Morgunblaðið - 19.10.1989, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 19.10.1989, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. OKTOBER 1989 916 _______\_______ Þegar við vorum svo búin að gera sundlaugina og koma þessum húsgögnum fyrir átt- um við ekki fyrir nýrri heim- æð ... Með morgunkaffinu Hvernig veistu að ég heiti Eva? Að búa til vandamál Til Velvakanda. Það eru mörg vandamálin sem við er að glíma hjá okkar fámennu þjóð og sum þeirra eru torleyst. Þess vegna finnst mér það vera að bera í bakkafullan lækinn að búa til vandamál, fara í lúsaleit að ein- hveijum hégóma og blása hann út og gera að einu ógurlegu vanda- máli. Einmitt þetta hefur gerst nú nýlega. Hæstvirtur menntamála- ráðherra og allt hans lið ætlar að fara í mikla herferð gegn meintu Til Velvakanda. í Morgunblaðinu hinn 1. október birtist grein með fyrirsögninni „Bretinn botnar ekkert í hringjun- um“ og ásamt henni myndir af hringjum í hveitiakri. Hér kemur í ljós að fleiri jurtir en kaffijurtir geta teiknað. Þessa mynd hefur lífríkið gert af kjarnorkunni. Þetta er svar lífríkisins við kjarnorkunni, og sýnir hún rafeindir og annað sem snýst í kring um kjarnann. Fleira þessu líkt mun sjást á yfirborði jarð- ar. Þetta er byijunin. Eg les í bolla. misrétti í skólum landsins. Þetta átak, því nú gerist allt í átökum, heitir því rismikla nafni, Uppúr hjól- förunum. Hvert er nú þetta mis- rétti sem kennarar eru sakaðir um að beita í skólunum? Jú, þeir ku tala meira við stráka en stelpur, að hugsa sér! Ég hef kynnst ijölda nemenda í gegn um árin, allt frá nemendum í barnaskóla upp í há- skólanema og aldrei heyrt minnst á þetta misrétti einu orði. Og hvernig á svo að útrýma áður- Gerlegt er að ná næstum hvaða mynd sem er í kaffibolla. Hér ganga jurtirnar sjálfar fram fyrir skjöldu og teikna sjálfan kjarnann á akur- inn ásamt rafeindum og öðru sem telst til kjarnorku. Dauðinn byijaði í jurtaríkinu er Eva rændi eplinu undir valdi Satans. Þessi mynd er af kjarnorkustríði Englendinga og annarra kjarnorkuvelda sem jafnvel ekkert mannlegt auga getur séð. Valdimar Bjarnfreðsson nefndu misrétti? Ég sé þar bara eitt til ráða. Það verður að setja eftirlitsmann með skeiðklukku í hendi yfir hvern kennara til að sjá um að hann tali ekki meira við stráka en stelpur. Það eina jákvæða við þetta brölt er að það gæti orðið atvinnubótavinna á krepputímum, og svo gæti það einnig verið ágæt- ist hráefni í brandaraþætti gríniðju- höfunda. 1 Þetta er eitt mesta deilumál sem komið hefur upp lengi. Þetta er móðgun við kennara og gæti jafn- vel aukið á agavandamál í skólum. Nemendur væru vísir til að gera uppsteyt móti allri þessari vitleysu. Nei, kennarar eru ekki fastir í nein- um hjólförum sem þeir þurfa að komast uppúr hvað jafnrétti nem- enda snertir. Topparnir í Mennta- málaráðuneytinu eru fastir í hjólför- um lágkúru og hégóma og uppúr þeim þyrftu þeir sem fyrst að kom- ast. Gestur Sturluson Rjúpnaveiðimenn Treystið öryggi ykkar sem mest í hverri veiðiferð. Gætið þess ávallt að skotvopn ykkar séu í fullkomnu lagi og vel hirt. Hafið meðferðist áttavita og kort og búnað til ljós- og hljóð- merkjagjafa. Hefjið veiðiferð- ina árla dags og ljúkið henni áður en náttmyrkur skellur yfir. Verið ávallt stundvísir á áfangastað. Jurtirnar teikna HÖGNI HREKKVÍSI Víkverji skrifar að er vandaverk fyrir þá sem starfa á fjölmiðlum að fmna myndir sem hæfa fréttum hveiju sinni. Sérstaklega getur þetta verið vandasamt á sjónvarpsstöðvunum, eins og nýlegt, dapurlegt dæmi sann- ar. Á dögunum frétti Víkveiji af konu nokkurri sem einn af fáum góðviðris- dögum liðins sumars brá sér í bæ- inn. Það væri ekki í frásögur fær- andi ef konan hefði ekki orðið skot- mark kvikmyndatökumanna annarr- ar sjónvarpsstöðvarinnar. Þegar myndin var fyrst notuð var ijallað um sumar í borginni, ferðamenn og fleira slíkt heldur huggulegt. Síðar hefur myndin verið notuð tvisvar eða þrisvar sinnum að sögn konunnar og við alls óskyld fréttatileíni. Finnst konunni orðið nóg um myndir af þessu rápi hennar um miðbæinn og allra verst þegar myndin var notuð með frétt af fjárhagserfiðleikum ein- staklinga og gjaldþrotum. „Góðkunningi“ Víkveija sagði honum af öðru dæmi, sem hann sagð- ist vægt til_ orða tekiö, vera orðinn þreyttur á. í fíugvél á leið til útlanda fékk hann sér glas af góðu víni eins og gengur og gerist. I vélinni voru myndatökumenn og endilega þurftu þeir að skjóta á manninn þar sem hann fékk sér úr glasinu góða. Nú hefur þessi myndbútur verið notaður nokkrum sinnum, t.d. með fréttum af ferðalögum íslendinga, og alltaf er vinurinn með glasið á leið til út- landa. xxx Ekki kom það skrifara svo mjög á óvart er hann frétti að Banda- ríkjaforseti hefði talað um Leif Eiríksson sem norskan eins og kom fram í ríkisútvarpinu um síðustu helgi. Reyndar hefur sendiherra kom- ið leiðréttingu á framfæri, en alls óvíst er að það dugi og reyndar er þetta ekki í fyrsta skipti sem Banda- ríkjamenn láta glepjast af áróðri Norðmanna. Þeir hafa vérið iðnir við að koma því á framfæri að Leifur heppni hafi verið frá Noregi og alltaf annað slag- ið kemur þessi misskilningur fram í Bandaríkjunum. Fyrir nokkrum árum var Víkveiji staddur í Flórída er Norðmenn greindu frá því að þeir hygðust halda mikla hátíð er þúsund ár verða liðin frá þvi að Leifur er talinn hafa komið til Ameríku. Norsku frændumir urðu vandræða- legir er íslendingurinn í hópnum spurði hvers vegna þeir væru að minnast Ameríkufarar íslendingsins. Spyija má hvort stjómvöld hér á landi hafi fylgst með undirbúningi þessara hátíðahalda og hyggist gera eitthvað á þessum tímamótum er nær dregur aldamótum til að heiðra minningu íslendingsins Leifs og minna á sig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.