Morgunblaðið - 26.10.1989, Síða 40

Morgunblaðið - 26.10.1989, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1989 H Með morgunkaf&nu Ég vil ráða hundinn, en ekki þig ... HÖGNI HREKKVlSI „Þú hefur orð eilífs lífs“ Til Velvakanda. Oft má lesa í Velvakanda bréf sem fjalla um trúarleg efni. Það er vissulega gleðiefni að fólki leyfist að tjá sig opinberlega um trúmál, því eins og við vitum, er ekki all- staðar um slíkt frelsi að ræða. Frelsið er vissulega sá frumréttur sem Guð gaf manninum er hann gaf honum fijálsan vilja. Því skyld- um við meta frelsið að verðieikum. Á hitt ber að líta, að það veldur sannkristnum manni hryggðar er hann les greinar sem beinast gegn Kristi eða jafnvel Guði sjálfum. En sérhver maður hefur rétt til að tjá skoðun sína. Er kristnum manni, jafnvei hálærðum, unnt að sann- færa sérhvern mann? Jafnvel Jesú sjálfum tókst þetta ekki. Eigum við þá að þegja? Ég heid ekki. Kristnum manni ber að tjá öðrum sannfær- ingu sína. Því vil ég segja í fyrsta lagi: Ég er þeirrar skoðunar, að sérhver sá maður, sem hugleiðir allt það, sem Jesús, sem var álitinn óbreyttur smiður, kom til leiðar á um það bil tveimur árum ævi sinnar, stendur frammi fyrir undur- samlegri ráðgátu. Hér á ég ekki eingöngu við hinn mikla fjölda kris- tinna manna í heiminum í dag, held- ur miklu fremur allt það er Jesús gerði og kenndi á opinberunarárum sínum tveimur þar til dauða hans og upprisu bar að höndum. En meðal annarra orða, erum við kristnir, jafnvel þó svo að við séum um það bil 1,7 niilljarðar að tölu og þar á meðal hundruð þúsunda guðfræðinga, ekki dálítið barnaleg- ir er við trúum að Jesús sé Guð, og að hann hafi til dæmis vakið Lasarus upp frá dauðum þá er hann hafði legið þijá daga í gröfinni, og að Jesús hafi sjálfur risið upp frá dauðum á páskadegi? Voru aldrei til þeir efahyggjumenn og lærdóms- menn, sem létu í ljós efasemdir og framkvæmdu rannsóknir á þessum fyrirbærum og fullyrðingum? Sá sem hefur kynnt sér eitthvað örlítið kirkjusögu veit, að gagnrýnin og andstaðan gegn kristinni trú á hvorki upphaf sitt í trúleysi komm- únismans, skynsemishyggjunni, hinni svokölluðu upplýsingu 17. og 18. aldar né heldur í ftjálslyndu guðfræðinni. Nei, gagnrýnin hófst sem svar við boðún Jesú Krists þegar á hans dögum, og gagnrýn- endur hans, gyðingaprestarnir, neyddust til að láta taka hann af lífi (Jóh. 11:48; „Hvað eigum vér að gjöra? Þessi maður gjörir mörg tákn. Ef vér leyfum honum að halda svo áfram, munu allir trúa á hann og þá koma Rómveijar og taka bæði helgidóm og þjóð“). Kaif- as fann þá sakargift, er skipti sköp- um: „Ert þú sonur Guðs?“ Jesús svaraði játandi. Er ekki svo, að Biblían, og þá sérstaklega bækur Gamla testamentisins, skapa ákveð- in vandamál, og kalla fram ýmsar spurningar? Víst er það svo. Aug- ljóst er, að sérkenni þessara rita, einkum og sér í lagi rita Gamla testamentisins, gera það að verk- um, að við þörfnumst ákveðins kennivalds. Þetta kennivald gaf Jesús okkur, fyrst í postulunum, undir leiðsögn Péturs, og síðan í biskupunum, undir leiðsögn páfans. Undir öruggri stjórn þessara skip- stjóra hefur fari kirkjunnar verið farsællega stýrt gegnum brotsjói 19 alda samkvæmt orðum Jesú í Mt. 28:20. í þijú hundruð ár flaut blóð píslarvottanna og varð að sæði nýrra kristinna manna, eins og Tertullianus (2. öld) komst að orði. Erfiðari viðfangs urðu árásirnar á kenningu kirkjunnar. Því reyndist nauðsynlegt að móta kennisetning- arnar í endanlegt form. Þetta átti ekki síst við um Kristsfræðina. Kenninguna var þá að finna í munn- legri geymd og einnig í viðurkennd- um ritum kirkjunnar. Árið 381 komu fulltrúar kirkjunnar saman á kirkjuþingi í Konstantínópel. Þar var sett fram opinberlega sú kenn- ing, að heilagur andi sé sama eðlis og Guð faðir og Guð sonur. í öllum þessum langvarandi deilum studdist kirkjan við kenningu postulanna eins og hún birtist í ritningunni og hjá kirkjufeðrunum. Varð Biblían sjálf þá ekki fyrir árásum? Vissu- lega. Til dæmis að taka, þá sleppti Markíon (85-160) öllu Gamla testa- mentinu úr Biblíunni. Ennfremur leitaðist Markíon við að ijarlægja gyðingleg áhrif úr Nýja testament- inu. Hann hélt aðeins eftir einu guðspjallanna og um tíu bréfum Til Velvakanda. Á miðvikudagskvöld vorum við að horfa á sjónvarpsfréttir þegar sagt var frá hinum hræðilegu jarð- skjálftum í Ameríku. Rétt um klukkan átta heyrist þessi mikli hávaði frá Snorrabraut, þá er það slökkviliðið á leiðinni á brunstað, hugsuðum við, þetta hlýtur að vera stórbruni. Ekki linnti sírenunum hjá slökkviliðinu. Næsta hálftímann biðum við eftir aukafrétt frá Sjón- varpinu frá stórbruna í bænum. Sem betur fer kom engin frétt um biuna hér í bænum um kvöldið. Morguninn eftir fæ ég Morgun- blaðið og sé í blaðinu að það hafi verið drukkinn maður sem.gabbaði Páls postula, sem hann „hreinsaði“. Harðasta hríðin gegn Biblíunni varð þó á tímum upplýsingarinnar á 17. öld til 19. aldar. Þessar árásir birt- ust í því, að Biblían var ýmist skýrð út frá sjónarmiðum skynse- mishyggju, fijálslyndis, guðleysis, eða sjónarmiðum þróunar og félags- hyggju. Þýsk nákvæmni og frönsk skarpskyggni hefðu eflaust sökkt skipi kirkjunnar og með því páfa- veldinu, ef slíkt hefði á annað borð verið framkvæmanlegt. Hvernig stóð á því, að svo reyndist ekki vera? Jesús sagði: „Sjá, ég er með yður alla daga, allt til enda verald- ar“ (Mt. 28:20). ' Að lokum, þessi spurning: Þurf- um við ef til vill að leita hjálpræðis hjá einhveijum nýjum spámanni, til dæmis Múhameð, eða þá einhveij- um spámanni síðustu alda? Við svörum þessari spurningu með „Pétri: „Herra, til hvers ættum vér að fara? Þú hefur orð eilífs lífs, og vér trúum og vitum að þú ert hinn heilagi Guðs“. Og Pétur gaf þessa yfirlýsingu frammi fyrir ráði æðstu- prestanna, öldunganna og fræði- mannanna í Jerúsalem: „Ekkert annað nafn er mönnum gefið um víða veröld, sem getur frelsað oss“ (P 4:12). Já, höllum okkur að hon- um, sem gaf líf sitt af fúsum og fijálsum vilja og hefur sannað fyrir okkur hver hann er; sonur Guðs. Og einnig skulum við fela kenni- valdið, sem hann gaf okkur til að við mættumst öðlast sannan skiln- ing á heilagri ritningu og gerum okkur ekki eigið kennivald í málefn- um trúar og siðferðis, né heldur okkar eigin kirkju, gegn vilja Jesú Krists, sem vill að við verðum öll „fullkomlega eitt“ (Jóh. 17:23). Sr. Jón Habets slökkviliðið út í þijú skipti. En það hefði ekki mátt rekja símtal hans eftir fyrsta gabb. Nei, það var gert eftir 3. gabb. Af hveiju ekki fyrr? Hver er refsing við svona gabbi? Ég veit að slökkviliðsmenn vaða eld og brennistein í öllum veðrum, hvar og hvenær sem er. Þeir eru eld- snöggir á vettvang er kallað er á þá. Það þarf ekki að ýta á eftir þeim. Þeir eiga heiður skilið fyrir sín störf. En þeir aðilar sem eru einmana og eru að sulla'í áfengi. Verið ekki að leika ykkur að því að gabba slökkviliðið. Þið eigið að fá þunga refsingu fyrir slíka heimsku. Hafliði Helgason Slökkviliðið gabbað /f HANN ER VIÐ HEST/4HE-ILSU... EN HAÞJN HEFUI? ÁHVGSJUK AF KVRKISLÖNGONKII -SININI. " Víkverji skrifar Igærmorgun, er Víkveiji var á leið- inni í vinnuna, hlustaði hann á útsendingu frá íslenzkutíma Bibbu á Brávallagötunni. Þar var Mörður Skorri, eða hvað hann nú heitir, að reyna að skýra fyrir Bibbu mismun- inn á því, hvenær menn noti orðatil- tækið „hver annar“ og „hvor annar“. Það var segin saga, að Bibba notaði þessi orð ávallt öfugt við regluna, svo að augljóst var að hún gerði sér fylli- lega gi'ein fyrir mismuninum, enda sögð greind kona. I Tímanum í gær er fyrirsögnin „Steþbi verði þingflokkur“ og er þar skýrt frá tillögu forsætisráðherra, Steingríms Hermannssonar, um að gera Stefán Valgeirsson að þing- flokki. Væntanlega mun þá sú regla gilda um frásagnir af Stefáni við annan mann, að þeir ræði „hver við annan“, enda Stefán þá orðinn að fleirtöluígildi?! Venjulega nennir Víkveiji ekki að horfa á sjónvarp, þegar sent er út frá umræðum á Alþingi, eins og gerðist síðastliðinn mánudag, en þar sem dagskráin á hinni sjónvarps- stöðinni var svo afspyrnu léleg, lét Víkveiji sig hafa það að hlusta á umræðumar. Ekki getur Víkveiji sagt að hann hafi skemmt sér sér- staklega við að horfa á umræðurnar, en ekki er heldur sanngjarnt að segja að þær hafi verið leiðinlegar, a.m.k. skipti Víkveiji ekki yfir á Stöð 2. Hins vegar má segja, að efni sem þetta frá Alþingi eigi frekar heima í útvarpi en sjónvarpi. Það er ekki myndrænt með þeim hætti, að það réttlæti margra klukkustunda út- sendingu. xxx Mikil tíðindi berast nú frá Sov- étríkjunum, þessu „sæluríki ör- eiganna", þar sem mönnum hefur skilizt að verkamenn og verkalýður væri i hávegum hafður. Sovézkur ' hershöfðingi hefur nú heitið því, að rauða hemum verði ekki framar beitt gegn verkamönnum til þess að leysa vinnudeilur þar í landi. Þetta gerist á sama tíma og alþýðulýðveldi er lagt af í Ungveijalandi og andkomm- únísk ríkisstjóm er setzt að völdum í Póllandi. Þetta em mikil tíðindi og merk í pólitískri þróun Evrópu. Á dögunum er sagt var frá breyt- ingunum í Ungveijalandi, skýrði fréttamaður á Stöð 2 frá því að hin nýja stjórnarskrá Ungveija væri vest- ræn. Þetta fannst Víkveija undarlega að orði komizt og telur að réttara hefði verið að segja að hún hafi ver- ið gerð að vestrænni fyrirmynd. Þetta sýnir að aldrei er nógu varlega farið með orðaval í fréttum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.