Morgunblaðið - 14.10.1989, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ - LAUGARÐAGUR 14iOKTÓBER. 1989
35
Hið sigursæla lið slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli,
KEFLAVÍKURFLU GV ÖLLUR
Slökkviliðið þrefaldur
sigurvegari í knattspyrnu
Slökkviliðið á Keflavíkui'flugvelli
tryggði sér Norðurlandameist-
aratitil flugvallaslökkviliða í knatt-
spyrnu fyrir skömmu er liðið bar
sigurorð af liðum stærstu flugvalla
Norðurlandanna.
Mót þetta sem gengur undir heitinu
„Nordic Cup“ er haldið árlega og
er þetta í þriðja skiptið sem að
Slökkvilið Keflavíkurflugvallar
sigrar á mótinu.
Að þessu sinni var mótið haldið
í Osló og er skemmst frá því að
segja að lið Keflavíkurflugvallar og
Arlanda-flugvallar í Stokkhólmi
báru nokkuð af öðrum liðum. Bæði
unnu þau mótheija sína nokkuð
örugglega en innbyrðis leik liðanna
lauk með markalausu jafntefli.
Markahlutfall íslenska liðsins var
hins vegar betra og Keflavíkurflug-
völlur hreppti því gullið.
Lið Keflavíkurflugvallar er einn-
ig Islandsmeistari atvinnuslökkvi-
liða í knattspyrnu. Sá titill vannst
með sigri á Gevalíamótinu sem fram
fór í júlí. Slökkviliðið í Reykjavík
hafnaði í öðru sæti og Slökkvilið
Hafnarfjarðar í því þriðja. Þetta var
þriðja árið í .röð þar sem að röð
þriggja efstu liða er hin sama.
Þriðji titill slökkviliðsmanna á
Keflavíkurflugvelli vannst síðan í
Njarðvík þar sem liðið sigraði firma-
keppni UMFN.
KAUPMÁLI
Fúlg-an tryggð
fyrir skilnaði
Michael Jordan og Juanita.
Körfuboltagoðið Mich-
ael Jordan hefur geng-
ið í það heilaga og er hin
lukkulega eiginkona Juan-
ita Vanoy, þrítug fyrir-
sæta. Þau eiga saman 8
mánaða gamlan son. Sagt
er að umboðsmenn Jordans
hafi verið mennirnir á bak
við brúðkaupið, en lagt þar
fyrir utan að kappanum að
vernda auðæfi sín með
skriflegum samningum við
Juanitu. Samningum sem
tryggðu fúlgur kappans ef
til hjónaskilnaðar kæmi.
Talið er að Jordan hafi
alls ekki verið afliuga því
að ganga í það heilaga, en
þáttur umboðsmannanna
fór heldur í taugarnar á
honum. Töldu þeir að per-
sónuvinsældir Jordans
myndu minnka ef það
kæmist í hámæli að hann ætti son
í lausaleik. A hinn bóginn óttuð-
ust þeir um milljónirnar og þær
kröfur sem Juanita gæti hugsan-
lega gert ef til skilnaðar kæmi.
Er um stórfenglegar upphæðir að
ræða, 4 milljónir dollara ár hvert
fyrir að auglýsa vörur frá Nike
og McDonalds hamborgara, og
25 milljón dollara átta ára samil-
ing Jordans við Chicago Bulls.
Juanita brást reið við kröfu Jor-
dans og manna hans, taldi það
ekki góða byrjun á hjónabandi að
gera slíkan kaupmála. En eftir
að hafa íhugað málið taldi hún
það hag barnsins að gangá að
kröfunum. Þrátt fyrir allt elski
hún nefnilega íþróttákappann og
hann hana.
DANSHUSIfl
GLÆSIBÆ
LAUGARDAGUR:
Hljómsveit
Hilmars Sverrissonar
og Anna Vilhjálms
leika fyrir dansi í kvöld.
Opið frá kl. 22.00 til 03.00.
Rúllugjald kr. 750,-.
DAGSKRÁIOKTÓBER OG NÓVEMBER:
20. og 21. okt. Hallbjörn Hjartarson, hljómsv. Hilmarsog Anna.
27. og 28. okt. Hljómsveit Hilmars og Anna Vilhjálms.
3. og 4. nóv. Finnur Eydal og hljómsveit.
(Bítlavinir gamlárskvöld).
Dúettinn
„Vid‘
leikur fyrir gesti
Ölvers í kvöld.
Opið frákl. 11.30-15.00
og 18.00-03.00.
A
BORGINNI _
RVNAR ÞÓR
og hljómsveit
leikur í Fánasalnum.
BORGARKRÁIN
opin frá kl. 18.
KEISARINN
LAUGAVEG 116
Diskótekiö
er opið í kvöld frá kl. 23.00-03.00.
Miðaverð kr. 400,-
Barinn opnaður kl. 18.00 öil kvöld
og er opinn í hádeginu um helgar.
Komið þangaö sem fjöriö er
pA Veitingahúsið
Strandgötu 30, Hafnarfirði, sími 50249