Morgunblaðið - 14.11.1989, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1989
27
Reuter
Kálkaupmaður hallar sér upp að birgðunum.
Allir kaupi „föð-
urlandskálið44
Peking. Reuter.
Stjórnvöld í Kína hafa skorað á íbúa Pekingborgar að sýna
fóðurlandsástina í verki með því að kaupa upp gífurlegar birgðir
af káli, sem tekið er að rotna í ríkisverslunum.
Vegna þess hve uppskeran var
góð að þessu sinni situr ríkið uppi
með einhver ókjör af káli en of-
framboðið er einnig skrifað á
reikning áætlanasmiðanna. Ríkið
er þegar búið að borga fyrir fram-
leiðsluna, sem síðan er seld á nið-
ursettu verði, og því ekki að undra
þótt það vilji fá eitthvað til baka.
Þess vegna hafa allir þjóðhollir
menn verið hvattir lögeggjan til
að kaupa „föðurlandskálið" eins
og gárungarnir kalla það.
„Ég mun aldrei geta selt allt
þetta kál,“ sagði afgreiðslustúlka
í einni ríkisverslananna og eftir
öðrum er haft, að ríkisstjórnin
reyni að draga úr fyrirsjáaniegu
tapi af kálkaupunum með því að
neyða ríkisfyrirtæki og ráðuneyti
til að kaupa kál.
„í minni deild urðu allir að
kaupa 100 pund af káii,“ sagði
einn ríkisstarfsmaðurinn, „og ég
veit ekkert hvað ég á að gera við
það.“
fS\rn / •■unrjiu.T
Sovetnkin:
Sérfræðing'ar á fiindi
hrörnun eftiahagslífsins
Moskvu. Reuter.
HELSTU efnahagssérfræðingar í Sovétríkjunum koma saman nú í vik-
unni til að ræða ástæður þess, að umbætur síðustu fjögurra ára hafa
litlu sem engu fengið áorkað í því að auka framleiðslu og vöruúrval.
Ætla þeir að ræða um hvað sé til ráða en sovéskur almenningur verð-
ur sífellt óánægðari með ástandið og versnandi lífskjör.
Leoníd Abalkín, aðstoðarforsætis-
ráðherra og helsti ráðgjafi Míkhaíls
Gorbatsjovs forseta, mun stjórna
fundinum en þar verður rætt um
áætlanir um aukinn markaðsbúskap
og minni verðhömlur samtímis því,
að ríkið tryggi velferð þegnanna. Er
búist við, að flestir vilji fara bil
beggja, auka fijálsræðið í ýmsum
greinum en viðhalda miðstýringu í
öðrum.
Iðnframleiðsla í Sovétríkjunum
einkennist af stöðnun, útflutningur
hefur dregist saman og vegna þess
að skortur er á öllum neysluvarningi
bólgna sparireikningar almennings
út í bönkunum. Tölur, sem birtar
. voru í síðasta mánuði, um efnahags-
starfsemina á fyrstu níu mánuðum
ársins, benda til, að um raunverulegt
neyðarástand sé að ræða. Innflutn-
ingur hefur aukist tíu sinnum meira
en útflutningur og horfir nú þannig,
að vöruskiptajöfnuðurinn verði óhag-
stæður í fyrsta sinn frá árinu 1976.
Abalkín sagði í viðtali við
Prövdu,málgagn kommúnistaflokks-
ins, á laugardag, að bæta yrði úr
vöruskortinum strax á næsta ári til
að koma í veg fyrir, að afturhaldið
næði undirtökunum með allri þeirri
miðstýringu, sem því fylgdi. „Þá yrði
freistandi að hverfa aftur til tilskip-
anakerfisins en það breytti engu um
efnahagsástandið. Með því yrði
bundinn endi á allar umbætur,“ sagði
Abalkín.
Abalkín virðist þó vilja fara hægt
í sakirnar til að hlífa almenningi við
of miklum umskiptum en róttækasti
umbótamaðurinn, Vasílíj Seljúnín,
segir í síðasta tölublaði af mánaðar-
ritinu Novíj Mír, að talsmenn örra
umbóta muni beijast fyrir allsheijar-
breytingu.
„Síðustu fjögur ár hafa sýnt okk-
ur, að það er ekki hægt að hafa
tvennt í huga samtímis — að upp-
fylla áætlunina og koma á efnahags-
legum umbótum. „Perestrojkunni"
er ekki um að kenna hvernig komið
er í efnahagsmálunum, heldur þvf,
að umbætumar hafa verið dregnar
á langinn," sagði Seljúnín.
Portugal
bíður þínumjólin.
Kúmdumeð
Evrópuferðir
Klapparstíg 25,
símar628181 og 27830.
Bifreiðin hefur verið sýningarbíll Glóbus
hf., Saab umboðsins, og er búin öllum
hugsanlegum aukabúnaði, sem hægt er
að fá frá Sáab.
fifff M TAID/1
DlL/l I C/flCÍ
BETRIBÍLASALA
Verð kr. 1.550.000.-
NÓATÚN 2 -SfMI 621033
Bókmenntakvöld Máls
Unnur Jökulsdóttir og
Þorbjörn Magnússon
Kristín Ómarsdóttir
Sjón
Sigfús Bjartmarsson
Björn Th. Bjömsson
Nýjar jólabœkur á þriðjudags-
kvöld á Borginni. Fráb/ert
tækif/eri til að heyra höfundana
lesa sjálfa. Allir velkomnir -
aðgangur ókeypis.
Dagur
Ingibjörg Haraldsdóttir
Thor Vilhjálmsson
Einar Kárason
Stefán Hörður Grímsson
Gyrðir Elíasson
Mál og menning bjður til bók-
menntakvölds þriðjudaginn
14. nóvember klukkan 2100 á
Hótel Borg, til að kynna nýjar
útgáfubcekur sínar fyrir þessi
jól. Eftirfarandi höfundar munu
lesa úr frumsömdum verkum:
og menmng