Morgunblaðið - 26.10.1989, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 26.10.1989, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1989 fclk í fréttum OFSAAKSTUR Nærri áttræð drottningar- móðir á 130 km hraða! Það hefur ýmist skemmt Dön- um eða hneykslað þá að und- anförnu er ýmisr úr kóngafjöl- skyldunni hafa lent í radarmæl- ingum lögreglunnar og þar með komið enn einu sinni í ljós að kóngafólk er jafn mannlegt og almúgurinn. Friðrik krónprins var gómaður fyrr á árinu á 138 kíló- metra hraða og Jóakem prins hefur oft verið veiddur í radarinn. En nú hefur keyrt um þverbak. Þann 21. september kom dökkblár jagúar inn í radarsviðið hjá mæl- ingamönnum á Fjóni. Hann mæld- ist á 130 kílómetra hraða. Ekki um annað að ræða en að stöðva hinn vítaverða akstur. En hver skyldi hafa verið við stýrið? Engin önnur en hin 79 áragamla Ingiríð- ur drottningarmóðir! Nú velta Danir fyrir sér hvem- ig tekið sé á málunum. Kóngafólk- ið er yfir lög og reglur hafið og því hefur verið fleygt í gríni að réttast væri að Margrét Dana- drottning ætti að leggja hald á ökuskírteini þeirrar gömlu, en víst er að það gerir hún aldrei, enda talið að sú gamla ráði því sem hún vill ráða og enginn vaði ofan í hana ef því er að skipta. Þá heyrast þær raddir einnig að í ljósi þess að 79 ára gömul kona hefur ekki sömu viðbrögð og í eina tíð, þá sé í raun guðs þakkar vert að hún steig ekki bensínið í botn, því að hámarkshraði bifreiðar hennar er 230 kílómetrar á klukkustund. Gamla brýnið sportbíl sinn. Ingiríður við ÆVIMINNINGAR Nancy Reagan leysir frá skjóðunni Washington. Frá ívari Guðmundssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. ÆT Ivikuritinu Newsweek, sem kom i UPPELDI Athinu litlu borgið Mörgum er enn í fersku minni svipiegt fráfall auðkýfingsins Christinu Onassis og í kjölfar- ið, umtalsins um ríkasta smábam veraldar, en einka- erfíngi Onassisauðævanna var Athina litla ,þá þriggja ára, augasteinn móður sinnar sem hún átti með milljónamæringnum Thierry Roussel. Sagt var að þær mæðgur hefðu verið svo sam- rýmdar að óttast var um heill barnsins við fráfall Christinu. Faðir bamsins, Thierry Roussel, sem er kvæntur sænskri sýningarstúlku Gaby Landhagen, hefur hins vegar tekið bamið að sér og eftir því sem hann segir sjálfur, dafnar Athina litla afar vel. Hún býr um borð í lúxussnekkju föðurins ásamt tveimur hálfsystkynum sínum á svipuðum aldri og hinni sænsku stjúpu sinni. „Ég veiti henni þá föðurást sem hún á skilið og reyni að gera gott betur. Gaby hefur og gengið henni í móðurstað og börnin okkar eru henni góð og miklir félagar," segir Roussel. Hann fær árlega um 60 milljónir króna úr sjóðum Christinu til uppeldisstarfans, en erfðarskráin kveð- ur á um það. Þegar Athina verður fjárráða tekur hún svo við öllu góssinu. I út fyrir skömmu, eru birtar 13 síður um æviminningabók Nancy Reagan, sem kemur á bókamarkað- inn síðar í þessum mánuði hjá útg- áfufélaginu Random House, sem sagt er að hafi greitt frúnni 2 milljón- ir dollara (120 milljónir ísl. kr.) fyrir útgáfuréttinn. Samkvæmt greininni í Newsweek kemur frúin víða við í bókinni, sem ber heitið „Eg á leik- inn“ (My Turn). Hún segir hispurslaust frá málum, sem á sínum tíma voru ofarlega á baugi. Hún leynir ekki trú sinni á stjömuspár og segir, að hún hafi haft gott samband við stjörnuspá- konuna Joan Quigley, sem hún seg- ist hafa sett sig i samband við eftir banatilræðið við forsetann 1981. Frú Reagan segir, að spákonan hafi reynst sér vinur í raun „huggari að nokkru leyti“. „En ráð spákonunnar voru ekki ódýr því hún tók mikið fyrir snúð .sinn,“ segir frú Reagan. „Ég naut aðstoðar vinar míns í Kaliforníu til að greiða henni mánaðarlega fyrir spádómana." Nancy Reagan segist ekki sjá eftir að hafa notað fatnað að láni frá frægum tískufrömuðum. Þetta sé viðurkenndur siður og ekkert til að skammast sín fyrir. Eina skyss- an, sem sér hafi orðið á í því efni hafi verið, að segja ekki frá því hreinskilnislega í upphafi. Frúin segist harma innilega að börnum þeirra frá fyrri hjónabönd- um hafi á stundum fundist, að þau hjónin væm svo óaðskiljanleg að það væri ekkert rúm fyrir börnin. Á einum stað segir hún hreirit út: „Samband mitt við Patti [dóttur hennar] hefir verið ein hin versta kvöl og raun í mínu lífi. Það virtist vera sama hvað eg gerði; ekkert dugði. Og þannig hefir það verið frá byrjun." Nancy Reagan viðurkennir í ævi- minningunum að það hafi gengið á ýmsu í samvistunum við Raisu Gor- batsjovu. „Okkur var ýtt saman með gjörsamlega andstæðar skoð- anir á mönnum og málefnum heims- ins.“ Frú Reagan skýrir frá fyrstu fundum þeirra í Genf 1985 og seg- ist hafa verið illa undirbúin, óstilt á taugum, og ekki vitað á hveiju hún ætti að hefja máls á. „En mér var fljótt ljóst,“ bætir frú Reagan við, „að það skipti ekki máli. Frá því fyrsta, að við hittumst, talaði hún viðstöðulaust og malaði í þjóra, þannig að mér tókst ekki að skjóta inn orði, ekki einu sinni óbeint, eða öðruvísi. Þetta kann að hafa stafað af því að hún var feimin og ráð- villt, en síðar hittumst við marg- sinnis í þremur mismunandi löndum og það breytti engu. Grundvallar- skoðun mín á Raisu Gorbatsjovu var, að hún gæti ekki hætt að tala, ef maður á að segja sannleikann berum orðum.“ Athina, Christina og Thierry. Stefanía þefar baki brotnu af sýnishornum. LYKT Að lykta eins og prinsessa Þær Mónakóprinsessur Karólína og Stefanía hafa seinni árin verið á fleygiferð í tískuheiminum og látið til sín taka, stund- um svo um munaði. Gjarnan hefur Stefanía fetað í fótspor eldri systur sinnar Karólínu sem hefur þótt meira trausvekjandi í at- höfnum sínum. Nú er Stefanía að sýsla við nokkuð sem systir hennar hefur áður gert með góðum árangri, þ.e.a.s. hún er að leggja nafn sitt við ilmvatn. Hópur sérfræðinga í París hefur sett saman nokkrar blöndur sem Stefanía hefur þefað jafn óðum af og herma fregnir að loka- blandan sé í burðarliðnum, ilmvatnið Stefanía. Er reiknað með því að framleiðslan geri mikla lukku enda ekki amalegt að lykta eins og prinsessa. JUNCKERS HVIDE Olffl JDNCKERS WHITE OH N. .IMLVIm Junr.fenra llmUe VlbiíUm h ... . 750 ml BLITSA VIÐAROLIA DREGUR FRAM ÞAÐ BESTA í VIÐNUM. Rustik-olía fyrir ólakkað parket og límtrésplötur. Verndar og styrkir viðinn. VMMlRl^m fyUl&wtMetfjan'&wittcOtee&afóftH LAUGAVEGI 39-SÍM111-3-88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.