Morgunblaðið - 19.10.1989, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 19.10.1989, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1989 41 um og öðrum gögnum sr. Jóns og flytja þau heim til íslands. Þessar ferðir urðu Haraldi heilladijúgar, ekki einungis vegna þeirra minja, sem hann flutti heim, heldur batzt hann órofa vináttu við marga þá, sem urðu til að greiða för hans, m.a. Herder-ijölskylduna í Freiburg, en forlag hennar hefur alla tíð gefið út Nonnabækur í Þýzkalandi. Slík kynni rækti Haraldur vel. Honum var síðan falin varðveizla þess efnis, sem hann hafði safnað, unz annað yrði ráðið. Það var í raun eign Jes- úítareglunnar, því að henni var sr. Jón bundinn. Þessu safni bjó Harald- ur fegurstu umgjörð á heimili sínu og vann jafnt og stöðugt við að raða efninu og skrá þáð, færa til bands og auka við nýjum útgáfum Nonna- bóka og heimildum um höfundinn og verk hans. Loks beitti hann sér fyrir því, að fengið var leyfi Jesúíta- reglunnar til þess, að Nonnasafni mætti búa framtíðarstað hér á landi, og vorið 1987 var formlega frá því gengið, að það yrði flutt í Þjóðarbók- hlöðu, er hún verður fullgerð. Að sjálfsögðu batt Haraldur mikla tryggð við minjasafn Nonna á Akur- eyri, sem er í umsjá Zóntasystra, en það var opnað á aldarafmæli sr. Jóns Sveinssonar haustið 1957. Á þeim degi færði Haraldur safninu koffort úr eigu Nonna, fullt af bók- um eftir hann á ýmsum tungumál- um. Af sama tilefni stuðlaði Harald- ur að því, að sett var upp minningar- sýning um Nonna í bogasal Þjóð- minjasafns, en þá var líkneski hans einnig komið fyrir í safninu. Á árunum 1948-72 vann Haraldur Hannesson ásamt Freysteini Gunn- arssyni að heildarútgáfu á bókum Nonna í tólf bindum, og þýddi hann þá tvær þeirra. Voru flest bindin í þessu ritsafni endurprentuð. Á síðari árum sótti að Haraldi nokkur óvissa um það, hvort bækur Nonna höfðuðu enn til ungra lesenda á sama hátt og áður, og því var það með dálitlu hiki, að hann réðst á síðasta ári í nýja útgáfu þeirra á vegum Almenna bókafélagsins, sem gaf þá út bókina Nonna. Það gladdi Harald verulega, hversu vel þeirri bók var tekið, og mér er kunnugt um, að daginn eftir að hann lézt stóð til að færa honum þá gleðifrétt frá forlaginu, að nú væri Nonnabókin uppseld. Meðal þeirra eigna úr fórum sr. Jóns Sveinssonar, sem Haraldur sótti til Þýzkalands árið 1948, voru 36 hinna þekktu íslandsmynda brezka fornfræðingsins og málarans W. G. Collingwood, sem hér var á ferð árið 1897. Þessar einstæðu myndir urðu Haraldi mjög hugleikn- ar. Hann vann meðal annarra að því árið 1962, að tvö söfn Collingwood- mynda, sem til voru í erlendri eigu, voru þá fengin hingað til lands til sýningar. Sennilega hefur það stuðl- að að því, að meginhluti þessara gersema hefur nú komizt í eigu Þjóð- minjasafns. Tvisvar gaf Haraldur út bækur, með myndum Colling- woods. Árið 1969 gaf hann út úrval þessara fallegu mynda ásamt ritgerð um málarann í bókinni Á söguslóð- um, sem seldist upp á skömmum tíma. Á síðasta ári gaf hann svo út á forlagi Arnar og Örlygs mun stærra safn Collingwood-mynda ásamt bréfum málarans úr íslands- ferð hans í afar vegjegri útgáfu, sem ber heitið Fegurð íslands og fornir sögustaðir. Miklu fleiri ritstörfum sinnti Har- aldur, og verður það ekki allt talið hér. Einkum var það af tvennum toga og tengdist annars vegar Nonnafræðum og sögu katólska starfsins hér á landi, hins vegar sögu banka- og viðskiptamála. Af fyrra taginu má minna á útgáfu hans og þýðingu á Jóns sögu Jónssonar frá Vogum við Mývatn (Rv. 1968), en Voga-Jón var móðurbróðir sr. Jóns Sveinssonar, enn fremur þýðingu á endurminningum systur Clementíu um komu katólsku nunnanna til ís- lands 1896 (í Andvara 1981), þýð- ingu á minningum sr. Max Oster- hammel um katólska starfið á Fá- skrúðsfirði (í Múlaþingi 1984) og loks huganir sr. Jóns Sveinssonar úr klausturskólanum Stella Matutina í Feldkirch, sem Haraldur lét prenta 1986 tii styrktar Nonnahúsi á Akur- eyri. Af síðara taginu má nefna útg- áfu Haralds á minningum Sighvats Bjarnasonar bankastjóra um verzl- unarlífið í Reykjavík um 1870 (í Landnámi Ingólfs 1983) og ritgerð um upphaf sparisjóðsstarfsemi á ís- landi (í Afmælisriti Sparisjóðs Svarf- dæla 1984). Þá var Haraldur ágætur útvarpsmaður, og munu margir t.d. minnast vinsælla þátta hans um spiladósir á íslandi. Það lét Haraldi einstaklega vel í safnstarfi að búa um svokölluð pers- onalia, eftirlátin gögn úr fórum ein- staklinga. Á heimili hans eru auk Nonnasafns gögn Jóns Pálssonar bankaféhirðis og rithöfundar, sem Haraldur tók að sér að búa um, áður en afhent yrði Landsbókasafni. í bankasafninu er sérstaklega að nefna umfangsmikið bréfa- og skjalasafn Tryggva Gunnarssonár bankastjóra, sem Haraldur raðaði, bjó um og skrásetti afar vandlega ásamt Bergsteini Jónssyni sagn- fræðingi, og enn fremur safn Jóns Árnasonar bankastjóra, þótt minna sé. Loks vann Haraldur að því ásamt öðrUm að skrásetja mikið bókasafn sr. Friðriks Friðrikssonar og búa um handrit hans og bréf í félagsheimili KFUM. Það má ljóst vera af því, sem nú hefur verið rakið, að Haraldur Hann- esson kom rniklu í verk, sem horfði til heimildavörzlu og minjaverndar. Hitt bar þó ef til vill af, hversu vand- virkur og nákvæmur hann var í öllu, sem hann fékkst við, og kröfuharður við sjálfan sig. Þessa sér rækilega stað í söfnum Seðlabankans, ekki aðeins í vönduðum skrám, sem hann lætur _þar eftir sig, heldur einnig í frágangi öllum og umgengni, slíkur fagurkeri sem hann var. Þau verk hans má hiklaust leggja í dóm framt- íðar, og verði ummerkjum ekki spillt, verður sá dómur því traustari og betri sem lengri tímar líða. Haraldur Hannesson er að mínu viti meðal allra merkustu safnamanna íslenzkra á síðustu áratugum. Hann var sæmdur riddarakrossi hinnar íslenzku fálkaorðu fyrir varðveizlu menningarverðmæta. Haraldur Hannesson unni fagurri tónlist, var ákaflega vel að sér í þeim efnum og vandlátui-. Á yngri árum stundaði hann söngnám. Rödd hans hafði bjartan hljóm, sem gætti einnig í tali. Hann söng í ýmsum kórum, lengst í karlakórnum Fóst- bræðrum, og í þeim félagsskap undi hann sér vel, safnaði m.a. um eitt skeið efni í Fóstbræðratal og vann að því af. smekkvísi sinni að koma minjasafni kórsins fyrir í félags- heimili hans. Haraldur brá jafnan miklum glað- værðarsvip á umhverfi sitt, lífgaði hveija orðræðu með einlægri frá- sagnargleði og heilbrigðri gaman- semi og hlífðist þá sízt af öllu við að varpa skoplegu ljósi á sjálfan sig öðrum til skemmtunar. Árið 1942 kvæntist Haraldur eft- irlifandi konu sinni, Ragnheiði Hannesdóttur frá Vestmannaeyjum. Þau eignuðust einn son, Hannes Gunnar bankaféhirði, og ólu upp sonarson sinn, Harald verzlunar- mann. Hannes er kvæntur Rósu Ármannsdóttur bankastarfsmanni, og eiga þau tvo syni. Unnusta Har- alds yngra er Sigurlaug Jónsdóttir. Um 1940 byggði Haraldur með föð- ur sínum myndarlegt íbúðarhús við Hávallagötu og bjó þar alla tíð síðan. Þar bjuggu þau Ragnheiður sér ákaflega fagurt heimili, sem ber ein- dreginn svip af menningarlegum hugðarefnum þeirra beggja. Þaðan á ég kærar minningar, sem munu fylgja mér, meðan ég man liðnar stundir. Við hjónin sendum fjölskyldu Haralds einlægar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hans. Ólaíur Pálmason Fyrir 47 árum hóf ég störf í Landsbanka íslands. Einn þeirra manna sem ég kynntist þá var Haraldur Hannesson hagfræðingur, sem í dag er borinn til hinstu hvíldar frá Kristskirkju í Landakoti. Hann hafði stundað hagfræðinám í Þýskalandi og lagt um leið stund á söngnám enda hafði hann fallega tenórrödd. Fyrstu árin hafði ég ekki náin kynni af Haraldi en vissi þó að hann var vandfýsinn safnari úrvals- bóka og átti besta safn Nonna-bóka í heiminum, enda hélt hann til haga hveiju bréfi, hverri tilkynningu og frétt sem stóð í einhveijum tengsl- um við hinn heimskunna barna- bókahöfund. Haraldur hafði kynnst Nonna á æskuárum sínum og hafði á fáum mönnum jafnmiklar mætur. Haraldur hafði verið kaþólskur frá bernsku og þegar ég gekk í kaþólsku kirkjuna 1953, leiddi af sjálfu sér að kynni okkar jukust. Hann bauð mér heim til sín og sýndi mér bókasafn sitt. Þar sá ég ávöxt þeirrar frábæru snyrtimennsku og vandvirkni sem einkenndi Harald, allar bækurnar vandlega innbundn- ar og stóðu í svo jöfnum röðum í hillunum að engin var millimetra framar en sú næsta. Hann sýndi mér líka ýmislegt sem hann hafði skrifað og þýtt, minnisgreinar um kaþósku kirkjuna og fleiri, vélritað af hinni mestu hákvæmni á heldur litlar pappírs- arkir og spássíurnar strikaðar af á tvo vegu. Ég dáðist að þessari ein- stöku vandvirkni hans og spurði hann hvort það tæki ekki alltof langan tíma að vanda svona til vinnubragðanna. Svar hans man ég ekki orðrétt en innihald þess var hliðstætt því sem Bernadetta Devlin hefur eftir móður sinni: „Hlutur sem er þess virði að gera hann, er þess virði að gera hann vel.“ Síðar las ég með Haraldi prófark- ir af tveim eða þrem bókum. Það tók svo langan tíma að þolinmæði mín var stundum alveg á þrotum. Hvert einasta vafaatriði í stafsetn- ingu þurfti að þrautkanna og jafn- vel hringja til sérfræðings út af málinu. Þá var tíminn ekki lengur til, hið eina nauðsynlega var að vanda svo til verksins að betur yrði ekki gert. Sama gilti um hús hans og heim- ili, þar átti allt að vera vandað, hreint og vel umgengið og naut hann í því öllu ómetanlegrar lið- veislu hinnar ágætu konu sinnar, Ragnheiðar Hannesdóttur, sem lifir mann sinn. Hún hefur þolinmæði og umburðarlyndi engla, enda sagði Haraldur eitt sinn við mig að betri konu hefði hann ekki getað fengið, „ekki auðveldari en ég er í um- gengni,“ bætti hann við. Ég varð þess oft var hin síðari ár, þegar ég kom til þeirra hjóna, að hann spurði hana hvar hann hefði lagt hitt eða þetta blaðið eða myndina sem hann þurfti að nota og gat hún oftast leyst úr því. Haraldur var að verulegu leyti alinn upp og menntaður í skjóli kaþólsku kirkjunnar og vann feiknamikið starf í þágu hennar, bæði við bókmenntastörf og bók- hald. Hann barðist á sínum tíma fyrir því að hið vandaða orgel Kristskirkju væri keypt, hafði for- göngu um fjársöfnun til kaupanna og var gjaldkeri orgelsjóðs, enda var góð tónlist honum ævinlega kær. Hann var - stálminnugur og með honum fer nú í gröfina ómetan- legur fjársjóður minninga um sögu kaþólsku kirkjunnar hér á landi, minningar og fróðleikur sem nú er hvergi lengur að finna. Haraldur hafði fastar og óhvikul- ar skoðanir þegar deilt var um málefni sem honum voru hjartfólg- in. Hann var þó engu að síður sann- gjarn og fann þeim málstað, sem hann deildi á, oft ýmsar máls- bætur, eins og þegar hann sagði um rússnesku byltinguna 1917 að menn skyldu ekki ætla að hún hefði aðeins stafað af illsku vondra manna, heldur hefði ástandið í landinu verið það slæmt að eitthvað slikt hefði hlotið að gerast. Var það sanngjarnlega mælt af manni sem annars leit á kommúnismann sem einhveija ógeðfelldustu stjórnmála- stefnu mannkynssögunnar. Ég hirði ekki um að rekja lífsfer- il Haraldar að öðru leyti en þessu, það munu aðrir gera. Þessum kveðjuorðum mínum er aðeins ætl- að að lýsa kynnum mínum af þess- um vandaða og vandvirka manni og tjá þakklæti mitt fyrir þær stundir sem ég átti sameiginlegar með honum, bæði á heimili hans og utan þess. Um leið votta ég, fyrir hönd kaþólska safnaðarins á íslandi, eftirlifandi konu hans, syni, sonarsonum og tengdadóttur inni- legustu samúðarkveðjur okkar. Hann hvíli í friði. Torfi Ólafsson Fleiri greinar um Harald Hann- esson munu birtast í blaðinu næstu daga Kvikmyndahátíð Listahátíðar 1989 Ben Kingsley í hlutverki sínu í bresku myndinni Vitnisburðurinn. Vitnisburðurinn Kvikmyndir Arnaldur Indriðason „Testimony". Leikstjóri: Tony Palmer. Handrit: Palmer og David Rudkin eftir sjálfsævi- sögu Dmitri Shostakovitsj. Að- alhlutverk: Ben Kingsley, Ter- ence Rigby. Bretland, 1987. Rúsínan í pylsuenda Kvik- myndahátíðar var eftir allt ekki Terence Stamp heldur hin magn- aða og áleitna mynd Tóny Pal- mers um rússneska tónskáldið Dmitri Shostakovitsj, Vitnisburð- urinn, kannski eini raunverulegi kvikmyndaviðburðurinn á hátíð- inni í þetta sinn. Hún er rúmir tveir og hálfur tími á lengd og frábærlega tekin í svart/hvítu af Nic Knowland. Palmer, áður aðstoðarmaður Kens Russells og sá sem gerði hina frekar óaðgengilegu sjón- varpsmynd um Richard Wagner, er ekki maður sem byijar sögu á „Einu sinni var.. .“, hefðbundinn frásagnarmáti er ekki hans te- bolli eins og Bretinn mundi segja heldur er hann snillingur í að bijóta frásögnina upp og klippa saman aftur eftir eigin höfði á bæði hraðan, óvæntan og áhrifa- mikinn hátt. Látið það ekki koma á óvart þótt Stalín eigi heima í risastórri vöruskemmu, að blóð leki niður eftir hvíta tjaldinu yfir myndina, að Fílharmóníuhljóm- sveit Lundúna birtist þar sem hún leikur tónlist Shostakovitsj undir myndinni, jafnvel að tónskáldið skipti sér af tónlistarvali myndar- innar í eigin jarðarför - allt er það óijúfanlegur hluti af þessari impressjónísku sinfóníu Palmers um Shostakovitsj og Stalin. Stalín gnæfir yfir myndinni eins og hann gnæfði yfir lífi Shostakovitsj. Vitnisburðurinn er um listamanninn og kúgarann, hinn valdalausa og alvaldinn, hún er að hluta beitt satíra á einræði og persónuofsóknir Stalíns (tón- skáldið er beiskur og kaldhæðnis- legur sögumaður myndarinnar), að hluta hrollköld lýsing á lífi sem býr við stöðuga kúgun, lýsing á morðóðu einræðisríki, svo hrylli- lega afkáralegu að það verður fyndið: Stalín gerir ekki annað en fletta skýrslum um menn og kon- ur og strika nöfn út af listum. Eina stundina eru tilraunir Shostakovitsj til að semja frá hjartanu tættar í sundur og hann er opinberlega settur út af sakra- mentinu, lýst í mögnuðu atriði á ráðstefnu tónskálda þar sem kol- legar hans standa upp frá honum, en hina stundina er hann fremsta tónskáld þjóðarinnar, klaþpað af Stalín. Upp og niður, upp, niður. Inní allt þetta klippir Palmer listi- lega saman svipmyndir úr sögu Rússlands á 20. öldinni og tónlist Shostakovitsj. Niðurstaða Palmers er sú að Stalín hafi skapað Shostakovitsj, að tónskáldið hafi gert sín bestu, fegurstu verk í andstöðu við hann, þegar mest ógnin stafaði af ein- ræðisseggnum. „Ég er óvinurinn sem þú elskaðir að hata,“ segir einræðisseggurinn við tónskáldið þegar hann vitjar þess á dánar- beði. Ben Kingsley, sem orðinn er talsverður sérfræðingur í að leika frægðarmenni sögunnar, er fá- dæma góður í hlutverki tónskálds- ins og Terence Rigby ekki síður í hlutverki Stalíns. Billy Budd Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Leikstjóri Peter Ustinov. Hand- rit Ustinov og Robert Rossen, eftir skáldsögu Hermans Mel- ville. Aðalleikendur Peter Ust- inov, Robert Ryan, Terence Stamp, Melvyn Douglas. Bret- land 1962. Það á ekki illa við að sýna Billy Budd til heiðurs Terence Stamp, síðasta gesti Kvikmyndahátíðar í ár. Því hvort tveggja var hún fyrsta mynd leikarans og fyrir titilhlutverkið hlaut hann sína einu Óskarsverðlaunatilnefningu hingað til. En það er ekki sopið kálið þó í ausuna sé komið, ’62 var samkeppnin hörð sem endra- nær og reyndist Ed Begley hlut- skai-pastur, hlaut Óskarinn fyrir Sweet Bird of Youth. Margir töldu þó Bretann unga líklegan til verð- launa og víst er að það setti stórt strik í reikninginn að Billy Budd var framleidd af fátæku smáfyrir- tæki - Allied Artists - sem hafði lítil ráð á að kynna og auglýsa sinn mann. Billy Budd Ijallar öðru fremur um eilífa baráttu góðs og ills. Um borð í bresku herskipi á ofan- verðri 18. öld er hásetinn Stamp ljúfmennskan og gæðin uppmáluð en agameistarinn Ryan illmennsk- an holdi klædd. Endar myndin á herréttarhöldum yfir Stamp eftir morð kvalara skipshafnarinnar. Billy Budd er byggð á leikriti sem aftur var ieikgerð skáldsögu eftir Melville. Umræðan um lög og réttlæti og margslungið inn- ræti mannsins er sígild. Myndin hefur hinsvegar elst frekar iila, einkum ýktir leikhústaktar Ust- inovs í herréttaratriðinu, eins ber kvikmyndin alltof mikinn keim af leikhúsi. Að öðru leyti er sönn ánægja að fylgjast með klækjar- efnum Ustinov, Ryan er engu síðri, Stamp gengur upp og ofan við erfitt hlutverk og frumraun sína á hvíta tjaldinu. Melvyn Do- uglas er traustur að venju í hlut- verki Danskers og í stórum hópi aukaleikara má kenna fjölda kunnra andlita. Myndir sýndar í dag Aðskildir heimar, Salaam Bombay!, Píslarganga Jud- ith Hearne, Geggjuð ást, Fjölskyldan, Sögur af Giml- ispítala, Ashik Kerib, Föls- unin, Liðsforinginn, Blóð- akrar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.