Morgunblaðið - 14.10.1989, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 14.10.1989, Qupperneq 40
40 MORGtJNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR <1'4'1OKTÓBER 1BS9 „ Pi'iMXrx er kopoin.'' * Ast er... \UJO'Ö . saga pilts og stúlku. TM Reg. U.S. Pal Oft — all rights reserved © 1989 Los Angeles Times Syndicate Stundvísi þína met ég mik- ils. En þegar þú fórst heim í gær var ég í miðri setn- ingu ... Siðaðir flauta ekki á eftir kvenfólki ... Nagladekk auka öryggið í umferðinni Til Velvakanda. Gatnamálastjóri, Ingi Ú. Magn- ússon, sendi frá sér grein í Velvak- anda laugardaginn 30. september sl. varðandi nagladekk og skemmdir á malbiki. Einblínir hann eingöngu á kostnað borgar- innar í því máli. Það má ekki gleymast í öllum þessum væl um göturnar að auðvitað eru nagla- dekk öryggisatriði í vetrarumferð og ef allir ækju um á ónegldum hjólbörðum fjölgaði slysum og árekstrum. Það kostar líka. Það átti að salta allar aðalgötur í fyrra fyrir kl. 7 á morgnana. Það vildi misfarast, enda getur hálka komið fyrii-varalaust, sérstaklega seint á kvöldin. Það að stytta leyfilegan tíma nagladekkja á íslandi til samræm- is við hin Norðurlöndin er út í hött, vegna þess að veturinn hér hjá okkur er yfirleitt mun lengri en þar. Fólk er farið að veigra sér við því að setja negldu dekkin undir vegna sífellds áróðurs gatna- málastjóra og aka því margir allan veturinn á sumardekkjum. Það má ekki koma því inn hjá fólki að það sé hálfgerðir skemmd- arvargar þó það leiti eftir öryggi í umferðinni. S.E. Þessir hringdu . . Er ekki skylt að hafa öryggistæki í lagi? Geir Þormar hringdi: „Ég var að aka út úr Skaftahlíð inn á Miklubraut og lenti þar í faðmlögum við strætisvagn fyrir nokkru. Kallað var á lögreglu og mældust bremsuförin hjá strætis- vagninum 16 metrar. Ég spurði bílstjórann hvers vegna hann hefði ekki reynt að flauta til að vara mig við. Hann sagði að flaut- an væri ekki í lagi og það væri lítið eftirlit með þessu hjá strætis- vögnunum, en þetta var strætis- vagn frá Strætisvögum Kópavogs. Vil ég koma þeirri fyrirspurn á framfæri hvort Bifreiðaeftirlitið fylgist ekki með þessum ökutæk- um eins og öðrum, og skylt sé að hafa öll öryggistæki í lagi á þeim. Bremsuförin sýndu að strætisvagninn hafði aðeins bremsað á einu hjóli en lögreglan virðist heldur ekki hafa talið ástæðu til að geta þess í skýrsl- unni sem tekin var. Þá vil ég spyija gatnamála- stjóra um annað mál. Fyrir nokkr- um árum var steyptur kantur hér fyrir framan Barmhlíð 15. Fólk er alltaf að reka fæturnar í þenn- an kant sem hefur verið ófrágeng- inn í nokkur ár. Gengið var frá kanntinum ofantil skömmu eftir að hann var gerður en síðan hefur ekkeil meira verið gert. Hvenær verður gengið endanlega frá þessu verki?“ Skór Poki merktur versluninni „17“ með svörtum rúskinnsskóm tap- aðist 7. október. Finnandi er vin- samlegast beðinn að hringja í síma 667030. Jakki Rauður, grár og hvítur Addidasjakki nr. 130 tapaðist í Grafarvogi. Finnandi vinsamleg- ast hringi í síma 676716 eftir kl. 19. Köttur Sex mánaða gamall högni fór að heiman sl. þriðjudag. Hann er hvítur með gulbrúna bletti og mjög gæfur, heitir Hreinn og er eyrnamerktur. Vinsamlegast hringið í síma 79978 ef hann hef- ur einhver staðar komið fram. Víkverji skrifar HÖGNI HREKKVlSI S-18 „ HAKJN) eR E’KKI ad fara ao hei/han ... HANN 8AFSA AO LÁNA VINI SiNJUM " Ihugum flestra höfuðborgarbúa er Norðurland einn landshluti. Og þannig hugsar obbi Akureyringa einnig. Ibúar á Norðurlandi vestra vita hins vegar manna best, að Norð- urland er í raun tveir landshlutar, eystra og vestra. Það var engin til- viljun að Norðurlandi var á sínum tíma skipt í tvö kjördæmi, því íbúar þeirra eiga ólrúlega fátt sameiginlegt umfram tengsl við aðra landshluta. Til dæmis fara hagsmunir íbúa á Norðurlandi eystra miklu oftar sam- an með hagsmunum Austfírðinga en nágrannanna fyrir vestan, og Norð- lendingar vestra eiga jafnvel oftar samleið með Vestiendingum en Norð- lendingum eystra. Ástæðui1 þessa er nokkrar. í fyrsta lagi landfræðilegar; mikilúðlegur Tröilaskaginn klýfur Norðurland milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar og gerir allar samgöng- ur þar á milli erfiðar. Annað, og kannski það sem mestu skiptir, er að íbúar á Norðurlandi vestra þurfa ekki að sækja neina þjónustu til Akureyrar eða annarra staða á Norð- urlandi eystra. Þá þjónustu sem þeir ekkí hafa í heimabyggð sækja þeir til Reykjavíkur. Samgöngur milli Reykjavíkur og Norðurlands vestra eru mjög góðar, sérstaklega eftir að nær allur þjóðvegurinn Jiar á milli var lagður bundnu slitlagi. Menn geta auðveldlega skotist á bíl til Reykjavíkur að morgni, útrétt þar um miðjan dag og komist heim að kvöldi. Víkveiji hefur kynnst því, að íbúar á Norðurlandi eystra átta sig ekki fullkomlega á þessu, ekki frekar en Reykvíkingar, þeir telja Norður- land einn landshluta með Akureyri sem miðstöð. Þetta lýsir sér með ýmsum hætti, t.d. hvemig Ríkisút- vaipið niðurlægir Norðurland vestra, með því að neita íbúum þar um lands- hlutaútvaip, en láta Akureyrai’deild- ina þess í stað varpa efni yfir J)á sem þeir hafa jafn lítinn áhuga á og Vest- firðingar, Sunnlendingar eða aðrir landsmenn utan Norðurlands eystra. xxx Alþingi hefur nú verið kallað sam- an að nýju. Þingmenn hafa væntanlega flestir hveijir notað sum- arleyfið til að rækta tengsl við um- bjóðendur sína heima í héraði. Það ei’ reyndar ærið verkefni, því Ijöldi kjósenda er slíkur að ekki einu sinni þingmönnum fámennustu kjördæm- anna gefst kostur á að hitta kjósend- ur sína og gera þeim grein fyrir af- stöðu sinni til þjóðmálanna og hlusta á þeiira sjónarmið í sama mæli og áður tíðkaðist. xxx Nýlega rak á fjörur Víkveija lítinn Ijórblöðung sem Halldór Blönd- al, þingmaður Norðurlands eystra, gefur út undir heitinu Bréf frá þing- manni. í þessu fyrsta bréfi, sem hann sendir öllum kjósendum í kjördæmi sínu, gerir hann grein fyrir skoðunum sínum til stjórnunar fiskveiða og lýs- ir jafnframt eftir viðhorfum lesenda bréfsins. Víkveija finnst þetta bréf til fyrirmyndar á margan hátt. í fyrsta lagi hlýtur það að teljast mjög lýðræðislegt að þingmaðurinn geri kjósendum grein fyrir skoðunum sínunv allt kjörtímabilið, en ekki ein- ungis fyrir kosningar. I öðru lagi býður hann kjósendum sínum uppá skoðanaskipti og beinan aðgang að sjálfum sér. Að lokum verður Víkveiji að geta þess að prentsmíð bréfsins er hreint frábær, einfaldleiki þess og agað útlit ber vitni um faglegan metnað þeirra prentara sem hlut áttu að máli, en bréfið er prentað í kjör- dæmi Jnngmannsins, hjá Pi-entverki Odds Björnssonar á Akureyri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.