Morgunblaðið - 26.10.1989, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 26.10.1989, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1989- 5 Sakadómur Reykjavíkur: Kröfu um frávísun Hafskipsmáls synjað SAKADÓMUR Reykjavíkur hafnaði í gær kröfu verjenda fímm sak- borninga í Hafskipsmálinu um að málinu verði vísað frá dómi vegna ágalla á rannsókn þess og vanhæfis fyrrum rannsóknarlögreglu- stjóra, Hallvarðs Einvarðssonar, en ákæran sé að mestu leyti byggð á grundvelli rannsóknar undir stjórn hans. Verjendurnir lýstu því strax yfir að úrskurður sakadóms yrði kærður til Hæstaréttar. Guðmundur Ingvi Sigurðsson, einn verjendanna, hefur óskað eftir því við forseta Hæstaréttar að munnlegur málflutningur verði um frávísunina í Hæstarétti. Veijendur skila skriflegum greinargerðum innan þriggja daga og í framhaldi af því er búist við afstöðu réttarins til þeirrar beiðni og að ákveðið verði hvenær mæalið verði tekið þar á dagskrá. Staðfesti Hæstiréttur úr- skurð sakadóms fær málið efnis- meðferð fyrir dóminum og hefjast vitnaleiðslur þá innan skamms. í úrskurði sakadómaranna, Sverris Einarssonar, Arngríms ís- berg og Ingibjargar Benediktsdótt- ur, segir meðal annars að þrátt fyrir að rannsókn málsins sé í mörgu ábótavant telji dómurinn að næg rannsókn hafi farið fram til að ákæruvaidið gæti myndað sér skoðun um hugsanleg lögbrot og tekið ákvörðum um málshöfðum. Úr flestu því sem ábótavant sé ta- lið við frumrannsóknina megi bæta við meðferð málsins fyrir dómi, meðal annars með því að fela RLR frekari rannsókn. Hvað varðar van- hæfi Hallvarðar Einvarðssonar tel- ur dómurinn að endurmat hins sér- staka ríkissaksóknara á gögnum fyrri rannsóknar leiði til þess að hún teljist hluti nýrrar rannsóknar. Ýmsar greiðslur til þingmanna hækka SAMHLIÐA breytingum á þingfararkaupi, sem Kjaradómur hefúr úrskurðað að verði 156.685 krónur á mánuði frá 1. nóvember, hækka ýmsar greiðslur til þingmanna. Sainkvæmt upplýsingum Frið- riks Ólafssonar, skrifstofustjóra Alþingis, hækkar mánaðarleg greiðsla til þingmanna vegna hús- næðiskostnaðar úr 31 þúsund krón- um í 35 þúsund og dagpeningar til dreifbýlisþingmanna um þingtím- ann hækka úr 1200 krónum í 1500 krónur. Dvalarkostnaður í kjör- dæmi þingmanna, sem búsettir eru í Reykjavík, hækkar úr 180 þúsund krónum á ári í 190 þúsund. Þá hækka mánaðarlegar greiðslur vegna ferðakostnaðar í kjördæmi úr 9 þúsund krónum 110 þúsund í Reykjavík, úr 17 þúsund krónum í 18 þúsund hjá þingmönnum Reykjaneskjördæmis og aðrir þing- menn fá 29 þúsund á mánuði en höfðu 27 þúsund. Auk þessa fá þingmenn greiddan kostnað við einn síma. 'KuátcUó- FR-F AfilIRT Sfðasta sýnino laugardagskvðld Rómantísk og stórskemmtileg upprifjun 45 ára söngferils Hauks Morthens í nýjustu salarkynnum Hótels Islands, VTtH Erla Þorsteinsdóttir kveður að lokinni þessari sýningu, Enginn má missa afþessari frábæru kvöldstund. Matsedill: Forréttir að eigin vali: Kryddjurtasoðin laxarós Hcimsins bcsta fískisúpa Kóngasveppasúpa Rækjur á austurlandavísu Aðalréttur: a) Lambahnetusteik b) Grísabarbecuesteik c) Grillaður lax í sólskinssósu Eftirréttir: KonfekttrifHe Sælkeraís eða kafTi og konfekt HOTEL tgiAND- Miðasala og borðapantanir í síma687111. gsv---. í 9 9 Bíllinn sem geislar af 0 HONDA Á ÍSLANDI, VATNAGÖRÐUM 24, S-689900

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.