Morgunblaðið - 26.10.1989, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 26.10.1989, Blaðsíða 30
-30 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. OKTOBER 1989 LYFTU ÞÉR UPP OG OPNAÐU PILSNER 6giU ...að sjálfsögðu! NEYTENDAMAL Fiskur hefur um aldir verið ein af undirstöðufæðutegund- um Islendinga. Nú á síðustu árum hafa erlendir vísinda- menn loks uppgötvað að fiskur er hin mesta hollustufæða. Hér- lendar rannsóknir hafa sýnt fram á að fiskolía (lýsi) er heppileg fyrir hjartastarfsem- ina og erlendar rannsóknir hafa leitt í ljós að fiskoliur draga úr krabbameini í brisi. Fituríkt fæði er tálið orsaka þessa tegund krabbameins, en það er fimmta algengasta krabba- meinið í Bandaríkjunum. Nýlegar dýratilraunir eru sagðar benda til þess, að góðir skammtar af fisk- olíum geti jafnframt dregið stór- lega úr vexti krabbameins í band- vef (fibrosarcoma). Við höfum reyndar alltaf vitað Hagnýt speki Sá sem getur brosað þegar eitthvað fer úr- skeiðis, hefur venjulega fúndið einhvern annan til að skella skuldinni á. verið rennt í skolvatn sem fiskur- inn er þveginn úr. Það er að sjálf- sögðu algjör eyðilegging á hráefn- inu þar sem rotgerlarnir geta skemmt hráefnið á nokkrum klukkutímum. Margs fleira þarf að gæta í sambandi við meðferð á fiski til neyslu. í nýrri stefnu í matargerð segir að sjóða eigi fiskinn sem allra minnst, helst að hita hann aðeins að suðu. Hrár fiskur, graf- lax og karfi, þykir hið mesta lost- æti svo og hrá lúðuflök marineruð í sítrónusafa. Hrár fiskur getur verið ágætur, en það er nauðsyn- legt að viðhafa ákveðnar varúðar- ráðstafanir við matargerðina. í fiski geta verið ormar eins og hringormar, en þeir drepast við suðu. í ýsu er lítið af hringormi en meira í þorski, fremur lítið í lúðu en þá helst við rafabeltið (þ.e. við ugga og feitasta hluta fisksins næst þeim). Síldarormurinn eða anisakis er önnur tegund orma öllu lífseigari. Hann heldur sig í innyflum, aðallega síldar, en mun minna er af honum í fiski hér á norðlægum slóðum en í Norðursjó. Erlingur Hauksson líffræðingur hjá Rannsóknastofnun fiskiðnað- arins var spurður að því, hvernig öruggast væri að meðhöndla fisk svo koma megi í veg fyrir að fisk- ormar berist í fóik. Erlingur sagði að hringormar þoli ekki suðu. Ef léttsjóða á fisk skal hita hann í 7 mínútur í 70 gráðu heitum vökva. Fisk sem borða á hráan skal und- antekningarlaust frysta áður en hann er grafinn eða marineraður. Fiskinn á að frysta í einn sólar- hring við -e20° C. Erlingur sagði þetta vera varúðarráðstöfun en frystingin drepur fiskorma. I verslunum geta neytendur keypt hráan fisk, grafinn og reykt- an. Við þöfðum samband við fyrir- tækið „íslensk matvæli" í Hafnar- firði sem framleiðir bæði grafinn fisk og reyktan. Sigurður Björns- son framkvæmdastjóri fyrirtækis- ins var spurður hvernig fiskurinn væri meðhöndlaður áður en hann fer í framleiðslu. Sigurður sagði að hjá fyrirtækinu væri allur karfi frystur áður en hann væri „graf- inn“. Hann sagði að fyrirtækið notaði eingöngu eldislax í sína framleiðslu og þar sem eldislax hefði aldrei gengið í sjó væri hann laus við orma. Síldin er einnig fryst áður en hún fer í reykingu og Sjgurður bætti við, að þeir hjá „Islenskum matvælum" legðu sig fram við að koma góðri og ör- uggri matvöru á markaðinn. M. Þorv. Fagur fískur í sjó Frábært hráefni - vel meðfarið að lýsið vinnur á ijölda kvilla og eykur þrótt. Ekki rétt! Þessar æskilegu fiskolíur eru einnig til staðar í fiskholdinu sjálfu, þar af leiðandi er fisk- neysla æskileg. En það er með fisk eins og önnur matvæli, hann þarf að vera á boðstólum óskemmdur, helst nýr og vel með- farinn. Meðferð á fiski í verslunum hefur mikið batnað á síðustu árum. í kæliborðum fiskverslana og stórmarkaða má þó enn í dag sjá fiskflök í kös í bökkum þar sem fiskhold liggur við roð á næsta fiskflaki. Oft er fiskholdið farið að gulna en hefur þá um leið oft fengið megna fisklykt. Við leituðum til Gríms Valdi- marssonar gerlafræðings forstjóra Rannsóknastofnunar fiskiðnaðar- • ins og spurðum hann hvaða breyt- ingar hefðu orðið þarna í fiskinum. Grímur sagði að utan á roði fisks- ins væru svokallaðir „rotgerlar". Ef gerlarnir komast í fiskholdið, eins og á sér stað þegar roðið er látið liggja að fiskholdinu, þá guln- ar það og er það merki þess að skemmdir séu þegar hafnar í fisk- inum. „Það er mjög mikilvægt,“ sagði Gríniur, „að fisksalar láti fiskinn alltaf liggja á ís í fisk- borðum og það þarf að gæta þess vel að hitastigið í borðunum sé ekki hærra en 1° C. Kjörhiti þess- ara rotgerla er 20? C og við það hitastig tímgast þeir mjög hratt og mynda þá slím.“ Hann benti á, að auðvelt væri að fyrirbyggja að rotnunargerlar fari í fiskhold á flökuðum fiski. Það væri gert með því að gæta ýtrasta hreinlætis og með því að koma í veg fyrir að fiskholdið komist í snertingu við roðið sem hlaðið er rotgerlum. Við neytendur höfum veitt því athygli í gegnum árin, að í sumum fiskverslunum hefur fiskur verið flakaður og síðan hefur flökunum Success GUARANTEED ^ PtRFECriN fefRFp 8MINUTES licíien Almondiiie , ivcTCd fílU' withVasta & Almonds j Framandi og ógleymanlegur hrísgrjónaréttur. Löng hrísgrjón blönduð með ses- am, möndlum og núðlum og kryddað á afar sérstæðan hátt. Svo sannarlega öðruvísi kjúktingaréttur. Fyrir 4 — suóulími 8 mín. Heildsölubirgðir: KARL K. KARLSSONkCO. Skúlatúni 4, Reykjavík, sími 62 32 32 ________Brids_____________ Amór Ragnarsson Bridsfélag- Kópavogs Lokið er tveimur kvöldum af þremur í hraðsveitakeppni og er sveita nú þessi: staða efstu Ragnar Jónsson 1179 Freyja Sveinsdóttir 1123 Sævin Bjarnason 1121 Jón Andrésson 1113 Oli H. Olafsson 1110 Síðasta umferðin verður spiluð nk. fimmtudag í Þinghól kl. 19,45. Næsta keppni félagsins verður barometer- tvímenningur með tölvugefnum spilum. Pétur og Anton sigurvegarar á Norðurlandsmóti livaininstanga. Norðurlandsmót í tvímenningfi í brids var haldið á Hvammstanga laugardaginn 14. október. Þátttak- endur voru 26 pör, eða 52 spilarar af svæðinu frá Akureyri til Hvamm- stanga. Spilaður var „barometer“. Bridsfélag Vestur-Húnvetninga, Hvammstanga (BVHH), stóð fyrir mótinu. Bridsáhugi hefur verið mikill hér á Hvammstanga og starfandi bridsfélag í mörg ár. For- maður BVHH er Flemming Jessen, skólástjóri grunnskólans. Úrslit urðu sem hér segir: Pétur Guðjónsson — Anton Haraldsson, Akureyri, 224 Ásgrímur Sigurbjörnsson — Jón Sigurbjörnsson, Siglufirði 174 Einar Svansson — Eýjólfur Sigurðsson, Sauðárkróki 140 Bogi Sigurbjörnsson — Anton Sigurbjörnsson, Siglufirði 97 Hilmar Jakobsson — Stefán Ragnarsson, Akureyri 69 Örn Einarsson — Hörður Steinbergsson, Akureyri 66 Steinar Jónsson — Ólafur Jónsson, Siglufirði 65 - Karl Bridsfélag Hornafjarðar Guðbrandur Jóhannsson og Gunn- ar P. Halldórsson sigruðu í þriggja kvölda tvímenningi sem nýlega er lokið. Hlutu þeir 768 stig eða 66 stig- um meira en Árni Hannesson og Gestur Halldórsson sem urðu í öðru sæti með 702 stig. Næstu pör: Þórir Flosason — Knútur 681 Svava Gunnarsdóttir — Birgir Bj. Sigfinnur Gunnars — Björn Gíslason 672 Kolbeinn Þorgeirsson — Jón G. Gunnarsson 666 Hæstu skor síðasta kvöldið hlutu Þórir og Knútur 246 — Kolbeinn og Jón 244 — Björn G. og Ingvar 236. Meðalskor 630 Framvegis verður spilað í Golfskál- anum á sunnudagskvöldum kl. 19.30. Bridsfélag Suðurnesja Gísli Torfason og Logi Þormóðs- son sigruðu í minningarmótinu um Skúla Thorarensen sem lauk sl. mánudagskvöld. Gísli og Logi hlutu 346 stig og töpuðu engri setu i keppninni sem var 19 umferða Butl- er-tvímenningur. Lokastaðan: Gísli Torfason / Logi Þormóðsson / Magnús Torfason ........... 346 Einar Jónsson / Karl Hermannsson / Jóhannes Sigurðsson ....... 335 Gunnar Siguriónsson / Haraldur Bryni- ólfsson ................... 310 Arnór Ragnarsson / Þórður Kristjáns- son / Hjálmtýr Baldursson . 303 Jóhannes Ellertsson / Heiðar Agnars- son ..................... 293 Stefán Jónsson / Kjártan Ólason / Sig- urhans Sigurhansson ....... 293 Næsta keppni verður sveitakeppni með 16 spila leikjum. Spilað er í Golf- skálanum í Leiru kl. 20 á mánudags- kvöldum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.