Morgunblaðið - 26.10.1989, Page 4
4<:
.MÓRGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1989
*
Talsmenn SH og SIF um útreikninga Þjóðhagsstofiiunar:
Afkoman sögð betri en
hún raunverulega er
Forystumenn Sölumiðstöðvar hraðírystihúsanna og Sölusam-
bands ísl. fiskframleiðenda segja útreikninga Þjóðhagsstofnunar
sýna betri útkomu en hún raunveruléga sé. Friðrik Pálsson for-
stjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna segir að fiskvinnslan
þurfi 7%-10% hagnað til að reksturinn geti gengið eðlilega. Af-
koma í sjávarútvegi er nú þannig, að mati Þjóðhagsstofnunar,
að frystingin er rekin með 2% hagnaði, söltun með 3% tapi,
bátaútgerð með 13% tapi og togaraútgerð með 4% hagnaði.
Ákveðið hefur verið að frá og
með næstu áramótum verði engar
greiðslur úr Verðjöfnunarsjóði til
frystingar. Þær eru nú 3% af út-
flutningstekjum frystingar og 5%
af útflutningstekjum söltunar.
Friðrik Pálsson segir tölur Þjóð-
hagsstofnunar sýna betri afkomu
en raun sé á. Hann segir ennfrem-
ur að afnám greiðslna úr Verðjöfn-
unarsjóði um áramót jafngildi 3%
gengishækkun. Friðrik telur að til
að fiskvinnslan geti náð nauðsyn-
legum styrk, þurfi að tryggja
henni þau rekstrarskilyrði, að
hagnaður geti orðið á bilinu 7%
til 10%. Við óbreyttar aðstæður
verði þess skammt að bíða, jafnvel
aðeins fáir mánuðir, að aftur þurfi
að grípa til millifærslna og skuld-
breytinga eins og undanfarna
mánuði, en þó verði það erfiðara
þar sem eiginfjárstaða fyrirtækj-
anna verði enn lakari en verið
hefur.
Magnús Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri Sölusambands
íslenskra fiskframleiðenda tekur í
sama streng og segir að tölur Þjoð-
hagsstofnunar sýni minna tap á
söltuninni en reyndin sé. Greiðslur
til söltunar úr Verðjöfnunarsjóði
koma nú úr þeim sjóði sem lagður
var til hliðar á góðæristímanum.
Þrátt fyrir hækkun verðs fyrir
afurðirnar á mörkuðum erlendis,
hafa seljendur ekki notið þeirra
ennþá, þar sem hækkunin hefur
horfið í tolla, sem teknir eru í inn-
flutningi. Hins vegar verði hægt
að flytja út í byrjun næsta árs án
innflutningstolla í markaðslöndun-
urn og veldur það betri afkomu
um tíma, eða þar til tollfrjálsi kvót-
inn er upp urinn.
VEÐUR
H'eimild: Veðurstofa islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær)
í DAG kl. 12.00:
VEÐURHORFUR í DAG, 26. OKTÓBER:
YFIRLIT f GÆR: Yfir N-Grænlandi er 1.015 mb hæð, en 980 mb
lægð austur við Noreg á hreyfingu norðnorðaustur. Önnur lægð
um 985 mb djúp skammt norður af Færeyjum hreyfist austnorðaust-
ur. Veður fer kólnandi og má víða búast við tveggja til fjögurra
stiga frosti í nótt.
SPÁ: Hæg norðlæg átt víðast hvar og fremur kalt. Smáél á Norð-
austurlandi en annars þurrt. Víða léttskýjað á Suður- og Vestur-
landi. Hiti 0-4 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Hæg norðaustlæg átt og fremur kalt.
Slydduél á Norðausturlandi en annars þurrt. Víða léttskýjað á Suð-
ur- og Vesturlandi.
HORFUR Á LAUGARDAG: Hæg breytiieg átt og fremur kalt. Skýj-
að með köflum en víðast þurrt.
TÁKN:
jj|| Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrimar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
-J0° Hitastig:
10 gráður á Celsíus
y Skúrir
*
V E'
— Þoka
— Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
Skafrenningur
[7 Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hitl veöur
Akureyri 2 alskýjað
Reykjavik 3 skýjað
Björgvin 10 skýjað
Helsinki 8 rigning
Kaupmannah. 13 skýjað
Narssarssuaq vantar
Nuuk vantar
Ósló 13 léttskýjað
Stokkhólmur 12 léttskýjað
Þórshöfn 7 skúr
Algarve vantar
Amsterdam 14 alskýjað
Barcelona 21 mlstur
Berlín 17 skýjað
Chicago 12 heiðskírt
Feneyjar 13 þokumóða
Frankfurt 17 þokumóða
Glasgow 11 rigning
Hamborg 13 þokumóða
Las Palmas 24 léttskýjað
London 17 léttskýjað
Los Angeies 17 skýjað
Lúxemborg 16 mistur
Madríd 14 mistur
Malaga 22 mistur
Mallorca 22 léttskýjað
Montreal 7 þoka
New York vantar
Orlando vantar
París 19 þokumóða
Róm 20 þokumóða
Vín 22 léttskýjað
Washington 6 mistur
Winnipeg 4 heiðskírt
Morgunblaðið/Sverrir
Hús á hjólum
Óvenjuleg hindrun mætti vegfarendum um Bergstaðastræti í gær-
kvöldi. Þar stóð timburhús á hjólum á miðri götunni, en verið var að
flytja það. Húsið, sem stóð við Bergstaðastræti 8, átti að flytja í
hverfi timburhúsa í Skeijafirðinum, en þar eru fyrir nokkur hús, sem
hafa verið flutt þangað á undanfömum árum.
Bankaráð Búnaðarbankans:
Stefán lýsir áhuga
á formennsku áfram
ENGIN niðurstaða fékkst á fúndi bankaráðs Búnaðarbanka ís-
lands í gærmorgun um það hver verður ráðinn sem bankastjóri
í stað Stefáns Hilmarssonar. Stefán Valgeirsson, formaður bankar-
áðs hefúr ekki viljað upplýsa hvern hann hyggist styðja, en
Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra upplýsti Morgun-
blaðið um það í gær að Stefán Valgeirsson hefði haft samband
við sig og lýst áhuga sínum á því að verða endurkjörinn sem for-
maður bankaráðs Búnaðarbankans.
„Það er ekkert ólíklegt að við
munum reyna að hafa áhrif á það
hver verður næsti bankastjóri Bún-
aðarbankans," sagði Steingrímur í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Hann sagði að ekkert væri farið
að ræða það innan þingflokks
Framsóknarflokksins enn og kvaðst
telja-þetta vera ótímabærar vanga-
veltur.
„Ég hef ekki beitt Stefán Val-
geirsson neinum þrýstingi í þessu
máli, en hann hefur haft samband
við mig út af kjörinu í bankaráð
Búnaðarbankans og lýst áhuga
sínum á því að verða kjörinn í það
á nýjan leik, en við höfum ekkert
ákveðið í þeim efnum,“ sagði for-
sætisráðherra.
„Stefán er að vísu stuðningsmað-
ur ríkisstjórnarinnar og finnst sem
slíkur að hann hafi rétt á einhveiju,
en kannski hefur hann nóg,“ sagði
Steingrímur.
Yfirskoðunarmenn og forsetar Alþingis:
Eðlilegt að Alþingi
fái skýrsluna fyrst
- segir Geir H. Haarde
GEIR H. Haarde, einn þriggja yfirskoðunarmanna ríkisreiknings,
segir að það sé eðlileg regla að Alþingi fái skýrslu yfirskoðunar-
manna í hendur áður en fréttir um hana birtast í fjölmiðlum, en
enginn geti bannað yfirskoðunarmönnum að birta upplýsingar,
eins og stjórnarskráin er úr garði gerð.
Geir hefur sagt að hann hafi
haft fulla heimild til þess að veita
upplýsingar. Forsetar Alþingis og
yfirskoðunarmenn ræddu þessi mál
á sérstökum fundi á mánudag, af
því tilefni að upplýsingar úr skýrslu
yfirskoðunarmanna birtust í fjöl-
miðlum áður en skýrslan var lögð
fram í Alþingi í síðustu viku. Á
fundinum létu forsetarnir bóka eft-
irfarandi: „Forsetar Alþingis beina
þeim tilmælum til yfirskoðunar-
manna ríkisreiknings að þeir gæti
þess framvegis sem sérstakir trún-
aðarmenn Alþingis að birta ekki
athugasemdir sínar við ríkisreikn-
ing fyrr en þær hafa verið lagðar
fram á Alþingi eins og áskilið er i
43. grein stjómarskrárinnar.“
Geir sagði að þessi mál hefðu
verið rædd af fullri vinsemd á fund-
inum. Engin formleg niðurstaða
hefði orðið af honum og hann liti
svo á að þessu máli væri lokið.