Morgunblaðið - 14.11.1989, Blaðsíða 48
Sfc
ÉÖWgÚJÍÍBLAÐÍÐ ÞtóÐllÖÖACí/RíkÍ. NÖVEMBER 1989
fclk í
fréttum
NÁMSKEIÐ
Trillukarlar taka
pungapróf
E llefu trillukartar í Vogum og af Vatnsleysu-
strönd sækja námskeiði í Vogum sem veitir rétt-
indi til skipstjórnar á 30 tonna bátum, svo kallað
pungapróf.
Eiríkur Sigurgeirsson kennari á námskeiðinu
segir að á námskeiðinu sé farið yfir námsefni sem
veiti réttindi til skipstjórnar á 30 tonna bátum,
og eftir að hafa stundað siglingar í 18 mánuði
geti menn orðið skipstjórar. Meðal þess sem farið
er í á námskeiðinu eru siglingareglur stöðugleiki
skipa og undirstöðu atriði í tækjum og öryggis-
mál þar sem meðal annars eru námskeið í eldvörn-
um og skyndihjálp.
Eiríkur sagði að námskeiðið væri haldið að
frumkvæði Félags smábátaeigenda í Vogum og
kvaðst hann ekki vita til að námskeið af þessu
tagi hafði áður verið haldið að frumkvæði slíks
félagsskapar. Hins vegar vissi hann til að aðilar
annars staðar væru að fara af stað með svona
námskeið.
Bjarni Ólafsson einn af þátttakendum á nám-
skeiðinu sagði að markmiðið með því væri að fá
lágmarkskunnáttu til að stjórna litlum bátum, en
það væri allt of algengt að menn væru á litlum
bátum og hefðu allt of litla þekkingu á því-sem
þeir væru með í höndunum.
- EG
ROKK
Toppar tveggja kynslóða
hylltir af tugþúsundum
H inir síungu kappar í hljómsveitinni Rolling
Stones eru að fylgja eftir nýrri breiðskífu um
þessar mundir og þykja þeir nú sýna og sanna
að jafn vel fimmtugir karlar geta spilað hörkurokk
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
Hluti þátttakenda á námskeiðinu, ásamt Eirík Sigur-
geirssyni kennara.
af bestu gerð. Alls staðar er húsfyllir og skipta
hjarðir áheyrenda oft tugþúsundum í einu þar sem
kempurnar spila. Þeir hafa engu gleymt, Jagger
spriklar á sviðinu eins og áll, Watts sýnir engin
tilþrif eða svipbrigði að vanda og gítarleikararnir
þrír Wood, Richards og Wyman eru traustir sem
fyrr. Þetta eru ekki snillingar á hljóðfæri, en tón-
listin hnitmiðuð og pottþétt.
Einna síðast voru þeir í Los Angeles og eigi
færri en 75.000 manns komu á alls ferna hljóm-
leika. Meðal þeirra voru heimsfrægar stjörnur úr
heimi kvikmyndanna og má nefna nána vini sumra
sveitarmeðlima eins og Meryl Streep, Barbra
Streisand, Bruce Springsteen, Madonnu, Warren
Beatty, Michel Pfeiffer, Anjelica Huston, David
Bowie, Priscilla Presley og fleiri. Þá hefur það
ekki dregið úr aðsókninni, að upphitunarhljóm-
sveit Stones hefur verið ung en kynngimögnuð
þungarokksveit, Guns n’ Roses, en hún nýturnú
einnar mestrar hylli hinna yngri rokksveita. Segir
það mikið um sess Rollinganna að sú besta úr
yngri geiranum skuli hita upp fyrir gömlu menn-
ina. Enda var haft eftir einum nærstöddum, að í
þessu tilviki væri fræga fólkið ekki að mæta til
þess að sýna sig og sjá aðra, það væri komið til
að hlýða á þá bestu ...
Að hljómleikum loknum var efht til hófs. Hér er Mick Jagger og eru þarna auk hans m.a. Barbra
Streisand, Meryl Streep og Jerry Hall. Á innfelldu myndinni eru Rollingarnir Watts, Richards og Jagg-
er ásamt fjórum kempum úr Guns n’ Roses.
FLYGLAR
Vorum að fá sendingu af hinum rómuðu YOUNG CHANG
flyglum. Hverjum flygli fylgir 10 ára ábyrgð, og við
bjóðum mjög hagstæða afborgunarskilmála,
til allt að 2 ára.
Verð frá krónum 356.000.-
HLJÓDFÆRAVERSLUN ^
PÁLMARS ÁRNA HF
ÁRMÚLI38,108 REYKJAVÍK, SÍMI91 -32845
JAPIS AKUREYRI
SKIPAGATA1 - SÍMI 96-25611