Morgunblaðið - 19.10.1989, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1989
21
Styðjum geðsjúka
til sjálfshjálpar
eftirBraga
Guðbrandsson
Málefni geðsjúkra .eru í brenni-
depii um þessar mundir. Senn líður
að K-deginum 21. okt., en svo nefn-
ist sá dagur sem Kiwanismenn hafa
valið til sölu á K-lyklinum til styrkt-
ar geðsjúkum.
Vert er að minnast þess að mikl-
ar framfarir hafa orðið í geðlækn-
ingum á liðnum árum. Ný viðhorf
hafa valdið straumhvörfum í með-
ferð ýmissa geðsjúkdóma. Hér á
landi hefur sérmenntuðu fólki á
sviði geðheilbrigðismála fjölgað
verulega svo nú er unnt að veita
geðsjúkum - heilbrigðisþjónustu á
borð við það sem best gerist í heim-
inum. Þessi þróun hefur leitt til
mikilla breytinga í meðferð geð-
sjúkra. í stað sjúkrahúsdvalar er
áhersla nú lögð á göngudeildar-
þjónustu í því skyni að gera geð-
sjúkum það kleift að lifa og starfa
í eðlilegu samfélagi við aðra. Þessi
breyting hefur skipt sköpum fyrir
ijölmarga geðsjúka.
Þrátt fyrir að miklar framfarir
hafi orðið í meðferð geðsjúkra verð-
ur því tæplega haldið fram að mál-
um þeirra hafi verið komið í viðun-
andi horf. Því veldur einkum að
framfarir á sviði félagsþjónustu
fyrir geðsjúka hafa alls ekki verið
sambærilegar við þær sem orðið
hafa í heilbrigðisþjónustunni. Hér
er um mjög þýðingarmikið mál að
ræða þar sem færa má að því gild
rök að árangur geðlækninga sé af
þessum sökum til muna slakari en
annars væri. Þannig hafa erfiðar
félagslegar aðstæður. margra geð-
sjúkra og aðstandenda þeirra valdið
því að oft líður skammur tíini á
milli innlagna á sjúkrahús.
Raunar hafa verið stigin mikil-
væg spor í áttina að því að íjúfa
þann vítahring er að ofan greinir.
Hérlendis eru reknir tveir áfanga-
staðir fyrir geðsjúka, en markmið
þeirra er að þjálfa félagslega færni
sjúklinganna og undirbúá þá til
þátttöku í daglegu lífi samfélags-
ins. Þannig er áfangastöðunum
ætlað að veita íbúum sínum tæki-
færi til að aðlagast samfélaginu á
nýjan leik að aflokinni sjúkrahús-
dvöl. Rétt er að geta þess að annar
áfangastaðanna sem rekinn er af
Geðverndarfélaginu í Álfalandi var
að stærstum hluta byggður fyrir fé
sem Kiwanisfélagar höfðu aflað
með sölu K-lykilsins. Hinn áfanga-
staðurinn er rekinn af Reykjavíkur-
borg við Norðurbrún. Reynslan af
endurhæfingarstarfi þessara
áfangastaða er afar góð.
Auk áfangastaða hefur verið leit-
ast við að koma á fót sambýlum
fyrir geðsjúka. Sambýlin eru frá-
brugðin áfangastöðum að því leyti
að um minni einingar er að ræða
auk þess sem sambýlin eru oft var-
anlegt heimili íbúanna. Reykjavík-
urborg, Geðverndarfélagið o.fl.
Pennavinir
Frá Austur-Þýskalandi skrifar
26 ára verkfræðingur sem safnar
póstkortum og frímerkjum og á
mörg önnur áhugamál:
Alexander Baum,
Rockenddorfer Weg 3,
Halle,
DDR-4070,
East Germany.
Sautján ára sænsk stúlka með
áhuga á dýrum, útivist, bréfaskrift-
um, tónlist o.fl.:
Rose-Marie Nilsson,
Jungmansvágen 5,
S-231 32 Trelleborg,
Sweden.
Gleymum
ekki_
geðsjúkum ■ 21
hafa rekið sambýli af þessu tagi,
en mjög langt er í land með að
þörfinni fyrir þau sé fullnægt. Það
er því ánægjuefni að Kiwanismenn
hafa ákveðið að veija því fé sem
safnast mun á K-daginn til þess
að festa kaup á íbúðum sem notað-
ar verða fyrir sambýli.
Sjúkrahúsdvalir eru dýrar og
fæstum kemur til hugar að dvöl á
stofnunum sé til mikillar ánægju
fyrir þá sem hennar þurfa. Það er
því til mikils að vinna ef unnt er
að draga úr innlögnum. Á það ekki
síst við þegar það er unnt er að
skapa valkosti sem bæði eru sam-
félaginu hagkvæmari í kostnaði og
gefa hinum sjúka kost á innihalds-
ríkara og betra lífi. Þó sambýli og
verndað húsnæði sé nauðsynleg for-
senda þessa þarf fleira að koma til.
Með sama hætti og þeir heilsu-
hraustu fá þjónustu við sitt hæfi
þurfa geðsjúkir að eiga kost á
margháttaðri þjónustu sem kemur
til móts við ólíkar þarfir þeirra.
Margir geðsjúkir eiga erfitt 'með
heimilishald og þarfnast stuðnings
og eftirlits. Því verður að búa svo
að þeim að þeir fái notið heimaþjón-
ustu. Aðrir þarfnast persónulegs
stuðnings og félagsskapar svo þeir
einangrist ekki frá öðru fólki. Því
má mæta með liðveislu svonefndra
„tilsjónarmanna" sem þarf að verða
vaxandi þáttur í aðstoð við geðsjúka
í framtíðinni. Margir geðsjúkir
dvelja hjá foreldrum eða eiga maka
og börn. Aðstandendur geðsjúkra
eru oft í mikilli þörf fyrir hjálp og
stuðning. Ekki síst á þetta við um
böm þeirra sem ekki mega gleym-
ast. Þennan stuðning þarf að efla
samhliða því að geðsjúkir dvelji í
auknum mæli utan stofnana. Loks
skal hér getið atvinnumála geð-
sjúkra sem þannig þarf að sinna
að framboð á verndaðri vinnu sé
Bragi Guðbrandsson
„Geðsjúkir eru ekki í
stakk búnir til að gera
kröfur til samfélagsins
eða að standa vörð um
hag sinn og réttindi.
Því ber okkur sem njót-
um góðrar heilsu sið-
ferðileg skylda til að
láta okkur velferð
þeirra varða.“
nægjanlegt. Verði misbrestur á
þeirri margháttuðu þjónustu sem
hér hefur verið nefnd má reikna
með að innlagnir á sjúkrahús verði
mun tíðari en ella þyrfti að vera.
Fyrst var efnt til K-dags árið
1974 og síðan hefur hann verið
helgaður málefnum geðsjúkra á
þriggja ára fresti. Því fé sem safn-
ast hefur var fyrst varið til stofnun-
ar verndaða vinnustaðarins Bergiðj-
unnar, þá til áfangastaðarins í Álfa-
landi og síðast til unglingageðdeild-
arinnar við Dalbraut. Nú er verk-
efnið uppbygging sambýla á höfuð-
borgarsvæðinu og á Akureyri. Má
af þessu ráða að áherslan hefur
verið lögð á úrræði sem létta geð-
sjúkum róðurinn í lífi sínu utan
stofnana.
Það má hveijum manni vera ljóst
að þeir sem eiga við alvarlega geð-
sjúkdóma að stríða eiga ekki mikla
möguleika á að eignast eigið heim-
ili án stuðnings. Húsnæðisöflun er
fullfrísku fólki erfiður hjalli að
kljúfa svo óþarft er að fjölyrða um
möguleika þeirra sem ekki ganga
heilir til skógar. Geðsjúkir eru ekki
í stakk búnir til að gera kröfur til
samfélagsins eða að standa vörð
um hag sinn og réttindi. Því ber
okkur sem njótum góðrar heilsu
siðferðileg skylda til að láta okkur
velferð þeirra varða.
Höfundur er félagsmálastjóri
Kópavogsbæjar.
■GAR
AÐEINS
4 DAGAR
19., 20., 21
og 22. okt.
POTTAPLÖNTUR
5 frábær tilboð!
Dæmi um verð:
Veró Verð
áður nú
Drekatré 440 220
Drekatré 770 499
Burknar 649 324
Burknar 451 225
Fíkus 1 metri 1.260 995
Nílarsef 580 380
Blómstrandi begónía 396 298
Ihaustlaukar Ikeramikpohar GRÆNA TORGIÐ
Nú er um að gera að drífa haustlaukana niður fyrir veturinn. Allir haustlaukar með 25% afslætti tilboðsdagana. í tilefni tilboðsdaga bjóðum við mikið úrval af keramik- pottahlífum. Mikill afsláitur. Frá Græna torginu koma tvö stórkostleg tilboð: 1) Nýjar, steinlausar appelsínur ó aðeins 99 kr./kg 2) Kiwi 1. flokkur 5 stk. í pk. ó aðeins kr. 99,-
sísass
Gróðurhúsinu v/Sigtún Sími: 68 90 70