Morgunblaðið - 26.10.1989, Síða 27

Morgunblaðið - 26.10.1989, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ,OKTÓBER 1989 Ný þingmál: Réttindi og skyld- ur á vinnumarkaði Þingmenn Samtaka um kvennalista endurflytja tillögu til þingsályktunar frá síðasta þingi um að félagsmálaráð- herra verði falið að gera sérs- takt átak til að kynna fólki á vinnumarkaðnum réttindi þess og skyldur. í því skyni skipi ráðherra sjö manna nefiid er kanni annars vegar hvernig best megi tryggja að allir er ráðist til starfa á almennum vinnumarkaði þekki réttindi sín og skyldur og hins vegar hvernig best megi tryggja að einstaklingar, er fá laun sín greidd sem verktakar eða eftir uppmælingu, njóti eigi lakari Þrír þingmenn Framsóknarflokksins: Eftir launasj óður allra landsmanna LÖGÐ hefur verið fram í Sameinuðu þingi þingsályktunartillaga þess efriis að nefiid verði skipuð til þess að móta reglur um eigin eftirlaunasjóði allra landsmanna og um uppgjör réttinda launþega í núverandi lífeyrissjóðum. Flutningsmenn eru Guðni Ágústsson (F/Sl), Alexander Stefánsson (F/Vl) og Stefán Guðmundsson (F/Nv). í tillögunni er meðal annars gert ráð fyrir að réttindi samkvæmt þessum reglum gangi til maka við andlát eða verði erfðafé aðstandenda. í tillögunni er gert ráð fyrir að nefnd sú sem skipuð verði kanni stofnun eftirlaunasjóðs fyrir ein- staklinga samkvæmt eftirfarandi hugmyndum: Við upphaf ævistarfs eignist hver einstaklingur eigin eftirla- unareikning í umsjón banka, tryggingarfélags eða þeirra aðila sem til þess hafa hlotið tilskilin leyfi og fylgi eftirlaunareikningur- inn viðkomandi einstaklingi út starfsævina. Er lagt til að 10% af tekjum launþega og reiknuðum launatekjum þeirra er stunda sjálf- stæðan atvinnurekstur renni í sjóðinn, en að því er varðar aðra en þá sem sjálfstæðan atvinnu- rekstur stunda greiði atvinnurek- endendur 6% en launþegar 4%. Sjóðirnir séu verðtryggðir og ávaxtaðir á bankareikningum eða með verðbréfum skráðum á opin- beru verðbréfaþingi. Við 65-70 ára aldur verði farið að greiða eigandanum eftir ákveðnum reglum úr sjóðnum og hann endurgreiddur að fullu á ákveðnu tímabili. Allar greiðslurn- ar verði skattfrjálsar og við andlát verði eftirlaunasjóðurinn eign maka eða erfðafé aðstandenda. Eftirlaunasjóðirnir séu sameign meðan hjónaband eða sambúð var- ir en skiptist til helminga við bú- skipti eða skilnað. Enn fremur er í þingsályktunar- tillögunni lagt til að ríkið stofni tryggingarsjóð sem taki við trygg- ingarþætti lífeyrissjóðanna og starfi hann við hlið eða verði felld- ur undir Tryggingarstofnun ríkis- ins. kjara en launþegar í hliðstæð- uin störfúm. Nýir atvinnumöguleikar á landsbyggðinni Þingmenn Samtaka um kvenna- lista hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar þess efnis að ríkisstjórninni verði falið að kanna með hvaða hætti unnt sé að nota nútíma tölvu- og fjar- skiptatækni til að flytja verkefni á vegum ríkisstofnana og annarra aðila frá höfuðborgarsvæðinu til annarra landshluta. Lagt er og til að kannaðir verði sérstaklega möguleikar á því að nýta þessa tækni til að koma á laggirnar ijarvinnustofum í því skyni að fjölga störfum og auka fjölbreytni í atvinnulífi byggðar- laganna. Sementsverksmiðju ríkisins breytt í hlutafélag Friðrik Sophusson (S/Rv) end- urflytur frumvarp frá síðasta þingi um stofnun hlutafélags um Sementsverksmiðju ríkisins. Er í frumvarpinu gert ráð fyrir að ríkisstjómin leggi verksmiðjuna sjálfa og fylgifé hennar til hins nýja hlutafélags og að fram fari mat á á eignum Sementsverk- smiðju ríkisins til viðmiðunar við ákvörðun hlutafjárupphæðar hins nýja hlutafélags, en ráð er fyrir gert að við stofnun séu öll hluta- bréf í eigu ríkissjóðs. Til sölu hlut- aijár mun samkvæmt frumvarp- inu þurfa heimild Alþingis. Atvinnumálaneftidir Hjörleifur Guttormsson (Abl/Al) beinir eftirfarandi fyrir- spurn til forsætisráðherra: 1. Hveijir eiga sæti í atvinnu- málanefndum sem skipaðar hafa verið á þessu ári af for- sætisráðherra og hagstofuráð- herra? 2. Hvert er verksvið þessara nefnda hvorrar um sig og hve- nær er þeim ætlað að ljúka störfum? Sjóðsstaða og ríkisframlög til Húsnæðisstofiiunar ríkisins Guðmundur H. Garðarsson (S/Rv) beinir eftirfarandi fyrir- spurn til félagsmálaráðherra: 1. Hvernig hefur framlag ríkis- sjóðs til Húsnæðisstofnunar ríkisins breyst á síðustu árum miðað við samkomulag aðila vinnumarkaðarins og ríkis- stjóriiarinnar í febrúar 1986? Óskar þingmaðurinn yfirlits til 30. september 1989. 2. Hversu stór hluti af framlagi ríkissjóðs samkvæmt fjárlög- um. viðkomandi ára barst til Húsnæðisstofnunar? 3. Hver hefur verið mánaðarleg sjóðsstaða Húsnæðisstofnunar tímabilið 1. janúar 1988 til 30. september 1989? Undanþágur frá skóla- skyldu og starfstíma grunnskóla i Danfríður Skarphéðinsdóttir leggur eftirfarandi fyrirspurn fyr- ir menntamálaráðherra: 1. Hve margir starfandi grunn- skólar hafa nú undanþágu frá fullri skólaskyldu eða starfs- tíma skóla, samkvæmt heimild í 5. gr. laga um grunnskóla, nr. 63/1974, með áorðnum breytingum? 2. Hve margir skólanna njóta undanþágu skv. 1. gr. grunn- skólalaganna annars vegar og 41. gr. hins vegar? Hve lengi hafa þeir haft þessar undan- þágur og hvenær falla þær úr gildi? 3. Hve margir nemendur á aldrin- um 7-16 ára njóta nú ekki fræðslu í sínu skólahverfi vegna undanþáguheimilda um skyldu ríkis og sveitarfélaga til „ ... að halda skóla fyrir öll börn og unglinga á aldrin- um 7 til 16 ára...“ eins og segir í 1. gr. grunnskólalaga? 4. Hvernig er af hálfu yfirvalda menntamála staðið að fræðslu og aðbúnaði þeirra sem ekki eiga þess kost að stunda skyld- unám í sínu skólahverfi? Kennarar og leiðbeinendur í grunnskólum og framhaldsskólum Danfríður Skarphéðinsdóttir (SK/Vl) beinir svohljóðandi fyrir- spurn til menntamálaráðherra: 1. Hvert er hlutfallið milli grunn- skólakennara og leiðbeinenda í fræðsluumdæmum landsins miðað við fullt stöðugildi ann- ars vegar og fy'ölda kennara hins vegar? 2. Hvert er hlutfallið milli fram- haldsskólakennara og leiðbein- enda í fræðsluumdæmum landsins miðað við fullt stöðu- gildi annars vegar og fjölda kennara hins vegar? 3. Hve margir leiðbeinendur á hvoru skólastigi fyrir sig starfa við stundakennslu? ATVntWéVAUGLYSINGAR Ólafsvík Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu og innheimtu fyrir Morgunblaðið. Upplýsingar í síma 91-83033. fltaSmilÁitoifr 0 Dagvistarheimili á Seltjarnarnesi óskar eftir starfsmanni í 100% afleysingarstarf strax. Nánari upplýsingar um tilhögun starfsins og launakjör veitir forstöðumaður í síma 611961. Sjómaður 27 ára gamall sjómaður með full réttindi og reynslu óskar eftir að komast á loðnu. Annað kæmi einnig til greina. Upplýsingar í síma: 689516 Beitningamenn Vantar tvo vana menn til beitninga á bát í Ólafsvík nú þegar. Upplýsingar í símum 93-61141 og 93-61200. Verslun f miðbæ Reykjavíkur óskar eftir að ráða starfsmann, 25 ára eða eldri, strax. Leitað er að sjálfstæðum og dugmiklum starfskrafti, vönum afgreiðslu- störfum. Vinsamlegast hringið í síma 18866 eftir kl. 17. Launaskrifstofa ríkissins óskar að ráða starfsmann til skráningar- starfa á diskettuvél sem fyrst. Nánari upplýsingar um starfið veita Guð- mundur H. Guðmundsson og Arnhildur Ásdís Kolbeins í síma 609300 milli kl. 9.15 og 15.30. Skriflegar umsóknir, er greini aldur, menntun og fyrri störf, skilist til Launaskrifstofu ríkis- ins, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík, fyrir lok mánudagsins 30. október 1989. Glæsileg verslun Verslunarstjóri (372) óskast til starfa hjá einni af allra glæsileg- ustu verslun Reykjavíkur. Við ieitum að virkum, útsjónarsömum og markaðssinnuðum manni, sem hefur ánægju af verslunar- og sölustörfum. Æskilegt að viðkomandi hafi reynslu og þekkingu á bygg- ingavörum. Starfssvið verslunarstjóra: Dagleg stjórnun. Innkaup. Birgðahald. Uppgjör. Starfsmanna- hald. Afgreiðslu- og sölustörf. Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu- blöðum sem liggja frammi á skrifstofu okkar merktar: „Glæsileg verslun - 372“. Hagvangurhf Grensásvegi 13 Reykjavík Sími 83666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.