Morgunblaðið - 14.11.1989, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. NOVEMBER 1989
Að hyg’la „einkalækn-
um“ á kosíuað kvenna
eftirElínu G.
Ólafsdóttur
Læknarnir Árni Ingólfsson,
Eiríkur Benjamínsson og Sighvatur
Snæbjörnsson, fyrir hönd alls 11
lækna, hafa falast eftir því við borg-
aryfirvöld að fá á leigu 1. og 2. hæð
Fæðingarheimilisins við Eiríksgötu.
Þar ætla þeir að vinna læknisverk
sem framkvæma má utan sjúkra-
húsa. Á fyrstu hæðinni hefur til
skamms tíma verið rekin skurðdeild
sem útibu frá Borgarspítalanum og
á 2. hæðinni eru- 18 sjúkrarúm.
Þessi aðstaða hefur verið lokuð frá
því í apríl sl. vegna sérstakra sparn-
aðaraðgerða ríkisstjórnarinnar.
Ef byrjað væri á byijuninni er
sagan of löng tíl að segja í stuttri
grein. Eg ætla því einungis að fjalla
um helstu atriðin.
Óskir kvenna um
fæðingarheimili
. Fæðingarheimilið var sett á lagg-
ir m.a. vegna sérstaks áhuga
kvenna á að komið yrði upp vistlegu
fæðingarheimili sem sniðið væri að
þörfum þeirra sem vænta mættu
eðlilegra fæðinga. Það hefur enda
verið rekið í samræmi við starfsað-
ferðir og umhverfi sem gerir að
verkum að verðandi mæður og feð-
ur hafa átt kost á annars konar
þjónustu en á Landspítala. Þetta
hefur fjöldi kvenna nýtt sér. Heimil-
ið var stofnað 1960 og stækkað
1974. Um 1980 var það aftur
minnkað m.a. vegna fækkandi fæð-
inga í borginni og nágrenni. Árið
1983 var skurðstofan sett á laggir.
Hún var í fyrstu nær eingöngu
nýtt vegna kvensjúkdómalækninga.
Nú síðustu árin hefur hún hins veg-
ar verið nýtt á svipaðan hátt og
„einkalæknarnir" hugsa sér, þ.e.
fyrir ýmsar minniháttar aðgerðir
sem hægt er að gera utan sjúkra-
húsa. Afar brýnt er að hægt sé að
sinna þeim áfram og auk þess má
minna á að fyrirhugað er að færa
fijósemisaðgerðir (glasafijóvgun)
hingað heim. Allt þetta vita téðir
læknar augsýnilega. Árið 1986 var
2. hæðin tekin af Fæðingarheimil-
inu sem sat þá eftir með einungis
10 rúm á 3. hæðinni. Þetta er afar
þröngur kostur og auk þess hefur
borgin látið ýmislegt drabbast niður
innanstokks. Á 1. og 2. hæðinni
hefur hins vegar allt verið endurnýj-
að, málað og snurfusað, en lokað
vegna sparnaðar eins og áður segir
frá því í vor. Ekki er öll sagan sögð
enn því við þetta allt bætist svo að
Fæðingarheimilið hefur um árabil
verið lokað á háanna tímanum, þ.e.
yfir sumarið, eins og fleiri deildir
Borgarspítalans vegna sparnaðar. I
sumar var lokað í 6 vikur. Skilur
þetta einhver?
Jafnvel þótt hægt væri að skilja
er þá hægt að sætta sig við slíka
vanvirðu við konur og börn?
Fæðingum flölgar — rýmið
eykst ekki
Nú er það svo að á sama tíma
og kostur fæðandi kvenna hefur
verið svo mjög þrengdur hefur fæð-
ingum farið fjölgandi, Ijölgað um
32% frá árinu 1986. Á síðasta ári
vom 316 fæðingar á Fæðingar-
heimilinu og 2.800 á Landspítalan-
um. Að áliti þeirra sem best þekkja
til er þessi fjöldi í raun ofviða þess-
um tveimur stofnunum ef fyllsta
öryggis á að vera gætt. Fæðingar-
deildin getur t.d. ekki með góðu
„Ætlum við sem sagt
að skera niður enn frek-
ar en orðið er fyllstu
kröfur um öryggi fæð-
andi kvenna og ný-
fæddra barna?“
móti annað nema um 2.200 fæðing-
um. Mæðraverndinni/barnavernd-
inni megum við heldur ekki gleyma.
Skoðanir og hjartalínurit á með-
göngu hafa aukist svo gífurlega að
á milli áranna 1986-87 var aukn-
ingin um 76%. Er það auðvitað til
hagsbóta fyrir konur og ófædd
börn. Mæðravernd/barnavernd hef-
ur því í raun bæst við án sérstakra
aðgerða, s.s. ijölgunar starfsfólks,
bara bæst si svona ofan á annað.
Hvað eru svo yfirvöld að gera í
málinu á sama tíma? Er verið að
bæta aðstöðuna, íjölga starfsfólki
og rúmum fyrir sængurkonur? Nei,
þvert á móti. Legutími hefur verið
styttur og konum hefur nánast
þurft að moka út af fæðingarstofn-
tPl
Engimglar
Minni
tjara, minna
slit
Gífurlegum fjármunum er árlega
varið I endurbætur og viðgerðir,
því skulum við nýta okkur ónegldu
hjólbarðana og haga akstri eftir
aðstæðum.
GATNAMÁIASTJÚRINN í REYKJAVÍK
EINSTOK HLUNNINDIFARKLUBBSINS
Farkort VISA og FIF er fullkomió greiðslukort og meira til er veitir öll sömu réttindi og almenn greióslukort um allan
heim. Handhöfum Gullkorta VISA veitast sjálfkrofa öll hin sömu réttindi og Forkortiö býður.
rsta ferð farklúbbsins:
I 1
W.FIVJ11 J §} 9$ $ ^i f8 ■ffj í f 11* J
. ’ -i
-
FAHKoar
ESS FULLKOMrO
GH’ctOSLUK C.-RT
OC MEIHA
FRA
KmNClViHW
m
*Tveir fullorðnir og tvö börn yngri en 12 ára pr/mann. • Tveir fullorðnir í íbúð kr. 36.930,- pr/mann.
Farklúbbur Félags ísl. feróaskrifstofa, FÍF, býður meðlimum
farklúbbsins í sína fyrstu ferð til Orlando Flórída í 8 daga.
# #•
8 DAGAI
L
FLU6 & GISTING
Brottför verður 25. nóvember og komið til baka 3. desember.
Gist verður ó glæsilegu hóteli „The Floridan of Orlando".
Neðangreindar ferðaskrifstofur taka við pöntunum.
ATH: Helmingur verðsins greiðist með FARKORTI eða GULLKORTI VISA.
‘t
hvortferðíriamu
anka eða sparisjóð eftir
ORTI sé ekkiferð
borgarsig.
Fullkomið greiðslukort og meira til
FERÐASKRIFSTOFUR: ★ Farandi hf. ★ Ferðamiðstöð Austurlands hf. ★ Ferðamiðstöðin Veröld. ★Ferðaskrifstofan Pólaris. ★ Ferðaskrifstofa Akureyrarhf. ★ Ferðaskrifstofa FÍB
★ Ferðaskrifst ofan Alís hf. ★ Ferðaskrifstofan Atlantik hf. ★ Ferðaskrifstofan Saga hf. ★ Ferðaskrifstofan Samvinnuferðir-Landsýn hf. ★ Ferðaskrifstofan Úrvalhf., Útsýn hf. og
ÚlfarJacobsen hf. ★ Ferðaskrifstofa Reykjavíkurhf. ★ Ferðaskrifstofa stúdenta ★ Ferðaval ★ GuðmundurJónasson hf. ★ Land og Saga hf. ★ Ratvíshf. ★ Ferðaþjónusta Flugleiða