Morgunblaðið - 26.10.1989, Side 2

Morgunblaðið - 26.10.1989, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1989 Sérþj ónustuprest- um verður flölgað KIRKJUÞING íslands samþykkti í gær prcstakallafrumvarp sem hefiir I for með sér nokkrar breyt- ingar á hefðbundnu starfi presta. Samþykkt var ráðning aðstoðar- presta og einnig stefnt að því að fjölga sérþjónustuprestum, m.a. fyrir fatlaða. Hingað til hefur ekki verið heimiit að fá aðstoðarpresta í prestakall til afleysinga. Á þinginu var hinsvegar samþykkt að leyfa ráðningu aðstoð- arpresta í fjölmennum prestaköllum, sem sjá um ýmis störf auk þess að aðstoða sóknarprest. Einnig er stefnt að því að fjölga sérþjónustuprestum. Sérþjónustu- prestar eru t.d. fangelsisprestar og prestar á sjúkrahúsum. Að mati þingsins er þörf á fleiri sérþjónustu- prestum, t.d. á sjúkrahús og elliheim- ili. „Við verðum að horfast í augu við það að nú eru breyttir tímar. Lög um prestaköll voru sett 1970 og það 6 íslensk skip leita að loðnu SEX íslensk Ioðnuskip leituðu að loðnu i gær, miðvikudag, en fundu enga. Skipin voru öll í grænlensku Iögsögunni á þriðjudag en fóru aftur út úr henni í gær og héldu þá austur á bóginn. Hólmaborg SU, Jón Kjartansson SU, Börkur NK, Hilmir SU og Harpa RE leituðu að loðnu í græn- lensku lögsögunni á mánudag og Skarðsvík SH bættist í hópinn á þriðjudag. hefur margt breyst á tuttugu árum,“ sagði Ólafur Skúlason biskup ís- lands. Á þinginu var einnig samþykkt að gera átak í safnaðaruppbyggingu. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Japanir vinna hrossakjöt á Blönduósi Tveir japanskir kjötiðnaðarmenn eru staddir hér á landi til að vinna fitusprengt hrossakjöt, sem Félag hrossabænda selur til Japans. Að sögn Halldórs Gunnarssonar, formanns markaðsnefndar félagsins, verður kjötið unnið hér á landi til að draga úr flutn- ingskostnaði, en auk þess fæst betri nýting og hærra verð. „Kjötið hefur reynst of dýrt hjá okkur í vinnslu og því var það tillaga Japananna að þeir kæmu með tvo kjötiðnaðarmenn hingað,“ sagði Halldór. Japanirnir taka sjálfir til vinnslu allt fitu- sprengt kjöt af fullorðnum hrossum, en þeir njóta aðstoðar nokkurra íslendinga við það verk. Með- fylgjandi mynd er tekin í aðgerðarstöð á Blöndu- ósi, en þar verður slátrað um 300 hrossum af Norð- urlandi. Reiknað er með að samskonar aðgerðarstöð verði sett upp á Hellu, að sögn Halldórs. Virðisaukaskattur verður ekki á bifreiðatryggingum eftir áramót: Yfir 100 millj. þegar greidd- ar í söluskatt fyrir næsta ár EMBÆTTI ríkisskattstjóra hefúr nú til athugunar erindi frá Sam- bandi íslenskra tryggingafélaga um innheimtu söluskatts af trygg- ingaiðgjöldum þegar tryggingarnar ná fram yfir áramót. ÖIl ið- gjöld eiga að vera undanþegin virðisaukaskatti, sem kemur í stað söluskatts um áramótin. Fremur stutt er síðan þetta erindi barst ríkisskattstjóra og er ekki úrskurðar að vænta alveg á næstunni, meðal annars vegna þess að það þarf að afla frekari upplýsinga, að sögn Jóns Guðmundssonar, forstöðumanns virðisaukskattsdeild- ar hjá embætti ríkisskattsljóra. Söluskattur er ekki á öllum tryggingum. Til dæmis eru skipa-, farm- og flugtryggingar undan- þegnar söluskatti, sem og líftrygg- ingar og slysatryggingar launþega og sjómanna. Aðrar tryggingar eru með 25% söluskatti, sem fellur nið- ur um áramót þegar ráðgerður 26% virðisaukaskattur á að taka við af honum. Algengasta tímabil bif- reiðatrygginga er frá 1. mars til loka febrúar á hveiju ári og því hafa flestir bifreiðaeigendur, sem staðið hafa skil á tryggingum sínum, greitt söluskatt af trygging- unni í tvo mánuði á næsta ári. Tryggingafélögin hafa haldið því fram að sölu- eða virðisaukaskattur ætti ekki að leggjast á iðgjöld, þar sem um tvísköttun væri að ræða. Samkvæmt samningum Bruna- bótafélags íslands, sem Vátrygg- ingarfélag íslands hefur yfirtekið eftir sameiningu þess fyrrnefnda og Samvinnutrygginga, hófst nýtt tryggingatímabil fasteigna úti á landi 15. október. Upphæð þeirra nam rúmum 208 milljónum og á þær kom söluskattur til ársins að upphæð 52 milljónir. Velta vátrygg- inga í heild á landinu á árinu 1988 var rúmir sex milljarðar. Þar af má gera ráð fyrir að greiddur hafi verið söluskattur af um 4,5 milljörð- um. Ökutækjatryggingar námu 2,6 milljörðúm. Miðað við verðlags- hækkun mílli ára mætti áætla sam- svarandi upphæð á yfirstandandi ári 3 milljarða og söluskatt vegna iðgjalda tveggja mánuða á næsta ári því um 125 milljónir. „Við erum að hugsa um að gefa út tryggingaskírteini til áramóta, sem endurnýjast þá. Þetta er spurn- ing um þjónustu. Fólk er ekkert ánægt með að þurfa að borga sölu- skatt yfir áramót og það er strax farið að spyijast fyrir um þetta,“ sagði Hilmar Pálsson, fram- kvæmdastjóri vátryggingasviðs Vá- tryggingafélags Islands. Saltað í 45 þúsund tunnur SALTAÐ hafði verið í samtals 45 þúsund tunnur af síld í gær. Þá var búið að salta í 7.200 tunnur í Grindavík, 6.200 á Fáskrúðsfirði, 6.000 á Höfn í Hornafirði og 5.600 á Eskifirði. Samningar um sölu á saltsíld til Sovétríkjanna höfðu ekki tekist í gærkvöldi. Útgáfustyrkúr 1987: Hæstiréttur hafnaði kröfu Borgaraflokks HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær dóm héraðsdóms, þar sem kröfú Borgaraflokksins um hluta útgáfústyrks til stjórnmálaflokka fyrir árið 1987 var hafnað. Borgaraflokkurinn tók sæti á þingi eftir kosningar í maí 1987 og þá hafði styrknum þegar verið úthlutað. Albert Guðmundsson og Júlíus Sólnes höfðuðu mál á hendur Qár- málaráðuneytinu, fyrir hönd Borgaraflokksins, en kröfú flokksins var hafnað. Borgaraflokkurinn krafðist 1.986.660 kr. auk vaxta en flokkur- inn taldi sig eiga rétt á 2.986.660 kr. í styrk. Jón Baldvin Hannibals- son, þáverandi fjármálaráðherra, veitti Borgaraflokknum hinsvegar eina milljón króna sem átti að draga frá styrknum fyrir árið 1988. Borg- araflokkurinn krafðist þess að fá fullan styrk og taldi að greiðsla Jóns Baldvins hefði verið viður- kenning á rétti flokksins, en ekki fyrirframgreiðslu fyrir næsta ár. í dómi Hæstaréttar var orðalag á Ijárlagaliðnum, sem varðar út- hlutun sjóðsins, túlkað á þann hátt að Borgaraflokkurinn ætti ekki rétt á styrk og ekki hafi verið hægt að skilja greiðslu Jóns Baldvins sem viðurkenningu á rétti Borgara- flokksins til styrks á árinu. Ummæli Steingríms eru dylgjur og gróusögur - segja Þorsteinn Pálsson og Davíð Oddsson ÞORSTEINN Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra og Davíð Oddsson, borgarstjóri, segja ummæli Steingríms Hermannsson- ar, forsætisráðherra, á fúndi í Hafnarfirði í fyrrakvöld, vera dylgjur. Þeir segjast ekki telja ástæðu til að óska efltir því að hann skýri ummæli sín. Ríkissjónvarpið hafði eftir Stéingrími á fundinum, að í stjórnarráðinu væri að fínna ýmsa reikninga og nótur frá tíð Þor- steins Pálssonar, sem ijölmiðlum þætti án efa fengur að komast yfír. Þá var einnig haft eftir for- sætisráðherra, að fjármagni hefði hvergi verið ráðstafað með jafn einstæðum og óheimilum hætti og í Reykjavík. „Ríkisendurskoðun er búin að endurskoða það tímabil, sem ég sat í forsætisráðuneytinu og ég veit ekki til þess að neinar athuga- semdir hafi komið fram,“ sagði Þorsteinn Pálsson. „Mín vegna má Steingrímur birta hvað sem hann vill, en ég tel ekki ástæðu til að fara fram á að hann styðji mál sitt. Sjálfstæðismenn hafa gagnrýnt Steingrím nokkuð hvasst fyrir það hvað hann bygg- ir sinn málflutning í ríkum mæli á dylgjum og söguburði. Þegar hann snýst til varna fer hann enn lengra í það far.“ Davíð Oddsson sagðist ekki skilja ummæli forsætisráðherra. „En ef fara ætti fram á að Steingrímur skýrði það sem hann segir og er óskiljanlegt, þá yrði að gera það oft,“ sagði hann. „Hann_ hefur oft líkst Gróu á Leiti. Ég skil ekki að hann skuli ekki vara sig á því, þar sem það hefur komið fram að almenningur hefur skömm á þessum vinnu- brögðum. Þar nægir að nefna þegar hann var að hvísla gróusög- um um útgerðarkonuna í Hafnar- firði. Mér finnst ágætt að vera í félagsskap með henni gagnvart Steingrími Hermannssyni." Nánast engin síldveiði var í fyrri- nótt, að sögn Kristjáns Jóhannesson- ar hjá Síldarútvegsnefnd. Jón Finns- son RE fékk þá um 20 tonn af stórri síld „uppi í íjöru“ á Seyðisfirði og Guðmundur Kristinn SU fékk um 10 tonn í Fáskrúðsfírði. Síld veiddist við Hrollaugseyjar í gærmorgun en hún var frekar smá. Þrír bátar ætl- uðu í gær að leita að síld við Eldey. Töluverð síld hefur sést við Skrúð en hún hefur verið á fleygiferð og háhymingur í henni. Sama starfefólk í úti- * búum Islandsbanka „STARFSFÓLK útibúa íslandsbanka, þar með talið útibússtjórar, verður um áramót hið sama og nú starfar í útibúum Alþýðu- banka, Iðnaðarbanka, Útvegsbanka og Verslunarbanka. Undanfar- ið heftir hins vegar verið ráðið í stöður starfsfólks í tilvonandi höfúðstöðvum bankans,“ sagði Tryggvi Pálsson, einn þriggja bankastjóra Islandsbanka. Útibú þeirra banka, sem saman mynda íslandsbanka, verða ekki sameinuð áður en hann tekur til starfa um álramótin. Að sögn Tryggva hafa nú verið ráðnir forstöðumenn deiida, deildar- stjórar, sérfræðingar og fulltrúar. Innri endurskoðandi íslandsbnaka hefur verið ráðinn Steinn Valur Magnússon, sem hefur starfað hjá Verslunarbanka. Verið er að ganga endanlega frá því að raða almenn- um starfsmönnum höfuðstöðvanna á deildir. „Almennir starfsmenn stoðdeilda fengu, eins og allir starfsmenn útibúa, ráðningarsamn- ing sinn yfirfærðan," sagði Tryggvi. „Því hefur aðeins þurft að ganga frá ráðningu sérfræðinga og yfir- manna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.