Morgunblaðið - 19.10.1989, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 19.10.1989, Blaðsíða 16
16 ______________MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1989_ Gjöfin sem aldrei var gefin eftir EinarJúlíusson Ekki er hægt að segja að Sjálfstæðisflokknum hafi tekist að marka sína framtí- ðarfiskveiðistefnu á nýafstöðnum landsfundi og það eru góð tíðindi, því miklu verr hefði getað farið. Málefnanefnd Sjálfstæðisflokksins um sjávarútvegsmál hafði lagt mikla vinnu í að koma saman drög- um að stefnumótun. Kvótakerfinu skyldi haldið áfram, sóknarkvótum breytt í aflakvóta, lögin skyldu gilda ótímabundið og stefnt að því að útgerðinni yrðu gefnir kvótarnir til varanlegrar eignar. Það leiðir til mestu hagkvæmni sagði hags- munaaðilinn Kristján Ragnarsson (Mbl. 29/8). Það er lausnin á físk- veiðavandanum sagði hugmynda- fræðingurinn Hannes Hólmsteinn (DV 2/10). Afstaða formannsins fór vart milli mála og slegið var snagg- aralega á vissar efasemdir varafor- mannsins. Höfðingjar erum vér sjálfstæðis- menn og rausnarlegar vorar gjafir. Einhveijir hefðu nú þakkað fyrir sig, því mörgum hefur verið boðið minna en heil auðlind gefins á silf- urfati. En laun heimsins eru eins og þau eru. Kraftaverkin geta enn gerst, og drögin voru einfaldlega felld, og átti útgerðin sjálf þar stór- an þátt að máli ásamt ýmsum öðr- um sem sáu að misrétti ætti ekki að vera stefna Sjálfstæðisflokksins. Hættunni á því að útgerðin fengi kvótana til varanlegrar eignar virð- ist endanlega hafa verið bægt frá. Vissulega tókst að beija unga sjálfstæðismenn og þá ólíku kvóta- andstæðinga Matthías Bjarnason og Markús Möller til hlýðni og beija saman nýja tillögu svo Sjálfstæðis- flokkurinn þyrfti ekki að ganga frá sínum landsfundi með þá megin- stefnu í mikilvægasta hagsmuna- máli þjþðarinnar að „leita nýtTa leiða“. í þeirri tillögu er minnst á kvótaskömminat og talað um lengri tíma, en þetta eru máttlaus orð og í þessari tillögu felst engin hætta. Einar Júlíusson Þetta er engin framtíðarstefna, og þó að vissulega gæti 13 tíma þóf um fiskveiðistefnuna aðeins verið til góðs, var engin sérstök ástæða til að ganga frá nýrri stefnu í flýti, Eitt stærsta vandamál kvótakerfisins er stækkun flotans. Hann stækkar nú sem aldrei fyrr, en fyrir stækkun hans eru ekki lengur nein rök, engin skyn- semi, í raun varla nokk- ur ástæða. og þó, sennilega ekkert verra að hafa eitthvað í bakhendinni meðan leitað er að framtíðarstefnunni. Stjórnlausar mega fiskveiðarnar ekki vera. Menn horfa ekki til Sjálfstæðis- flokksins nú af því að þar ríki allt- af einhugur um einn flokk, eina stefnu og einn formann. Fremur- vegna þess að þeir treysta því að Sjálfstæðisflokkurinn muni verða trúr sinni stefnu og leita allra leiða til að leiða þjóðina út úr þeim ógöngum sem hún' hefur ratað í. Trúr sínum hugsjónum fremur en hagsmunaaðilum. Það ríkir heldur ekki alveg einhugur meðan einheiji flokksins, Þorvaldur Garðar, hefur enn ekki skilið hvernig hið nýja kvótakerfi getur stuðlað að há- marksafrakstri og hversvegna ætti þá að leggja það niður þegar því tekst einhvern tímann að ná há- marksafrakstri. Þjóðin getur treyst Sjálfstæðisflokknum meðan hann hefur ennþá þor til að standa einn móti öllum. Einn með jafnrétti skrapsins móti misrétti kvótans. Einn með rétti hins óborna móti frelsi hins fædda. Hugsjónir flokks- ins eru þá ekki alveg týndar. Þökk sé honum og heiður. Drög málefna- nefndarinnar máttu svo sannarlega fjúka. Þar stóð m.a. „getur reynst nauðsynlegt að breyta þeirri viðmiðun sem skipt- ingin upphaflega byggðist á. Sömuleiðis þarf að athuga með hvaða hætti fyrirtæki og ein- staklingar í sjávarútvegi geta tryggt atvinnuréttindi sín til frambúðar, þó þannig að allir sitji við sama borð.“ Eitt stærsta vandamál kvótakevf- isins er stækkun flotans. Hann stækkar nú sem aldrei fyrr, en fyr- ir stækkun hans eru ekki lengur nein rök, engin skynsemi, í raun varla nokkur ástæða. Eina sem sjá má er ákveðinn tilgangur og það er sú tálsýn sem falin er í fyrrnefnd- um orðum draganna. Menn hafa búið sig undir að taka við gjöfinni miklu, gullkálfinum sem slátra og skipta átti. Það felst í þessum orð- um draganna að það eigi að skipta aftur og varanlega og að allir geti enn fengið að vera með. En án happdrættismiða fæst enginn vinn- ingur. Þegar dregið verður aftur, þá er vænlegra til vinnings að eiga skip í hendi en fisk í sjó. Útgerðar- menn hafa réttilega sagt að flotinn minnki ekki því þeir vita ekki hvað framundan er. En nú held ég að flotinn sé hættur að stækka. Eftir þá sögulegu atkvæðagreiðslu í Val- höll á laugardaginn, þegar drögin voru felld, rausnargjöfin afþökkuð og kvótakefinu hafnað, má öllum vera ljóst a.m.k. hvað ekki er fram- undan, og að skip í hendi er ekki lengur betra en fiskur í sjó. Gjöfin stóra, hún verður aldrei gefin. Út- gerðin mun aldrei eignast varanleg veiðileyfi. Þau eigum við enn, þú og ég, og við látum þau aldrei af hendi. Útgerðarmenn hafa sjálfir séð að gullkistan var aldrei annað en eyðileggjandi tálsýn og þeir hafa af skynsemi og réttsýni afþakkað þessa gjöf, þessa tálsýn sem kostað hefur útgerðina og þjóðina svo mik- ið, eins og ég ætla að sýna betur á línuriti í annarri grein. Gullkistan verður áfram í hafinu og auðlindina munu óbornar kyn- slóðir eignast óskipta, því þótt þeir ungu hafi flúið barðir undan merkj- um, aftur til fortíðar og gleymsku, hafði einheijinn gamli enn sem fyrr þor til að standa fastur fyrir stefnu síns flokks, fyrir rétti hinna óbornu móti hagsmunum hinna. Fyrir framtíðinni. Höfundur er eðlisfræðingur. y fimmtud. föstud. oq LQ.uqa.rd. Vatnsrúm m- AÍeinS- mx>/ SISSEL Einstaklingsrúm „með öllu“.Stærð 85x200 1Z900. Stærð 140x200 „með öllu". 15200, Svefnsófi, 120 cmbreiður Ábur- Mú , rnSCOr Baðmottusett, BOX/« dýnur,stor.»’ÍM» 0.tí>/UH40- itour KM90i" *, 6900; HANDKLÆÐI 100% bómullar-frotté, átok- Tvibreið Verð frá ; ÚtUtiQÍXluX Uminanrránt 3,m SOKMRIOpor Sertil 11 W> TE Opið er: Man.-fim.kl. 09.30-18.00 Föstud. kl. 09.30-19.00 Laugard. kl. 10.00-16.00 Auðbrekka 3 Óseyr14 200Kópavogi GOOAkureyti s. 40460og 40461 s. (96)26662

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.