Morgunblaðið - 14.10.1989, Page 32
MOKGÍ:.NÍdl.AiK)ID l.ALÓAlíDAr.(,« W 0W4Ö1R 4é'gÖ>J/
Kveðja:
Eggert G. Gíslason
framkvæmdasljóri
Er ég sezt niður og læt hugann
reika til baka til þess dags er ég
réð mig til vinnu hjá Eggeit er
hann var forstjóri og aðaleigandi
íslenzka verzlunaifélagsins hf.,
flýgur margt i gegnum hugann.
Eg var 21 árs þegai- ég hóf störf
hjá Eggert sem sölumaður, og hægt
er að segja þegar litið er til baka,
að óskandi væri að skólar gætu
veitt jafn mikla kennslu í hagnýtum
störfum og mannlegum samskipt-
um sem Eggert gerði.
Oft koma upp í hugann. ýmis
varnaðarorð sem Eggert viðhafði í
sínum rekstri, og hefur verið mitt
leiðarljós í rekstri míns fyrirtækis,
sem ég réðst til eftir 5 ára starf
hjá Eggert.
Eiginkona Eggerts var Þrúður
Gunnarsdóttir, og eru margar
minningar tengdar þeim hjónum,
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
- HELGI KRISTJÁIM PÁLMARSSON,
Hátúni 6,
lést 12. október.
Halldór Heigason, Selma Antonsdóttir,
Vigdís Helgadóttir, Guðbrandur Haraldsson,
Ómar Helgason,
Ásgeir Helgason, Stefania Gissurardóttir
og barnabörn.
t
Sonur minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
FINNBOGI PÉTURSSON
frá Hjöllum,
Pólgötu 4,
ísafirði,
andaðist á Sjúkrahúsi Ísafjarðar 12. október.
Pétur Finnbogason,
Sigrún Sigurðardóttir, Valdemar Thorarensen,
Sigurður Finnbogason, Signý Rósantsdóttir,
Stefania Finnbogadóttir, Jónas H. Jónsson,
Hallveig Finnbogadóttir, Ásmundur Sveinsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN GUOFINNA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Langholtsvegi 23,
verður jarðsungin frá Áskirkju mánudaginn 16. október kl. 15.00.
Andrés Guðnason,
Örn Úifar Andrésson, Jóhanna Stefánsdóttir,
Kristfn Rós Andrésdóttir, Björn Ástvaldsson,
Gunnar Már Andrésson, Bjargey Stefánsdóttir,
Sigrún Andrésdóttir, Þorleifur Sigurjónsson
og barnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður og afa,
ÖGMUNDAR JÓNSSONAR,
Hringbráut 32,
Hafnarfirði,
frá Vorsabæ, Ölfusi.
Guðbjörg Ögmundsdóttir,
Jón Finnur Ögmundsson, Kristín Valsdóttir
og barnabörn.
t
Þökkum innilega samúð og kveðjur við andlát og útför
JÓRUNNAR ODDSDÓTTUR
fyrrum símstjóra á Eyrarbakka.
Systkinabörn
og aðrir aðstandendur.
t
Þökkum innilega auösýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
MARGRÉTAR MAGNÚSDÓTTUR,
Dvalarheimilinu Hlíð,
Akureyri.
Ingólfur Árnason,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Guðni Arsæls-
son - Kveðjuorð
gönguferðir á sunnudögum, í kaffi
á Rauðalæknum eða við önnur tæki-
færi, alltaf var þessi ferskleiki og
einurð, þannig að maður skynjaði
ekki þennan mikla aldursmun sem
var á milli okkar, sem voi-u 40 ár.
Augasteinn þeirra hjóna var
einkasonur þeirra, dr. Þráinn Egg-
ertsson, sem þá var erlendis, og var
gaman að heyra þau segja frá námi
hans og starfi. Nú þegar hinu jarð-
lega lífi er lokið sendi ég kveðju til
dr. Þráins og eiginkonu hans og
vona að Guð verði með þeim í þeirra
sorg, en minningin vermir hjörtu
okkar allra sem Eggert þekktu.
Haraldur Haraldsson
Fæddur 16. nóvember
1924
Dáinn 18. septeinber 1989
Mánudaginn 18. þ.m. andaðist á
heímili sínu Guðni Ársæisson, tré-
smiður, frá Bakkakoti, Rangár-
vallasýslu.
Hann fæddist að Eystri-Tungu í
Vestur-Landeyjum 16. nóvember,
árið 1924 og voru foreldrar hans,
Ársæll Jónsson bóndi og kona hans,
Ragnheiður Guðnadóttir.
Guðni lærði trésmíði hjá Eyjólfi
Þorsteinssyni, byggingameistara,
og stundaði síðan trésmíði alla
ævi, síðustu 20 árin hjá Reykjavík-
urborg. Guðni kvæntist árið 1946
Guðrúnu Jóhannesdóttur og eign-
uðust þau tvær dætur, Áslaugu og
Ragnheiði, en Guðrún átti áður
Lárus, sem Guðni gekk í föðurstað.
Eg kynntist Guðna fyrst fyrir um
12 árum um það leyti er konur
okkar settu upp verslun saman.
Guðni smíðaði allar innréttingar
fljótt og vel eins og hans var von
og vísa og sá síðan um endurnýjun
og allt það sem breyta þurfti á
hveijum tíma. Allt gerði hann af
sérstakri smekkvísi og hagleik enda
Útför Jóns Óskars Páissonar
pósts og bónda Seljanesi í Reyk-
hólasveit- verður gerð frá Reyk-
hólakirkju í dag laugardag.
Jón var fæddur 10. nóvember
1909 og lést 7. október 1989.
Jón var póstur frá Króksfjarðar-
nesi að Firði í Múlasveit, en það
er löng og erfið leið, sérstaklega
þegar veður eru válynd.
Hann fór í viku hverri og var
þrjá daga í hverri póstferð og dag-
arnir gátu orðið fleiri væri ferð erf-
ið.
Jón var kvæntur Ingibjörgu
Sigríði Sveinsdóttur frá Hofstöðum
í Reykhólasveit og eignuðust þau 5
syni og eina dóttur og eru fimm
systkini á lífi.
Þau hjón reistu nýbýlið Seljanes,
sem var heimili þeirra þar til heils-
an fór að gefa sig þá byggðu þau
sér einbýlishús á Reykhólum.
Jón var tónelskur og lærði að
leika á orgel hjá Rögnu Sveins-
dóttur í Flatey, en hún varð síðar
organisti á Flateyri.
Jón skrifaði fagra rithönd eins
og margir þeir er gengu í héraðs-
skólann að Núpi í Dýrafirði.
Síðustu árin átti Jón við van-
heilsu að stríða.
Við útför Jons verður leikið í
fyrsta skipti á nýtt orgel af Allen
430 A gerð. Þetta orgel setti Pálm-
ar Árna upp 17. septémber síðast-
liðinn. Er það vel við hæfi að þetta
vandaða orgel sé látið hljóma við
útför Jóns um leið og það er vígt.
Sveinn Guðmundsson,
Miðhúsum.
+
Bestu þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og systur,
GUÐRIÐAR BJÖRNSDÓTTUR,
Hraunbrún 38,
Hafnarfirði.
Sigríður Jósefsdóttir, Már Péturssgn,
Sigurbjörn Jósefsson, Ragnheiður Ólafsdóttir,
Markús Jósefsson,
Ingibjörg Karlsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn,
Ráðhildur Björnsdóttir.
+ Þökkum af alhug öllum þeim sem virðingu við andlát og jarðarför auðsýndu samúð, vináttu og
JÖRUNDAR GESTSSONAR
frá Hellu. Guð blessi ykkur öll.
Magnús Jörundsson, Ragnar Þ. Jörundsson, Árný Rósmundsdóttir, Guðmunda S. Halldórsdóttir,
Lárus Ö. Jörundsson, Guöfinna E. Jörundsdóttir, Ragnhildur ísaksdóttir,
Elenóra Jónsdóttir, Sjöfn Ásbjörnsdóttir,
Vi'gþór H. Jörundsson,
Guðlaugur H. Jörundsson, Guðrún V. Haraldsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
JónÓ. Pálsson
Seljanesi — Minning
var hann góður smiður. Öll þessi
ár hefur aldrei borið skugga á okk-
ar samskipti og allar minningar
mínar um Guðna eru góðar minn-
ingar.
Hann var glaður á góðum stund-
um, söngmaður og meðlimur í kór-
um. Starfaði ötullega fyrir kirkju
sína, Laugarneskirkju, og fyrir Tré-
smiðafélag Reykjavíkur og ávann
sér alls staðar traust og virðingu
samstarfsmanna sinna fyrir ósér-
hlífni og dugnað í starfi.
Guðni var mikill íjölskyldumaður
og ættrækinn. Við voram báðir á
sömu stofu á Landakoti í mars sl.
þar sem við nutum mjög góðrar
aðhlynningar og þegar hann fór að
hressast eftir uppskurð þá ræddum
við ýmislegt eins og gerist og geng-
ur. „Eg á mjög góð systkini, mér
þykir mjög vænt um þau,“ sagði
hann„ og ég hef verið mjög heppinn
með konu mína og börnin."
Ég hygg að þetta hafi verið
gagnkvæmt því á hveijum degi var
fólkið hans hjá honum jafnvel tvisv-
ar á dag.
Eftir að við vorum famir í endur-
hæfingu á endurhæfingardeildinni
á Landakoti fór honum vel fram
og hann var sendur heim. En því
miður entist batinn ekki og andað-
ist hann á heimili sínu eins og fyrr
segir, 18. þ.m. Útför hans var gerð
frá Laugarneskirkju 22. sept. sl.
að viðstöddu fjölmenni. Karlakór
Reykjavíkur söng og systurdóttir
Guðna, Ingibjörg Marteinsdóttir,
söng einsöng. Sr. Jón Dalbú Hró-
bjartsson flutti líkræðuna og jarð-
söng.
Þetta var hátíðleg stund og hjart-
næm og snerti alla viðstadda.
Við hjónin viljum þakka fyrir það
að hafa átt samleið með þessum
góða dreng og notið vináttu hans
og ijölskyldu hans og flytjum Guð-
rúnu, börnunum og systkinum hans
innilegar samúðarkveðjur.
Guðjón Sverrir Sigurðsson
Kjarkmikil Irásöun um
luiggun ng tiúaitranst.
ríIADELfÍA
FORIAG
91-20735.