Morgunblaðið - 19.10.1989, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 19.10.1989, Blaðsíða 43
L MORGCNBIADÍf) WMÍITUDAGUR 19. OKTÓBtó 'áÍ! U AÚ Morgunblaðið/ Karl Sigurgeirsson Jón Pétur Úlfljótsson og Kara Arngrímsdóttir, uppstillt „með stæl“. AST Gekk að eiga dæmdan fj öldamor ðingj a Kenneth Bianchi er betur þekkt- ur í Bandaríkjunum sem the “Hillside Strangler", eða Hlíða- Lukkuleg brúðhjón, Hlíðarmorð- inginp og Shirlee Bock morðinginn, en síðustu 11 árin hef- ur hann setið á bak við lás og slá í fangelsi í Washington eftir að hafa verið dæmdur í tvöfalt lífstíðarfangelsi fyrir að hafa nauðgað og myrt ÍO ungar konur í Los Angeles. Bianchi segist vera breyttur mað- ur og það til hins betra og til að leggja áherslu á það hefur hann gengið að eiga Shirlee Bock. Þau voru gefin saman í fangelsiskapell- unni og eyddu hveitibrauðsdögun- um í hjólhýsi á fangelsislóðinni. Ekki hefur hjónabandið alls staðar mælst vel fyrir, því margir álíta Bianchi vera geðsjúkan ofbeldis- mann. Shirlee er á annarri skoðun, segir bónda sinn vera ljúfmenni hið mesta og allar sögur um bresti hans séu uppspuni frá rótum. Hið sanna eðli hans komi brátt í ljós og karli verði sleppt úr prísundinni. Bianchi segist aftur á móti ekki ræða fortíðina heldur horfi fram veginn, árið 2005 verði mál hans athugað og þá ákveðið hvort til greina komi að sleppa honum skil- orðsbundið. Hann segist bjartsýnn að geta þá orðið Shirlee sá eigin- maður sem hún vissulega eigi skilið. Annars bar kynni þeirra skringi- lega að. Shirlee las sig til um morð- in og réttarhöldin og þegar Bianchi var kominn í svartholið ritaði hún honum bréf. Þau skrifuðust síðan á all lengi, en hittust aldrei. Bónorð- ið bar Bianchi upp bréfleiðis og já- ið kom einnig bréfleiðis. Þau höfðu aldrei sést fyrr en í betrunarhúsinu, daginn fyrir brúðkaupið. HVAMMSTANGI Dansað af lífi og sál Dansskóli Jóns Péturs og Köru hefur síðastliðnar íjóra'r vikur staðið fyrir námskeiði sem haldið var í samvinnu við leikskólann og Grunnskólann á Hvammstanga. Um eitt hundrað börn og unglingar tóku þátt í námskeiðinu sem lauk með danssýningu. Kom þar fjöldi foreldra og annarra fullorðinna til að gleðjast með þessum ungu borg- urum. Kennararnir, Jón Pétur Úlfljóts- son og Kara Arngrímsdóttir, eru Húnvetningum vel kunn, þvi þau hafa kennt hér í allmörg skipti. Þau luku kennaraprófi frá dansskóla Sigurðar Hákonarsonar, Jón Pétur árið 1988 og Kara á þessu' ári. Stofnuðu þau eigin skóla nú í haust. Segja þau að áhugi fólks fyrir dans- listinni sé mikill og hefðu m.a. starfsmannahópar pantað tíma hjá þeim. í lok danssýningarinnar á Hvammstanga gáfu kennararnir nemendum og gestum smáinnsýn í fullkomnun danslistarinnar. Voru þau óspart hvött með hrópum nem- endanna „meira, meira“. Sannar- lega ríkti gleði í Félagsheimilinu. Karl BARNASKOR Jólaskórnir komnir. Stærðir: 28-37. Svart lakk, hvítt leður. Ennfremur: Kvenskór - karlmannaskór - stígvél. Skóverslun Kópavogs, Hamraborg 3, sími 41754. Hraðlestrarnámskeið Vilt þú margfalda lestrarhraða þinn? Vilt þú lesa meira af fagurbókmenntum? Vilt þú auðvelda þér námið með auknum lestrarhraða og bættri námstækni? Svarir þú játandi, skaltu skrá þig á síðasta hraðlestrarnámskeið ársins, sem hefst miðvikudaginn 25. október nk. Skráning öll kvöld kl. 20-22 í síma 641091. Hraðlestrarskólinn E NYTT OG GLÆSILEGT ÆFINGASVÆÐI EKTA TEX-MEX MATUR STUB OG MEXIKÖNSK STEMNING

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.