Morgunblaðið - 19.10.1989, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1989
37
Guðmundur Ingvi
Helgason — Minnmg
Fæddur 10. nóvember 1919
Dáinn 10. október 1989
í dag fer fram í Fossvogskirkju
bálför Guðmundar Helgasonar,
Ljósheimum 6, en hann andaðist
10. þ.m. á krabbameinsdeild Land-
spítalans eftir þungbær veikindi.
Skipst hafa á skin og skúrir frá
því þessa banvæna sjúkdóms varð
vart fyrir þrem árum. Stundum
vöknuðu jafnvel vonir um að óþreyt-
andi tilraunir lækna og hjúkrunar-
liðs, ásamt lífslöngun og dugnaði
Guðmundar myndu bera sigurorð
af þessu alvarlega innvortis meini.
Því miður reyndust það tálvonir
og Guðmundi hrakaði skyndilega í
lok september og var rænulaus
síðustu dagana áður en yfir lauk.
Guðmundur var eitt af sex börn-
um hjónanna Helga Guðmundsson-
ar, trésmíðameistara frá Gerðakoti
í Flóa, og Sigríðar Hjartardóttur frá
Krossi í Ölfusi. Systkinin voru
fimm, Loftur aðalbókari hjá Sjóvá,
nú látinn, Sigríður Christiensen,
sem einnig er látin og búsett var í
Kaupmannahöfn, Guðrún Olsen,
búsett í Kaupmannahöfn, og Gróa
Svava, sem býr í Reykjavík.
Guðmundur starfaði lengst af hjá
tollstjóraskrifstofunni eða frá
1944-1979. Síðar starfaði hann hjá
Alþingi fram á mitt ár 1987, er
hann varð að hætta störfum vegna
veikinda. Guðmundur átti einn son,
Hafliða, búsettan í Reykjavík, og
fjögur barnabörn.
Guðmundur var alla tíð mikill
stuðningsmaður Vals og spilaði í
meistaraflokki þess félags í knatt-
spyrnu. Hann var einnig mlkill
skíðamaður á sínum tíma.
Leiðir okkar Guðmundar lágu
fyrst saman, þegar hann sem
starfsmaður tollstjóra veitti mér
góða afgreiðslu og greiddi götu
mína eftir bestu getu.
Löngu síðar lágu leiðir okkar
aftur saman er mágkona mín, Ólöf
Anna Sigurðardóttir, jafnan kölluð
Stella, kynntist Guðmundi og hóf
sambúð með honum, sem entist æ
síðan. Frá 1974 hafa þau búið í
Ljósheimum 6 ásamt dóttur Stellu,
Rannveigu. Enda þótt samskipti
okkar hjónanna við Guðmund og
Stellu hafi ekki verið náin eða stöð-
ug áttum við þó í gegnum árin þó
nokkrar ánægjulegar samveru-
stundir með þeim ásamt fjölskyldu
okkar.
Stella og Guðmundur voru ákaf-
lega samrýnd og góðir félagar. Þau
ferðuðust oft á liðnum árum utan-
lands sem innan og virtust njóta
sín best tvö saman. Engu að síður
kunnu þau vel að gleðjast með öðr-
um og það var gott að heimsækja
þau og njóta gestrisni þeirra. Maður
fann glöggt að maður var velkom-
inn og veitingar voru ekki skornar
við nögl. Það fengum við vinir
þeirra glöggt að finna, m.a. þegar
Guðmundur hélt upp á 60 ára af-
mæli sitt.
Guðmundur hafði góða kímni-
gáfu og gat verið hrókur alls fagn-
aðar í góðra vina hópi. í hinum
þungbæru veikindum síðustu árin
gafst sjaldnar en áður tækifæri til
gleðskapar en Guðmundur hélt
góðu skapi sínu og gerði að gamni
sínu allt til þess síðasta. Hjúkrunar-
fólk lauk lofsyrði á hann fyrir dugn-
að hans og þrek.
Sjálfur hrósaði hann læknum og
hjúkrunarfólki óspart og er ég þess
fullviss að hann vildi gjarnan að ég
skilaði kveðju hans og þakklæti til
alls þess góða fólks, sem stundaði
hann í veikindum hans og er það
gert hér með. Sérstakar þakkir eru
færðar starfsfólki St. Jósefsspítal-
ans í Hafnarfirði, starfsfólki
krabbameinsdeildar Landspítalans
og heimahlynningu Krabbameins-
félagsins.
Ég lýk þessum fátæklegu orðum
með því að votta Stellu og Hafliða
og ástvinum öllum einlægar samúð-
arkveðjur okkar hjónanna, barna
okkar og tengdabarna.
Blessuð sé minning Guðmundar
Helgasonar.
Ásbjörn Björnsson
Föðurbróðir minn, Guðmundur
Ingvi Helgason, er látinn. Mig lang-
ar til að minnast Guðmundar, eða
Mumma eins og hann var oftast
kallaður, nokkrum orðum. Hann
fæddist í Reykjavík, nánar tiltekið
á Frakkastígnum, þann 10. nóvem-
ber 1919,. og hefði því orðið sjötug-
ur í næsta mánuði. Foreldrar
Mumma voru þau Helgi Guðmunds-
son trésmiður frá Gerðakoti í Flóa
og Ólafía Sigríður Hjartardóttir frá
Krossi í Ölfusi, og var hann yngst-
ur fimm barna þeirra. Það var allt-
af gaman að hitta og ræða við
Mumma. Hann var mikill húmoristi
og gat nánast breytt öllu á gaman-
saman hátt. Það fór ekki mikið
fyrir honum, en hann kom þó öllu
til skila sem hann vildi segja. Ég á
margar góðar minningar frá fjöl-
skylduboðum heima hjá foreldrum
mínum, þar sem Mummi skemmti
fólkinu með sínum smellnu athuga-
semdum. Margar skemmtilegar
sögur sagði hann mér af fólkinu í
Reykjavík hér áður fyrr, þegar
flestir höfðu viðurnefni eða voru
kenndir við eitt eða annað. Það var
auðheyrt að Mumma þótti vænt um
„gamla daga“ eins og hann orðaði
það alitaf. Eitt var það sem samein-
aði okkur, en það var knattspyrnan,
en Mummi hafði mikinn áhuga á
knattspyrnu og lék með Vai í
„gamla daga“. Þótti mér einkar
skemmtilegt að heyra hann segja
sögur frá þeim tíma. Mummi veikt-
ist fyrir nokkrum árum og bar þá
fundum okkar sjaldnar saman, en
þó gafst okkur tækifæri á að hitt-
ast síðastliðið sumar og spjalla. Við
slógum á létta strengi og riljuðum
upp gamlar minningar. Þeim tæp-
lega þijátíu ára aldursmun á okkur
fann ég aldrei fyrir, því það var
alltaf svo stutt í strákinn Mumma.
Ég vil að lokum votta fjölskyldu
hans samúð mína og bið Guð að
styrkja þau í sorg sinni.
Lárus Loftsson
WordPerfect 5,0
Byrjendanámskeið í notkun ritvinnslu-
forritsins WordPerfect 5,0 (Orðsnilld).
Tími: 23., 25., 30. okt. og
1. nóv., kl. 13 - 17.
WP 5,0
uppfærsla
Framhaldsnámskeið fyrir þá sem vilja Örn'chlðinu'ndsson
læra ítarlegri aðgerðir í WordPerfecl. viðskipta- og
Tími: 20. Og 27. okt. kl. 13_l7>rfisfræðingur.
TÖLVUFRÆÐSLAN
Borgadúni 28 sími 687590
___________Brids_____________
Amór Ragnarsson
Tafl- og bridsklúbburinn
Sl. fimmtudag spiluðu 6 sveitir
sveitakeppni. Sveit Birgis Þoivalds-
sonar sigraði, hlaut 90 stig. Með
Birgi spiluðu Þorvaldur Valdimars-
son, Bernharður Guðmundsson og
Tryggvi Eiríksson. Sveit Reynis A.
Eiríkssonar varð önnur með 85 stig.
í kvöld verður keppni á léttu
nótunum en annan fimmtudag hefst
barometer-tvímenningur. Nánar
verður sagt frá því síðar í þættin-
um. Spilað er í Skipholti 70 á
fimmtudögum kl. 19.30.
Mjólkursamsalan
Hafinn er fjögurra kvölda
tvímenningur með þátttöku 12
para.
Staðan eftir fyrsta kvöldið:
Ingólfur Jónsson --
Guðmundur Ásgeirsson 134
Sævar Arngrímsson —
Ólafur Júlíusson 129
Arnar— Margrét 121
Guðrún Möller —
JónaMöller 121
Spilað er á mánudögum í húsi
Mjólkursamsölunnar uppi á Höfða.
Þ.ÞORGRlMSSON &C0
ABETE1™3*
HARÐPLAST Á BORÐ
ÁRMÚLA29, SÍMI 38640
GUARANTfED
PESfECTIN
3 MINUTES
rLs*c.'ni Lprj Gri n R;,y vilh
Löng hrísgjrón með ristuðu
heilvheitiklíði, núðlum og
bragðgóðu grænmeti. Ljúf-
fengur fjölskylduréttur.
Fyrir 4 - suðutími 8 mín.
Heildsölubirgðir:
KARL K. KARLSSONxCO.
Skúlatúni 4, Rcykjavík, sími 62 32 32
STERKIR OG NOTALEGIR
Stærðir 30-41
Útsölustaðir:
Bikarinn - Sparta - Útilíf - Steinar Waage - Toppskór-
inn - Smáskór - Skóverslun Kópavogs - Músík & sport
- Sportbúð Óskars, Keflavík - Staðarfell, Akranesi -
Skókompan, Ólafsvík - Litlibær, Stykkishólmi - Fell,
Grundarfirði - Sporthlaðan, ísafirði - Einar Guðfinns-
son, Bolungarvík - Krakkakotið, Sauðárkróki - Sport-
húsið - Skótískan, Akureyri - Sportvík, Dalvík - Rafbær,
Siglufirði - Orkuver, Höfn - Axel Ó, Vestmannaeyjum.
m