Morgunblaðið - 19.10.1989, Blaðsíða 31
C8Rr HJlflÖTJlo ei HHOAnnTi/MT’a. aií-íA TaviMo.qoM
---MCHÍOUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. 0KTÖBER-Í98d-
m
Frjálslyndir hægrimenn:
Könnuð verði vinnubrögð
löggiltra endurskoðenda
ÞINGMENN Frjálslynda hægriflokksins, þeir Ingi Björn Alberts'son
og Hreggviður Jónsson hafa lagt fram þingsályklunarl illögu, þar sem
lagt er til að ríkisstjórninni verði falið að láta fara fram könnun á
vinnubrögðum löggiltra endurskoðenda í landinu. Segir í greinar-
gerð með tillögunni að hættulega mikið ósamræmi sé í vinnubrögð-
um þeirra og um það m.a. vísað til skýrslu Ragnars Kjartanssonar,
fyrrum stjórnarformanns Hafskips hf. um rannsóknar- og ákærumeð-
ferð Hafskipsmálsins.
aðferðum við mat á gengistapi sé
eiginfjárstaða Landsvirkjunar sýnd
einum milljarði betri en hún í raun
sé.
Guðmundur G. Þórarinsson:
Þingmennirnir leggja það til að
markmið slíkrar athugunar verði
að vinnubrögð endurskoðenda verði
samræmd á þann hátt að viðunandi
sé fyrir viðskiptalífið, bankastofn-
anir og almenning í landinu. Enn
fremur er lagt til að Alþingi álykti
að lög og reglur um endurskoðun
og reikningsskil hér á landi verði
endurmetin og endurbætt, þ.a.
tryggt verði samræmi.
í athugasemdum kemur fram að
ósamræmi í vinnubrögðum löggiltra
endurskoðenda komi helst fram í
reikningsskilum fyrirtækja. Er um
það vísað til athugunar Ragnars
Kjartanssonar. Eru í greinargerð-
inni rakin nokkur dæmi úr skýrsl-
unni. Mjög mikið misræmi sé til að
mynda við meðferð gengistaps, mat
á verðbólguaðstæðum, eignafærslu
varanlegra rekstrarijármuna og
meðferð eftirlaunaskuldbindinga.
Sérstaklega er í greinargerðinni
tekið á reikningsskilaaðferðum
Eimskipa hf. og Flugleiða hf., þar
sem segir að þau virðist hafa leyft
sér að breyta og umsnúa reiknings-
skilaaðferðum sínum með margví-
slegum hætti á undanförnum árum.
„Hugmyndaflug við þá iðju hefur á
köflum veriðótrúlegt, einkum hjá
Flugleiðum, sem m.a. hafa reiknað
inn í sinn ársreikning verðbólgu í
öðrum löndum þegar það hefur
þótt henta," segir í greinargerð-
inni. Einnig er vikið að Seðlabanka
íslands, hann hafi ekki fært banka-
húsið við Kalkofnsveg til eignar,
frekar en það væri ekki til, en á
byggingartíma hafi það verið fært
til gjalda eins og tíðkist um alla
fjármuni bankans, að því er virðist
til að sýna afkomu bankans og
stöðu hans verri en hún raunveru-
lega væri. Landsvirkjun er einnig
gagnrýnd; segir að með röngum
Ríkið reisi kynbóta-
stöð fyrir laxfiska
MMÍKil
GUÐMUNDUR G. Þórarinsson
(F/Rv) hefur lagt fram þings-
ályktunartillögu þess efhis að
Alþingi feli ríkisstjórninni að
láta reisa og reka kynbótastöð
fyrir laxfíska.
I greinargerð með tillögunni er
gert ráð fyrir að slík kynbótastöð
yrði reist við sjó; hún stæði sér
og nokkuð einangruð til að fyrir-
byggja smit. Aðstaða yrði á stöð-
inni fyrir klak, seiðaeldi, geymslu
stofnfisks og eitthvert áframeldi,
en gera yrði ráð fyrir að að seiði
yrðu síðan alin í nokki-um mat-
fiskastöðvum samkvæmt samn-
ingum. Mælingar á þroska fisksins
og sláturþunga væri síðan notaður
Þingsályktunartillögur:
NOKKUR fjöldi þingsálykt-
unartillagna hefur verið lagður
fram í upphafi þings. Verða þær
væntanlega teknar til umræðu
í sameinuðu þingi á næstu vik-
um. Nokkrar tiílagnanna eru
endurfluttar, þar eð þær urðu
ekki útræddar á síðasta þingi.
Varnir gegn mengun frá
fiskeldi
Hjörleifur Guttormsson
(Abl/Al) flytur tillögu þess efnis
að Alþingi álykti að fela ríkis-
stjórninni að láta semja frumvarp
til laga um varnir gegn mengun
frá fiskeldi, að meðtalinni erfðam-
engun, og leggja það fyrir næsta
reglulegt þing. Jafnframt verði
mótaðar samræmdar reglur um
kröfur varðandi starfsleyfi fyrir
fiskeldisstöðvar og um eftirlit og ,
rannsóknir á mengunarhættu frá
þeim.
Tvöföldun
Reykj anesbrautar
Hreggviður Jónsson (FH/Rn)
og Ingi Björn Albertsson (FH/Vl)
flytja tiliögu þess efnis að Alþingi
álykti að fela samgönguráðherra
að láta heíja nú þegar undirbún-
ing að tvöföldun Reykjanesbraut-
ar frá Hafnarfirði að Flugstöð
Leifs Eiríkssonar. Skuli gert ráð
fyrir að lögð verði önnur akbraut
við hlið hinnar gömlu, þannig að
fullkomin hraðbraut með alger-
lega aðskildum akstursstefnum
og tveimur akreinum í hvora átt
tengí saman þessa tvo staði.
Stefnt verði að því að ljúka verk-
inu fyrir árslok 1992. Þetta verk-
efni verði tekið út úr vegáætlun
og meðhöndlað sem sjálfstætt
verkefni óháð langtímaáætlun í
vegagerð. Leggja flytjendur til-
lögunnar til að leitað verði leiða
til þess að afla fjár til verksins
utan vegáætlunar.
Kjarnorkuafvopnun í
norðurhöfum
Hjörleifur Guttormsson
(Abl/Al), Kristín Einarsdóttir
(SK/Rv), Guðmundur G. Þórar-
insson (F/Rv) og Aðalheiður
Bjarnfreðsdóttir (B/Rv) leggja
fram tillögu þess efnis að Alþingi
álykti að fela ríkisstjórninni að
hafa frumkvæði að því að kveðja
hið fyrsta saman alþjóðlega ráð-
stefnu til að ræða um afvopnun
á höfunum- og undirbúa samn-
ingaviðræður með sérstöku tilliti
til kjarnorkuafvopnunar á norður-
höfum. Jafnframt verði leitað eft-
ir því við ríki sem eiga kjarnorkuk-
afbáta og kjarnorkuknúin skip í
norðurhöfum að þau takmarki
umferð þeirra í grennd við Isiand
og aðrar tiltækar ráðstafanir verði
gerðar til að bægja frá hættu af
geislamengun vegna slysa og
óhappa.
Ályktanir Vestnorræna
þingmannaráðsins
Friðjón Þórðarson (S/Vl), Alex-
ander Stefánsson (F/Vl), Óli Þ.
Guðbjartsson (B/Sl), Margrét
Frímannsdóttir (Abl/Sl), Arni
Gunnarsson (A/Ne) og Danfríður
Skarphéðinsdóttir (SK/Vl) leggja
fram tillögu þess efnis að Alþingi
álykti að beina þeim tilmælum til
ríkisstjórnarinnar að hrint verði í
framkvæmd ályktunum Vestnor-
ræna þingmannaráðsins sem sam-
þykktar voru á fundi ráðsins í
Stykkishólmi í júní síðastliðnum.
Ályktanir þessar ganga út á fjár-
veitingar næstu þrjú ár til vest-
norrænu ferðamálanefndarinnar
til kynningarstarfs, áætlanagerð-
ar og markaðsrannsókna á sviði
ferðamála í Færeyjum, Grænlandi
og íslandi, skipulagningu kenn-
araskipta á grunnskóla- og fram-
haldsskólastigi milli landanna
þriggja, skrifstofa Norðurlandar-
áðs í Reykjavík annist fyrst um
sinn verkefni stjórnunarlegs eðlis
fyrir ráðið og veiti til þess fé og
aðstöðu ög að síðustu að stjórn-
völd landanna þriggja geri árið
1992 að vestnorrænu ári.
Rannsókuir á grunnvatni
Páll Pétursson (F/Nv), Hjörleif-
ur Guttormsson (Abl/Al), Guð-
mundur Ágústsson (B/Rv) og
Salome Þorkelsdóttir (S/Rn)
leggja fram tillögu þess efnis að
Alþingi álykti að fela ríkisstjórn-
inni að beita sér fyrir því að um-
hverfi allra byggðakjarna á
landinu verði rannsakað og skipú-
lagt með tilliti til nýtingar og
verndunar grunnvatns. Verði á
skipulagsuppdráttum þéttbýlis-
staða sýnd fyrirhuguð þróun
byggðar, friðlýst svæði og önnur
landnotkun. Jafnframt leggja
þingmennirnir til að gerð verði
kort af jarðfræði og grunnvatn-
skerfum á viðkomandi svæðum
með tilliti til vatnsbóla.
NATO Ieggi vegi um
landið
Ásgeir Hannes Eiríksson
(B/Rv) leggur fram þá tillögu að
Alþingi álykti að fela utanríkis-
ráðherra að kanna hvort varnarlið
Bandaríkjanna á íslandi og Mann-
virkjasjóður Atlantshafsbanda-
lagsins séu reiðubúin að taka þátt
í gerð þjóðvega hér á landi. Legg-
ur þingmaðurinn til að ráðherra
verði gert að skila skýrslu um
málið fyrir 1. nóvembar 1990.
Byggðaáætlun fyrir
suðurfirði Austfiarða
Egill Jónsson (S/Al), Jón Krist-
jánsson (F/Al) og Hjörleifur Gutt-
ormsson (Abl/Al) leggja það til
að Alþingi álykti að fela ríkis-
stjórninni að hlutast til um það
við Byggðastofnun að hún geri
byggðaáætlun fyrir suðurfirði
Austurlands, frá Fáskrúðsfirði að
norðan til’ Geithellnahrepps að
sunnan. Verði í áætlun þessari
gerð grein fyrir ástandi og horfum
í byggðaþróun. Er lögð sérstök
áhersla af hálfu flutningsmanna
á tillögur til úrbóta í atvinnumál-
um og opinberum framkvæmdum.
Þingmennirnir leggja til að fullt
samráð verði haft við sveitar-
stjórnir á þessu svæði, Samband
sveitarfélaga á Austurlandi og
alþingismenn Austurlands.
til vals á fiski til undaneldis. Það
val væri framkvæmt á fiski sem
alinn væri í sjálfri kynbótastöð-
inni. „Kynbótastöðin gæti síðan
selt hrogn í framtíðinni," segir í
greinargerð flutningsmanns og á
það bent að af reynslu Norðmanna
sé hér um mjög arðbæran rekstur
að ræða.
Þingmaðurinnn bendir á að
skipulagning og tölvustýring kyn-
bótanna gæti verið framkvæmd
af sérfræðingum hjá Rannsóknar-
stofnun landbúnaðarins, þar eð
þeir hafi mikla reynslu á þessu
sviði.
Guðmundur leggur til að ríkið
setji þessa kynbótastöð á laggirnar
og reki til að byija með. Stöðint
yrði hins vegar hlutafélag; þar sem
áhugaaðilum gæfist kostur á
kaupum á hlutabréfum; t.d. fisk-
eldisstöðvum og landssamtökum
þeirra.
Stefán Valgeirsson:
Ríkið kaupi áfengi
á útsöluverði
STEFÁN Valgeirsson (SJF/Ne)
hefur lagt fram á Alþingi þings-
ályktunartillögu þess efnis að
frá og með 1. janúar 1990 skuli
öll áfengiskaup opinberra emb-
ætta og stofnana, sem eigi sér
stað hjá Áfengis- og tóbaks-
verslun ríkisins, vera greidd og
bókfærð á útsöluverði ÁTVR
eins og það sé þegar kaup eru
gerð.
í greinargerð með ályktunartil-
lögu sinni segir Stefán að undan-
farið hafi birst í íjölmiðlum fréttir
af kaupum ýmissa opinberra aðila
á áfengi hjá ÁTVR á sérkjörum,
þ.e. miklu lægra verði en útsölu-
verð ÁTVR. Segir siðan í greinar-
gerðinni: „Færsla á áfengiskaup-
um f ríkisbókhaldi og ríkisreikn-
ingum á öðru verði en almennt
tíðkast er til þess fallin að torvelda
þeim sem vilja kynna sér þessi
mál að meta umfang og réttmæti
áfengiskaupa á vegum hins opin-
bera. Þess vegna er þessi tillaga
flutt.“
Multiplcm 4.0
Fjölbreytt og vandað námskeið í notkun hins
vinsæla töflureiknis Multiplan 4.0.
Leiðbeinandi: Gísli Friðgeirsson
verkfræðingur.
Tími: 26/10, 27/10, 2/11 og
3/11, kl. 13-17.
Tölvufræðslan
Borgartúni 28, sími 687590
Tölvunámskeið fyrir
konur
Á námskeiðinu er m.a. kennd notkun ritvinnslu og
uppsetning heimilisbókhalds í töflureikni. Einnig er
farið í helstu atriði stýrikerfisins.
Kennt er í fjögur kvöld, á mánudögum og
miðvikudögum kl 19-22.
Tölvuskóli íslands
s: 67 14 66, opið til kl. 22