Morgunblaðið - 26.10.1989, Side 42
42
MORQUNBLAÐIÐ IÞROTTIR
26. OKTOBER 1989
Iprmim
FOLX
■ HÖRÐJJR Magnússon, marka-
kóngur íslandsmótsins úr FH, hefur
ákveðið að leika með FH næsta
kpppnistímabil. Hörður fór til
Brann í Noregi fyrir skömmu og
dvaldi þar um tíma með hugsanleg-
an samning í huga sem ekkert varð
úr. Grískur umboðsmaður hefur
haft samband við Hörð og boðið
honum að leika í Grikklandi, en
Hörður hefur ekki áhuga á því.
■ FRIÐRIK Friðriksson, lands-
liðsmarkvörður í knattspyrnu, og
félagar í danska 2. deildarliðinu B
1909 töpuðu um sl. helgi á heima-
velli fyrir KB, 1:3, og komast því
ekki upp í 1. deild. Viborg og KB
hrepptu tvö efstu sætin í deildinni
og fara upp.
■ JÚLÍUS Jónasson fer með
landsliðinu í handknattleik á æf-
ingamótið í Tékkóslóvakíu í næsta
mánuði. Félag hans Racing Asni-
eres frá París, hefur gefið hann
lausan.
■ JÚLÍUS hefur staðið sig mjög
vel í fyrstu deildarleikjunum með
Asnieres. Fjórum leikjum er lokið
og hefur hann gert 29 mörk í þeim
— þar af 11 í síðasta leik. Asnieres
er í öðru sæti í B-riðli frönsku 1.
deildarinnar.
■ VÍKINGAR hafa nú hug á að
fá annan leikmann frá Júgósiavíu
fyrir næsta keppnistímabil í knatt-
spyrnunni. Hjá félaginu er fyrir
Goran Micic, sem leikur áfram með
Víkingsliðinu næsta sumar.
' ■ SELFYSSINGAR hafa þá hug
á að fá tvo leikmenn frá Júgó-
| slavíu. Þeir eru nú að kanna leik-
‘ menn þaðan sem eru á lausu.
' ■ SAAB, liðið sem Þorbergur
Aðalsteinsson leikur með í Alls-
venskan, sænsku úrvalsdeildinni í
handknattleik, sigraði Lugi um sl.
helgi, 24:22. Leikur þessi er talinn
hafa verið sá besti sem fram hefur
farið í deildinni í langan tíma. Saab
og Drott eru efst og jöfn í deild-
inni með 6 stig, og þau mætast
einmitt um næstu helgi.
■ ÁHUGI er fyrir því að koma
handknattleik að sem keppnisgrein
á Evrópuleikum smáþjóða, sem fara
fram annað hvert ár. Fulltrúar
Lúxemborgar og Kýpur greindu
Jóni Hjaltalín Magnússyni, form-
anni HSÍ, frá því á Kýpur um helg-
ina. Síðustu leikar voru á Kýpur
fyrr á þessu, en þeir næstu verða
í Andorra 1991.
■ BJARNI Sigurðsson, lands-
liðsmarkvörður í knattspyrnu, fer
ekki til Danmerkur til þátttöku í
Evrópukeppni markvarða, í næsta
mánuði eins og til stóð. Þar átti
einn markvörður frá hveiju Evróp-
ulandi að keppa um titilinn besti
markvörður álfunnar. UEFA,
Knattspyrnusamband Evrópu, fór
fram á það við samböndin á Norð-
urlöndum að þau sendu ekki menn
í þessa keppni. Keppa átti um Evr-
óputitil, en keppnin var ekki á veg-
um UEFA — heldur fyrirtækis sem
framleiðir vélar sem skjóta knöttum
á markverði.
KNATTSPYRNA / HEIMSMEISTARAKEPPNIN
Johnny Ekström þjóð-
hetja í Svíþjóð
Svíargulltryggðu sérfarseðilinn til Ítalíu með sigri í Póílandi
JOHNNY Ekström er nú þjóðar-
dýrlingur í Svíþjóð, eftir að
Svíar tryggðu sér farseðilinn til
Ítalíu með því að leggja Pól-
verja að velli, 0:2, í Chrozow í
Póliandi í gær. Ekström hefur
ekki verið vinsælasti leikmað-
urinn í sænska liðinu og hafa
hann og þjálfari sænska liðs-
ins, Olle Nordin, fengið það
óþvegið í sænskum blöðum.
Sænsku blöðin hafa að undan-
förnu deilt hart á Nordin fyrir
að hafa Ekström í byrjunarliði sínu
og bent á að Ekström hafi verið
lélegur hjá Bayem
Múnchen á síðasta
keppnistímabili og
vermi nú vara-
mannabekkinn hjá
franska félaginu Cannes. Þrátt fyr-
ir þessar ádeilur hefur Nordin valið
Ekström sem fyrsta mann í lið sitt
- hefur aldrei misst trúna á þennan
marksækna leikmann. Neikvæð
skrif blaðanna gengu svo langt að
Ekström hefur neitað að tala við
Expressen - eitt af kvöldblöðunum
í Svíþjóð.
Frá
Þorbergi
Aöalsteinssyni
í Svíþjóð
Ekström kom, sá og sigraði í
Chorzow í gær. Hann átti skotíð
sem einn varnarmaður Pólveija
bjargaði á línu með hendi á 34.
mín. Peter Larsson skoraði, 0:1, úr
vítaspyrnunni. Ekström gulltryggði
síðan sigur Svía á 60. mín. er hann
fékk knöttinn á eigin vallarhelmingi
- geystist fram, lék á tvo varnar-
menn Pólverja, og vippaði knettin-
um yfir Jaroslaw Bako, markvörð,
0:2.
„Ég er í sjöunda himni og stoltur
af mínum leikmönnum. Strákarnir
eru bestir þegar mikið liggur við.
Þá hafa stuðningsmenn okkar veitt
okkur ómetanlegan stuðning,“
sagði Nordin, þjálfari Svía. Hann
kom frá Noregi í fyrra og tók við
sænska landsliðinu. Undir stjórn
Nordins hafa Svíar tryggt sér sigur
í öðrum riðli HM í Evrópu, án þess
að tapa leik.
Svíar léku síðast í úrslitakeppni
HM í Argéntínu 1978.
Svíar hafa ákveðið að undirbúa
lið sitt sem best fyrir úrslitakeppni
HM næsta ár. Það á ekkert að spara
og hefur þegar verið ákveðið að
skipta keppninni í efstu deild, „All-
svenskan", í tvennt; leika fyrri hluta
deildarinnar næsta vor og seinni
hlutann um haustið.
Einnig fögnudur í Tyrklandi
Geysilegur fögnuður var í Istan-
bul þar sem leikmenn Tyrklands
fóru á kostum og lögðu slaka Aust-
urríkismenn, 3:0. Hetja Tyrklands
var Ridvan Dilmen, sem opnaði leik-
inn með góðu skallamarki á 11.
mínútu og síðan bætti hann öðru
marki við, 2:0, sjö mín. eftir leik-
hlé. Feyyax Ucar innsigglaði glæsi-
legan sigur, '3:0, Tyrkja á 60. mín.
við mikinn fögnuð hinna 32.000
áhorfenda sem sáu leikinn.
Tyrkir, A-Þjóðveijar og Aust-
urríkismenn eru enn inn í myndinni
7 að fara með Sovétmönnum til
Ítalíu. Þeir eru allir með sjö stig.
Tyrkir, sem eru með bestu marka-
töluna, eiga eftir að leika gegn
Sovétmönnum í Moskvu. Austurrík-
ismenn eiga heimaleik gegn A-
Þjóðveijum.
Hverjir
lejka
á Ítalíu
næsta
sumar?
Það er hart barist um
sæti í lokakeppni HM
í knattspyrnu 1990,
sem fer fram á Ítalíu.
Örugg sæti:
Ítalía
Argentína
Júgóslavía
Brasilía
Uruguay
Kosta Ríka
England
Spánn
S-Kórea
Belgía
Svíþjóð
Nokkuð örugg:
írland
Sovétríkin
Skotland
Holland
Tékkóslóvakía
Góðir möguleikar:
V-Þýskaland
Kamerún
Egyptaland
Trinidad
Farseðlartil
HMá Ítalíu 1990
ENGLAND
Holland
Sovétríkin
Tékkóslóvakía
*
■llbMHHHI
URUGUAY
ARGENTINA
Löndin sem eru skráð í svartan grunn eiu örugg með farseðil til Ítalíu 1990,
en hin löndin sem skráð eru á kortið eru nær örugg með farseðil.
KNATTSPYRNA / FÉLAGASKIPTI
Willum Þór
til Blikanna
Willum Þór Þórsson, sem hefur
leikið með fyrstu deildar liði
KR undanfarin ár, hefur ákveðið
að ganga til liðs við 2. deildar iið
Breiðabliks.
Willum, sem leikur með 1. deild-
ar liði Gróttu í handknattleik, er
annar reyndi leikmaðurinn á
skömmum tíma, sem skiptir yfir í
Breiðablik. Hinn er Hilmar Sig-
hvatsson, sem lék með Fylki á ný-
liðnu tímabili, en áður með Val.
Willum Þór Þórsson
Theodor
til Þróttar
Theódór Jóhannsson, sem hef-
ur leikið með Þrótti R., Völs-
ungi og Haukum, hefur ákveðið
að ganga á ný til liðs við sitt
gamla félag, Þrótt Reykjavík.
Theódór er sterkur miðvörður og
kemur hann með að styrkja Þrótt-
arliðið mikið. Hann lék með Hauk-
um sl. keppnistímabil, eftir að
hafa verið besti lfeikmaður Völs-
ungs 1987.
Theódór Jóhannsson.
■ ÍSLENSKT dómaratríó, Guð-
mundur Haraldsson, Eyjólfur
Olafsson og Olafúr Lárusson,
dæmdi leik Belga og Luxemborg-
ara í Brussel. Leikurinn var sýndur
í beinni útsendingu í belgíska sjón-
varpinu og hældi belgíski sjón-
varpsþulurinn Guðmundi Haralds-
syni fyrir að hafa góð tök á leikn-
um. Þulurinn furðaði sig þó á nöfn-
um þremenninganna því fornöfn
þeirra enduðu öll á ur og eftirnöfn-
in á son!
■ SIGUR Tyrkja gegn Aust-
urriki var súrsætur að því leiti að
tveir af bestu leikmönnum þeirra
fara í leikbann og geta ekki leikið
gegn Sovétmönnum. Fyrirliðinn
Cuneyt Tanman og Ugur Tútune-
ker, sem eru báðir miðvallarspilar-
ar, fengu að sjá gula spjaldið í gær
- þeirra annað gula spjald.
■ TYRKLAND hefur ekki tekið
þátt í lokakeppni HM síðan í Sviss
1954.
■ S-KÓRE UMENN tryggðu sér
í annað skiptið í röð að leika í loka-
keppni HM, þegar þeir unnu, 2:0,
S-Arabíumenn í gær í Asíuriðlin-
um. Sameinuðu arabísku fúrsta-
dæmin eða Kína fara með S-Kóreu
til Italíu.
■ „EFTIR þennan sigur Tékka
liggur leið þeirra til Italíu opin,“
sagði UIi Stielike, þjálfari Sviss,
eftir tapið, 0:3, í Prag. Tékkar
eiga eftir að leika í Portúgal og
hafa efni á því að, tapa með þriggja
marka mun þar.
■ BERTI Vogts, þjálfari v-þýska
21 árs landsliðsins, mun taka við
landsliðsþjálfarastarfi Franz Bec-
kenbauer eftir HM í Italíu.
URSLIT
HM í knattspyrnu
2. RIÐILL:
Pólland - Svíþjóð..................0:2
Peter Larsson (34. vítasp.), Johnny Ekström
(60.)
Áhorfendur: 12.000
Svíþjóð................6 4 2 0 9:3 10
England................6 3 3 0 10:0 9
Pólland...............5. 113 2:7 3
Albanía................5 0 0 5 2:13 0
■ Svíar og Englandingar fara til Ítalíu.
3. RIÐILL:
Tyrkland - Austurríki.............3:0
Dilmen 2 (12., 52.), Ucar (60.)
Áhorfendur: 32.000.
Sovétrikin.............7 3 3 1 9: 4 9
Tyrkland...............7 3 1 3 12: 8 7
A-Þýskaland............7 3 1 3 9:10 7
Austurríki.............7 2 3 2 6:9 7
ísland.................8 1 4 3 6:11 6
Leikir sem eftir eru: Sovétríkin - Tyrk-
land, Austurríki - A-Þýskaland
■Tvö efstu liðin í riðlinum fara til Ítalíu.
7. RIÐILL:
Belgia - Luxemborg.................1:1
Bruno Versavel (85.) - Hellers (88.)
Áhorfendur: 20.000.
Tékkóslóvakía - Sviss..............3:0
Tomas Skuhravy (17.), Michal Bilek (86.),
Lubomir Moravcik (8.)
Áhorfendur: 33.000.
Belgía...............8 4 4 0 14: 4 11
Tékkóslóvakia........7 5 1 1 13: 3 11
Portúgal.............7 4 1 2 11: 8 9
Sviss................7 1 1 5 8:13 3
Luxemborg.............7 0 1 6 2:20 1
Leikir sem eftir eru: Portúgal - Tékkósló-
vakía, Sviss - Luxemborg.
■Tvö efstu liðin komast til Ítalíu.
Asíuriðill:
S-Kórea - Saudi Arabia...............2:0
Hwang Bo Kwan (42.), Hwang Seon Hong
(89.)
Áhorfendur: 11.288
S-Kórea..................4 3 1 0 4:0 7
Sam. arab. furstadæmin..4 1 3 0 3:2 5
Kína.....................4 2 0 2 4:4 4
N-Kórea..................4 1 1 2 2:2 3
Qatar....................4 0 3 1 2:4 3
SaudiArabía..............4 0 2 2 2:5 2
Leikir sem eftir eru: Sameinuðu arabisku
furstadæmin - S-Kórea, S-Arabía - N-
Kórea, Qater - Kína.
■Tvö efstu liðin fara til ftalíu.
Vináttuleikir:
A-Þýskaland - Malta...............4:0
Thomas Doll 2 (11„ 34.), Rico Steinmann
2 (72., vítasp., 85.) Áhorfendur: 4.000.
Ungverjaland - Grikkland..........1:1
Sekeres (47.) - Borobokis (52.)