Morgunblaðið - 26.10.1989, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1989
25
Morgunblaðið/Hulda Sigmundsdóttir
Dósasöfhunargámur Björgunarsveitarinnar Dýra.
Þingeyri:
Tvær flugur í einu höggi
Þingeyri.
Björgunarsveitin Dýri slær tvær flugur í einu höggi með því
að veita viðtöku ál- og plastumbúðum á Þingeyri.
Björgunarsveitin kom sér upp alla daga vikunnar getur fólk losað
gámi við Stefánsbúð til að taka við
einnota umbúðum og um leið
minnka óhreinindin. Tekið er á
móti þessum umbúðum gegn
greiðslu á miðvikudögum frá klukk-
an 21-22. En aðra tíma dagsins
sig við draslið beint í gáminn og
rennur þá ágóðinn til björgunar-
sveitarinnar og Þingeyri heldur
áfram að verða hreinni og hreinni
íbúunum til óblandinnar ánægju.
- Hulda
Styrkur til íþróttafélaga:
Kópavogur í fót-
spor Reykjavíkur
„ÉG fagna því að Kópavogsbær skuli ganga í fótspor Reykjavíkur
og styrkja íþróttafélögin myndarlega með því að greiða 80 prósent
af stofnkostnaði við byggingu íþróttamannvirkja eins og gert er í
Reykjavík," sagði Július Hafstein formaður íþrótta- og tómstundar-
áðs Reykjavíkur en bæjarsfjórn Kópavogs hefur samþykkt að veita
Ungmennafélagi Breiðabliks 118 milljónir króna á næsta sex og
hálfa ári.
sem varið er til framkvæmda,“ sagði
Júlíus. „Samanburður núna á þessu
átaki þeirra í Kópavogi er ekki raun-
hæfur við það sem við erum að gera
í dag, hvað sem við kunnum að gera
síðar. Samanburðurinn hlýtur að ná
yfir lengra tímabil annað er ekki
eðlilegt né sanngjarnt."
Júlíus benti á að Breiðablik hefði
nýlega fengið úthlutað landsvæði
vestan við Kópavogsvöll en langt er
síðan íþróttafélög í Reykjavík fengu
til umráða ákveðin svæði í hverfum
borgarinnar. „Uppbygging íþróttafé-
laganna í Reykjavík hefur staðið yfir
á síðustu árum og áratugum og fá
félögin ákveðnar upphæðir árlega,
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 25. október.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 103,00 62,00 85,97 12,218 1.050.359
Þorskur(óst) 59,00 59,00 59,00 0,047 2.773
Þorskur(smár) 25,00 25,00 25,00 0,048 1.200
Ýsa 107,00 80,00 96,69 2,727 263.629
Ýsa(ósl.) 95,00 59,00 84,81 2,961 251.135
Smáýsa(ósL) 37,00 37,00 37,00 0,030 1.110
Karfi 55,00 40,00 41,12 6,950 285.785
Ufsi 24,00 24,00 24,00 0,110 2.629
Langa 50,00 34,00 47,56 6,656 316.522
Keila(ósl.) 25,00 20,00 24,92 8,590 214.071
Samtals 62,01 42,719 2.648.967
í dag verður selt óákveðið magn úr bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 69,00 39,00 67,24 9,402 632.246
Ýsa 92,00 60,00 87,85 2,490 218.775
Ýsa(ósl.) 84,00 77,00 78,86 2,946 232.315
Karfi 38,00 35,00 36,37 14,993 545.225
Ufsi 39,00 30,00 38,40 19,321 741.938
Hlýri+steinb. 54,00 44,00 50,01 0,346 17.304
Skarkoli 50,00 50,00 50,00 0,035 1.750
Langa+blál. 40,00 40,00 40,00 1,649 65.960
Lúða 375,00 185,00 216,30 0,342 73.975
Lax 235,00 230,00 231,10 0,118 27.270
Samtals 48,67 53,256 2.591.735
Selt var meðal annars úr Hegranesi SK og Freyju RE. í dag
verða meðal annars seld 70 tonn af karfa, 15 tonn af ufsa og
óákv. magn af þorski og ýsu úr Margréti EA og Jóni Vídalín ÁR.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 75,00 32,00 61,78 17,325 1.070.306
Þorskur(umál) 39,00 39,00 39,00 0,350 13.650
Ýsa 92,00 27,00 85,11 7,917 673.786
Karfi 40,00 40,00 40,00 0,030 1.200
Ufsi 19,00 15,00 15,57 0,350 5.450
Langa 35,00 20,00 32,40 1,129 36.500
Lúða 300,00 115,00 181,36 0,169 30.560
Keila 18,00 14,00 17,49 1,031 18.034
Skötuselur 100,00 100,00 100,00 0,023 2.300
Síld 9,16 9,16 9,16 1,660 15.206
Samtals 62,34 30,071 1.874.547
Selt var úr Búrfelli KE, Ólafi GK, Víði KE, Þorsteini GK og Reyni
GK. I dag verður m.a. selt úr Víkingi IIIIS, línu- og netabátum.
SKIPASÖLUR í Vestur-Þýskalandi 16. til 20. október.
Þorskur 132,30 23,208 3.070.306
Ýsa 93,71 1,261 118.169
Ufsi 80,42 40,468 3.254.630
Karfi 88,29 461,109 40.710.221
Grálúða 105,19 0,699 73.530
Samtals 88,94 548,069 48.747.176
Selt var úr Vigra RE 17. október, Hauki GK 18. okt. og Hólma-
tindi SU 19. október. Selt var úr öllum skipunum í Bremerhaven.
Landsfundur
Kvennalistans:
Eiga
kvenna-
listakonur
að sitja í
bankaráð-
um?
LANDSFUNDUR Kvennalistans
verður haldinn að Básum í Ölf-
usi dagana 27.-29. október næst-
komandi. Meðal dagskráratriða
á fundinum eru umræður um
setu í bankaráðum, Evrópu-
bandalagið og EFTA og spurn-
ingin Eiga konur erindi i sveita-
stjórnir?
Fundurinn verður settur á föstu-
dag klukkan 13.45 með erindi Ingi-
bjargar Hafstað sem flytur „fáein-
ar stiklur úr feminískri hugmynda-
fræði.“ Önnur erindi fyrsta fundar-
daginn verða Hagfræðin og konur,
Atvinnumál kvenna, Dagvistarmál
og um Evrópubandalagið og EFTA.
Hópstarf verður að loknum erind-
um.
Laugardag verður byijað klukk-
an 9.00 með umræðum um reynslu
kvenna af sveitarstjórnarmálum.
Að þeim loknum flytur Kristín
Ástgeirsdóttir erindið Eiga konur
erindi í sveitarstjórnir? Síðan verða
umræður um stefnumál Kvenna-
listans í komandi sveiþarstjórnar-
kosningum.
Á sunnudag hefst fundur klukk-
an 10.00 með umræðum um spurn-
inguna hvort taka eigi sæti' í bank-
aráðum. Fundinum lýkur klukkan
16.00 á sunnudag.
Fundurinn er opinn öllum
kvennalistakonum, en þátttakend-
ur þurfa að skrá sig hjá starfskonu
Kvennalistans fyrir fund.
Farþegum til
Portógal fjölgar
FERÐASKRIFSTOFAN Evrópu-
ferðir efiidi til Portúgalskynn-
ingar í ráðstefiiusal Hótels Loft-
leiða fyrir helgina og var til
hennar boðið starfsfólki í ferða-
þjónustu, Qölmiðlafólki og ýms-
um áhugamönnum um ferðalög.
Framkvæmdastjóri Caravela-
ferðaskrifstofunnar sem hefur
aðsetur í London, Pliilip Gill
kynnti starf hennar og ýmsa
kosti sem hún býður. Ferðaskrif-
stofan er í eigu portúgalska flug-
félagsins TAP.
Joao Carlos Teixeira forstjóri
Ríkisferðaskrifstofunnar portúg-
ölsku í Stokkhólmi sem sér um
Norðurlandasvæðið talaði einnig á
kynningunni og Moreira frá TAP.
Sýnd var kvikmynd frá Madeira
og efnt var til happdrættis þar sem
ýmsir vinningar voru og sá stærsti
vikudvöl í Portúgal. Gestum var
síðan boðið upp á veitingar.
íslendingar hafa síðustu ár gert
sér æ tíðförulla til Portúgal og árið
1988 fóru 2.200 þangað og á árinu
1989 hefur íslenskum gestum
þangað fjölgað um 20 prósent. Um
helmingur Islendinganna dvelur á
sólarströnd Algai-ve í Suður Port-
úgaL. Fram kom í máli portúgölsku
fulltrúanna að ferðamannastraum-
ur til Portúgals hefur vaxið hressi-
lega síðasta áratug. Flestir ferða-
menn eru frá Bretlandi, Vestur
Þýskalandi, Norðurlöndunum,
Spáni og Hollandi.
Ellimálaráð
Rey kj avíkurprófast-
dæmis:
Kristileg öldr-
unarþjónusta
heldur námskeið
Á VEGUM Ellimálaráðs
Reykjavíkurprófastdæmis held-
ur kristileg öldrunarþjónusta
námskeið í Askirkju við Vestur-
brún, laugardaginn 28. október
kl. 9 til 15:30.
Á námskeiðinu verður farið í
grundvallaratriði þess hver maður-
inn er í ljósi Guðs Orðs, hverjar
innstu þarfir hans eru og ræddar
leiðir til að mæta þeim í kristilegri
öldrunarþjónustu, eins og segir í
frétt frá ellimálaráði.
Dagskráin hefst með morgun-
bæn, síðan flytur sr. Magnús
Björnsson fyrirlestur um Kristinn
mannskilning og Guðrún Dóra
Guðmannsdóttir hjúkrunarfæðing-
ur talar um Trúarlegar þarfir. Að
hádegisverðarhléi loknu verður
kynning á Kristilegu félagi heil-
brigðisstétta. Þá verður fyrirlestur
um hvernig trúarlegum þörfum er
mætt og svarað fyrirspumum.
Dagskránni lýkur með helgistund.
Aðgangur er ókeypis og öllum
opinn. Boðið er upp á léttar veiting-
ar í hádegishléi.
Þátttaka tilkynnist fyrir 27.
október í síma 82405 eða 674810
fyrir hádegi eða í síma 30994.
(Úr fréttatilkynningu)
Bókmennta-
kynning í
Blindrabóka-
safiii
LAUGARDAGINN 28. október
kl. 14 verður haldin bókmennta-
kynning fyrir börn í Blindra-
bókasafni íslands í Hamrahlíð
17.
Danski rithöfundurinn H.C.
Andersen verður kynntur. Keld
Gall Jörgensen, lektor fjallar um
skáldið og verk hans og Gísli Hall-
dórsson, leikari, les úr verkum
hans.
. Morgunblaðið/Bjami
T.f.v Fulltrúi TAP, Moreira, J.C. Teixeira frá Ríkisferðaskrifstofu
Portúgals, Friðrik Brekkan frá Evrópuferðum, Jóhanna Tryggva-
dóttir forstjóri Evrópuferða og Phil Gill, framkvæmdastjóri Cara-
vela.
Sýnir hjá Sævari
Karli
ÁRNI Páll opnar myndlistarsýn-
ingu í Galleríi Sævars Karls,
Bankastræti 9, á morgun, fostu-
daginn 27. október.
Árni Páll fæddist í Stykkishólmi
árið 1950 og hélt sína fyrstu einka-
sýningu í SÚM 1976. Hann hefur
síðan haldið eina eða fleiri sýningar
á ári, einn og með öðrum, heima
og heiman.
Sýningin stendur til 24. nóvem-
ber og er opin á verslunartíma frá
klukkan 9-18.
Haustskákmót í
Kópavogi
HIÐ árlega hausthraðskákmót
Taflfélags Kópavogs verður
haldið í Hjallaskóla sunnudaginn
29. október 1989 kl. 14.
Þar munu mæta allir helstu
skákmenn Kópavogs.
Hótel Borg:
Listmunauppboð
23. listmunauppboð Gallerís
Borgar í samvinnu við Listmuna-
uppboð Sigurðar Benediktsson-
ar hf. verður haldið sunnudaginn
29. október nk.
Uppboðið fer fram á Hótel Borg
og hefst klukkan 20.30. Að venju
verða boðin upp margvísleg verk
eldri sem yngri höfunda, einnig
nokkur verk „gömlu meistaranna"
eins og til dæmis: Jóhannesar S.
Kjarvals, Ásgríms Jónssonar,
Ragnheiðar Jónsdóttur Ream, Þor-
valds Skúlasonar og fleiri.
Uppboðsverkin verða sýnd í Gall-
.erí Borg á föstudag frá klukkan
10-18 og laugardag og sunnudag
frá klukkan 14-18.
(Fréttatilky nning)
Mánaðarlegir
fyrirlestrar Geð-
hjálpar í vetur
GEÐHJÁLP, félag fólks með
geðræn vandamál, aðstandenda
þeirra og velunnara, gengst fyr-
ir mánaðarlegum fyrirlestrum
um geðheilbrigðismál í vetur.
Fyrirlestrarnir verða haldnir á
Geðdeild Landspítalans í
kennslustofú á 3. hæð. Þeir
verða allir á fimmtudögum og
heQast kl. 20.30.
Fyrirléstrarnir eru fyrir félags-
menn Geðhjálpar og alla þá sem
kynnu að hafa áhuga. Aðgangur
er ókeypis. Fyrirspumir og umræð-
ur verða eftir fyrirlestrana.
Fyrirlestrarnir verða sem hér
segir: 26. október, Sjálfsvirðing
höfnun — sjálfsöryggi: Magnús
Þorgrímsson, sálfræðingur; 30.
nóvember, Um svefnleysi: Júlíus
Bjömsson, sálfræðingur; 14. des-
ember, Meðferð við sjúklegri megr-
un (anorexiu): Heiðdís Sigurðar-
dóttir, sálfræðingur; 25. janúar,
Lyfjanotkun — ofnotkun: Guðjón
Magnússon, aðstoðar landlæknir;
22. febrúar, Er aðstoðar að vænta?
Félagsþjónusta — geðsjúkir: Bragi
Guðbrandsson, félagsmálastjóri:
22. mars, Þroskaskeið á lífsleiðinni
— Fullorðinsárin: Oddur Bjarnason,
geðlæknir og Anna Valdimarsdótt-
ir, sálfræðingur; 24. apríl, Starf
og stuðningur við aðstandendur
geðsjúkra: Sigmundur Sigfússon,
geðlæknir, Akureyri.