Morgunblaðið - 26.10.1989, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 26.10.1989, Blaðsíða 6
 MORGUNBLAÐIÐ UTVARP/SJOIMVARP FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1989 RÍKISÚTVARPIÐ FM 92,4/ 93,5 6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Guðmundur Óskar Ólafss'on flytur. 7.00 Fréttir. 7.03 í morgunsárið — Randver Þorláks- son. Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Tilkynn- ingar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og 9.00. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. 9.03 Neytendapunktar. Hollráð til kaup- enda vöru og þjónustu og baráttan við kerfið. Umsjón: Björn S. Lárusson. 9.20 Morgunleikfimi með Halldóru Björns- dóttur. 9.30 Landpósturinn — Frá Austurlandi. Umsjón: Haraldur Bjarnason. 10.00 Fréttir. 10.03 Þingfréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Ég man þá tíð. Hermann Ragnar Stefánsson kynnir lög frá liðnum árum. 11.00 Fréttir. 11.03 Samhljómur. 11.53 Á dagskrá. Litið yfir dagskrá fimmtu- dagsins í Útvarpinu. 12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónlist. 13.00 í dagsins önn — Heilsa og nálar- stunga. Umsjón: Sverrir Guðjónsson. 13.30 Miðdegissagan: „Svona gengur það" eftir Finn Soeborg. Ingíbjörg Berg- þórsdóttir þýddi. Barði Guðmundsson les (2). 14.00 Fréttir. 14.03 Miðdegislögun. Snorri Guðvarðar- son blandar. (Einnig útvarpað aðfaranótt miðvikudags að loknum fréttum kl. 2.00.) 15.00 Fréttir. 15.03 Leikrit vikunnar: „Minningar úr Skuggahverfi" eftir Erlend Jónsson. Leik- stjóri: Benedikt Árnason. Leikendur: Margrét Guðmundsdóttir, Erlingur Gísla- son og Karl Guðmundsson. (Áður útvarp- að 1987. Endurtekið frá þriðjudags- kvöldi.) 16.00 Fréttir. 16.03 Dagbókin. 16.08 Á dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið — Indriði Júlfsson og bækur hans. Umsjón: Örn Ingi. (Frá Akur- eyri.) 17.00 Fréttir. 17.03 Tónlist á síðdegi — Hándel, Mozart og Saint-Saéns. 18.00 Fréttir. 18.03 Að utan. Fréttaþáttur um erlend málefni. (Einnig útvarpað að loknum frétt- um kl. 22.07.) 18.10 Á vettvangi. Umsjón: Páll Heiðar Jónsson og Bjarni Sigtryggsson. (Einnig útvarpað aðfaranótt mánudags kl. 4.40.) 18.30 Tónlist. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Tilkynningar. 19.32 Kviksjá. Þáttur um menningu og list- ir líðandi stundar. 20.00 Litli barnatíminn: „Kári litli í skólan- um" eftir Stefán Júlíusson Höfundur les (4). 20.15 Tónlistarkvöld Útvarpsins. Hljóðritun frá tónleikurm á „Pro musica nova" tón- listarhátíðinni i Bremen, þar sem leikin voru verk eftir Atla Heimi Sveinsson. Kynnir: Bergljót Haraldsdóttir. 22.00 Fréttir. 22.07 Að utan. Fréttaþáttur um erlend málefni. (Endurtekinn frá sama degi.) 22.15 Veðurfregnir. Orð kvöldsins. Dagskrá morgundagsins. 22.30 Goðsögulegar skáldsögur. 23.10 Uglan hennar Minervu. Arthúr Björg- vin Bollason annast samræðuþátt um heimspekileg efni. 24.00 Fréttir. 00.10 Samhljómur. Umsjón: Leifur Þórar- insson. (Endurtekinn frá morgni.) 1.00 Veðurfregnir. 1.10 Næturútvarp á báðum rásúm til morguns. RÁS2 7.03 Morgunútvarpið — Vaknið til lífsins! Leifur Hauksson og Jón Ársæll Þórðarson hefja daginn með hlustendum. 8.00 Morgunfréttir — Spaugstofan: Allt það besta frá liðnum árum. 9.03 Morgunsyrpa. Eva Ásrún Alberts- dóttir og Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir. 12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Umhverfis landið á áttatíu með Gesti Einari Jónassyni. (Frá Akureyri.) 14.03 Hvað er að gerast? Lísa Pálsdóttir kynnir allt það helsta sem er að gerast í menningu, félagslífi og fjölmiðlum. 14.06 Milli mála. Árni Magnússon leikur nýju lögin. Stóra spurningin. Spurninga- keþpni vinnustaða, stjórnandi og dómari Flosi Eiríksson kl. 15.03 16.03 Dagskrá. Dægurmálaútvarp. Stefán Jón Hafstein, Guðrún Gunnarsdóttir, Sig- urður Þór Salvarsson, Þorsteinn J. Vil- hjálmsson og Sigurður G. Tómasson. — Kaffispjall og innlit upp úr kl. 16.00. - Stórmál dagsins á sjötta tímanum. 18.03 Þjóöarmeinhornið: Óðurinn til gremj- unnar. Þjóðin kvartar og kveinar yfir öllu þvi sem aflaga fer. 19.00 Kvöldfréttir. 19.32 Blítt og létt. Gyða Dröfn Tryggvadótt- ir rabbar við sjómenn og leikur óskalög. 20.30 Útvarp unga fólksins — Leikrit vik- unnar: „Aldrei að víkja", framhaldsleikrit eftir Andrés Indriðason Annar þáttur af fjórum. Leikstjóri: Brynja Benediktsdóttir. Leikendur: Grétar Skúlason, Þröstur Leó Gunnarsson, María Ellingsen, Sigrún Waage, Halldór Björnsson, Hákon Waage, og Róbert Árnfinnsson. (Áður útvarpað á Rás 1 26. f.m.) Umsjón: Sig- rún Sigurðardóttir. 21.30 Fræðsluvarp: „Lyt og lær". Annar þáttur dönskukennslu á vegum Bréfa- skólans. (Endurtekinn frá mánudags- kvöldi.) 22.07 Rokksmiðjan. Sigurður Sverrisson. (Úrvali útvarpað aðfaranótt sunnudags að loknum fréttum kl. 2.00.) 00.10 I háttinn. 1.00 Næturútvarp á báðum rásum til morguns. NÆTURÚTVARPIÐ 1.00 Áfram island. Dægurlög flutt af íslenskum tónlistarmönnumi 2.00 Fréttir. 2.05 Sykurmolarnir og tónlist þeirra. Skúli Helgason rekur tónlistarferil Molanna, leikur tónlist þeirra og ræðir við þá. (End- urtekinn þáttur frá sunnudegi á Rás 2.) 3.00 Blítt og létt. Endurtekinn sjómanna- þáttur Gyðu Drafnar Tryggvadóttur frá liðnu kvöldi. 4.00 Fréttir. 4.05 Glefsur. Úr dægurmálaútvarpi fimmtudagsins. 4.30 Veðurfregnir. 4.40 Á vettvangi. Umsjón: Páll Heiðar Jónsson og Bjarni Sigtryggsson. (Endur- tekinn þáttur frá deginum áður á Rás 1.) 5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam- göngum. 5.01 Á djasstónleikum. Frá tónleikum Jon Faddis í Gamla bíói 12. júlí sl. Vern- harður Linnet kynnir. (Endurtekinn þáttur frá föstudagskvöldi á Rás 2J 6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam- göngum. 6.01 I fjósinu. Bandarískir feveitasöngvar. LANDSHLUTAÚTVARP Á RÁS 2 8.10-8.30 og 18.03-19.00Útvarp Norður- land. 18.03-19.00Útvarp Austurland. 18.03-19.00Svæðisútvarp Vestfjarða. BYLGIAN FM 98,9 7.00 Páll Þorsteinsson. Fréttir kl. 8.00 og 10.00. 10.00 Valdís Gunnarsdóttir. Bibba í heims- reisu kl. 10.30. Fréttir ki: 11.00, 12.00, 13.00 og 14. 14.00 Bjarni Ólafur Guðmundsson.. Bibba í heimsreisu kl. 17.30. Fréttir kl. 14.00 og 16.00, 17.00 og 18. 18.10 Hallgrímur Thorsteinsson, Reykjavík síðdegis. 19.00 Snjólfur Teitsson. Tónlist. 24.00 Næturvakt Bylgjunnar. RÓT FM 106,8 9.00 Rótartónar. 10.00 Poppmessa í G-dúr. E. 12.00 Tónafljót. 13.30 Mormónar. Kirkja Jesú Krists hinna síðari daga heilögu. 14.00 Tónlist. 15.30 Hanagal. E. 16.00 Umrót. Tónlist, fréttir og upplýsingar um félagslíf. 17.00 í hreinskilnisagt. PéturGuðjónsson. 18.00 Kvennaútvarpið — Ýmis kvennasam- tök. 19.00 Fimmtudagur til fagnaðar. Gunnlaug- ur og Þór. 20.00 Fés. Unglingaþáttur. 21.00 Úr takt — Tónlistarþáttur með Hafliða Skúlasyni og Arnari Gunnari Hjálmtýs- syni. 22.00 Tvífarinn — Tónlistarþáttur. Umsjón Ásvaldur Kristjánsson. 23.30 Rótardraugar. Lesnar draugasögur fyrir háttinn. 24.00 Næturvakt. STJARNAN FM 102,2 7.00 Bjarni Haukur Þórsson. Málefni sem unga fólkið pæiir í. Fréttir kl. 8 og 10. Stjörnuskot kl. 9. og 11. 11.00 Snorri Sturluson. Síminn er 622939. Hverveit nema þú verðir heppinn og vinn- ir þér inn eitthvað. Fréttirkl. 10.00, 12.00 og 14.00 15.00 Sigurður Helgi Hlöðversson. Besta tónlistin ( bænum. Fréttir kl. 16.00 og 18.00. 19.00 Stanslaus tónlist. Ekkert kjaftæði. 20.00 Kristófer Helgason. 1.00 Björn Þórir Sigurösson. Næturvakt. Síminn er 622939. EFFEMM FM 95,7 7.00 Hörður Arnarson 9.00 Sigurður Gröndal og Richard Scobie. 11.00 Steingrímur Ólafsson. 13.00 Hörður Arnarson. 15.00 Sigurður Gröndal og Richard Scobie. 17.00 Steingrímur Ólafsson. 19.00 Steinunn Halldórs. 22.00 Sigurður Ragnarsson. 1.00 Páll Sævar Guðnason. ÚTRÁS 16.00 MR 20.00 FÁ 18.00 IR 22.00 FG SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2 8.10— 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands. 18.03—19.00 Svæðisútvarp Norðurlands. 18.03—19.00 Svæðisútvarp Austurlands. ÚTVARP H AFN ARFJÖRÐUR 18.00—19.00 í miðri viku. Fréttir af íþrótta- og félagslífi í Firðinum. ÞARSEM MYADIRAAR FÁST BEAUTY & DENISE ^ M- Y N D / fí myndbandaleigur Álfabakki 14, sími 79050 Austurstraeti 22, sími 28319 Orðið frjálsa að er illa komið fýrir litlu eyj- unni okkar sem er svo rík af náttúruauðlindum og hinni vel- menntuðu og dugmiklu þjóð er landið byggir. En þessa dagana eru ráðherrastólar á útsölu og yfir- stjórnendumir hafa meira fyrir því að sníða lögin við hæfi nýrra sendi- sveina en að létta okinu af venju- legu fólki er stynur undan ofskött- uninni. En mest kemur á óvart þeg- ar valdsherrarnir taka að amast við hinu frjálsa orði. í fyrrakveld barst enn ein „skattafréttfn“ inn í sjónvarpsstofu þess er hér skrifar. Fréttin kom frá fréttastofu Stöðvar 2 sem hefur fylgst svo náið með skattpeninga- austri valdsherranna og veitir þann- ig þarft aðhald en sumir valdamenn virðast stundum iíta á peninga al- mennings sem sína einkaeign rétt eins og ónefndir ríkisbankastjórar lands vors. Er nema von að hér sé víða þröngt í búi? Nú, en í frétt Stöðvar 2 sagði frá því að fjármála- ráðherra hafi í hyggju að skella 26 prósent virðisaukaskatti á dagblöð- in, tímaritin, bækurnar, afnota- og áskriftargjöld sjónvarpsstöðvanna og líka á myndlyklana. Leiksýning- ar, tónleikar og íþróttaleikir yrðu hins vegar undanþegnir þessum mikla skatti. Svo eru að sjálfsögðu uppi hugmyndir um að stofna sjóði sem eiga að veita skattpeningum í „verðug verkefni". Við upphaf greinar var á það minnst að núverandi valdhafar amist við hinu ftjálsa orði og er þá ekki átt við aðförina að Ingimar Ingimarssyni fréttamanni. En fyrr- greindar skattahugmyndir benda til þess að í það minnsta fjármálaráð- herrann vilji þjarma að hinu frjálsa orði. Lítum á hvaða áhrif virðis- aukaskatturinn hefði á fjölmiðlana. Litlu flokksmálgögnin eru gull- tryggð því þau flokkast vafalítið undir „verðug verkefni" og svo er alltaf verið að hækka framlagið til málgagnanna. Stóru dagblöðin er birta greinar frá öllum landslýð og njóta ekki beinna ríkisstyrkja verða hins vegar fyrir höggi fjármálaráð- herrans. Bókaútgáfan er þegar skattpínd enda er svo komið að námsfólk á í erfiðleikum með að kaupa íslenskar námsbækur og svo tala menn ljálglega um málrækt- arátak. Hinn þungi virðisaukaskatt- ur myndi svipta ijölda fólks er starfar að útgáfu tímarita atvinn- unni. í þeim hópi eru sérhæfðir blaðamenn, ljósmyndarar, prent- smiðir og aðrir fagmenn er hafa gert íslensk tímarit samkeppnishæf við erlend glæsiblöð. Og þá eru það Ijósvakamiðlarnir. Ríkisútvarps- menn fínna lítið fyrir virðisauka- skattinum því þeir eru í faðmi valds- herranna er hafa nýlega tryggt Ríkisútvarpinu fasteignaskatt. Starfsmenn og eigendur Stöðvar 2 eru hins vegar ekki í hópi hinna „verðugu“ og mun menningarskatt- urinn reynast þeim þungur í skauti. Það er nefnilega enginn neyddur til að borga áskrift að dagskrá Stöðvar 2, myndlykil, Morgunblað- ið, DV, tímarit eða bækur nema þá nemendur í skólum landsins. Menn ráða hins vegar litlu um hvort þeir borga til RÚV, flokksmálgagn- anna eða til hinna „verðugu" er baða sig í náðarsól sjóðstjóranna. Já, hið frjálsa orð á svo sannarlega í vök að veijast þessa dagana. P.S: Undirritaður er alltaf jafn hissa þegar þátturinn um Austur- Evrópu upphefst á þriðjudagskvöld- um á Stöð 2. Það er alveg ótrúlegt hvilíkt vald hefur safnast á hendur fárra manna í þessum hluta Evr- ópu. Hinir bresku myndasmiðir virðast líka hafa komist inn á gafl hjá kommúnistaflokkunum. í síðasta þætti var til dæmis sýnt inn í ógnarlega vopnageymslu hlaðna rússneskum vélbyssum sem fjöl- mennar varðsveitir kommúnista- flokkanna geta gripið til þegar þrengir að flokknum. Ólafur M. Jóhannesson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.