Morgunblaðið - 24.10.1989, Blaðsíða 55
MÓRGUNBLAÐIl) þÍiÖJUÓÁÓÓr'sÍ; OKTÓBER 1989
MorgunDiaoio/ujorn rsjomsson
Vopnafirði.
Síldarsöltun á Vopnafírði
SÖLTUN er nú hafin hjá söltunarstöð Tanga hf. á
Vopnafirði. Um 100 tonn hafa borist af síld síðan
veiðar hófust.
Að sögn verkstjóra í söltunarstöðinni er síldin
mjög góð, vel stór og mátulega feit. Saltað er fyrir
markað í Svíþjóð. Þeir bátar sem leggja upp hjá
söltunarstöð Tanga hf. eru Lýtingur frá Vopnafirði
og Sigþór frá Húsavík.
- B.B.
Júlíus Sólnes:
Mjög fiirðulegt ef menn vilja að ráð-
herrar búi á þriðja flokks hótelum
JÚLÍUS Sólnes hagstofuráðherra segist varla geta ímyndað sér að
þjóðin vilji að ráðherrar séu hafðir á þannig dagpeningum, að þeir
þurfi að búa á einhverjum þriðja fiokks hótelum. „Mér finnst mjög
furðulegt ef það er sú steftaa, sem menn vilja taka upp,“ sagði Júlíus
er hann var spurður álits á athugasemdum yfirskoðunarmanna ríkis-
sjóðs við ferðakostnað ráðherra og hátt settra embættismanna.
sem kannski getur verið hagkvæmt
og ef til vill er hægt að leysa ágrein-
ingsmál þjóða með þeim hætti. Ég
skal ekki um það segja. ég sé ekki
að það út af fyrir sig sé stórmál í
þessari umræðu,“ sagði Júlíus.
Spurningaleikur
Kringlunnar:
10.000 svör
RÚMLEGA 10.000 svör bárust í
spurningaleik, sem Kringlan
efiidi til meðal viðskiptavina
sinna í tilefni ítalskra daga, sem
haldnir voru í verzlanamiðstöð-
inni í byrjun október.
Nýlega var dregið úr réttum
svörum í leiknum. Vinningshafinn
er Sigurbjörn Bachmann, Nóatúni
32, Reykjavík. Hann fær í verðlaun
ferð fyrir tvo til Caorle á Norður-
Ítalíu, ásamt vikudvöl og uppihaldi
á hóteli. Auk Kringlunnar stóður
að þessum spumingaleik Alitalia,
Flugleiðir og ferðamálaráð Caorle.
(Fréttatilkynning)
Ráðsteftia um
hugbúnaðagerð
SKÝRSLUTÆKNIFÉLAG ís-
lands stendur fyrir ráðstefiiu um
hugbúnað, bætt vinnubrög og
breytt viðhorf, miðvikudaginnn
25. október, á Hótel Sögu.
Á ráðstefnunni verða kynntar nýj-
ungar við hugbúnaðargerð en ráð-
stefnan er ætluð starfsfólki tölvu-
deilda, stjórnendum og þeim sem
hafa með skipulags og stefnumörk-
un fyrirtækja að gera.
Fyrirlesarar kynna nýjustu tækni
á sviði hugbúnaðargerðar og hvern-
ig auka megi gæðin og draga úr
kostnaði.
Skráning fer fram á skrifstofu
Skýrslutæknifélags íslands.
Snilldarverk
VISE-GRIP er samheiti fjölhæf-
ustu handverkfæra sem smíöuð
hafa verið.
VISE-GRIP lástangir koma í stacf^
fjölmargra verkfæra.
Með VISE-GRIP getur þú hert,
losað, dregið, klippt, klemmt,
sveigt, beygt, rétt og gripið.
Varist eftiriíkingar.
UMJ.UAU\.IU.\.TWX!*M
Júlíus sagði að íslenzkir embætt-
ismenn hefðu oft lent í vandræðum
út af því á erlendum fundum og
ráðstefnum að dagpeningar þeirra
hefðu verið svo lágir að þeir hefðu
varla efni á að búa á hótelunum,
þar sem fundirnir væru haldnir. „Ef
menn vilja taka upp svoleiðis stefnu
er það bara til að rýra álit á æðstu
stjórn út á við. Menn verða að fara
aðeins varfærnislega í hvernig
menn túlka svona. Ég er hins vegar
ekkert á móti því að það verði sett-
ar einhveijar ákveðnar reglur um
þetta,“ sagði Júlíus.
Hvað varðaði greiðslur ríkisins
fyrir ferðalög ráðherra á vegum
flokka eða félaga, sagðist Júlíus
ekki þekkja þann bransa; hans
flokkur hefði ekki stundað nein slík
ferðalög. „Allir gömlu flokkarnir
hafa hins vegar notað þetta óspart,
skilst mér. Það komu þær skýringar
að sumar þessara ráðstefna væru
með þeim hætti að þar næðist sam-
band við vissa pólitíska leiðtoga,
Þorsteinn Pálsson um
ferðakostnað ráðherra:
Nær að hækka launin
ÞORSTEINN Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins segist taka und-
ir það með yfirskoðunarmönnum ríkisreiknings að rétt sé að breyta
þeim reglum,- sem lengi hafi gilt, um ferðapeninga ráðherra og nokk-
urra æðstu yfirmanna annarra í stjórnarráðinu. Nær sé að breyta
launum viðkomandi en að þeir fái aukagreiðslur í formi hærri ferða-
peninga.
„Án þess að ég þekki forsögu
málsins á þessi skipan vafalaust
rætur að rekja til þess að það hefur
verið litið á þetta sem einhvers
konar launauppbót. Að mínu mati
væri miklu nær að viðurkenna það
þá og hafa launin í samræmi við
það sem menn vilja, en ferðakostn-
aðarreglurnar þá takmarkaðri,"
sagði Þorsteinn.
Yfirskoðunarmenn ríkisreiknings
telja einnig óeðlilegt að ferðalög á
vegum stjórnmálaflokka, samtaka
eða einkaaðila greiðist af almanna-
fé. „Ég held að þarna sé eðlilegt
að setja einhver mörk um hvað
heimilað er í þessu skyni. Um það
yrðu þá að gilda sambærilegar regl-
ur fyrir Alþingi og stjómarráðið,"
sagði Þorsteinn.
Ingi Björn Albertsson:
Er sammála yfir-
skoðunarmönnum
„MÉR finnst óeðlilegt að ráðuneytin greiði ferðir fyrir ráðherra eða
háttsetta menn, sem fara á fundi á vegum flokka eða annarra fé-
laga. Ég vil taka fyrir allt slíkt,“ sagði Ingi Björn Albertsson, formað-
ur Frjálslynda hægri flokksins.
Ingi Björn sagðist jafnframt telja
eðlilegt -að ráðherrar og háttsettir
embættismenn fengju jafnháa dag-
peninga og almennir ríkisstarfs-
menn, sérstaklega með hliðsjón af
því að allur hótelkostnaður og risna
væri greidd. Dagpeningarnir væru
því hrein aukagreiðsla í vasa þess-
ara embættismanna. „Á meðan allt
er greitt fyrir þessa menn, hótel-
kostnaður, risna og hvaðeina, er
engin ástæða til þess að þeir fái
jafnháa dagpeninga og raun ber
vitni,“ sagði Ingi Björn. „Ég er al-
veg sammála yfirskoðunarmönnum
ríkisreiknings um að það ber að
taka þessi mál til skoðunar og skera
þennan lið verulega niður.“
TOSHIBA
örbylgjuofnarnir eru langvinsælustu
ofnarnir á íslandi! - Veistu hvers vegna?
Surfa-Touch línan - það nýjasta
• Toshiba er stærsti framleiðandi ör-
bylgjuofna í heimi. Tækninýjungarnar
koma frá Toshiba.
• Toshiba örbylgjuofnarnir eru búnir full-
komnasta öryggisbúnaði sem völ er á.
• Deltawave-dreifing á örbylgjunum er
tækniþróun Toshiba. Þú færð ekki jafn-
ari hitun.
• Við bjóðum upp á langmesta úrvalið í
örbylgjuofnum. Þú færð örugglega rétt-
an ofn fyrir þarfir þínar. Meira en 15
gerðir. Verð við allra hæfi.
• Það nýjasta: Ofnar með vigt. Ofnar með
hitablæstri, grilli og sjálfhreinsandi.
• Fullkomin leiðbeiningahandbók á íslensku
með fjölda uppskrifta fylgir.
• Þér er boðin þátttaka í Toshiba-uppskriftar-
klúbbnum. Þú færð réttar uppskriftir fyrir
ofninn þinn.
• Þér gefst kostur á matreiðslunámskeiði án
endurgjalds hjá Dröfn H. Farestveit, hús-
stjórnarkennara, sérmenntaðri í matreiðslu
í örbylgjuofnum. Aðeins 10 eigendur á hverju
námskeiði. íslensk námsgögn.
Verið veikomin í hóp ánægðra eigenda Toshiba ofna.
Einar Farestveit&Co.hf.
BORQARTÚN 28, SÍMAR: (91116995 OO 622900 - M/EO BlLASTÆÐI