta að síðasta lán sem við tókum var með 7,9% vöxt- um,“ sagði Þorsteinn Steinsson, fjármálastjóri Hafnarfjarðarbæjar. verið gert þannig samkomulag við önnur EFTA-lönd, sem tæki gildi á miðju næsta ári, en stutt væri síðan sér hefði orðið ljóst að sú krafa ætti ekki einungis við um unna vöru heldur einnig ferskfiskútflutn- ing. Eina atriðið sem ríkisstjórnin gerði kröfu um til að tryggja ráð- stöfun íslendinga á fiskaflanum væri að fyrirtæki í sjávai'útvegi væru í innlendri eign. Hann sagðist geta fullyrt að það eitt að eigendur fyrirtækjanna væru íslenskir ríkis- borgarar væri engin trygging fyrir því að ákvarðanir fyrirtækisins mið- uðust við íslenska hagsmuni, og þótt hvergi væri um greiðslur undir borðið að ræða, þá gæti það verið hagur útgerðarfyrirtækis að selja allan fisk frá fyrirtækinu óunninn beint til útlanda. Hann sagði að hér væri nauðsynlegt að breyta um stefnu, og íslensk stjórnvöld ættu að gera kröfu um að fá að stýra ráðstöfun aflans, en aðeins þannig væri hægt að ráðstafa honum þann- ig að hann nýttist best. Mikil að- sókn á sýn- ingu Errós GEYSILEGUR fíöldi hefur séð sýningu á verkum Errós á Kjar- valstöðum og var tala gesta koni- in í 23.500 á fimmtudaginn. Kristín Guðnadóttir safnvörður tjáði Morgunblaðinu að vegna þess mikla mannfjölda sem kæmi að skoða sýninguna um helgar hefði þurft að bæta við starfsfólki á mesta annatímanum. Sýningin var opnuð þann 16. september og stendur til 22. októ- ber næstkomandi. Sagði Kristín að nú væru eftir tvær sýningarhelgar og mætti búast við að sýningargest- um ætti enn eftir að fjölga umtals- vert. Drög að kjaramálaályktun 15. þings VMSI: Kaupmáttarhrap almenns verkafólks verði leiðrétt Ganga þarf þannig frá málum að þeir sem semji síðar geti ekki í skjóli séraðstöðu knúið fram margfalt meira en láglaunafólk FJÖRUGAR umræður urðu um kjara- og atvinnumál í gær á fimmt- ánda þingi Verkamannasambands Islands, sem nú stendur yfir á Hótel Loftleiðum og ráðgert er að ljúki í dag. Þar komu meðal annars fram áhyggjur manna vegna atvinnuástandsins, hvort hér stefhi í viðvarandi atvinnuleysi og hvað sé til úrbóta. Flestir sem til máls tóku lýstu sig fýlgjandi orkufrekum iðnaði, þar sem stækk- un álversins í Straumsvík yrði fyrsta skrefíð, en þær raddir heyrð- ust einnig að erlend stórfyrirtæki á þessum sviðum ættu ekki er- indi til landsins. Þá var lögð rík áliersla á að bæta kaupmáttinn og að þeir samningar sem gerðir yrðu í vetur yrðu verðtryggðir, en mörgum þótti það vanta í drög að kjaramálaályktun þingsins. Asmundur Stefánsson forseti Alþýðu- sambands íslands: Stjórnvöld stýri ráðstöfim fískafla ÁSMUNDUR Stefánsson, forseti Alþýðusainbands íslands, sagði í ræðu sem hann hélt við setningu þings Verkamannasambands Is- lands, að sér sýndist nauðsynlegt að íslensk stjórnvöld geri kröfu til þess að fá að stýra ráðstöfún fiskafla, þar sem áherslan á íslenska eignaraðild í sjávarútvegsfyrirtækjum nægði ekki til að tryggja hags- muni lslendinga,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.