Morgunblaðið - 19.10.1989, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. OKTOBER 1989
Þing Ungverjalands:
Stj órnarskrárbreyting'ar sem
miða að vestrænu stjómarfari
Sovéskt tímarit kallar uppreisnina 1956 gagnbyltingu
Búdapest. Reuter. ~
UNGVERSKA þingið samþykkti í gær hátt í 100 breytingar á stjórnar-
skrá landsins með 333 atkvæðum gegn 5. Breytingarnar færa stjórnar-
skrá landsins nær sljórnarskrám vestrænna lýðræðisþjóða og leggja
grunn að fjölflokkakerfi í landinu. Auk þess voru samþykkt breytingaá-
kvæði er snerta mannréttindamál og aðskilnað löggjafar- og fram-
kvæmdavaldsins.
Samkvæmt nýju stjórnarskránni
verður Ungveijaland sjálfstætt lýð-
ræðisríki sem hefur í heiðri „gildi
borgaralegs lýðræðis og lýðræðislegs
sósíalisma".
Kalman Kulcsar, dómsmálaráð-
herra landsins, sagði að með breyt-
ingarákvæðunum yrði til nokkurs
konar „umskipta-stjórnarskrá" sem
ryðja myndi brautina að stjórnarfars-
legri umbyltingu. Fyrstu fjölflokka-
kosningamar í Ungveijalandi frá því
1947 eru ráðgerðar á miðju næsta
ári og að þeim loknum mun nýkjörið
þing semja nýja stjórnarskrá.
Þá er forsætisráð landsins, undir
forystu Bruno Straub, lagt niður og
stofnað til embættis forseta sem fer
með framkvæmdavald. Fullvíst er
talið að Matyas Szuros, forseti ung-
verska þingsins, verði settur forseti
landsins fram að forsetakosningum
sem eiga að fara fram 26. nóvember
næstkomandi. Ungveijalandi er því
leiðtogalaust þar sem Szuros verður
ekki útnefndur forseti fyrr en sérstök
lög um forsetaembættið hafa verið
samþykkt á þinginu ,í dag eða á
morgun.
Atkvæðagreiðsla um stjórnar-
skrárbreytingamar tafðist í gær er
ríkisstjóm landsins kom saman til
skyndifundar til að fjalla um deilur
sem risið höfðu á þingi landsins og
snemst um hvort fresti beri forseta-
kosningum. Samtök fijálsra lýðræð-
issinna og æskulýðshreyfingin FI-
DESZ stóðu fyrir undirskriftasöfnun
þar sem þess er krafist að gengið
verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um
forseta landsins og skrifuðu 200.000
manns undir listann. Samkvæmt lög-
um sem samþykkt voru á þessu ári
er ungverska þingið skylt að efna til
þjóðaratkvæðagreiðslu ef 100.000
manns eða fleiri krefjast þess.
Fijálsir lýðræðissinnar og tals-
menn FIDESZ segja að ekki komi
til greina að halda forsetakosningar
fyrr en að þingkosningum afloknum.
Þeir telja að ella kunni svo að fara
að stjórnarflokkurinn tilnefni mann
úr sínum röðum í forsetaembættið
til að tryggja sér völd sem flokkurinn
gæti hæglega misst í næstu þing-
kosningum.
í grein í sovésku hernaðartímariti
segir að uppreisnin í Ungveijalandi
1956 hefði verið „gagnbylting" og
er Imre Nagy, þáverandi forsætisráð-
herra sem galt með lífi sínu árið
1958 fyrir þátt sinn í uppreisninni,
kailaður svikari. í greininni, sem rit-
uð var af Pjotr Latsjenko hershöfð-
ingja og birtist í tímaritinu Military
Historical Journal, segir að vestræn
ríki hafi stutt uppreisnina en hvergi
er minnst á að ungversk stjómvöld
hafi veitt Nagy uppreisn.
Erich Honecker og eftirmaður hans, Egon Krenz, takast í hendur.
Myndin er ekki ný, var tekin meðan Krenz gegndi enn formennsku
í æskulýðssamtökum kommúnistaflokksins.
Egon Krenz, nýr leiðtogi austur-þýska kommúnistaflokksins:
Eftimiaðiir Honeckers hefiir aldrei
verið orðaður við umbótaáhuga
Austur-Berlín. Iteuter.
EGON Krenz, sem tekið hefúr við
af Erich Honecker sem formaður
austur-þýska kommúnistaflokks-
ins, er yngstur þeirra, sem sæti
eiga í stjórnmálaráðinu, en hefur
þó lengi verið talinn líklegasti
„krónprinsinn“. í stjórnmálaráð-
inu hefúr Krenz haft öryggismálin
á sinni könnu og ferill hans allur
í flokki og stjórnkerfi er sá sami
og Honeckers.
Krenz, sem er 52 ára að aldri,
þykir fremur óþýður við fyrstu kynni
og kemur kannski ekki á óvart með
„Gorbatsjov vill aftra mér
frá stj órnmálaþátttöku ‘ ‘
Segir Boris Jeltsín fiilltrúaþingmaður
Moskvu. Reuter.
BORIS Jeltsín, leiðtogi róttækra umbótasinna í Sovétríkjunum, sakaði
í gær Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtoga um að reyna að aftra sér frá
stjórnmálaþáttöku í Sovétríkjunum. I yfirlýsingu sem Jeltsín sendi firá
sér segir að staðhæfingar um að hann hafi logið upp sögu um að sér
hafi verið sýnt banatilræði væru sambland af lygum og sannleika.
Hann sakaði Gorbatsjov um að setja á svið „pólitískan farsa“ með því
að leyfa umræður um málið á þingi landsins.
að bola mér frá þátttöku í stjóm-
Jeltsín kvartaði undan því að and-
stæðingar hans hefðu lekið sögum í
sovéska fjölmiðla og flekkað með því
mannorð hans og dreift óhróðri um
einkalíf hans.
„Þessar aðgerðir eru liður í því
málum og fyrir þeim stendur Gorb-
atsjov," sagði í yfirlýsingu Jeltsíns.
Jeltsín sagði að ef þessum ofsókn-
um héldi áfram myndi hann grípa
til aðgerða gegn þeim sem bera
brigður á virðingu hans og heiðar-
leika sem borgara og þingmanns.
35 umbótasinnar á fulltrúaþinginu
gerðu Gorbatsjov fyrirspurn þess
efnis hvers vegna hann hefði sett
harkalega ofan í við aðra rótttæka
umbótasinna á fulltrúaþinginu
síðastliðinn föstudag, þá Júri Afan-
asjev og Vladislav Starkov, ritstjóra
Argumenty i Fakty, vinsælasta dag-
blaðs landsins. „Við stöndum frammi
fyrir því að afturhaldsöflin reyna að
hefna ófaranna í þingkosningunum
í vor,“ sagði stjórnmálaskýrandinn
Jevgeníj Ambartsumov í grein sem
birtist í gær í hinum fijálslynda viku-
riti Moskvufréttum.
mann, sem ber ábyrgð á innra ör-
yggi ríkis og hers í kommúnistaríki,
og hann hefur aldrei verið grunaður
um að vera umbótasinni undir niðri.
Vestrænir stjórnarerindrekar og fé-
lagar hans í austur-þýska kommúni-
staflokknum Iíta á hann sem
harðlínumann en þeir, sem hafa hitt
hann að máli, segja þó, að hann
geti verið hinn Ijúfmannlegasti og
hreinskilinn í svörum.
Krenz var áður formaður í æsku-
lýðssamtökum kommúnistaflokksins,
„Freie Deutsche Jugend“, og lét ekki
af því starfi fyrr en hann var kominn
yfir hálffimmtugt. Gerðu margir ós-
pait grín að því og meðal almenn-
ings var oft talað um hann sem „at-
vinnuunglinginn". 1983, þegar
Krenz klæddi sig loks úr einkennis-
búningi æskumannanna, fékk hann
sæti í stjórnmálaráðinu sem fullgild-
ur félagi með ábyrgð á öryggis-,
æskulýðs- og íþróttamálum.
Egon Krenz er kennari að mennt,
fæddur 19. mars 1937 í bænum
Kohlberg í norðanverðu Austur-
Þýskalandi. Hann var 12 ára gamall
þegar Austur-þýska alþýðuveldið var
stofnað og gerðist strax starfsamur
í æskulýðssamtökunum. 1964 hóf
hann þriggja ára nám í þjóðfélagsvís-
indum í skóla sovéska kommúnista-
flokksins í Moskvu og 1974 varð
hann formaður æskulýðssamtak-
anna. Honecker gegndi því embætti
einnig á sínum tíma og honum voru
falin öryggismálin í stjómmálaráðinu
áður en hann tók við sem flokksleið-
togi 1971. Krenz er kvæntur og á
tvö börn og býr eins og aðrir ráða-
menn í Austur-Þýskalandi í Wandlitz
fyrir norðan Berlín, í hverfi, sem al-
menningur fær ekki að valsa um að
vild. (
Bandaríkin:
Atlantis
skotið á loft
Canaveral-höföa. Reuter.
GEIMFERJUNNI Atlantis var
skotið á loft rétt fyrir kl. 17 í gær
írá Canaveral-höfða í Banda-
ríkjunum með fimm manns innan-
borðs.
Markmið ferðarinnar er að koma
könnunarfarinu Galileo á braut áleið-
is til Júpíter og er áætlað að könnun-
arfarið verði sex ár á leið til pláne-
tunnar.