Morgunblaðið - 24.10.1989, Síða 26
iV'AÖ
TS
25Z
esei aaaörao .12 auoAcmianw aiciAjawuoaoM
.MORGUNBLAÐIÐ MTÐJUUAOUR 24. OKTÖBKirTggg '
Ronald Reagan sæmd-
ur æðstu orðu Japana
Tókíó. Reuter.
JAPANIR sæmdu Ronald Reagan, fyrrum Bandaríkjaforseta, æðstu
orðu þjóðarinnar sem veitt er útlendingum við hátíðlega athöfn í
Keisarahöllinni i Tókíó í gær. Reagan er annar forseti Banda-
ríkjanna sem verður þessa heiðurs aðnjótandi en árið 1960 var
Dwight Eisenhower veitt orðan, sem er kennd við krýsantemu, hið
helga blóm Japana.
Reagan var heiðraður áð Akihito
keisara viðstöddum og að athöfn-
inni lokinni snæddu Reagan og eig-
inkona hans, Nancy, hádegisverð
með keisaranum, keisaraynjunni
Michiko og krónprinsinum Naru-
hito.
Að sögn japanska utanríkisráðu-
Þungir þank-
ar höfðu
ekki roð við
Kasparov
New York. Reuter.
GARRI Kasparov heims-
meistari í skák sýndi fram á
það um helgina að enn er
staðfest djúp milli bestu
skáktölvu heims og besta
skákmanns i heimi. Heims-
meistarinn rúllaði skáktölv-
unni Þungum þönkum upp í
tveggja skáka einvígi í New
York.
Kasparov vann Þunga þanka
í 53 leikjum í fym skákinni en
37 leikjum í þeirri seinni. Skák-
skýrendur sögðu að í bæði
skiptin hefði skáktölvan staðið
uppi með tapað tafl eftir um
það bil tuttugu leiki. Svo fárán-
legur þótti 14. leikur tölvunnar
í seinni skákinni að áhorfendur
skelltu upp úr.
Fyrir einvígið hafði Kas-
parov farið vandlega yfir 50
skákir tölvunnar. Áður en sest
var að tafli sagði hann frétta-
mönnum að enn skorti tölvuna
„ímyndunarafl, hugmyndaflug
og innsæi". Eftir skákirnar
sagði Kasparov að eftir tvö til
þijú ár byggist hann við að
skáktölva gæti lagt sæmilega
sterkan stórmeistara. Stærsta
vandamál Þungra þanka sagði
hann vera hve seint hún gerði
sér grein fyrir slæmri stöðu
sinni.
Þungir þankar hafa 2550
bandarísk skákstig sem er rúm-
lega það sem meðal stórmeist-
ari hefur. Kasparov á hinn bóg-
inn hefur nýlega bætt met
Bobby Fischers og er kominn
með 2790 Eló-stig.
neytisins var Reagan heiðraður fyr-
ir framlag sitt í átta ára forsetatíð
sinni til að bæta samskipti Japana
og Bandaríkjamanna.
Reagan-hjónin em í níu daga
heimsókn í Japan sem hófst síðast-
liðinn föstudag. Þau eru í boði jap-
anskra stjórnvalda og fjölmiðlasam-
steypunnar Fujisánkei og hefur fyr-
irtækið staðið straum af kostnaði
vegna heimsóknar þeirra. í sumum
fjölmiðlum hefur því verið haldið
fram að kostnaður Fujisankei-fyrir-
tækisins geti numið yfir sjö miljón-
um bandaríkjadala, um 434 miljón-
um ísl. kr., þar af renni 2 miljónir
bandaríkjadala beint til Reagans
sem þóknun fyrir tvær 20 mínútna
ræður sem hann flytur. Talsmaður
fyrirtækisins vildi ekki nefna neinar
tölur en taldi ekkert athugavert,
þótt lagt væri í nokkurn kostnað
vegna jafn góðs gests.
Reuter
Óttast átök í Jerúsalem
Vopnaðir ísraelskir landamæraverðir við eftirlit í Jerúsalem í gær. Ottast var að til átaka kynni
að koma á milli gyðinga og músiima í borginni eftir ákall leiðtoga múslima. Leiðtoginn hvatti alla
múhameðstrúarmenn til að leggjast á bæn á Musterisfjalli og mótmæla á þann hátt því er 50 öfga-
sinnaðir gyðingar í síðustu viku reyndu að leggja hornstein að byggingu bænahúss gyðinga á staðn-
um.
Fimmtán lifðu af er þota
flaug á íjall í Honduras
Tegucigalpa. Reuter.
FIMMTÁN manns komust lífs af
þegar Boeing 727-farþegaþota
flaug á fjallshlíð er hún var í
aðflugi að flugvellinum í Teguc-
igalpa, höftiðborg Hondúras, sl.
laugardag. Um 130 manns eru
taldir hafa farist í slysinu. Orsak-
ir óhappsins eru ókunnar en
rannsókn hófst í gær á flugrita
þotunnar hjá bandarísku flug-
málastjórninni í Washington.
„Það var eins og kjarnorku-
sprengja hefði sprungið. Sprengi-
blossarnir teygðu sig í allar átti og •
síðan læsti eldur sig í skrokk flug-
vélarinnar. I nokkrar mínútur
kváðu við kvalaóp frá fólki sem sat
fast í flakinu en um síðir dóu hljóð-
in út,“ sagði Helen Devereux, 47
ára áströlsk kona, sem komst lífs af.
Með þotunni voru 146 manns en
hún var að koma frá Costa Rica.
Með henni fórst Armando Blanco,
verkalýðsmálaráðherra Hondúras,
og dóttir Wilfredo Sanchez, varnar-
málaráðherra. Missti hann son
sinn,sem var flugmaður, í flugslysi
í desember 1987. Meðal þeirra sem
fórust voru Argentínumenn, Belg-
ar, Bólivíumenn, Bretar, Tékkar,
Finnar, Frakkar, Hollendingar,
Svoétmenn, Spánveijar, Svíar og
Bandaríkjamenn. í gær hafði tekist
að bera kennsl á lík 77 manna en
þau voru flest illa leikin og mikið
brunnin.
Þotan var í eigu bandaríska flug-
félagsins Continental en flugfélag
Hondúras, Tan Sahsa, hafði tekið
hana á leigu.
Bretland:
Deilur um fóstureyð-
ingar og rannsóknir
St. Andrews. Frá Gudmundi H. Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
BRESKA ríkisstjórnin mun leggja fram frumvarp um fósturrannsókn-
ir á þessu hausti og aðstoðarráðherra heiibrigðismála sagði um helg-
ina að breytingartillaga við það frumvarp um að stytta leyfilegan
hámarksaldur fósturs vegna fóstureyðinga nyti stuðnings stjórn-
valda. Búist er við miklum deilum um máiið í þinginu.
SÍBS úagurim 19S9
í dag, 24. október, er afmælisdagur Sam-
bands íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga.
Að því tilefni eru fyrirtæki og stofnanir sam-
bandsins, Reykjalundur í Mosfellsbæ og Múla-
lundur við Hátún 10, opnar almenningi frá kl.
13-16 og verður starfsemin kynnt gestum.
Afmæliskaffi verður í Hótel Lind við Rauðar-
árstíg í kvöld kl. 20.30.
FrumvaKpið um fósturrannsóknir
kveður á um að leyfilegt verði að
gera tilraunir á fóstrum allt að 14
daga gömlum. Andstæðingar fóst-
ureyðinga hafa lýst því yfir að þeir
muni nota þetta frumvarp til að
reyna að koma fram styttingu á
leyfilegum hámarksaldri fósturs
vegna fóstureyðinga. Deilur um
fóstureyðingar hafa verið árlegur
viðburður í þinginu síðustu ár.
David Mellor aðstoðarheilbrigðis-
ráðherra lýsti því yfir um helgina
að stjómin myndi taka tillit til til-
lagna um þetta efni og sjá til þess
að frumvarpið næði fram að ganga.
í fyrra féll frumvarp um styttingu
leyfilegs hámarksaldurs fósturs
vegna fóstureyðinga á tíma vegna
þess að það naut ekki stuðnings
stjórnarinnar.
Ekki verður krafist flokksaga í
þessu máli og verður þingmönnum
fijálst að fara eftir samvisku sinni
í að greiða atkvæði.
Andstæðingar fóstureyðinga
meðal þingmanna hafa lýst því yfir
að þeir vilji stytta tímann enn frek-
ar, jafnvel niður í 18 vikur. Fylgis-
menn fóstureyðinga er andvígir öll-
um breytingum. Þeir benda enn-
fremur á að einfaldasta ráðið til að
draga úr fóstureyðingum seint á
meðgöngu sé að gefa þær algjör-
lega fijálsar fyrstu tólf vikurnar.
Grænland:
SKIÐAFERÐIR
Brottfarardagar: 3
2 vikur
TIL AUSTURRIKIS
, og 17. febrúar
Ferðaskrifstofa
Guðmundar Júnassonar tif.,
Borgartúni 34, s. 83222.
Verða farmflutn-
ingar boðnir út?
Kaupmannaliöfn. Frá N.J.Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
SVO virðist sem pólitískur meirihluti sé fyrir því í Grænlandi að
ailurkalla einkaleyfi Grænlandsverslunarinnar á farmfiutningum frá
Danmörku. Kom það fram hjá fulltrúum allra flokka í umræðum,
sem grænlenska útvarpið efndi til.
Farmgjöld Grænlandsverslunar-
innar eru 50% hærri en þau, sem
önnur skipafélög segjast geta boðið,
og er ástæðan meðal annars sú, að
þau hafa verið samræmd fyrir
landið allt. Það skiptir sem sagt
ekki máli hvort siglt er ineð vöruna
til Julianeháb eða Thule.
Landsþingsmennirnir hafa mest-
an áhuga á að leyfa fijálsa flutn-
inga með byggingarvörur í þeirri
von, að það verði til að lækka bygg-
ingarkostnaðinn, sem er mikill á
Grænlandi. Hafa þeir þá einnig í
huga byggingu vatnsaflstöðvar við
Nuuk en mestallt efni í hana verður
að flytja frá Danmörku. Er andstöð-
una við. fijálsa flutninga helst að
finnan innan Siumut-flokksins
vegna þess, að þeir kæmu til með
að skerða þær tekjur, sem lands-
stjórnin hefur af hlut sínum i Græn-
landsversluninni.