Morgunblaðið - 14.10.1989, Page 41
. MOHGUNBMÐIÐ 3LAUGARDAGUR Wr-OKTÓBERil989
VELXAKANDI
SVAR/R í SÍMA
691282KL. 10-12
FRÁ NÁNUDEGI
TIL FCSTUDAGS
Bahá’u’lláh:
Eining trúarbragðanna
Til Velvakanda.
Mig langar til að blanda mér í
umræður Fljótamanns og Dala-
manns, sem skrifað hafa athygis-
verða pistla í Velvakanda um trúar-
ofstæki. Mai-gt er þar viturlega
sagt. „Trúarofstæki veldur illdeilum
og hryðjuverkum, jafnvel styijöid-
um víðs vegar um heimsbyggðina,"
eins og Dalamaður bendir réttilega
á. Ég er hins vegar ekki sammála
Dalamanni að trúarbrögðin boði
ekki trú á einn og sama guðinn,
en halda hver fram sínum guði á
kostnað annarra. Það er að vísu
rétt að þannig túlka ýmsir kenning-
ar trúar sinnar, en er slíkt í sam-
ræmi við það sem stofnendur trúar-
bragðanna hafa boðað? Ég held
ekki. Sá guð sem Múhammeð boðar
trú á er sá sami sem Kristur kenndi
okkur að lofsyngja, svo dæmi sé
tekið.
En samt berast fylgjendur hinna
ýmsu trúarbragða á banaspjót.
Hvernig sténdur á því? Sökin liggur
fyrst og fremst hjá þröngsýnum
trúarleiðtogum, sem hafa afskræmt
kenningar spámannanna. Trúarof-
stæki ber því vott um fjörbrot, and-
legt gjaldþrot og uppgjöf.
Er því við Guð eða spámenn
Hans að sakast? Alls ekki. Svo lengi
sem fylgjendur spámanna fóru eftir
þeim kenningum sem þeir boðuðu
hafði trúin blessunamk áhrif á
samfélagið. Ef grannt er skoðað
sjáum við að sú siðmenning sem
við búum við er fyrst og fremst að
þakka siðbætandi áhrifum trúarinn-
ar.
Ég get því ekki tekið undir þá
skoðun Dalamanns að það verði
friðsamlegra í heiminum ef trúar-
brögð yrðu lögð niður, að þá mundu
menn „öðlast frelsi til að umgang-
ast meðbræður sína með vinsemd
og virðingu". Hefur sagan staðfest
þetta sjónarmið? Það held ég varla.
Á þessari öld hefur ijöldi manns
snúið sér með iítilsvirðingu frá trú-
arbrögðunum og bundið trúss sitt
við taumlausa efnishyggju eða
fengið ofurtrú á hugmyndafræði,
sem það telur að geti leyst vanda-
mál heimsins. Efnishyggjan hefur
ekki fært okkur þá lífshamingju
sem við sækjumst eftir, heldur auk-
ið á glundroðann og myndað hyl-
djúpa gjá milli manna. Mannakenn-
ingar, eins og t.d. kommúnismi,
hafa beðið algjört skipbrot, eins og
dæmin sanna.
En mitt í öllu þessu vonleysi hef-
ur Guð vitjað mannanna á ný. Hann
hefur sent opinberanda sinn, Ba-
há’u’lláh, sem enduivekur í grund-
vallaratriðum þær sömu kenningar
sem fyrri spámenn boðuðu mann-
kyni. Hann boðar m.a. einingu trú-
arbragðanna og hvetui- fylgjendur
sína til að umgangast fylgjendur
allra trúarbragða í vináttu og með
bróðurþeli. Hann færir okkur aftur
til Guðs.
Ég hvet því Fljótamann og Dala-
mann og aðra sem hi-yllir við trúar-
ofstæki að kynna sér kenningar
Bahá’u’lláh og þau trúarbrögð sem
þær fæddu af sér, Bahá’í-trúna.
Hver veit nema fleiri gætu þá heils-
hugar tekið undir eftirfarandi orð
Bahá’u’lláh: „Trúarbrögð eru æðsta
tækið til grundvöllunar reglu í
heiminum og fyrir frið og hamingju
allra, sem í honum dvelja. Ef ljós
trúarinnar hættir að skína, mun
ringulreið og öngþveiti af hljótast
og ljós sanngirni, réttlætis, friðar
og rósemi deyja út.“
Sigurður Ingi Ásgeirsson
Er of seint að iðr-
ast eftir dauðann?
Týndur köttur
Þessi gulbröndótti fressköttur
hefur verið týndur í næstum tvo
mánuði. Hann hvarf frá heimili
sínu, Hófgerði 3 í Kópavogi, og
sást e.t.v. á ferli í Fossvogi. Hann
var með gula hálsól með tunnu á
þegar hann hvarf. Ef einhver getur
gefið upplýsingar vinsamlegast
hringið í síma 42615.
Ritgleði eða
sparnaðar-
aðgerðir?
Ágæti Velvakandi.
Á hinum votviðrasömu haustdög-
um, þegar margir kvarta um at-
vinnuleysi og alls konar vandaræði,
er gott að eiga í fórum sfnum litla
sólskinssögu. Eina slíka fékk ég
föstudaginn 29. september sl. í bréfi
frá heimahlynningardeild (Hospice)
Krabbameinsfélags íslands. Var
mér boðið að sækja um starf hjá
félaginu. Þar stóð meðal annars:
/ „Boðið er upp á góð kjör er varða
laun, bílastyrk og vinnutíma, ásamt
aðild að lífeyrissjóði hjúkruna-
rkvenna (sem ég hefi fengið greitt
úr síðastliðin 26 ár). Framtíðar
starfsemin er enn óráðin og væri
því ekki rétt að lofa framtíð-
arstarfi.“ Tilvitnun lýkur. Ekki ef-
ast ég um hauðsyn og ágæti þessa
félagsskapar og óska ég honum
góðs gengis.
Ekki ætla ég þó að sækja þar
um starf, þar sem ég er á 87. aldurs-
ári. Mér er kunnugt um að fleiri
hjúkrunarkonur á ellilífeyrisaldri
hafa fengið samhljóða bréf.
Nú velti ég því fyrir mér hvort
það var hin rómaða ritgleði og
pappírsflóð er olii því að ég fékk.
umrætt bréf, eða er þetta ný út-
færsla á sparnaði í heilbrigðiskerf-
inu, að hætta við að hai'a aldurs-
mörk meðal hjúkrunarkvenna.
Guðríður Jónsdóttir
Til Velvakanda.
Undarlegt finnst mér 'sumt það
sem prestar bjóða tilheyrendum
sínum. í útvarpsguðsþjónustu var
einn þeirra að ræða um dauðann
og mæltist honum á þessa leið í
ræðu sinni:
„Eitt er víst, við dauðann er lok-
ið allri náð Guðs. Eftir það þýðir
ekki að biðja hann fyrirgefningar á
syndum sínum."
Ekki er nú þetta huggunarríkur
boðskapur, og fer saman mikil van-
þekking á eðli lífsins og mikil van-
hugsun flytjandans. Ekkert mun
fjær hinurn æðsta mætti, verundi
alls sem er, en að yfirgefa börn
sín, þegar vistaskipti verða. Hin
æðsta vera mun ávallt leitast við
að leiða hvern mann til réttrar átt-
ar, bæði meðan dvalist er hér á
jörð, og eftir að héðan er flutt til
annarrar.
Hitt er að vísu víst, að sá sem í
lífi sínu hér þverbrýtur vitandi vits
gegn því góða, sem í hveijum manni
býr, hann mun eiga erfitt með að
breyta um eigin lífsstefnu eftir að
komið er á aðra lífstjörnu, en með
hjálp hins æðsta máttar og sendi-
boða hans, mun að lokum takast
að beina hinum illa setta til réttrar
áttar. Því enginn er svo illur að
ekki sé í honum einhver „partur af
guði“, eins og H.C. Andersen orð-
aði það í einu ævintýra sinna, og
einmitt þessi „partur af guði“, ger-
ir hinum lengra komnu kleift, að
leiða hann á rétta braut.
Sem betur fer munu aðeins hin
verstu illmenni lendi í hinum verstu
stöðum eftir dauðann hér, en vissu-
lega mun „náð guðs“ ná út yfir
gröf og dauða, og verða hinum illa
stadda sú lijálp, sefn duga mun að
lokum.
Vita skyldu allir að kærleikur
hinnar æðstu veru á sér engin tak-
mörk og verkar ekki síður í framlífi
en í hinu stutta frumlífi okkar hér.
Að kenna annað er einskonar guð-
last.
Ingvar Agnarsson
Okkur vantar
fóstrur (S>
Okkur vanfar áhugasamar og hressar fóstrur
eða annad uppeldissinnad fólk fil ad faka
þátt í faglegri uppbyggingu í nýju foreldra-
reknu dagheimili í Hafnarfirdi.
HRAUNKQT
Upplýsingar í simum
53910 og 65267« (Kristín)
TIL SÖLU
Bronco II XL 1987
Ekinn 52 þús. km. Bíll í sérflokki. Verð 1550 þús.
og símanúmer sendist
auglýsingadeild Mbl.,
.merkt: „G - 577“, fyrir
18þ.m., eða hringið
ísíma616559.
Kuldaskór
Verð kr. 2.490.-
Stærðir: 35—46
Litur: brúnt + svart.
KRiNGWN
KKIMeNM
S. 689212
TOHeJI
—'^anra
VELTUSUNDI 1
21212
5% staðgreiðsluafsláttur
Póstsendum samdægurs
SKÓLABIÚSSA
Svartar, grænarog bláarskólablússur.
Vinnufatabúóin
Laugavegi 76, s. 15425,
Kringlunni, 3. hæð, s. 686613.
Hverfisgötu 26, s.28550.
Sendum
í póstkröfu.