Morgunblaðið - 26.10.1989, Page 32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1989
Stjörrivi-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Frumþættirnir fjórir, eldur,
jörð, loft og vatn, varpa ljósi
á eðli merkjanna, en þijú
þeirra eru í hveijum frum-
þætti. Hrútur, Ljón og Bog-
maður eru eldsmerki og eiga
því ýmislegt sameiginlegt.
Eldur
Eldur er úthverfastur allra
frumþáttanna, sem þýðir að
eldsmerkin eru opin og já-
kvæð í hegðun og framkomu.
Eldur er fyrst og fremst orka
lífskrafsins, enda er oft sagt
um fólk í eldsmerkjum að það
sé lifandi og kraftmikið.
Breyíingarajl
Það sem ekki hvað síst ein-
kennir starfsfólk er opin og
björt tjáning, oft á tíðum ákafi
og kraftur og sterk hugsjóna-
hyggja. í eldinum er lítil kyrr-
staða, en þeim mun meiri
þörf fyrir að breyta til. Eldur-
inn étur upp allt það sem
hann kemur nálægt og um-
breytir því. Það er því ein-
kennandi fyrir fólk í þessum
merkjum að vilja stöðugt
breyta og bæta umhverfið og
heim sinn. Skapandi nýjung-
ar, framfarir, breytingar og
þróun eru til að mynda elds-
orð.
Hraðbátur
Það er ekki í samræmi við
eðli Hrúta, Ljóna og Bog-
manna að fara troðnar slóðir
eða láta umhverfið segja sér
fyrir verkum. Þessi merki eru
athafnasöm og taka oftast
nær sjálfstæðar ákvarðanir.
Það er til dæmis sagt að frá
eldinum komi hvötin til sjálf-
sprottinna athafna, þ.e.a.s.
eldsmerkin líta inn á við og
ákveða sjálf hvað gera þurfi.
í einni ágætri bók er því lýst
þannig að eldur sé eins og
hraðbátur sem klífur Ölduna
og fer sína leið burtséð frá
straumum eða vindum. Ef
nota ætti svipaða samlíkingu
fyrir vatnsmerkin, Krabba,
Sporðdreka og Fisk, mætti
líkja þeim við seglbát sem
sætir lagi og lætur berast með
utanaðkomandi straumum.
Eldhugi
Þegar verið er að lýsa elds-
fólki í daglegu lífi, eru oft
notuð orð, eins og eldhugi,
hugsjónamaður og ákafur
baráttumaður. Þetta fólk not-
ar sterk orð: ég verð upp-
tendraður, hann kveikti í mér
með ákafa sínum o.s.frv.
Tillitsleysi
Veikleiki eldsins er sá að í
ákafa sínum á hann til að
gleyma öðrum, verða tillits-
laus og eigingjgm, oft án þess
að gera sér grein fyrir því.
Hann þarf því að læra að
hlusta á aðra og taka tillit til
skoðana og þarfa annarra. í
eðli eldsins er ríkt að fram-
kvæma og hreyfa sig. Hann
er athafnamaður og skortir
því oft áhuga og hæfileika til
að skoða í eigin barm. Elds-
merkin eru þvi oft ómeðvituð
um eigin hegðun.
Hlýjar tilfinningar
Eldsfólk hefur opnar, hressar,
hlýjar og sterkar tilfinningar.
það vill vera jákvætt og sýnir
tilfinningar sínar því iðulega
með kátínu, gleði og ákafa,
en á erfiðara með að takast
á'við neikvæðari tilfinningar
eins og dapurleika, veikindi
og sorg. Þegar slikt er upp á
teninginn á það til að flýja.
Eldinum er illa við þunglyndi
og þyngsli.
HlátUr
Hann á einnig erfitt með að
þola kyrrstöðu og lífleysi og
verður oft pirraður og óþolin-
móður þegar lítið er að ger-
ast. Þegar eld skortir í
stjömukort vantar oft
Iffsgleði, ákafa, hugsjónir,
léttieika og hiátur.
GARPUR
5/opsrJóiej, múns&upess.u ?
Þö/CK Sé GA£Pt AÐ GJGh/tNGtN
HEFZJR. 8UNDt£> ENDt /9 FEt-Lt-
0YÍ.IMN. r-—--------7-—;-------
y ólí. /phm az a
r-ySJÖ MBFIÉG ALDtSEt
ff&j r [ k£>/*7‘ ST1 'H/WH Sl/O
kzapfhn sb/u nú
/t HOBÐUflHAFtHU HOEF/STL tT>£>
SKtPt ALXSU l//£> HUtNAND!
STÖKA4... /~^Tý—V"
GRETTIR
LJÓSKA
SMÁFÓLK
HVAÐ?
, I hate to say it, MAAM,,
BUT YOUR QUE5TION5 ARE/
‘ RUININ6 MV MAlR..
Mér er illa við að segja það, kenn-
ari, en spurningar þínar spilla
hárinu á mér ...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Fjórir spaðar era auðunnir,
en keppnisformið er tvímenning-
ur, svo yfírslagurinn er dýrmæt-
ur.
Suður gefur; AV á hættu.
Norður
♦ K543
VK8
♦ KD
+ Á6432
Vestur Austur
♦t ,,11,1 ♦ G987
VAG10976 VD
♦ 1087 ♦ 95432
* D1085 + KG7
Suður
♦ ÁD1062
V 5432
♦ ÁG6
♦ 9
Vestur Norður Austur Suður
— — 1 spaði
Pass 3 lauf Pass 3 spaðar
Pass Pass 4 spaöar Pass Pass
Útspil: hjartaás.
Vestur spilar hjarta áfram í
öðram slag, sem austur trompar
og spilar blindum inn á tígul.
Sagnhafi spilar spaða á ás og
þarf nú að glíma við 11. slaginn
í þessari slæmu tromplegu.
Þetta er erfitt, jafnvel á opnu
borði. En miðað við að vestur
eigi fjögur lauf, má ná á hann
kastþröng í hjarta og laufi —
trompþvingun, sem byggist á
því til viðbótar að haga sam-
ganginum í tromplitnum eftir
afköstum vesturs.
Besta spilamennskan er þessi:
lauf upp á ás og spaði á tíuna.
Síðan tígull inn á blindan og
lauf trompað. Þá er tígulásinn
tekinn, og nú kemur meistara-
verkið: spaðadrottning. Ef vest-
ur hendir hjarta, er hjarta fríað
með trompun. Hendi vestur á
hinn bóginn laufi, er drottningin
yfirdrepin með kóng og lauf
fríað með trompun.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
{ klukkufjöltefli Anatolys
Karpovs, fyrrum heimsmeistara,
við sex efnilega unglinga frá
sovézku borginni Voronez í sumar
kom þessi staða upp í skák
Karpovs við B. Galanov, sem
hafði svart og átti leik.
26. - Bxb3!, 27. axb3 - Da7,
28. Db2 - Ha8,29. Rcl - Hal+,
30. Kc2 — De3! (Eftir þennan
öfluga leik er Karpov varnarlaus.)
31. Dxal — Hxal og eftir að
hafa unnið drottninguna vann
svartur auðveldlega. Venjulega
reynir Karpov að forðast slíkar
stöður þar sem teflendur sækja á
sitthvorum vængnum, greinilega
ekki að ástæðulausu! Þetta er eina
tapskák hans í fjölteflinu, hann
vann hinar fimm. Karpov hafði
tvær klukkustundir til umráða,
eða sama tíma og hver andstæð-
inga hans.