Morgunblaðið - 26.10.1989, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1989
Aðíor að íslendingum:
Ríkissjóður krefst sneiðar af
innleggi almennings í bygg-
ingarsjóð Háskóla Islands
eftirÞóriKr.
Þórðarson
Starfsmenn fjármálaráðunejrtis-
ins eru í vandræðum með gjalda-
hliðina í ríkisflármálunum á þess-
um erfiðu timum og telja sig hafa
fundið upp heillaráð: Að taka til
sin dijúgan skerf af tekjum Happ-
drættis Háskólans, sem almenn-
ingur spilar í til þess að efla þekk-
ingarleit og dómgreind í þjóðfélag-
inu og til að bæta skilyrði sona
sinna og dætra sem vilja fara þá
leið. Alþingismenn munu áreiðan-
lega grípa i taumana, því þeim
hefur aldrei dottið það þjóðráð í
hug að éta útsæðið í kartöfluleysis-
ári.
Allir vita að sérhver þjóð þarf
að búa við traustar stofnanir. Það
vissi Gandhi. Þegar hann barðist
fyrir stofnun fullvalda ríkis á Ind-
landi sagði hann það hornstein
hvers þjóðfélags að hafa traustar
stofnanir svo sem dómstóla, þing,
skóla og háskóla. Ef menn vilja
drýgja tekjur ríkissjóðs í erfiðu
árferði með því að taka til sín
sjálfsaflafé Háskóla íslands, sem
hann hefur aflað sér af framsýni
Alexanders Jóhannessonar, Jónas-
ar Jónssonar frá Hriflu og annarra
mætra manna, er stigið fyrsta
skrefið í átt að hengifluginu. Sú
leið má vonandi löng teljast, en
fyrsta skrefið markar stefnuna.
Tekjur happdrættisins munu
hrynja ef almenningur fær það á
tilfinninguna að það sé að styrkja
ríkissjóð fremur en eftirlætisstofn-
un sína, sem fólkið hefur styrkt
með milljarðaframlögum á núgengi
í liðlega hálfa öld. Og þá yrði
Háskólinn kyrktur, einmitt nú er
þingmenn ræða sem oftast nýlund-
ur í atvinnumálum og andlegu lífi
þjóðarinnar.
Þingmenn Framsóknarflokksins
munu vafalaust vilja minnast Jón-
asar Jónssonar frá Hriflu með ein-
hverjum öðrum hætti en þessum.
Og þingmenn Sjálfstæðisflokksins
munu áreiðanlega fylgja drengi-
legu frumkvæði Birgis ísleifs í
málinu, og þá er ekki að Alþýðu-
bandalagsmönnum að spyija, sem
ég reyndi á Norðfirði að hyggind-
um og þeirri sýn sem sér niður
fyrir yfirborð hlutanna. (Og svo
eiga þeir heilan háskólaprófessor
í ráðherrahópnum.) Og ekki efast
ég um aðra flokka á þingi, sem
munu vita að útsæði er til þess að
gefa af sér.
Ef Háskólinn gefur ekki nógu
góða uppskeru á liðandi stund, er
engum það betur ljóst en okkur
sjálfum. Sífelld sjálfsgagnrýni og
tilraunir til bóta sanna það. Til-
raunanámskeiðum hefur verið
hleypt af stokkunum til að kanna
leiðir til betri þjónustu við unga
fólkið og til eflingar fræðastarfi,
kennslumálanefnd - háskólaráðs
hefur nýverið gefið út mikla
ENDURNÝJAÐU NÚNA
NÝTTU ÞÉR KYNNINGARTILBOÐIÐ Á
damixa blöndunartækjunum
m
4 ARCHITECT LINE
Með útdraganlegum barka
Afsl. 10%
30LÍNAN
Einföld og ódýr
Áður kr. 2.428,- Nú kr. 2.185,-
50LÍNAN
Best i eingripstækjum
Afsl. 10%
ARCHITECT LINE ►
Stíll og stöðugleiki
Afsl. 10%
Útsölustaðir:
byggingavörur, Borgarnesi
fíkr byggingavörur, Eyri,
Sauðárkróki
COSMO LINE
Það allra nýjasta í hönnun
Áður kr. 9.765,- Nú kr. 8.789,-
20LÍNAN
Sígild og örugg
Áður kr. 7.001,-
Nú kr. 5.951,-
byggingavörur, Húsavík
Dr. Þórir Rr. Þórðarson
„Þjóðarbókhlöðunni er
m.a. ætlað að verða
Háskólanum e.k. ver-
stöð þekkingar, einn af
hornsteinum háskóla-
lífsins. Skattur sem al-
menningur greiðir
vegna hennar á að
renna óskiptur til fram-
kvæmda.“
skýrslu um hag námsmanna og
það áhyggjuefni hvort námstíminn
nýtist nægjanlega vel, en það er í
raun velferðarmál ijölskyldnanna
eigi síður en námsfólksins sjálfs.
Og rannsóknir og margvísleg
fræðastörf blómstra meir en
nokkru sinni innan þessara veggja
og undir þessum þökum sem al-
menningur hefur byggt með fram-
lögum sínum til Happdrættis Há-
skóla íslands. Ég sendi með þess-
ari grein nýútkomna rannsókna-
skrá Háskólans sem nær yfir árin
1987-1988. Hún er listi yfir rit-
gerðir og bækur, sem birst hafa
erlendis og hér á landi, og lýsingar
á' fræðilegum verkefnum, og er
skráin á sjötta hundrað blaðsíður!
Öll þessi starfsemi kemur nemend-
unum til góða og vonandi verk-
menningu og andlegri menningu
íslensku þjóðarinnar.
Þjóðarbókhlöðunni erm.a. ætlað
að verða Háskólanum e.k. verstöð
þekkingar, einn af hornsteinum
háskólalífsins. Skattur sem "al-
menningur greiðir vegna hennar á
að renna óskipturtil framkvæmda.
Sagt hefur verið að Háskólinn
fái geysimikla aukningu húsrýmis
og „aðstöðu" með byggingu Þjóð-
arbókhlöðunnar, og því sé það eðli-
legur hlutur að skera af framlögum
almennings til byggingarsjóðs
hans. En ég spyr: Hver er sú þjóð
sem ekki telur sér skylt að veija
sameiginlegum skattpeningi til
skóla og háskóla sinna, ekki aðeins
til rekstrar heldur einnig til bygg-
inga? Hver er sú þjóð? Hún er
hvergi til, og íslendingar vilja vart
verða fyrstir til að stofna flokk
óþjóða i álfunni. Ríkissjóði ber
skylda til að efla byggingarsjóð
Háskólans og koma til móts við
framlög almennings í landinu, en
þá skyldu hefur hann ekki rækt
vegna slæms árferðis væntanlega.
En nú eru uppi tillögur um að
snúa dæminu við. Hefur verðbólg-
an valdið verðhjöðnun siðferðisins?
Þetta er flokksmál. Allir flokkar
á þingi munu láta það til sín taka.
Höfundur er prófessor við
guðfræðideild Háskóla tslands.
ÚLFAÞYTUR
eftir dr. Hannes
Hólmstein
Gissurarson
Síðustu daga hefur úlfaþytur
orðið í hópi nokkurra helstu valds-
manna þjóðarinnar vegna skýrslu
yfirskoðunarmanna ríkisreikninga
til Alþingis. Hafa þeir ráðist harka-
lega að Geir H. Haarde alþingis-
manni fyrir að hafa veitt Ríkíssjón-
varpinu upplýsingar um efni skýrsl-
unnar, degi áður en hún var lögð
fram á Alþingi. Af því tilefni langar
mig til að benda á þijú atriði.
I fyrsta lagi laumaði Geir H.
Haarde ekki upplýsingum í fjöl-
miðla, eins og einhver gerði um
mál Magnúsar Thoroddsens, strax
eftir að ríkisendurskoðandi ræddi
um það við forseta Sameinaðs al-
þingis. Geir vó ekki að einstakling-
um úr launsátri, heldur svaraði
fréttamönnum blátt áfram, þegar
þeir spurðu hann. Þetta var ekki
einn hinna algengu og ógeðfelldu
„leka“, þar sem valdsmenn eru í
senn að kaupa sér aðgang að fjöl-
miðlum og koma höggi á einhveija
keppinauta.
I öðru lagi er skýrsla yfirskoðun-
armanna ekki í eðli sínu trúnaðar-
mál, heldur opinbert plagg, og þess
vegna ekkert athugavert við það
upplýsa almenning um efni hennar,
strax og hún liggur fyrir. Kynnti
fjármálaráðherra ekki fjárlögin fyr-
ir fréttamönnum, áður en hann
lagði þau fram á Alþingi?
í þriðja lagi er aðalatriðið auðvit-
að, hvað kemur fram i þessari
skýrslu og ýmsum athugasemdum
yfirskoðunarmanna ríkisreikninga
við gerðir valdhafa. Ef það er rétt,
sem ráðherrar hafa sagt opinber-
lega, að Geir H. Haarde hafi einn
grafið upp þær upplýsingar, sem
þar eru um mistök þeirra og brot
á reglum, þá hefur hann staðið sig
afburða vel í starfi og sýnu betur
en hinir yfirskoðunarmennirnir.
Hefði ella komist upp um hin óeðli-
legu áfengiskaup Jóns Baldvins
Hannibaissonar fyrir mann út í bæ,
sem ráðherrann hefur nú einmitt
Dr. Iianncs Hólmsteinn Gissurar-
son
„Geir H. Haarde er lofs
verður, ekki lasts, fyrir
atbeina sinn að þessu
máli, en viðbrögð valds-
manna má hafa til
marks um það, að sann-
leikanum verður hver
sárreiðastur.“
beðist afsökunar á? Hefði forsætis-
ráðherra ella þurft að taka hinn
sérstaka aðstoðarmann Stefáns
Valgeirssonar út af launaskrá for-
sætisráðuneytisins, þar sem sá
maður var í heimildarleysi?
Geir H. Haarde er lofs verður,
ekki lasts, fyrir atbeina sinn að
þessu máli, en viðbrögð valdsmanna
má hafa til marks um það, að sann-
leikanum verður hver sárreiðastur.
Höfundur er lektor í
stjórnniálafræði við
Félagsvisindadeild Háskóla
íslands.